Vísir - 19.01.1978, Blaðsíða 7
VTSIR Fimmtudagur 19. janúar 1978
7
■N
Lagði vörubílnum
í kalda landinu
og flaug heim
í hlýjuna!
Q
msjón: Edda
Andrésdóttir *
y——
Loks var sló6in rakin til Par-
isar. 1 pappirum fannst aö bill-
inn hafði komið viö i Helsingja-
borg og losað vörur i Stokk-
hólmi. Siðan átti hann að fara
tómurlengra inn i kuldann til að
ná i vörur sem áttu að fara til
Parisar.
Vörubílstjóranum var kált og hann var orðinn fokvondur.
Hann skildi þvi bilinn eftir og héit af stað gangandi.
Það fauk heiftarlega i
skapmikinn Frakka sem
var á ferðinni um Svíþjóð
fyrir nokkrum dögum.
Honum ofbauð kuldinn í
þessu norðlæga landi og
bölvaði honum í sand og
ösku á meðan hann ók
vöruf lutningabíl sínum
áfram lengra og lengra
inn kuldann.
Hitastigið var i kringum
frostmark og það var miklu
kaldara en Frakkinn sætti sig
við. Vélin i vörubilnum var farin
að hósta og sjálfsagt hann sjálf-
ur lika. Ög rétt hjá Arlanda
hafði hann fengið nóg.
Hann lagði bilnum, skildi ljós-
in eftir á og lykilinn fékk að vesa
i. Siðan steig hann út úr bilnum
bretti upp i háls og þrammaði
i átt að Arlanda flugvellinum.
Þar keypti hann sér miða með
næstu ferð og flaug til konunnar
sinnar i Paris og yfirgaf þetta
ömurlega land að þvi er honum
fannst.
Hvað svo?
Jú, billinn var áfram á sinum
stað. Stuttu siðar ók lögreglubill
framhjá. Lögreglumennirnir
sáu að bilstjórinn var ekki i
bilnum en giskuðu á að hann
hefði aðeins brugðið sér frá.
Næsta kvöld fóru rannsóknar-
lögreglumenn framhjá. Sama
sagan, billinn var þar enn, ljósin
á, lykillinn i en bilstjórinn
hvergi.
Þetta leit út fyrir að vera
meira en litið grunsamlegt. Var
,og tók fyrstu vél heim i hiýjuna hjá kerlu sinni i Parfs.
þetta kannski eitthvað i sam-
bandi við fikniefnasmygl? Hafði
bilstjóranum verið rænt? Lög-
reglumenn og hudnar komu á
staðinn og það var farið að leita,
en hvergi fannst bilstjórinn.
Vöruflutningabillinn var
færður, nákvæm leit hófst i hon-
um. Hundarnir þefuðu en fundu
ekkert athugavert. Allir pappir-
ar sem áttu að vera i bilnum
voru á sinum stað og allt virtist
vera i lagi. En ekkert gaf vis-
bendingu um það hver hafði ek-
ið.
Slóðin rakin til Parisar
Það eina sem lá ljóst fyrir,
var að vörubillinn hafði fundist
á þjóðveginum. En hvernig
komsthann þangað? Hafðihann
flogiö eða hvaö?
En skýringin barst svo frá
lögreglunni i Parls. Bilstjórinn
var i góðu yfirlæti hjá konu og
börnum á heimili sinu i Paris
þegar hann fannst. Með miklu
handapati og stóryrðum lýsti
hann þvi fyrir frönsku lögregl-
unni, hverskonar land Svibióð
væri, kalt, dimmt, nöturlegt og
andstyggilegt.
1 reiði sinni vegna vélarbilun-
-ar og kuldans yfirgaf hann bil-
inn og hélt heim á leið. Auk þess
kærði hann sig ekkert um meiri
kulda og þar að auki snjó. Hann
lók hafurtaskið sitt og flaug
heim i hlýjuna hjá konu sinni.
Siðast þegar fréttist af vöru-
bilnum var hann á leið á á-
fangastað. Bflstjórinn var
sænskur og þvi vanari snjó og
kulda en sá franski. —EA
Fimmtugsofmœli 007 í Afríku
Roger Moore með Mary McLaglen.
Þaö var haldið hörku partý I
miðri Afriku fyrir stuttu. Það
var enginn annar en 007 sem átti
fimmtugs-afmæli og þótti þvi
tilhlýöilegt að halda rækilega
upp á það. Meðai gesta voru
ekki óþekktari hjónakorn en
Richard Burton og kona hans
Susy, svo einhverjir séu nefndir.
Roger Moore er um þessar
mundir að leika i kvikmynd sem
heitir „The Wild Geese” sem
tekin er aö miklu leyti i Afriku.
Framleiðandinn, Euan Lloyd
ákvað að koma stjörnunni á
óvart og stóð fyrir þvi aö sam-
kvæmið yrði haldið. Það var
greinilega vel þegið og var
bumpað þangað til klukkan var
farin að ganga fimm um
morgun næsta dags.
Moore reyndi sig auðvitað i
bumpinu með Mary McLaglen,
Burton var hinn hressasti og
skellti sér I dansinn.
dóttur leikstjórans Andrew Mc-
Laglen, en annars eyddi hann
mestu af kvöldinu i dans með
konu sinni Luisu. —ES
Afmæliskoss frá eiginkonunni
Luisu.
SAAERGEL
Verö kr. 19.310.-:__
Þ
PDRF
SlMI 81500•ARMÚLA11
Afgreiðum
ím. V3-T37Q
kvöld og hclgarrim.
HUSBYGGJENDUR
Einanpnarplast
Stór-Reykjavíkursvæðið frá
mánucfegi - föstudags.
Afhendum vöruna á byggingsr-
stað, viðskiptamönnum
að kostnaðarlausu.
Hagkvæmt verð
og greiðsluskilmálar
við flestra hæfi.
Féiagsprentsmiðjunnar hf.
Spítalastíg 10 - Sími 11640
ÍSLENSK FVRIRTÆKI er
útbreiddasta fyrirtækjaskrá
landsins, innanlands og utan.
Hún er notuð af stjórnendum og
starfsmönnum fyrirtækja og
öðrum sem þurfa að hafa
aðgang að ítarlegum og
aðgengilegum upplýsingum
þegar þess gerist þörf.
Sláið upp í
(SLENSK FYRIRTÆKI
og finnið svarið.
ÍSLENSK
FYRIRTÆKI
Ármúla 18.
Símar 82300 og 82302
Útbreiddasta
uppsláttar-
bókin