Vísir - 22.03.1979, Blaðsíða 2

Vísir - 22.03.1979, Blaðsíða 2
Umsjón: Katrin Pálsdóttir og Halldór Reynisson VISIR Fimmtudagur 22. mars 1979 *1 .j' < Finnst þér rétt að stytta sjónvarpsdagskrána í sparnaðarskyni? Heióar GuOnason, lagermaöur: — Ég horfi aldrei á sjónvarp. Sumir horfa mikið á þaö og það er kannski verst fyrir þá. Páll Pálsson, fyrrv. skipstjóri: — Ekki vildi égþaö. Menn á mfiium aldri hafa ekkert annaö aö gera en að horfa á sjónvarpiö. Þorsteinn Kristjánsson, verka- maður: — Þaö finnst mér ekki. Mér finnst þaö óréttmætt. Bragi Jósepsson, námsráögjafi — Þaö er rétt aö stytta þaö sem slæmt er, en lengja þaö sem gott er. Dagskrá sjónvarpsins er mis- jöfn, en mér finnst ekki rétt aö stytta hana. Tómas Arnason, fjármáiaráö- herra:— Nei þaö f innst mér ekki. Mér finnst sjónvarpiö nokkuð gott. Sem fjármálaráöherra get ég varla veriö á móti sparnaöi, en mér finnst aö spara ætti i ein- hverju ööru. veggfóður er á unflan- haldl fyrlr málningu Sú vartíðin að islendingar veggfóðruðu híbýli sín í hólf og gólf. Nefndist það á götu-íslensku að „betrekkja" og var afar vinsælt. Þótti það nokkuð fínt þegar undirrit- aður var að vaxa upp. En nú er öldin önnur. Nú mála menn í staðinn. Okkur lék forvitni á aö vita hvort og hvernig úrvaliö væri af veggfóöri sem verslanir byöu upp á og hvernig verölagi væri háttaö á þessari fyrrum vinsælu vöru. „Viö erum bara meö gamlar birgöir og eftirspurn er mjög litil” sagöi starfsmaöur hjá byggingavörusölu SIS. Hann sagöi aö þaö væri aöallega eldra fólkiö sem keypti veggfóöur, þaö yngra málaöi mest en einnig væri veggstriginn vinsæll I þeim aldurshóp. Einnig væri vegg- dúkur vinsæll — einkum á eldhús og böö. Starfsmaöur hjá Litaver sagöi aö lítil hreyfing heföi veriö á veggfóörinu siöustu þrjú ár, en nú virtist sér sem eftirspurnin væri aö aukast. Þá væri striginn ákaf- lega vinsæll og veggdúkur væri mikiö keyptur. Honum virtist sem þaö væri fólk á öllum aldri sem keypti veggfóöur og sama gilti um strigann. Byggingavöruverslun Kópa- vogs haföi ekkert veggfóöur á boöstólum. Sölu á þvi heföi veriö hætt fyrir 3 árum þvi salan heföi veriö mjög litil. Hins vegar væri nóg úrval af veggdúk og striga. Hér á eftir fer verökönnun I nokkrum þeim verslunum er selja veggfóöur, dúk og striga. Garöar Gunnarsson starfsmaöur hjá Litaver meö nokkrar tegundir af veggfóöri. Garöar telur aö sala á þvi sé nú aftur farin aö aukast eftir nokkurra ára iægö. volvo-bílar meö bllaðar bremsulelöslur Hefur orðlð vart I ðrfáum bifrelðum hér á landl 7000 norskir Volvo-eigendur þurfa að láta að skipta um bremsuleiðslur í bílum sínum sökum gaila. Það er þó talin lítil hætta á að bremsurnar gefi sig og þvi engin ástæða til ótta. Hér er veiki punkturinn. Ef bremsuleiöslur Volvo 240 árg. 1975-76-77 eru riffiaöar á yfirboröinu er þar um aö ræöa veiku geröina sem þarf aö skipta um. Eftir aö tveir eöa þrir Volvo bilar misstu bremsurnar upp- götvaðist aö sprungur höföu myndast I bremsuleiöslum fyrir Volvo 240 seriuna 1975-76-77. Var þaö einkum i miklum frostum sem leiöslurnar vildu springa en einnig ef mikiö var lagt á hjólin. Þessar leiöslur sem hér um ræöir eru framleiddar i Kanada ogeryfirborö þeirra rifflað. Hins vegar eru einnig þýsk-framleidd- ar leiöslur i þessum geröum af Volvo, og hafa þær reynst ágæt- lega. Eru þær með sléttu yfir- boröi. Eigendur þessara bila geta þvi sjálfir gengið úr skugga um hvort bflar þeirra eru meö gall- aöar leiöslur eöa ekki. Visir haföi samband viö Krist- ján Tryggvason hjá Volvo- umboöinu hér á landi og sagöi hann aö þessa heföi oröiö vart i örfáum bilum hér á landi. Ekki heföi þó veriö talin nein ástæöa til aö kalla bilana inn þvi hverfandi likur væru fyrir þvi aö þessir bilar misstu algerlega brems- urnar þótt bremsuleiöslur gæfu sig. Þeir heföu hins vegar bent Volvo-verkstæðum um land allt á aö gá aö þessu þegar viökomandi geröir kæmu inn til viögeröa. SÍS Litaver BYKO Veggfóörarinn Veggfóður 100 til 250 til 560 til 1x0,5 m. 582 kr 1430 kr 600 til 1661 kr. 1000 kr Veggdúkur 1x0,5m 1220 kr 1000 til 1790 kr 1700 kr Veggstrigi 1180 til 856 til 700 til 1x0,9m 1530 kr 2200 kr 2960 kr 2040 kr Skýrt skal tekiö fram aö hér er aöeins um verösamanburö aö ræöa og segir hann ekkert um gæði vörunnar. —HR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.