Vísir - 29.11.1978, Blaðsíða 5
5
vísm
Miðvikudagur 29. nóvember 1978
ALÞINGI ALÞINGI ALÞINGI ALÞINGI
Heitar umrœður
utan dagskrár
Talsverður hiti hljóp i umræð-
ur utan dagskrár á fundi sam-
einaðs þings I gær, er Kjartan
Ólafsson kvaddi sér hljóðs og
beindi fyrirspurn til utanrikis-
ráðherra vegna fréttar í útvarp-
inu. Þar kom fram að ráðherra
hafði fariö þess á leit við sendi-
herra Bandaríkjanna að fallið
yröi frá þeirri ákvörðun Banda-
rikjastjórnar, að fækka starfs-
fólki i þjónustu varnarliðsins.
Benedikt sagði það rétt vera,
enda hefði sllk fækkun starfs-
fólks komiö mjög illa við verka-
fólk og iönaðarfólk á Suðurnesj-
um. Þessar ráðstafanir féllu
undir ákvæði varnarsáttmálans
um að Bandaríkin skyldu ekki
gera neinar þær ráðstafanir,
sem hefðu óheppileg áhrif á is-
lenskt efnahagslif.
Kjartan sagði að mál þetta
væri hneyksli, og sagðist bera
fram höröustu mótmæli af hálfu
Alþýðubandalagsins. Af frami-
köllun mátti ráða, að mörgum
þingmönnum var talsvert niðri
fyrir, en umræðunni varð að
fresta vegna funda i þingflokkn-
um. Þá höfðu a.m.k. sjö þing-
menn beðið um orðið. —GBG.
#/
Fjárfesting íslendinga
skilar ekki sama arði og
hjá öðrum þjóðum "
segir ályktun þings BHM
„Þriöja þing BHM bendir á, að
samkvæmt könnun þjóðhags-
stofnunar á launakjörum á Is-
landi og öðrum Norðurlöndum,
hefur hlutdeild launatekna i
þjóðartekjum vaxið mun hægar á
Islandi”, segir i ályktun um lífs-
kjör á tslandi.
„Meginskýringin á þessari þró-
un er, að hlutfall fjárfestingar af
þjóðarframleiöslu hefur verið
mun hærra hér en á hinum
Norðurlöndunum.
Enda þótt Islendingar hafi fjár-
fest hlutfallslega stærri hluta
þjóðartekna sinna en flestar
Norðurlandaþjóðir og ýmis önnur
riki innan OECD, hafa þjóðar-
tekjur vaxið hægar hér en I þess-
um löndum. Ljóst er þvi, að fjár-
festing tslendinga skilar ekki
sama arði og öðrum þjóðum hefur
tekist að fá”.
Þingið lagði áherslu á, að arð-
semissjónarmið verða látið sitja i
fyrirrúmi varðandi þá fjárfest-
ingu, sem á annað borð er ætlaö
að skila arði', en dregið verði eftir
föngum úr allri óarðbærri fjár-
festingu.
„Nauðsynlegt er að breyta
verulega um stefnu i lánamálum
til þess að ná fram þessu mark-
miðum”, segir i lok ályktunar-
innar, sem var samþykkt án mót-
atkvæða. —BA
Bernhöftstorfan.
Ragnar vill varðveita
húsin á Bernhöftstorfu
„Húsnæðismál ráðuneytanna
voru til umræðu á fundi rfkis-
stjórnarinnar I morgun, og þá
var m.a. fjallað um Viðishúsið”,
sagðiRagnar Arnalds, mennta-
málaráðherra, er Vfsir leitaði
fregna af Viðishússmálinu svo-
nefnda.
Ragnar sagði, aö engin
ákvörðun hefði veriö tekin um
húsnæðismálin, enda hefði þetta
verið fyrsta umræða um þau
innan rikisstjórnarinnar. Þvi
heföi veriö hreyft, hvort æski-
legt væri að hafa ráðuneytin og
aðrar stjórnarbyggingar allar i
miðbænum, — nánast I kringum
Arnarhólinn. I þessu sambandi
hefði verið rætt um Bernhöfts-
torfuna, en hann teldi sjálfur að
húsin þar ætti að varðveita á
þessum staö, i stað þess að
flytja þau upp I Arbæ. Hann
teldi óraunhæft að byggja þarna
stórhýsi fyrir opinberar skrif-
stofur.
Ragnar Arnalds.
Hvað Viðishúsiö varöaði sagði
Ragnar, að hann reiknaði með
þvi að það yrði selt. Til þess
þyrfti heimild á fjárlögum, og
kvaðst hann mundu vinna aö
þessu máli á næstu dögum.
— GBG.
Ódýrar Lundúna-
ferðir
Farið hvenær sem er alla
daga nema sunnudaga.
Lágmarksdvöl 8 dagar, há-
marksdvöl 21 dagur. ^
Dvalist á
Hóteí STRATFORD COURT
— REMBRANDT —
WESTMORELAND,
CHESTERFIELD eða
ALBANY, öll i Mið-London^
eftir eigin vali,
Verð frá kr. 104.000 á mann
flug innifalið, gisting, öll
herbergi meö baði, WC,sjón-
varpi og simá.
Einnig ibúðir fyrir 2-8
manns. 5 og 7 daga ferðir.
Glasgowferðir annan hvorn
föstudag.
Otvegum leikhúsmiða, miða
á kn at t s py r nul ei ki,.
skoðunarferðir o.fl.
Hagkvæmustu kjörin — hag-
kvæmustu ferðaskilmálarn-
Ferdaskrilstola
KJARTANS
HELGASONAR
SkölavorÓustig 13A
Reyk/avik simi 29211
JÓLABÆKURNAR 1978
Á öllum borðum
í Unuhúsi
200 ÚRVALSVERK
A Kft. 1.500.- TfL KR. 15.000-
Hér veröur aðeins fátt talið:
Sjömeistarasagan, nýjasta Laxnessbókin.
i túninu heima.
Ungur ég var
úr fórum fyrri aldar. úrval heimslistar, valið og þýtt af
aldamóta-snillingunum, Þorsteini Erlingssyni, Matthíasi,
Hannesi Hafstein, Steingrími, Páli Ólafssyni og fleirum.
Feröalok, skáldsaga eftir Kristján Albertsson
Heim til þín Island, nýjasta Ijóðabók Tómasar Guðmundsson-
ar. Besta bók skáldsins.
Hagleiksverk Hjálmars í Bólu, eftir dr. Kristján Eldjárn.
I verum, snilldarverk Theodórs Friðrikssonar
Ljóðasafn Sigurðar frá Arnarholti,
Æviþættir eftir Jóhann Gunnar Ólafsson, vin skáldsins.
Allar þýðingar Magnúsar Asgeirssonar í tveim stórum bind-
um.
Steinn Steinarr. I jóðasaf n og greinar ásamt Tímanum og vatn-
inu
Þorsteinn Erlingsson, Þyrnar og Eiðurinn
Tvö listaverk fyrir unglinga, Berjabítur og Dimmalimm
og sjö þjóðsagnabækur.
KAVPIB BÆKURNAR í UHUHÚSI,
MfLGAFfUf,
VfGHÚSASTÍG 7, SÍMI 16837
HELGAFELL