Vísir - 19.03.1979, Page 13
VÍSIR
Mánudagur 19. mars 1979.
13 .
/
Tveir starfsmenn minkabúsins taka blóösýni úr einum minkanna, tií aö kanna hvort merki um sjúkdóminn Plasma Sytose finnast. Visimvndir GVA
löndum. Þar eiga minkabú viö
fjölmarga sjúkdóma aö striða
sem beint verða raktir til hinnar
tdýju veðráttu”.
— Hvernig gengur aö reka
minkabú hér á landi?
„Það gengur mjög illa vegna
efnahagsástandsins, en að öðru
leyti er mjög góð skilyrði fyrir
minkarækt á tslandi. Otlending-
ar eru mjög hrifnir af skilyrðun-
um hér en jafn gáttaðir á dýrtið-
inni hér og veröbólgunni. Hér er
vaxtakostnaðurinn einn á við
vinnulaun og fóður erlendis,
þannig að að er ekki furða þótt út-
lendingar standi á gati.”
— Hvað með undirtektir hins
opinbera og forsvarsmanna land-
búnaðarinns. Nú voru þessir aðil-
ar erfiðir viðureignarþegar byrja
átti aftur á minkarækt fyrir
nokkrum árum?
„Já, við höfum ekki notið einn-
ar einustu fyrirgreiðslu frá hinu
opinbera og það er rétt núna að
búnaðarfélagiö telur minkarækt
landhiínaðargrein. En það er
,mjög slæmt hvað lánastofnanir
eru minkabúum lokaöar”.
— A hverju eru dýrin fóöruð?
„Fiskúrgangi og slógi. Fóðrið
er mjög go tt og fóörunin by ggist á
erlendum fyrirmyndum.”
— Þú nefndir að um-
hleypingarnar færu illa með dýr-
in, en hrjá þau engir sjúkdómar?
„Ekkinemaeinnoghann er al-
varlegur. Sá sjúkdómur hrjáir
flest minnkabú f heiminum og það
er veriö að vinna að þvi að út-
rýma honum en það er mjög erf-
itt, þvi þetta er blóðsjúkdómur,
kallaöur Plasma Sytose. Hann
veldur minni frjósemi og dýrin
veslast upp og drepast. Sjúk-
dómurinn finnst bara i aliminki
ekki villimink”.
1 minkabúinu á Böggvistööum
var mikið frost eins og áður sagði
og stúlka ein var að moka
snjókögglum á búrin til þess að
hægt væri að brynna dýrunum,
þvi allar vatnsleiðslur voru frosn-
ar. Stúlkan sem sagðist heita
Guðrún Valdimarsdóttir, kvað
ágætt að vinna i minkabúinu, þó
heföi húnntinnáhuga iyrir mink-
um svona dags daglega.
„Jú þetta er nokkuð erfitt. Ég
þarf að moka skit og fóðra dýrin,
en fyrir hrausta konu þarf þetta
ekki að vera ómögulegt.”
—SS—
„Ég kem hingað og skipulegg
guðþjónustur fyrir þá 12 gyöinga
eða svo sem hér búa og veiti þeim
aðra þjónustu er þeir kunna aö
biðja um. Annars dreymir mig
um að byggja hérna samkundu-
hús gyðinga — ekki til að snúa Is-
lendingum til gyðingdóms, heldur
til þess að þeir skilji betur sinn
eigin kristna arf en hann á rætur
sinar aö rekja til gyðingdóms.
Hvað snertir afstöðu íslendinga
til gyðinga, þá hef ég ekki orðið
var við annað en mikla velvild.
Nú snerist umræðan um gyö-
ingahatur og gyðingaofsóknir og
var tilefniö hinir umtöluðu sjón-
varpsþættir „Holocaust”. Rosen-
blatt var spurður hvort þættirnir
gæfu rétta mynd af þessum at-
burðum.
„Það er aldrei hægt aö draga
upp mynd af þjáningu og dauða
sem sýnir hvernig þetta er I reynd
— myndin verður alltaf ófullkom-
in. Þó eiga þessir þættir rétt á sér
þvl þeir benda okkur á þau djöf-
ulllegu öfl sem búa í samfélagi
manna og kenna okkur kannski
betur að vera á varðbergi gagn-
vart valdhöfum sem svifast
einskis.
Annars held ég að ofsóknirnar
séu ákaflega svartur blettur á
samvisku kristinna manna. Þaö
er ekki hægt að taka ákveðinn hóp
manna og gera þá að sökudólg-
um — að frelsa menn eða leysa
vandamál þeirra með því aö taka
einhvern hóp út úr og skella allri
skuldinni á hann eins og gert var I
Þýskalandi nasismans.
Ég held að útrýmingarnar séu
viðvörun til okkar allra um þaö
hvað maður getur gert við
mann.” sagöi Rosenblatt rabbii
aö lokum. — HR
KANARÍEYJAR
FLOGEÐ í SÓUNA
Sunna býður upp á þægilegt dagflug
á föstudögum.
Hægter að velja um 1, 2 og 3 vikna
ferðir.
Brottfarardagar: 16.,- 23. feb. - 9.,-
16.,- 30. mars - 6.,- 20.,- 27. april -
18. maí - 13. júní - 4.,- 25. júlí - 15.
ágúst - 5.,- 26. sept.
Hótel og íbúðir í sérflokki.
Þjónustuskrifstofur með íslensku
starfsfólki.
Skoðiö nýja Kanaríeyjabæklinginn,
sem þú færð á skrifstofum Sunnu.
SUNNA
Reykjavik: Bankastræti 10, sími 29322
Akureyri: Hafnarstætl 94, simi 21835
Vestmannaeyjum: Hólagötu 16, sími 1515
epolhí
Síöumúla 20, sími 36677, hefur tekiö aö sér smásöludreifingu á
HEWI vörum frá fyrirtækinu Heinrich Wilke GmbH., og eru
viðskiptavinir okkar vinsamlegast beönir um aö snúa sér þangaö.
HEWI í eldhúsiö, baöherbergið, stofuna.
HEWI-vörur eru sérhannaðar fyrir nútímaheimili
HEWI höldur, húnar, snagar, krókar o.fl. Margar gerðir, tíu litir.
Eggert Kristjónsson & Co. hf.,
Sundagörðum 4 — Simi 85300