Vísir - 19.03.1979, Síða 10
10
utgefandi: Reykjaprent h/t
Framkvæmdastjóri: Davfð Guömundsson
Ritstjórar: ólafur Ragnarsson
Hörður Einarsson
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Ellas Snæland Jónsson. Fréttastjóri er-
lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson.
Blaðamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Halldór Reynisson, Jónina
Michaelsdóttir, Jórunn Andreasdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, óli
Tynes, Sigurður Sigurðarson, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson, Þor-
valdur Friðriksson. Iþróttir: Gylf i Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmynd-
ir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. útlit og hönnun: Jón óskar Haf-
steinsson, Magnús Olafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
Auglýsingar og sxrifstofur: Askrift er kr . 3000 á mánuöi innan-
Sfðumúla 8. Simat 8461t og 82260. lands. Verð i lausasölu kr. 150 eintakiö.
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 sfmi 86611.
Ritstjórn: Sfðumúla 14 simi 86611 7 Ifnur. Prentun Blaðaprent h/f
Málefnin séu
látin ráða
Sú tillaga, sem borin var f ram hér í blaðinu é dögun-
um, að kannaðir yrðu möguleikar é samstjórn Sjálf-
stæðisf lokksins, Alþýðuf lokksins og Framsóknarf lokks-
ins til þess að freista þess að koma lagi á efnahagsmál
þjóðarinnar, hefur fengið misjafnar undirtektir hjá
sjálfstæðismönnum.
Engra viðbragða hefur orðið vart hjá hinum flokkun-
um tveimur.
Hluti sjálfstæðismanna lýsir því yfir, að ekki komi til
greina nein ríkisstjórnarþátttaka án undangenginna
kosninga og krefst nýrra kosninga þegar í stað.
Þessir sjálfstæðismenn spyrja í hvaða tilgangi sé
hreyft slíkri tillögu um athugun á stjórnarmyndun. Er
það með hagsmuni Sjálfstæðisflokksins í huga? Þeir
draga í efa, að svo sé. Eða er það til þess að bjarga
Framsóknarflokknum eða Alþýðuflokknum úr þeirri
erfiðu stöðu, sem þeir nú eru í?
Ætli það sé við hæfi að minna á, að hér koma til álita
hagsmunir fleiri aðila en þessara þriggja stjórnmála-
flokka, hagsmunir íslensku þjóðarinnar?
Menn mega líka vel vera minnugir margendurtekinna
orða Geirs Hallgrímssonar formanns Sjálfstæðisflokks-
ins til stjórnarmyndunar. Þau eru enn í góðu gildi.
Auðvitað er það Sjálfstæðisflokksins að ákveða það,
hvort flokkurinn vill Ijá máls á stjórnarmyndunar-
viðræðum, ef sá möguleiki opnast. En það verður að
segjasteins og er, að skilyrðislaus krafa um kosningar
styðst við haldlítil rök. Vissulega er öll stjórn landsmála í
kaldakoli. En ekki verður nú heldur sagt, að núverandi
ríkisstjórn hafi tekið við hreinu borði, öðru nær. Og von
um aukið fylgi réttlætir auðvitað ekki ein sér kosningar.
Hinar stórfelldu sveiflur, sem orðið hafa á fylgi flokk-
anna í tvennum síðustu kosningum, er aðeins ein myndin
af því upplausnarástandi, sem rfkir í ísleVisku þjóðfélagi,
upplausnarástandi, sem komast þarf f yrir, en ekki ala á.
Það er helst von til þess, að hinir þrír lýðræðisf lokkar
geti sameiginlega náð tökum á efnahagsmálum þjóðar-
innar og bælt niður sífellda skemmdarverkastarfsemi
kommúnista í atvinnulífinu. Nú er lag, ef vilji er fyrir
hendi hjá forystumönnum þessara flokka. Rösk þrjú ár
eru til stef nu til næstu reglulegra alþingiskosninga, og á
þeim tíma má koma miklu í verk.
Það er einkenni stórhuga stjórnmálamanna, að þeir
hugsa meira um langtímaárangur heldur en stundar-
sigra eða stundartöp. islenska þjóðin þarfnast þess nú,
að fremstu stjórnmálamenn hennar tileinki sér slikan
hugsunarhátt, setjist á rökstóla og kanni, hvort málef na-
legur grundvöllur er fyrir samstarfi. Þeir eiga að taka
frumkvæðið, en láta aðgerðir sinar ekki sífellt ráðast af
því, sem uppivöðsluseggjum kommúnista þóknast að
beina athygli þeirra að.
Núverandi ríkisstjórn á sér ekki viðreisnar von.
Ný ríkisstjórn verður að leysa hana af hólmi sem allra
fyrst.
Málefnin verða að ráða myndun hennar.
Mánudagur 19. mars 1979. WAi&Æ-KM/
Aðalfundur Félags íslenskra stórkaupmanna
HEILDVERSLUN
FLYST ÚR LANDI
?!
AÐ ÖLLU
OBREYTTU
Aðalfundur Félags is-
lenskra stórkaupmanna
var haldinn á Hótel Sögu,
fimmtudaginn 15. mars.
Verðlagsst jóri flutti
ræðu í hádegisverðarboði
fyrir fundinn og fjallaði
þar um kannanir á inn-
f lutningsverði, sem gerðar
hafa verið, deildi hart á
fram komna gagnrýni á
kannnair þessar, en kvaðst
ekki hafa tíma til að svara
fyrirspurnum og vakti það
nokkra furðu fundar-
manna.
Stjórnarkjör fór fram og
var formaður kjörinn Ein-
ar Birnir, enJónMagnússon
lét af formennsku samkv.
lögum félagsins eftir 4ra
ára formennsku, aðrir
stjórnarmenn voru kosnir
Valdemar Baldvinsson,
Ólafur H. ólafsson, ólafur
Haraldsson og Jóhann
Ágústsson.
Fundurinn ályktaöi um hin
ýmsu mál er varöa verslunina.
Atalinn er harölega sá dráttur,
sem oröiö hefur á gildistöku nýrr-
ar verölagslöggjafar, sem sam-
þykkt var á alþingi á siöasta vori.
Fagnaö er þeirri umræöu um
Einar Birnir, nýkjörinn formaöur Félags fsl. stórkaupmanna.
I
VEIÐAR,
FISKUR,
VINNSLA
Skipulagning flota og fisk-
vinnstu: Undir þessari fyrirsögn
er grein i bjóöviljanum á föstu-
dag 9.3., skrifuö af tveim piltum,
sem að likindum eru við nám i
Þrándheimi, Þorsteini M. Bald-
vinssyni og Kristjáni K. Jakobs-
syni. Greinin sjálf er stutt, en
skreytt mörgum myndum, og i
henni er f jallaö um stjórnun fisk-
veiöao.fl., sérstaklega Suðurnes-
in og vanda fiskvinnslu á þessu
svæöi.
Megintilgangur greinarinnar
kemurþó fram i lokaoröum henn-
ar, — sam sagt skamma NATO og
koma þvi inn hjá lesendum að sú
stofnun eigi mestan þátt i
vandanum. Ég læt þaö álit ungu
mannanna á NATO liggja milli
hluta, svo og álit þeirra á utan-
rikisráöherra, — hvorugt atriðið
og hvorugur aöilinn leysir nokk-
urn vanda fiskvinnslu á tslandi.
Hitt er öllu ánægjulegra, að
ungir menn láti i sér heyra og séu
jákvæöir, þeim finnst of seint
ganga uppbyggingin og að nauð-
synlegt sé að ýta við þeim, sem
eldri eru, þetta er hluti þróunar
hvers heilbrigös þjóðfélags, ella
væristöönun á næsta leiti, þvi' að
menn gerast flestir þreyttir á
baslinu, þegarárin færast yfir þá.
En ungir menn eiga að færa sér i
nyt reynslu þeirra, sem eldri eru,
til viðbótar sinni menntun, Kenni-
setningar um miöstýringu veiða
og vinnslukomahérekkiaö gagni
vegna þess, að annar aöalaðili
málsins — þorskurinn — hefir
aldrei um þær heyrt og fer
ekkert eftir þeim.
Stjórnun veiða og vinnslu
Ungu mennirnir krefjast
stjórnunar veiða og vinnslu og
telja m.a., að sérstök tegund
eignaraöildar vinnslu-og veiöi-
tækja hafi þar einhver úrslita-
áhrif til góös. Stjórnun veiöa og
vinnslu fisks á Islandi er meiri
nú en i nokkru öðru landi, þar
með talið Noregi. Má i þvi sam-
bandi benda á fyrirvaralausar
lokanir veiöisvæða og einnig afla-
takmarkanir á nánast öllum
sviðum, — það hafa allir orðið aö
beygja sig undir þessar ákvarð-
anir, bæði veiðar og vinnsla,
hvort sem fyrirtækin hafa verið i
einka-eða almenningseign. Ég tel
meiri hættu á þvi, að tekiðyrði til-
lit til hagsmuna fyrirtækja, ef allt
væriorðiö almenningseign, vegna
þess að kerfiskarlarnir láta frem-
ur stjórnast af slikum hagsmun-
um. Mjög er hæpið aö gera lang-
timaáætlanir eða gera 5 ára áætl-
anir i þessum efnum, fyrr en
fiskifræðingar hafa kynnt þorsk-
inum allar áætlanir fyrirfram og
hann samþykkt þær; hann syndir
nefnilega um sjóinn þjónandi sin-
um eigin hagsmunum og engra
annarra.
Á að sækja i kynþroska
eða ókynþroska fisk?
Eitt er þó reglulega athyglis-
vert i grein þessari, og það er,
hvernig þeir félagar ætla sér aö
haga stjórn veiðanna, þeir vilja
takmarkasókn i ókynþroska fisk
en beina henni i auknum mæli á
þann, sem þegar er orðinn
kynþroska, með öðrum orðum að
drepa sem minnst af lömbunum á
hverju ári, en sem flestar ærnar,
helst allar ef hægt væri, betta
hefði nú þótt bærflegt búskapar-
lag við Breiðaf jörðinn.Kári minn
Ef þetta er það sem koma skal
er rétf. fyrir alla að hætta að
hugsa um fiskveiðar, svo fárán-
leger þessikenning, —kynþroska
fiskurinn er hrygningarstofninn
og ekkert annað og það ætti að
takmarkasvosem frekaster unnt
sóknina i þann hluta þorskstofns-
ins en beina veiðunum fremur að
ókynþroska fiskinum, vonandi
sleppur eitthvað af honum lifandi
áhverju ári til kynþroska aldurs
og heldur þannig stofninum við
lýði. bess er vert að geta i þessu
sambandi, aö sauðkindin fer aö
bera arð á þriöja ári, en þorskur-
inn ekki fyrr en á fimmta eða
jafnvel sjöunda ári, eftir árferöi i
sjónum.