Vísir - 08.04.1978, Blaðsíða 16

Vísir - 08.04.1978, Blaðsíða 16
16 Laugardagur 8. aprll 1978 vism vism Laugardagur 8. april 1978 17 Hvaó taka leikarar til bragðs þegar þeir þurfa aðkyssast i Otvarpsleikritum? Kyssast þeir bara blátt áfram, eða beita þeir hlustendur brögðum? ,,Það er ósköp einfalt", hófst svarið sem við fengum við þessari spurningu. ,,Þeir kyssa á handabökin á sjálfum sér og gera það með mik illi tilfinningu". Það verður þá ekki annað sagt en þeim takist mörgum hverjum ári vel upp við handabök sin, á stundum þegar við höfum ímyndað okkur þá i heitum innilegum faðmlögum. En sá sem upp lýsti okkur um þetta er einn af tæknimönnum Ut- varpsins, Friðrik Stefánsson. Við heimsóttum hann og Guðlaug Guðjónsson tæknimann í studio 2 — leikritastúdíóinu á sjöttu hæö útvarpshússins og töfðum þá stund úr degi. Erindið var að forvitnast um ,,effekta" svokallaða, sem við á islenskunni köllum leik- hljoð I stórum gráum skáp......... A ganginum viö stúdióiö er stór og mikill skápur. Inni i þessum skáp eru hljóö af öllum geröum. Hvorki meira né minna en átta þúsund „effektar”, sagöi Friörik Og af þeim átta þúsund leikhljóö- um sem safniö geymir er talsvert af „islenskum hljóöum”. Þaö eru þau hljóö sem tæknimenn út- varpsins hafa útbúiö sjálfir, og þau eru um þúsund talsins. ítnast leikhl|óðasaffn Útvarpsins okkur, en hann hefur umsjón meö þessu sérstaka safni. „Effektarnir” eöa leikhljóöin koma úr ýmsum áttum, aöallega þó frá Bandarikjunum og BBC en gott safn fuglahljóöa kom frá Sviþjóö. Og þeir eru ekki margir fuglarnirsem gefa frá sér hljbö á annaö borö og ekki eru til i þvi safni. Plöturnar sem geyma fugla- hljóöin eru þrjátiu og fjórar að tölu og á hverri eru tiu til tólf mis- munandi fuglahljóð. Leikhljóöin eru sem áé á plötum eöa spólum, misjafnlega göml- um. Og meöal annars er til i safn- inu nokkuöaf78snúninga plötum. Eitt hljóö í viöbót Aö sjálfsögöu eru alltaf aö bæt- ast viö ný leikhljóö. A meöan viö töföum uröu tæknimennirnir sér til dæmir úti um eitt. Þaö var klikkiö sem heyröist i myndavél- inni hans Jens þegar hann smellti af. „Viö eigum til hljóö sem til- heyrir myndavél af gömlu gerö- inni, en þetta vantar okkur”, sögöu þeir og tóku þaö upp I snatri. Þeir eru stööugt meö eyrum hjá sér. „Þegar fréttamenn fara út á land eöa á sjóinn, I loönu eöa ann- aö þá bætast viö mörg hljóö. Sjá- //Tók upp alls kyns hljóö í íækjum, ám og fossum á nærri tveggja tíma spólur." — Friðrik Stefánsson tæknimaður. varhljóö, hróp og köll og svo framvegis. Viö fengum til dæmis leikhljóð i þorskastriöinu. Og nóg eigum viö af hljóöum frá eldgos- um.” „Hér eigum við svo eitthvað sé nefnt Heklugos, Surtseyjargos og gosiö i Vestmannaeyjum,” segir Friörik og bendir i safniö. „Þessi goshljóö höfum við lánaö úr landi, — til stööva erlendis. Þaö voru er- lendir menn staddir hér fyrir nokkru viö þáttagerö og þeir fengu lánuð goshljóö.” Lækir og fossar í Fljóts- hlíðinni „Við vorum i vandræöum meö hljóð sem tilheyra lækjum og ám”, heldur Friðrik áfram. „Og ef i einhverju leikritanna heföi átt aö heyrast i Niagarafossunum til dæmis, þá vantaði okkur rétta hljóöiö. Ég tók þvi upptökutækin meö mér austur i Fljótshlið og tók upp alls kyns hljóö i lækjum, ám og fossum á nærri tveggja tima spólur. Ég átti hægt meö þaö þvi ég á sumarbústaö þarna fyrir austan. Og þetta eigum viö allt núna.” „Þaö er varla hægt að imynda sér þau hljóð sem ekki eru til i safninu”, skýtur Guðlaugur inn i. „En þó gerist þaö oft aö viö eigum ekki til einmitt þaö hljóö sem viö þurfum aö nota. Og oft þurfum viö að setja saman mörg hljóö, jafnvel þrjú eöa fjögur til að fá þaö eina hljóö sem okkur vant- ar.” Suð í flugvél sem gerir árás.... Eitt sinn vantaöi hljóö sem fylgir flugvél þegar hún gerir árás. Rétta hljóðið fyrirfannst ekki i safninu og þá var ekki um annaö aö ræöa en búa þaö til. Meö þvi aö taka upp hljóð i mótorhjóli og tvöfalda siöan hraöann á seg- ulbandi, fengu þeir hljóðið sem þeir töldu sig geta veriö ánægöa meö. Og þaö er ýmislegt sem vantar. Hvernigá til dæmis að ná rétta hljóöinu sem fylgir þvi þegar maöur sogast .smátt og smátt niður i dý og drukknar á endan- um? Eitt hljóð bættist i safnið: klikkið í myndavélinni hans Jens. Guðlaugur tók það upp i snatri. „Þaö var fyrir tveimur eða þremur árum. Við vorum aö taka upp leikrit eftir Þorstein Marels- son, — „Auðvitaö verður yöur bjargaö” hét þaö. Pétur Einars son leikstýrði. Leikritiö fjallaði um ungan mann sem stytti sér leiö i skemmtigaröi en féll ofan i dý eöa pytt. Hann festist og sökk dýpra og dýpra.” „Maöurinn braust um og þvi fylgdu alls kyns „umbrotahljóð” sem viö áttum ekki til. Viö tókum það til bragös aö fara suður i Vatnsmýri og fengum Petur meö okkur. Hann brá sér svo i stigvéli og skvampaöi um i bleytu og for þar til við náöum réttu hljóöun- um.” „En svo vantaöi okkur þessar loftbólur sem áttu aö myndast þegar maöurinn drukknaöi, þvi honum var ekki bjargað. Þá keyptum við súrmjólk, fórum með hana i eldhúsið og helltum i skál. F'engum okkur siðan drykkjarör og blésum meö þeim i súrmjólkina. Þaö gekk vel og viö fengum réttu hljóöin.” Þetta er nutaö, ef heyrast á I sveitasima. Mölin i kassanum og hurðirnar í baksyn. Allt talsvert notað i upptökum, sérstaklega hurðirnar. „Oft þarf að setja saman þrjú/ f jögur hljóð til þess að fá það eina rétta". I skápnum eru um átta þúsund „effektar". „Keyptum súrmjólk og blésum i með drykkjarrör- //Kompan" þar sem allt er fullt af dóti sem notað er í leikritum. Vængurinn eini sem notaöur var til aö taka upp heilan hóp af dúf- um, seni hóf sig á loft. 1 einu ieikritanna yfirfór „faöir- inn” hjói sonar sins. Þá var þetta hjói notaö. vantaöi þaö og einn leikaranna fór á salerniö en tókst ekki nógu vel. Einum ófaglæröum varö þá mál og pissaði, og þaö tókum viö upp. Þaö tókst mjög vel?” Maður sem fellur niður stiga Óp og hrotur, hysteriskir hlátr- ar, barnsgrátur, brothljóð, hljóö i gamaldags salerni þegar sturtaö er niður, flugvél sem hrapar, maöur sem fellur niöur stiga, öll hljóð i vélknunum farartækjum sem til eru, öll hljbð báta og skipa, öll hugsanleg sjávarhljóö, öldugangur i klettum, urö eöa sandi,stórsjórt gola ^ofsarok ,skip að farast i ofsaveðri, veggur sem hrynur, alls kyns skothljóð og hvinir rétt eins og við heyrum i kúrekamyndum. Allt er þetta til og miklu, miklu meira. Þaö væri ógerningur aö „Þegar viö þurfum aö taka upp hljóö, þá reynum viö heldur að búg þau til en aö fara út. Viö haf:um helst ekki tima til þess”, segir F riörik. En stundum reynist nauösynlegt aö fara út. „Var þaö ekki Baldvini Halldórssyni sem var fleygt út i Vesturbæjarsund- laugina?” segir Gunnlaugur. „Þá vantaöi hljóö sem fylgja þvi þeg- ar maður drukknar.” Heil útisena i leikriti eftir örn- ólf Arnason var tekin upp i Kald- árseli. „Benedikt Arnason stjórn- aði þvi og þaö var aðeins einn leikandi — Helga Bachmann. Það var þvi alveg nauðsynlegt að fá þessa sérstöku stemningu. Hún var að koma heim, opnaði garðs- hliö, gekk eftir malarvegi og svo framvegis. Við tókum þetta allt úti, og þaö var mjög skemmti- legt.” Reyndar eiga þeir möl inni á með Og svo sýnir Friðrik okkur inn I herbergi þaö þar sem eingöngu eru tekin upp leikrit og umræöu- þættir og ekki sist morgunleik- fimi. Inni i þvi stúdíói eru ýmsir merkilegir hlutir. Uppi á einum veggnum hanga t.d. gluggatjöld (fyrir engum glugga) á stöng. Þær gegna mikilvægu hlutverki I mörgum leikritanna. — Þegar persónurnar þurfa aö draga gluggatjöld fyrir i imynduöum húsum slnum. Uppi á vegg eru nokkrir skáp- ar. Eða að minnsta kosti viröist manni þaö i fyrstu. Þeir gegna mikilvægu hlutverki lika, eöa öllu heldur hurðir þeirra sem gefa frá sér mismunandi hljóö. Þarna er til dæmis „gamla, góöa huröin” eins og Friðrik segir, sem er not- uð þegar leikrit gerast fyrir löngu, eða þá sem hurö I útihúsi. Og svo er þarna sérstök skáp- hurö. Sveitasimi og annar nýrri og dyrabjöllur af ýmsum geröum sem notaöar eru með hliösjón af þvi „hversu flott húsin eru” eru meðal þess sem er i litilli kompu i stúdióinu. Þessi litla kompa breytti miklu til batnaðar i upp- tökum leikrita. Nú er til dæmis hægur vandi að taka upp atriöi þar sem tveir tala saman i sima. sín telja þaö allt saman upp. Og alltaf bætist viö. Eitt sinn vantaöi til aö mynda hljóð i stórri kirkjuhurö og þá brugöu tæknimenn sér i Landakotskirkju og tóku upp hljóöiö sem fylgir þvi þegar hurö- in er opnuö og lokaö. Friörik brá sér lika eitt sinn upp á Veghúsastig, þvi þá vantaði hljóöin sem fylgja þvi þegar öskukarlar eru á ferö og losa öskutunnurnar. Réttu hljóöunum náöi hann aö sjálfsögöu þar. Refurinn og hænurnar 1 fyrra fóru leikarar og tækni- menn i bil Gisla Alfreðssonar leikara upp i Kaldársel til þess aö taka upp nauösynleg leikhljóö. Þá var um aö ræöa leikrit sem fjall- aöi um hjón á feröalagi. Frúin sá um vegakortiö en brást bogalistin og þau tvö voru áður en varði orö- in hálfvillt. Billinn hökti eftir hol- óttum vegi sem versnaöi stööugt og endaöi allt úti i skurði. Meö þvi að taka upp hljóð I Kald árseli og bæta inn i hljóðum sem til voru fyrir tókst allt vel á end- anum. Bóndi nokkur á Kjalarnesi geröi útvarpsmönnum góöan greiöa þegar hann brá sér i gervi refs. 1 leikritinu „Refurinn” var eitt atriöi þannigaö refur komst I hænsnahóp. En þvi fylgja aö sjálfsögöu mikil hljóö. Bóndinn var fljótur að aðstoöa þá og hljóp sjálfur inn i hænsna- hóp sinn og greip eina hænu, og þar með voru réttu hljóöin fyrir þaö atriöiö fengin. //Hlustum helst á effekt- ana" Reynt er aö taka leikhljóöin.upp meö textanum. En oft þarf aö setja allt saman á eftir, og þaö er reyndar yfirleitt gert, segja tæknimennirnir. Þaö er lika mis- munandi erfitt aö ná réttu hljóð- unum. Eitt hljóö getur kostaö klukku- stunda vinnu. Þaö er þvi ekki óeðlilegt aö tæknimenn leggi eyr- un við þegar um „effekta” er aö ræða. Eins og Guölaugi varö aö orði! „Maður hlustar aöallega á „effektana” i leikritum, — ekki textann!” —EA. Annar leikarinn fer inn i komp- una og lokar sig þar inni en hinn situr frammi. Og þegar tilheyr- andi tæki hafa verið tengd verður hljóðið eðlilegt. Fuglsvængur, pottlok og stigi Þarna er pottlok sem GIsli Halldórsson leikari setti upp þeg- ar leikritiö Jeppi á Fjalli var tek- iö upp. „Ég þarf eitthvaö til þess aö komast i stemningu”, sagöi Gisli sem fór meö hlutverk Jeppa. Friörik fór fram og kom aö vörmu spori aftur meö pottlokiö sem hann haföi fundiö og Gísli setti það upp. „Þetta er allt önnur stemning”, sagöi hann og hóf aö leika meö pottlokiö. Svo er þarna fuglsvængur. Hann var meðal annars notaöur þegar tekiö var upp atriöi þar sem hópur dúfna tók sig á loft meö tilheyrandi vængjaslætti. Einn sló vængnum eina á hendi sér. Hljððiö var siöan margfaldaö og viti menn: Otkoman varö rétt eins og hópur fugla hefði i raun og veru hafiö sig á loft. En hvort þetta er dúfnavængur i alvöru? „Nei, þaö er ekki vitaö af hvaöa fugli hann er,” sagöi Friðrik. „En hann gæti veriö af grámáfi.” gólfi. Henni var komið fyrir í sér- staklega smíðuöum kassa og þar geta leikarar þrammaö um I hin- um ýmsu atriöum, og skapaö hljóð rétt eins og þeir gengju i mol úti undir berum himni. Andstyggilegasta hljóðiö Hvaða leikhljóð eru mest not- uð? Friörik er fljótur aö svara þvi. „Tvimælalaust hurðirnar og svo hljóðin sem fylgja matarilát- um: glasaglamur og annaö slikt.” En hvaöa hljóö er undarlegast af öllum þeim sem til eru? Þeir eiga ekki svo gott meö að svara þvi. „En eitt andstyggilegasta hljóöiö sem ég man eftir, er hljóö sem múlasni gefur frá sér”, segir Friörik. „Þaö er rétt eins og verið sé aö misþyrma manni.Þaö er er- lent og viö höfum reyndar notað þaö.” Flest hljóö sem dýr gefa frá sér — og menn — eru til i safninu. „Hér er meira aö segja til hljóöið sem fylgir þvi þegar maöur piss- ar”, segir Guölaugur. „Okkur Texti: Edda Andrésdóttir Myndir: Jens Alexandersson

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.