Vísir - 08.08.1978, Blaðsíða 8
c
Aj-
Þriöjudagur 8. ágúst 1978
visœ
( Umsjón: Guðmundur Pjéturssorii>~^ J
Hundur beit mann
Bóksalar og aðrir viðskiptamenn
Almenna bókafélagsins
Fró og með 1. ógúst flytjum við
afgreiðslu okkar fró
Bolholti 6 að
Það var vist John B. Bogart, fréttastjóri hjá blað-
inu „Sun” i New York, sem lét þau frægu orð falla,
að það teldist ekki til tiðinda, þótt hundur biti mann
—svo oft sem það nú skeði. En ef maður biti aftur á
móti hund.. tja, þá skyldi hann birta fréttina eftir
blaðamanninn.
ER VERÐBÓLGAN
ÓLEYSANLEGT VANDAMÁL?
NEI EKKI FYRIR OKKUR
Þetta var skömmu fyrir alda-
mót, en byrjendur i blaöa-
mennsku fá að heyra þetta
klingja í eyrum enn i dag. Svo oft
geta þó hundar bitið menn, að
jafnvel Bogart fréttastjóri hlyti
að viðurkenna, að það væri nokk-
ur blaðamatur.
Að minnsta kosti hefur hið
konunglega dýraverndunarfélag i
Bretlandi snúið samúð sinni yfir á
póstbera, innheimtumenn, sölu-
mennn og annað fólk, sem á rápi
sinu hús úr húsi sætir ósjaldan á-
rásum þessara algengu gæludýra
almennings. Hyggst félagið taka
þetta fólk að nokkru undir sinn
verndarvæng lika.
Það var fyrir löngu timi til
kominn, aö einhver tæki upp
hanskann fyrir þetta margbitna
, sem auk þess að vera bitbein
hunda hefur mátt þola það ára-
tugum saman að vera á milli
tannanna á skopteiknurum. Þess-
um, sem gæddir eru þvi skop-
skyninu að þeim finnst það há-
mark fyndninnar, þegar þeir sjá
gamalmenni verða fótaskortur á
bananahýði.
En nú hefur sem sé dýravernd-
unarfélagið breska gefiö út bækl-
ing til leiöbeiningar fyrir póst-
bera og önnur fórnardýr hunda.
Bæklingur þessi veitir ýmar ráð-
leggingar þessu fólki um, hvaða
tökum það eigi aö taka fjandsam-
lega hunda, sem verða á vegi
þess. Trútt sinum dýraverndunar
hugsjónum mælir félagið alls ekki
með þvi, að póstberinn sparki i
urrandi hundkvikindið. Það
byggir ráðgjöf sina á upplýsing-
um, sem dr. Michael nokkur Fox
leggur til. Hann er dýrasálfræð-
ingur og mikill sérfræðingur i
hegðun og atferli dýra. Meðal
annarra hugmynda, sem hann
hefur, er ein sú, að maður og
hundur geti gert sig hvor öör-
um skiljanlega með þvi t.d. að
brosa hvor framan i annan.
Ekki mælir bæklingurinn með
þvi, að brosaö sé framan I urrandi
hund, en lagt er til, að talað sé til
hans i vingjarnlegum tón en
ákveðnum. Og jafnvel blistraö til
þess að róa dýrið. „Forðist aö
sýna hræðslumerki,” segir i
bæklingnum. „Hundurinn getur
lesið óttann úr augum ykkar og
likamshreyfingum. ” — Sumir
halda þvi raunar fram, að dýriö
geti jafnvel fundið hræðslulykt af
fórnarlambinu.
Bent er á, að jafnvel vinaleg-
ustu hundar gelti aö ókunnugum
af þeirri eölilegu ástæðu, að þeir
telji það hlutverk sitt að standa
vörðog vernda sitt yfirráöasvæöi.
Gestkomandi er bent á, að svara
geltinu og urrinu með gæluhjali,
ekki urra á móti, fýla grön eða
flýja af hólmi — Sérstaklega ekki
flýja af hólmi. Það siðasta leiðir
venjulegast til þess að skepnan
eltir sigri hrósandi og þá fyrir vist
verður maðurinn bitinn.
Það er talið betra vopn, að bera
á sér hundakex fremur en barefli,
og mælir bæklingurinn með þvi.
Breska póstmálastofnunin er
hinsvegar ekki jafn hrifin af þvi
ráði, og telur áhrifabetra að út-
búa póstbera sina með úðunar-
brúsa upp á vasann, eins og til-
raunir hafa verið gerðar með.
Það ráö gaf þó misjafnan árang-
ur. Voru margir illa bitnir, þótt
þeir hefðu úðað rausnarlega
framan i hundinn.
Breska póststofan ætlar, að það
séu um 4.000 póstberar bitnir af
hundum árlega. Stöku sinnum
hefur kveðiö svo rammt að
hundsbitum, að i óefni var komið.
Það er ekki svolangt siðan póst-
burður lagðist alveg niður I eina
götuna I London, þar sem var
margt grimmra hunda aö póst-
berar aftóku með öllu að leggja
sig þar oftar i hættu.
SPARIÐ 20% -
NOTIÐ AGFACOLOR FILMU
Austurstrœti 7
Sími 10966
Getum nú boöiö Byron sófasettið í
nýrri útgáfu.
Enn glæsilegra en áður!
Hvort sem er í leðri eða áklæði eftir
eigin vali.
Sjón er sögu rikari.
Lítið inn og skoðið þetta nýja sett —
ásamt öllu öðru sem við höf um upp
á að bjóða í húsgögnum.
Kappkostum að hafa úrval húsgagna
við allra hæfi.
Bílastæði og inngangur er einnig
Hverfisgötumegin.
Verið ve/komin.
mmmm^^mmmmmmmmmmmmmmaammmmmmtmmmmimumm wiaufi w