Vísir - 19.03.1979, Side 4
4
Mánudagur 19. mars 1979.
VÍSIR
„SVARTOLlAN
ÓHENTUGFYRIR
VARÐSKIPIN"
— segir Þröstur Sigtryggsson, skipherra
//Spúrningin er fyrst og
fremst hvort viö höfum
tryggingu fyrir því næstu
ár að fá góða svartolíu/
hversu lengi hún getur
verið svona ódýr og
hvenær ríkið fer að leggja
á hana tolla til að ná inn
mismuninum á gasolíu-
verðinu og svartolíuverð-
inu. I ár hefur svartolíu-
málið ekki verið sérstak-
lega athugað hjá okkur,"
sagði Þröstur Sigtryggs-
son, skipherra hjá Land-
helgisgæslunni.
Þröstur sagði meðal annars
að svartolia hefði samkvæmt
athugunum fyrir nokkrum
árum, reynst vera óhagkvæm
fyrir varðskipin. Þau keyrðu á
svo misjöfnum hraða, en orku-
notkunin ákaflega misjöfn.
Varðskipin keyra stundum ekki
langtimum saman á þeim hraða
sem talinn er heppilegastur til
svartoliunotkunar en það er 60-
70% orka.
Breytingar þurfa að vera tals-
veröar á tönkum skipanna en
nauðsynlegt sagði Þröstur, að
gasolfa þyrfti einnig að vera til
staðar.
—SS—
MINOR
Vorum ao taka heim þessar
gullfallegu sœnsku
veggsamstœður lengd 150 cm
Verð kr. 258.000.—
SMIDJUVHCjI 6 SIMl 4454-4
Verslunorróð mót
mœlir haftalögum
„Jafnfrumt hefur það sýnt
sig, að rikjandi verðmyndunar-
höft eru þjóðinni stórskaöleg,
innleiða ófrelsi og bjóöa heim
spillinguog valdniðslu. Það sæt-
ir furðu, aö nú skuli flutt á Al-
þmgifrumvarp til laga, þar sem
lögfesta á verðmy ndunarhöft
sem meginreglu, er verðlags-
yfirvöldum beri að fara eftir”.
ÞeUa segir i ályktun sem fram-
kvæmdastjóra Verslunarráös
islands samþykkti fyrir
skömmu.
t ályktuninni segir einnig að
þaðsé skoðun Verslunarráðsins
að opnunarti'mi verslana eigi að
verafrjáls, en ekki takmarkað-
ur i' kjarasamningum og bæjar-
samþykktum. Ráðið fagnar
framkominni tillögu i borgar-
stjórn um frjálsan opnunar-
tima. Ráðið skorar einnig á
Björgvin Guðmundsson, annan
flutningsmann tillögunnar, að
beita sér fyrir frjálsri verð-
myndun i verðlagsnefnd.
—SS—
Nómsstyrkur í Kielarháskóla
Borga rstjórnin i Kiel mun
veita islenskum stúdent styrk tii
námsdvalar við háskólann þar i
borg næsta vetur. að upphæð
DM 700 á mánuði i 10 mánuði.
Um styrk þennan geta sótt
j stúdentar sem stundað hafa há-
skólanám i a.m.k. þrjú misseri.
j Umsækjendur skulu hafa næga
I kunnáttu i þýsku. Umsóknir
skal senda skrifstofu Háskóla
I tslands eigi siðar en 20. apríl.
Listdansarar í Félagi
íslenskra leikara
Aðalfundur Félags Islenskra j
leikara var haldinn 19. febrúar
s.i. og voru listdansarar á þeim
fundi teknir inn i félagiö sem
fullgildir félagar, en fyrir eru i I
félaginu óperusöngvarar og
leikmy ndateiknarar.
7
Formaður Félags íslenskra
lcikara er Gisli Alfreðssson.