Vísir - 05.06.1978, Blaðsíða 7
FULLTRUAR VESTUR-
VELDA FUNDA UM
FRAMTÍÐ ZAIRE
- FYRSTU HERMENN í GÆSLULIÐ
AFRÍKU KOMA FRÁ MAROKKO
Fimm bandarískar flutningaflugvélar frá hernum eru nú á leið til Zaire með
marokanskt herlið, sem á að verja landið innrásum skæruliða.
Lagt var af stað frá Agadir í Marokko í gær, þegar fréttistaf morðum á 60 gíslum
sem innrásarliðiðtókog hafði meðsér á flótta frá Mutshatsha.
Mutshatsha er i Suöur-Zaire og
er miöstöð kopar- og kóbalt-
vinnslu i Shabahérai en þar
réöust skæruliöar inn i landiö
fyrir nokkru og felldu tugi
manna.
Innrásarmenn tóku meö sér
marga gisla og voru um sextiu
þeirra hvitir. Þeir hafa nú myrt
þá.
1 herliðinu frá Marokko eru um
fimmtán hundruð menn sem eru
fyrstu hermennirnir i sérstökum
her Afriku sem Vesturlönd
styöja. Herinn á að verja landið
árásum skæruliða og styöja
stjórn Mobutu forseta.
Um eittþúsund manns munu
bætast i her Afriku en þaö eru-
hermenn frá fyrrverandi frönsk-
um nýlendum, Togo, Gabon,
Senegal og Filabeinsströnd.
Bandarikin hafa lagt til ellefu
flutningaflugvélar til flutninga á
hermönnum til Shabahéraös i
Zaire.
Hassan konungur sagöi i út-
varpsræðu að Marokkómenn
myndu hjálpa Mobutu forseta
Zaire svo lengi sem land hans
yrði fyrir árásum erlendra rikja.
Ráöamenn i Zaire hafa haldið þvi
fram að innrásarherinn sem réðst
i Shabahérað fyrir stuttu hafi ver-
ið studdur af kommúnistarikjum,
m.a. Sovétmönnum og Kúbu.
Varnarmálaráðherra Banda-
rikjanna sagði i sjónvarpsræðu
þar i landi i gær að Bandarikin
hefðu sannanir fyrir þvi að Kúbu-
menn hafi staðið að baki upp-
reisnarmanna i Shabahéraði.
Afskipti Sovétmanna og Kúbu
hafa einnig verið fordæmd af
Huang Hua utanrikisráðherra
Kina sem nú er i heimsókn i Zaire
til að sýna Mobutu forseta lands-
ins stuðning. Þeir Mobutu og Hua
fóru til Kolwezi á sunnudag og litu
á vegsummerki eftir innrásar-
menn.
I Paris var fundað um framtiö
Zaire af fulltrúum frá Banda-
rikjunum, Belgiu, Frakklandi,
Vestur-Þvskalandi og Bretlandi.
tbúar I Shabahéraöi flýja fram heimabyggö sinni vegna óvissuástands. Margir óbreyttir borgarar
særöust þegar innrás var gerö I landiö.
Danmörk:
Þjóðarotkvœði um
lœkkun kosninga-
aldurs í ótjón ór
Það hefur nú verið samþykkt i danska þinginu
að lækka kosningaaldur úr 20 i 18 ár. En það er
ekki þar með sagt að þeir sem eru 18 ára fái að
kjósa i næstu kosningum.
Colombía:
Nýr for-
seti kosinn
Um sextiu prósent af kjós-
endum i Kólombiu sátu heima
i forsetakosningunum sem
fóru fram i landinu I gær. A
kjörskrá voru um tólf og hálf
milljón manna.
Eftir aö hluti atkvæöanna
hefur veriö talinn eru allar lik-
ur sem benda á Julio Turbay
Ayala sem næsta forseta
landsins. Hann er frambjóö-
andi frjálslyndra.
Alfsonso Lopez Michelsen
sem hefur gegnt forsetaem-
bættinu lætur nú af störfum.
Lögregla og herlið gættu
þess aö ekki kæmi til óeiröa i
landinu en stúdentar og
verkainenn hafa óspart látið I
sér heyra^eins og aðrar stéttir,,
vegna sívaxandi óánægju meö
hina miklu veröbólgu i land-
inu.
Til þess að breyta gildandi lög-
um, þarf þjóðaratkvæðagreiöslu
um málið. Það hefur veriö talað
um að Danir gengju að kjörborð-
inu einhvern tima i september.
Danska þingið hefur áður sam-
þykkt að kosningaaldur skyldi
lækkaður I 18 ár, en Danir hafa
ekki viljað það og fellt i þjóðarat-
kvæðagreiðslu, siðast árið 1969.
Árið 1971 var kosningaaldurinn
lækkaður úr 21 ári i 20 ár. Það eru
fulltrúar Radikalaflokksins, sem
báru fram tillöguna um lækkun
kosningaaldurs i þinginu. At-
kvæði féllu þannig i þinginu, aö
131 þingmenn voru hlynntir lækkun
kosningaaldurs, en 21 var á móti.
Afkoma fólks 1 Bangladesh hefur ekki veriö upp á marga fiska
siöustu ár. Þeittai lofar hinn nýkjörni forseti aö bæta.
Bangladesh:
ZIAUR VINNUR
MIKINN KOSN-
INGASIGUR
Forseti Bangladesh.Ziaur Rahman,vann mikinn
kosningasigurá laugardag í forsetakosningum sem
fóru fram í landinu. Hershöfðinginn fékk um 78
prósent greiddra atkvæða í kosningunum.
Ziaur hefur farið með völd i Eftir þennan sigur i kosningun-
Bangladesh siðan 1975 en þá um sagði Ziaur að hann hyggðist
komst hann til valda eftir að for- nú leggja sig allan fram við að
setanum Mujibur Rahman var bæta efnahag lands sins og hefja
steypt af stóli og hann myrtur. þar uppbyggingu af fullum krafti.
Heimsmeistorar í rokki
Fyrsta rokk-danskeppnin. sem haldin hefur verið
síöan árið 1961, var haldin í
Þetta var heimsmeistara-
keppni og það var svissneskt par
sem hreppti titilinn. Annað i röð-
inni var par frá Spáni en þriðju
verðlaun fékk par frá Italiu.
Þátttakendur i keppninni voru
Geneve í Sviss um helgina.
frá sjö löndum i Evrópu og frá Al-
sir, en 37 danspör kepptu um titil-
inn.
Ráðgert er aö halda næstu
heimsmeistarakeppni i rokki áriö
1979 I Flórens á Italiu.
Sovétríkin:
ABBA gerir innrós
Nú hefur sænska hljómsveitin
ABBA gert innrás i Sovétrikin.
Gert er ráö fyrir aö hljómsveitin
selji um 40 milljónir platna þar i
landi á næstunni, en fram-
kvæmdastjóri hljómsveitarinn-
ar, Stikkan Anderson, var þar
nýlega og geröi samninginn um
plötusöluna. i staöinn fyrir
ABBA-plötur ætlar Sovétrikin
aö láta oliu.
Sovéska sjónvarpið hefur
keypt sýningarrétt á sjónvarps-
kvikmynd um ABBA sem
sænska sjónvarpið lét gera fyrir
nokkru. Það hafði hins vegar
ekki áhuga á kvikmyndinni um
ABBA sem var sýnd hér á landi
um jólin. Hljómsveitin hefur
einnig fengið fjölmörg tilboð um
að koma fram og leika og
syngja frá ýmsum aðilum i
Sovétrikjunum.
Bandarikjamenn eru jafn-
hriínir af ABBA og Sovétmenn.
Þar hefur nýjasta lag hljóm-
sveitarinnar Take a Chance on
Me, verið á lista yfir fimmtiu
söluhæstu plöturnar.
Kvikmynd um hljómsveitina
var nýlega sýnd i bandariskri
sjónvarpsstöð og þar lék hún
nýjasta lag sitt. ABBA voru ný-
lega i Bandarikjunum, en þegar
þau komu til Los Angeles frá
London voru aðeins nokkur
hundruð manns þar til að taka á
móti þeim. ABBA-æðið er sem
sagt ekki hafiö af fullum krafti i
Bandarikjunum enn, en þaö
stendur sennilega til bóta eftir
að hljómsveitin hefur sýnt sig
þar.
Hljómsveitin ABBA hefur selt
fleiri plötur en nokkur önnur
hljómsveit til þessa og hefur
meira aö segja vinninginn yfir
Bitlana.
ABBA, stærsta fyrirtæki á Noröurlöndum og þó viöar væri leitaö
miklu stærra en Volvo. Nú sækir þaö enn fram og ætlar aö leggja
undir sig Bandarikin og Sovétrikin.