Vísir - 19.01.1978, Page 2
— Kostnaður
áœtlaður um
400 milljónir
króna
í tillögum nefndarinnar kemur fram,að hægt væri að standa undir kostnaðí
við rekstur safnsins, með þvi að selja t.d. litlar hvalategundir úr landi.
Myndin er tekin i Sædýrasafninu.
,,Sú nefnd sem Mennta-
málaráðuneytið skipaði
um mitt árið 1976, til að
kanna byggingarf yrir-
komulag, kostnað og
staðsetningu á Fiska-
safni, hef ur nú skilað áliti
sinu", sagði Sólmundur
Einarsson fiskifræðingur
i símtali við Vísi. Hann
situr í nefndinni fyrir
Haf rannsóknarstofnun.
Aðrir í henni eru: Sigurð-
ur St. Helgason lífeðlis-
fræðingur fyrir Háskóla
Islands, Gunnar Kr.
Jónsson frá Sædýrasafn-
inu, Gunnlaugur Sig-
mundsson frá Fjármála-
ráðuneytinu og Steinunn
Lárusdóttir frá Sjávarút-
vegsráðuneytinu.
,,Við gerum ráð fyrir að
kosl.naður við fiskasafn sé nú
um 400 milljónir króna. Stað-
setningin er háð þvi að hægt sé
að fá upp sjó úr borholum og þvi
er svæðið frá Hafnarfirði og út
Reykjanesið best til fallið. Eins
komu Vestmannaeyjar til
greina, en við töldum að fyrr-
nefndu staðirnir skyldu fremur
valdir, vegna nálægðar við þétt-
býli,” sagði Sólmundur.
Ef talað er um kostnaðarhlið-
ina, sagði Sólmundur að gert
væri ráð fyrir að hægt væri að fá
töluvert upp i rekstrarkostnað,
ef safnið gæti selt út lifandi
sjávardýr til útlanda. Ekki væri
gert ráð fyrir að aðgangseyrir
stæði undir rekstrinum.
,,Það er nauðsynlegt fvrir
okkur, sem byggjum allt okkar
á sjónum að hafa svona safn.
Það er gert ráð fyrir að það sé
notað i þrennum tilgangi. 1
fyrsta lagi er það notað við
rannsóknir t.d. á atferli dýr-
anna, veiðarfærum klaki og
hvernig þessi dýr lifa við sem
eðlilegastar aðstæður. I öðru
lagi verður safnið notað sem
nokkurs konar kennslustofnun
fyrir skóla og þá nemendur á
flestum skólastigum. í þriðja
lagi gerum við svo ráð fyrir þvi
að safnið verði notað til sýn-
inga,” sagði Sólmundur. _j^p
Magnús Sigtryggsson, verslunar-
stjóri: Nei, alls ekki. Ég kaupr
jurtasmjör áfram. Fólk á ekki að
kaupa smjör þó að það lækki ein-®
hvern stuttan tima.
VlfiU Búason, bóndi: Nei, nei,
smjör er svo ódýr og góð vara ogJ
við kaupum hana eftir þörfum.
Sjálfsagt verður lækkunin til þesai
að við kaupum eitthvað meira en
áður. Mér finnst þaö miklu betr®
að lækka verðið innanlands en
flytja vöruna út niðurgrein'd:;. I
Þóra Geirsdóttir, verkakona||
Nei, ekki geri ég ráö fyrir þvi. Við
höfum alltaf keypt smjör. Nei, éfe
efast um það að ég fari að
hamstra. B
ÞORARINN HLEDRÆGASTUR I PROFKJÖRI
Miklar hræringar eru i Fram-
sóknarfiokknum i Reykjavik
vegna prófkjöranna sem fram
fara bæöi vegna þingframboðs
og borgarstjórnarfrainboðs um
helgina. Kandidatar hafa opnað
skrifstofur og vinna ötullega að
eigin kjöri, fundahöld eru tiö og
hringingar miklar og verður
ekki á þessari stundu séð hver
er sigurstranglegastur. Tveir
iþróttafrömuðir þeir Jón Aðal-
steinsson, kaupmaður i Sport-
ver og Alfreð Þorsteinsson
framkvæmdastjóri hafa lcitað
stuönings innan þeirra félaga-
samtaka iþrótta sem þeir hafa
unnið fyrir en aðrir sem ekki
hafa til neinna slikra hópa að
leita rótast i flokksmönnum.
Þó er einn frambjóðenda við
prófkjör til þingkosninganna al-
veg laus við fyrirhafnarmikinn
undirbúning. Það er Þórarinn
Þórarinsson ritstjóri Timans og
formaður þingflokks Frani-
sóknar. Hann hefur ekki komið
upp neinni skrifstofu og virðist
ekki hafa neinn áróður i frantmi
svo þeir sem við hann keppa
telja sig hafa i fullu tré við hann
um sæti á þinglistanum.
Innan Framsóknarflokksins
nýtur Þórarinn eðlilega mikils
álits sem stjórnmálamaður.
Hann hefur nú haft stjórn þing-
flokksins á hendi um árabil og
hefur vcrið sá af þingmönnun-
um sem hefur haft cinna mest
með stefnumótun flokksins að
gera bæði i hlaði flokksins og á
þingi. í landhelgismálinu má
segja að hann hafi frá upphafi
útfærslanna I tið fyrri vinstri
stjórnarinnar verið einn helsti
hugmyndasmiður flokksins á
þeim vettvangi og getur hann
þvi þakkað sér árangurinn i þvi
máli ekki siður en hver annar af
þeim þingmönnum sem falið
var sérstaklega að hafa dagleg-
an framgang þess á hendi. Þá er
Þórarinn seigur baráttumaður
enda hefur honum vcrið teflt
frarn af flokknunt sem tals-
manni hans i þrætumálum
ýmiskonar.
Nú er ltins vegar svo komið að
engu er likara en Þórarinn
veigri sér við að taka þátt I þvi
sjónarspili, sent flokksbræður
ltans hafa kontið á fót fyrir próf-
kjörið. Þeir sem gerst vita um
þýðingu Þórarins fyrir flokkinn
hafa að visu tekið eitthvert við-
bragð og hnippt i granna og
kunningja en þær athafnir eru
ekkert á móti þvi skipulega
starfi sent keppinautar hans unt
fyrsta sætið á listanum hafa I
frantmi þessa dagana. t raun-
inni munu þeir vera þrir sem
sækjast eftir fyrsta sætinu á
Þorarinn Þorarinsson
þinglistanum: Einar Agústsson
sem vann það sæti i tveimur
siðustu prófkjörum en gaf þau
eftir, Guðmundur G. Þórarins-
son sem hefur sér til stuðnings
ákveðnar hugmyndir núverandi
flokksformanns um hann sem
arftaka sinn, og Jón Aðalsteinn,
kaupmaður og iþróttafrömuður.
Þessir þrir menn eru með um-
fangsmikinn undirbúning fyrir
prófkjörið og ætla sér stóra
hluti. Auðvitað er slikt ekkert
tiltökumál a.m.k. ekki hvað
Einar Agústsson utanrikis-
ráðherra snertir sem vill nú
vinna fyrsta sætið upp á það að
sitja i þvi þegar til þingfram-
boðs keniur.
En þeir sem best þekkja til
stjórnmálastarfsins innan
Framsóknarflokksins hafa
óneitanlega nokkrar áhyggjur
af Þórarni Þórarinssyni. Falli
hánn i prófkjörinu sjá þeir að
skarð hans verður ekki fyllt að
sinni. Auk þess benda þeir á að
prófkjör sé annað en kosningar
til þings. Prófkjörin hafa ýmsa
annmarka og m.a. þann að and-
stæðingar flokks geta haft áhrif
á framboð með afskiptum af
prófkjöri. Slik utanflokksaf-
skipti munu ekki koma Þórarni
til góða enda er verra að eiga
við hann i kosningaslag en t.d.
frambjóðendur sem mættu til
leiksins með allt niður um sig i
pólitiskum skilningi.
Svarthöfði
Fimmtudagur 19. janúar 1978 VISIR
Soffia Kristjánsdóttir, nemi:
Vafalaust ekki. Ég hef alltaf
keypt smjör. Nei, ég hugsa að ég
birgi mig ekki upp af smjöri
Kolbrún Sigfúsdóttir húsmóðir:
Já, það gæti gertþaö. Éghef ekkL
keypt smjör hingað til en ég*
hugsa að ég kaupi það núna.
Ilefur lækkun smjör-
verðs einhver áhrif á
innkaup þin?
H
y
í Reykjavík
r