Vísir - 08.04.1978, Blaðsíða 15

Vísir - 08.04.1978, Blaðsíða 15
VISIB Laugardagur 8. april 1978 15 Þekkib þiö þá? Þessi feiti meö gapandi giniö er auövitaö Oliver Hardy, áöur en samstarfiö hófst. Stan var eiginlega alltaf eins. 1 siðustu mynd á undan höfðu þeir báðir verið krúnurakaðir til að lita út eins og ósviknir fangar, og þegar hár tók að vaxa aftur á höfði Laurels, var það algerlega óviðráðanlegt. I örvæntingu sinni klóraði hann sér i höfðinu, og leik- stjórinn hrópaði „Flott!” Líf og list Kækur Hardys var sá að fitla við hálsbindi sitt. Þessi kækur varð lika til fyrir tilviljun. Hann hafði blindast i rjómakökubar- daga og kunni ekki annað ráð úr ógöngunum. Gamansemi þeirra félaga byggðist einkum upp á þvi, hve einstakur hrakfallabálkur Stan var, og alltaf bitnaði klaufaskap- úr hans á aumingja „Ollie”. Þá öskraði Ollie upp yfir sig af bræði og sagði: „Sjáðu nú, hvað þú hefur gert mér rétt einu sinni, Stanley” , og svo leit hann beint i augu myndavélarinnar með hin- um fræga mæðusvip sinum. Laurel giftist sjö sinnum, en þó átti hann aðeins fimm konur. Skýringin er sú, að hann kvæntist sömu konunni, Virginiu, þrisvar. Fyrst gekk hann að eiga Mae. Það var árið 1919. Siðan átti hann Lois, og Virginiu gekk hann að eiga i fyrsta sinn árið 1934. Þau skildu og gengu aftur i það heil- aga árið 1935. Þau skildu aftur tveimur árum siðar, og þá kvænt- ist hann rússneskri söngkonu, sem hét Ilena. Það var fimmta hjónabandið. Hjónabandið e ntist i tiu ár, og þá kom Virginia til sögunnar i þriðja sinn. Loks átti hann Idu. Það var sjöunda hjóna- band hans, og hún lifði mann sinn. Þá var einkalif Hardys ekki sið- ur stormasamt. Hann var kvænt- ur leikkonunni Myrtle Reeves i tólf ár. Eftir skilnaðinn sagði hún: „Hann fer verr með mig i hónabandinu en Laurel i bió- myndunum”. Þau tóku saman á ný, en skildu eftir tvö ár. Hardy bjó siðan i far- sælu hjónabandi ásamt seinni konu sinni, þar til hann dó árið 1957 eftir langvarandi veikindi. Á niðurleið Fjórði áratugur aldarinnar var blómaskeið þeirra félaga. En þegar heimurinn fór i striðið, snerihamingjan við þeim bakinu. Þeir voru þrælbundnir af samn- ingum og voru óánægðir með þær myndir, sem þeir voru skikkaðir til að leika i. Heilsu far Laurels versnaði eftir þvi sem árin færðust yfir, hann drakk of mikið, hjónabands- flækjan óx, og eins fannst honum sem honum væri farið að fara aftur. Hann fékk vægt hjartaáfall, en sagði engum frá þvi. Gamanleikurunum tveimur var boðið til Frakklands að leika i kvikmynd, og þeim var fagnað hjartanlega hvarvetna i Evrópu. En myndin, sem var kölluð Robin- sonKrúsó-land, misheppnaðist gersamlega. Myndatakan tók heilt ár, en átti að vara i þrjá mánuði. Hardy veiktist alvarlega og léttist um tuttugu kiló. Þeir fóru tvisvar til Englands til að reyna að vekja upp forna frægð, árin 1947 og 1954. En þeir voru orðnir rosknir og heilsutæpir og árangurinn varð enginn. Þá var áformað að koma þeim á framfæri i sjónvarpi, en haustið 1956, áður en af þvi gat orðið, fékk Hardy heilablóðfall og hann þjáð- ist mjög siðasta árið sem hann lifði. Hann hálflamaðist og léttist smám saman niður i sjötiu kiló. Hann gat ekki talað en skrifað gat hann. Eitt sinn skrifaði hann: „Allt er betra en þetta”. Fyrstur tii að heimsækja Hardy á sjúkrahúsið var gamall maður, sem studdist við staf og komst ekkert án hjálpar konu sinnar: Stan Laurel var lika farinn að kröftum. En myndir þeirra lifa... Hardy dó i ágúst 1957, 65 ára gamall. „Þá er lokið sögunni af Laurel og Hardy”, sagði Stan, og nú grét hann fyrst i alvöru. Stan Laurel var sykursjúkling- ur. Hann hélt sig heima við og sá gömlu myndirnar sinar verða vinsælar að nýju i sjónvarpi. Hann hlaut enga þóknun fyrir þessar sjónvarpssýningar. Hann sagði, að sér likaði engan veginn það sem hann sæi, sérstaklega vegna þess hve myndirnar hefðu verið styttar og klipptar fyrir sjónvarp. Stan Laurel fékk hjartaslag ár- ið 1965 og dó eftir skamma legu. Hann varð 74 ára. Áratug siðar komust þeir i tisku, urðu poppstjörnur. Myndir af þeim seldust jafn vel og plaköt með Bay City Rollers eða Rod Stewart. Laurel og Hardy sungu ein- hvern tima lag i vestra, sem þeir léku i og hét „Lengst i vestri”. Lagið var gefið út á plötu, og ný- lega komst það á vinsældalista vestan hafs og austan. Nú voru gerð plaköt með þeim, barm- merki og speglar með myndum af þeim. Skrifaðar voru um þá bæk- ur, og grinistar tóku að herma eftir þeim i sjónvarpi og i nætur- klúbbum. Stan Laurel hefði klór- að sér i höfðinu og Oliver Hardy fitlað við bindið, hefðu þeir orðið vitni að þessu æði. Þetta æði, sem geisaði veturinn 1975-76 og varð raunar ekki mjög langlift, gerði tilveruna einhvern veginn miklu skemmtilegri... mmmimwm Sendið okkur hjólbarða og látið setja Uul-Cap kaldsólningar munstrið á barðann. Simar 4-39-88 & 4-48-88 Kópavogi gBliOCtSE Smiðjuvegi 32-34 — Nordsjö lökk og mólning í þúsundum lita, blandað eftir hinu vinsœla TINTORAMA litakerfi, NORDSJÖ MÁLARAMEISTARINN Grensásvegi 50 — Sími 84950

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.