Vísir - 19.03.1979, Blaðsíða 9

Vísir - 19.03.1979, Blaðsíða 9
VISIR Mánudagur 19. mars 1979. c llmsjón Guðmundur Pétursson y D Fylgi frönsku flokkanna svip- að í sveitar- stjórnarkosning- unum i gœr Fylgi flokkanna virð- ist litið hafa riðlast i sveitarstjórnarkosning- unum i Frakklandi í gær, þrátt fyrir met- kjörsókn. — Um 70% kjósenda skiluðu at- kvæðum sinum. Sösialistaflokkurinn, sem fékk um 26% atkvæöa, er stærsti flokk- urinn, en hann jók mjög fylgi sitt i Noröur-Frakklandi og viö suöur- ströndina. Kommúnistaflokkurinn fékk um 18,6% og jók einkum viö sig i iönaöarhéruðum i noröur- og austurhluta landsins, þar sem þúsundir manna sjá fram á at- vinnumissi, ef af ráöagerðum rikisstjórnarinnar veröur um hagræðingar i iðnaöinum og um að hætta stuðningi við fyrirtæki, sem bera sig ekki. En miö- og hægriflokkarnir (stjórnarflokkarnir) héldu vel velli miö- og vesturhluta lands- ins. Venjulega eiga vinstriflokkarn- ir meiru fylgi aö fagna i sveitar- stjórnarkosningum i Frakklandi, og skoruöu sósialistar og kommúnistar á kjósendur aö nota atkvæöi sin til þess aö mót- mæla stefnu rikisstjórnarinnar I efnahagsmálum. — En af úrslit- unum er ekki aö sjá aö reyst hafi verulega fylgiö af stjórnarflokk- unum. Vinstriflokkarnirfengu 239 fulltrúa kjörna, og stjórnarflokk- arnir 445. Þar sem ekki fékkst hreinn meirihluti og kjósa veröur aftur, virðast vinstriflokkarnir liklegir til þess að fá 427 fulltrúa kjörna næstu helgi og stjórnarflokkarnir 279, en engu veröur spáö um 280, þar sem úrslit þykja of tvisýn. Réðust á Nar- itaflugvöll Tokyoborgar Ofstækisöflin hafa á ný byrjað stríð sitt gegn -Naritaf lugvelli Tokyo. Ráðist var í gær á flug- stjórnarbúnað vallarins. Flugumferöarstjórar uröu aö notast viö ratsjár, eftir aö árásar- mennirnir höföu skoriö á kapla og spillt öörum útbúnaöi, sem dag- lega er notaöur. Þá var .einnig gerö árás á lögreglustöö i grennd viö flugvöll- inn og varpaö á hana bensin- sprengju. Lögreglan telur, aö atvikin I gær kunni aö vera undanfari meiriháttar aögerba ofstækis- manna, sem andvigir voru gerð flugvallarins. Friöur hefur þó veriö um flugvöllinn I marga mánuöi, eftir óeiröirnar i fyrra, þegar hann var opnaður. — Næsta sunnudag er skipulögö hópganga til þess að minnast þess, aö eitt ár er liöiö frá fyrstu árás ofstækis- manna. Þessi símamynd er af þvf sögulega augnabliki, þegar Hussein Jórdanlukonungur bauö um helgina Arafat Ieiötoga PLO velkominn til Jórdaniu, en svo virðist sem samningar tsraels og Egyj talands ætli aö færa skæruliöa Palestinuaraba og Jórdanfustjórn saman, en þar á milli hefur veriö grunnt á þvi góöa. Samningarnir til um- rteðu í ísraelsþingi Menachem Begin, forsætisráðherra, mun á ríkisstjórnarfundi í dag leitast við að fá opinbera samþykkt meðráðherra sinna á fyrirhuguðum f riðarsamningum við Egyptaland, áður en samningarnir verða lagðir fyrir Israelsþing síðar í vikunni. Þrlr ráöherrar i stjórninni, allir i þjóöræknisflokknum, sem höföu sagt blaöamönnum i gær, aö þeir mundu segja sig úr stjórninni, ef ekki væri tryggt, að Israel héldi áfram vesturbakkanum, munu hættir viö. Begin forsætisráö- herra skýröi frá þvi morgun, aö þessir ráöherrar mundu sitja áfram. Umræöur hefjast i þinginu á morgun, og sennilega veröa samningarnir bornir upp til at- kvæöa á miövikudag eöa fimmtu- dag. Þegja yfir því, hve margir fórust í flug- slysinu hjó Moskvu Tveggja hreyfla far- þegaþota í eigu sovéska f lugf élagsins Aeroflot brotlenti í ísþoku skammt frá Vnukovo—flugvelli Moskvu á laugardag. — Ekki hefur verið frá því greint, hve margir fórust með vélinni. Tass-fréttastofan sagöi, aö fólk hefði farist meö flugvélinni, en lét ósagt hve margt.Sovésk yfirvöld segja venjulega ekki frá flugslys- um, nema þau hafi oröiö nærri stórborgum, eöa aö I slysinu hafi farist útlendingar. Þotan var af geröinni Tupolev 104, sem auk sex manna áhafnar getur tekið upp I eitt hundraö far- þega. Tass segir, aö vélin hafi veriö á leiöinni frá Moskvu til Odessa viö Svartahafiö. Viröist vélin hafa hrapað i flugtaki. 1,6 miiijónir Armenar hafi veriö drepnir. Tyrklandsstjórn mótmælir þvi, aö þetta geti kallast þjóöar- morð, þvf aö fjöldi Tyrkja hafi llegið I valnum lika. Pakistanar mótmæltu yfirlýs- ingunni, þar sem hún gæti ekki vakið hina dauöu til lifs og þjón- aöi engum tilgangi öörum að hlejpa illu blóði i tengsl þessara rikja I dag. Lœknar og pyntingar Læknar verða aö hefja upp raust sina og andmæla pynding- um, grimmdarlegri eöa ómann- úðlegri meöferö á föngum eöa hegningum, eftir þvf sem bresku læknasamtökin leggja fyrir i handbók um siöareglur lækna. Samtökin (BMA) segja, aö þaö sé skylda lækna aö neita aö ciga nokkra hlutdeild I pynding- um, jafnvel þótt læknirinn eigi ekki aö leggja sjálfur hönd á pinubekkinn, heldur aðeins rannsaka fangann og ganga úr skugga um, hve óhætt sé aö leggja mikiö á hann. Læknar mega ekki heldur rétta hjálparhönd við yfir- heyrslur, þar scm fangi er pynt- aöur, cöa aðstoöa viölyfjagjöf á fanga til þess aö losa um tungu- höft hans. Skœruíiðabiskupinn israei sakaði fyrir helgi grisk-kaþólska erkibiskupinn Hilarion Capucci, um aö hafa nýlega áfundum meö skæruliö- um Palcstfnuaraba staöiö aö skipulagningu á hermdarverk- um á hersetnu svæöunum. Capucci erkibiskup var dæmdur I ísrael 1974 f tólf ára fangelsi fyrir vopnasmygl á þágu skæruliða, en aö beiöni Páfagarös var hann látinn laus, eftir aö hafa afplánaö einungis þrjú ár. — Hann lofaöi í staöinn aö láta aldrei sjá sig aftur i Austurlöndum nær. En I byrjun þessa árs rákust israclskir fréttamenn á Capucci á götu i Damaskus i Sv-landi i fylgd meö leiötogum PLO. Embættismenn I Páfagaröi scgja, aö Jóhannes Páll páfi hafi boðað erkibiskupinn á sinn fund til þess að gera sér grein fyrir stuöningi hans viö Palest- ínuaraba. Nf pokatíska Indónesíumenn hafa fengiö óvenjulega pöntun til þess að ■næta „skrítinni eftirspurn” vestrænna kvenna, scm vilja klæöast kjólum, saumuöum úr hveitisekkjum. Hentu mcnn gaman að þvi I Jakarta, að horist heföi pöntun frá Danmörku I 4.000 slika kjóla — „Við mundum ckki vDja vera i slíku hér, þótt viö fengjum þessar flikur gefins," sagði einn índónesinn. Sardínustríðið Nýir samningar hafa tekist milli Spánar og Portdgals og ættu að binda cndi á sardlnu- striöið, sem geisaö hefur viö Portúgalsströnd fyrri hluta þessa vctrar. Samkomulagiö tekur aö visu einungls til ársins 1979, en góöar vonir eru bundnar viö, að það geri oröiö grundvöllur aö lang- timasamningum og vfötækari samvinnu milli landanna. Fengu Spánverjar veiöiheim- ildir fyrir 305 fiskiskip til þess aö veiöa innan 200 milnanna. Ennfremur lcyfi fyrir 126 fiski- báta aö veiöa á beltinu milli 6 og 12 mflna. Portúgalar fá samskonar heimildir fyrir sina fiskimenn f efnahagslögsögu Spánar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.