Vísir - 19.01.1978, Blaðsíða 5
VISIR Fimmtudagur 19. janúar 1978
CARTíR OG VANCt RtYNA
AÐ MILDA SADAT FORStTA
sem kallaði fulltrúa sína heim
frá viðrœðunum í Jerúsalem
Sadat forseti og Begin forsætisráöherra takast í hendur (á flugveilinum i Tel
Aviv), en vináttan virðist ekki ætla að haldast lengi. Sadat hefur kallað samninga-
menn sína heim.
Moshe Dayan, utan-
rikisráðherra tsraels,
reyndi i morgun að sefa
reiði Egypta, sem kallað
hafa heim samninga-
nefnd sina frá Jerúsa-
lem og hætt viðræðum
við ísrael i bili.
Atti Dayan langt viðtal við hinn
egypska starfsbróður sinn, Mo-
hammed Kamel, áður en hinn
siðar nefndi hélt til Kairó i
morgun i flugvél með öðrum
samninganefndarmönnum.
„Mér þykir leitt að sjá þá fara,
þvi að okkur hafði tekist að skapa
gott andrúmsloft á samninga-
fundunum og mér hafði sýnst, að
grundvöllur væri fundinn til að
semja um einstök atriði. Ég er
samt vongóður um, að leið finnist
til þess að halda samninga-
viðræðunum áfram,” sagði Day-
an i morgun.
Sadat, Egyptalandsforseti,
kallaði i gærkvöldi samninga-
nefndina heim og aflýsti fundi
varnarmálaráðherranna, sem
halda átti næsta laugardag. —
„Þeir vilja ekki frið, þeir vilja
landsvæði,” sagði hann við Cyrus
Vance, utanrikisráðherra Banda-
rikjanna, sem staddur er i
Jerúsalem og tekur virkan þátt I
sáttaumleitunum.
Egyptar vitnuðu i fyrri yfir-
lýsingar Dayans og Menachem
Begins, forsætisráðherra, til
skýringar á viðræðuslitunum. —
Rétt áður en viðræðurnar hófust
hafði Dayan sagt, að Egyptum
þýddi ekki að reyna að neyöa
Israela til samninga með byssu
við höfuðið. Betra væri að láta
þessar friðartilraunir renna út i
sandinn, en láta tilveru Israels
renna út i sandinn. — Begin hafði
og hneykslað egypska gesti sina i
kvöldverðarboði á þriðjudag,
þegar hann sagði, að afturhvarf
til israelsku landamæranna, eins
og þau voru fyrir striðið 1967 gæti
aldrei leitt til friðar, en það er
einmitt meginkrafa Sadats for-
seta.
Ollum kom þessi ákvörðun Sad-
ats forseta i gærkvöldi mjög á
óvart. Kom hún jafnflatt upp á
landa hans, er staddir voru i
Jerúsalem, sem aðra.
Fyrir tilmæli Carters Banda-
rikjaforseta hætti Sadat forseti
við að aflýsa fundi varnarmála-
ráðherranna á laugardaginn, ef
Israelsmenn fengjust til þess að
taka upp liölegri afstöðu.
Ákveðið hefur verið, að Cyrus
Vance fari til Kairó á morgun til
þess að milda Sadat. Segjast
Egyptar binda helstu vonir sinar
um framhald friðarviðræðnanna
við milligöngu Bandarikjastjórn-
ar, ef henni takist að telja Israels-
stjórn hughvarf.
Gyðingar
hóta að
hleypa upp
Óskars-
athöfninni
Samtök Gyöinga i Los
Angeles hótuðu i gær mót-
mælaaögeröum viö af-
hendingarathöfn óskarsverö-
launanna, ef bresku leikkon-
unni Vanessu Redgrave yröu
veitt kvikmyndaverölaunin.
Hún er meöal þeirra sem út-
nefndir hafa veriö til
verðlauna fyrir aukahlutverk
og er þaö vegna leiks hennar i
„Júliu”. Sú kvikmynd fjallar
um hörmungar Gyðinga i
Þýskalandi á fyrstu valdaár-
um Hitlers.
En Gyðingar geta ekki
fyrirgefið henni, aö hún fjár-
magnaöi og aðstoöaöi við gerö
kvikmyndar til stuðnings við
málstað Palestinuaraba. Var
það heimildamynd sem hét
„Palestinuarabainn”.
Verðlaunaveitingin verður
21. febrúar.
GLÍMA VIÐ ÓHUGN-
ANLtGA MORÐGÁTU
Scotkmd Yard hefvr fundið þrjú
kk, leilar tveggja til viðbótar og
kvíðir því að fíeiri leynist falin
Umfangsmikil morð-
rannsókn stendur nú
yfir i Bretlandi, þar
sem lögreglan hefur
fundið þrjú lik fórnar-
lamba morðingjans,
leitar tveggja til við-
bótar, en óttast að fleiri
eigi eftir að koma i
leitirnar.
Fórnardýrin hafa fundist á
mismunandi stöðum i Skotlandi.
Það siðasta, sem fannst, var
Walter Scott-Elliot, fyrrum
þingmaður Verkamannaflokks-
ins. Lik hans hafði verið falið i
skógi i Glen Affric i Inverness-
hire.
260 km sunnar, við Braco i
West-Pertshire, vinnur lögregl-
an að þvi að grafa upp snævi-
þakinn kartöflugarð i leit að
eiginkonu Scott-Elliot, Dorothy
(60 ára).
Þau hjónin hurfu, eftir að rán
var framið i ibúð jieirra i Lon-
don 13. desember. Tæpum tveim
vikum siðar fannst fyrsta likið i
Dumfriesshire i Skotlandi, rétt
norðan við skil Englands og
Skotlands. Var þaö af konu,
Mary Coggle að nafni, sem lög-
reglan telur, að hafi búið um
tima með Donald Hall, sem er
bróðir fyrrverandi þjóns þeirra
Scott-Elliothjóna. Lik konunnar
fannst i læk.
A mánudaginn fann lögreglan
likið af Donald Hall i farang-
ursgeymslu bifreiðar, sem
skilin hafði verið eftir við hótel i
North Berwick. Hótelstjórinn
hafði visað lögreglunni á bilinn,
eftir að hann fékk illan bifur á
tveim mönnum, sem gistu þar
um nótt. Lik Halls var nakið og
plastpoki bundinn yfir höfuö
honum.
Þaö var þá fyrst, að ljós rann
upp fyrir lögreglunni og hún
setti þessi morð hvert i sam-
band við annað. — Donald Hall
hafði setið I fangelsi i Englandi,
en verið látinn laus tveim dög-
um áöur en hann fannst myrtur.
Vegna upplýsinga, sem lög-
reglunni hafa borist, er einnig
leitað að liki garðyrkjumanns,
sem vann á sveitasetri i Dum-
friesshire og hvarf.
Lögreglan hefur tvo menn i
haldi og yfirheyrslum vegna
þessa mál. Annar þeirra er
þjónninn, sem starfaði hjá þing-
manninum.
FLUGR/tNINGJAR
ÁLBÐTILKÚBU
Farþegavél i innan-
landsflugi i Equador var
rænt i nótt með 60 far-
þegum innanborðs og 5
rnanna áhöfn. Flug-
ræningjarnir tveir
neyddu flugstjórann til
þess að fljúga áleiðis til
Kúbu.
Vélin var á leið til Quito til
Guayaquil og tóku ræningjarnir
stjórnina i sinar hendur skömmu
eftir flugtak i Quito. Eftir við-
komu i Guayaquil leyfðu
ræningjarnir konum og börnum
að yfirgefa vélina, öllum nema
flugfreyjunum tveim.
Aftur hafði svo Caravelle-þotan
viðkomu i Panama, áður en hún
tók stefnuna til Kúbu, og bætti þar
á sig eldsneyti.
Þetta eru fyrstu flug-
ræningjarnir i langan tima, sem
hafa það að takmarki að komast
til Kúbu. Þegar flugrán hófust,
voru það einkum öfgamenn i
Bandarikjunum, sem rændu
innanlandsflugvélum og leituðu
hælis sem pólitiskir flóttamenn á
Kúbu. En það lagðist af, þegar
Castro, forseti Kúbu, gerði sam-
komulag við Bandarikjastjórn
um gagnkvæm skipti á flug-
ræningjum og öðrum hryðju-
verkamönnum.
NÝR YFIR-
MAÐUR FBI
Carter forseti mun i
dag tilnefna dómara frá
St. Louis sem yfirmann
FBI, alrikislögreglu
Bandarikjanna, og leysa
af hólmi Clarence Kell-
ey, sem gegnt hefur þvi
embætti til bráðabirgða.
William Webster (repúblikani)
hefur verið dómari við áfrýjunar-
réttinn i St. Louis. Hann var tek-
inn fram yfir Frank McGarr,
dómara frá Chicagó, en þeir tveir
þóttu einna helst koma til greina
til starfsins. — Tilnefningin verð-
ur borin undir öldungadeildina,
sem verður að samþykkja emb-
ættisveitinguna til þess aö hún
taki gildi.
Kelley var veitt embættið 1973
til tiu ára, en ákvað aö draga sig i
hlé vegna deilu, sem spratt upp,
þegar uppvist varð, að hann hafði
notað starfsmenn FBI til þess aö
vinna að smiðastörfum á heimili
sinu. Sömuleiðis hafði hann þegið
gjafir starfsmanna sinna.