Vísir - 22.03.1979, Side 6
Umsjón:
Guömundur
Pétursson
vísm
Fimmtudagur 22. mars 1979
ISRAELSMNG SAMÞYKKTI
Israelsþing samþykkti með
yfirgnæfandi meirihluta atkvæða
hinn nýgerða samning við
Egypta, og má nú heita á enda 30
ára langur ófriður Israels og
Egyptalands.
Eftir 28 klukkustunda umræöur
i þinginu féllu atkvæði þannig, að
95 voru með en 18 á móti, meöan
tveir sátu hjá. (5 voru fjarver-
andi).
Þessi afgreiðsla opnar Mena-
chem Begin forsætisráöherra leið
til þess að fara til Washington og
undirrita samninginn ásamt
Jimmy Carter Bandarikjaforseta
og Anwar Sadat Egyptalandsfor-
seta á mánudaginn.
„Undir lok umræðnanna i nótt
sagði Begin: „Viö höfum allir á
tilfinningunni, að við séum stadd-
ir á timamótum. Látum oss
vona,að þau veröi jákvæö fyrir
bæði Israelsþjóö og Egypta. Við
viljum ailir ná einfaldlega friði
manna i meðal.”
i Barna-
i barn
j MiKons
Tricia Nixon Cox var
umkringd blaöamönnum,
þegar hún yfirgaf fæð-
ingardeild eins af
sjúkrahúsum New York
með vikugamlan son sinn
á arminum. Er það
fyrsta barnabarn Richard
■ Nixons, fyrrum forseta. —
Viö hlið Triciu er hinn stolti
faðir, Edward Cox.
Begin varaöi við þvi, að miklir
erfiðleikar væru framundan
varðandi viðræður um takmark-
aða sjálfstjórn til handa
Palestinuaröbum á vesturbakka
árinnar Jórdan og á Gazasvæð-
— „Við sjáum fram á ár mikillar
þrætu, ” sagði hann.
Umræður þingmanna þóttu
annars dauflegar og ekki i likingu
viö þann æsing, sem búist hafði
verið við eftir umræðurnar i
„Knesset” eftir Camp David-
fundinn i september. — 108 þing-
menn kvöddu sér hljóðs (af 120).
Flestir töluðu af alvöru, þar sem
þeir lögðu mesta áherslu á erfiö-
leikana, sem friðnum mundu
vera samfara.Aðal-áhyggjuefnið
var öryggi landsins, sem mönn-
um sýndist nokkur háski búinn
við aö kalla herinn heim úr Sinai.
Eins höfðu menn áhyggjur af
hugsanlegri stofnun fjandsam-
legs Palestinurikis á vesturbakk-
anum.
Ofgamenn þjóðernissinna
gagnrýndu samninginn harka-
lega, og sögðu hann brotthlaup
frá grundvallaratriðum zionis-
mans. — Kommúnistar gagn-
rýndu hann jafn-harkalega, en
vegna þess að þar væri þjóðar-
réttur Palestinuaraba fyrir borð
borinn.
Atðkin vlð
Kúrda fjör-
uðu út í
nött
Atök skæruliða Kúrda og trans-
hers, sem talin eru hafa kostaö
hundruð mannslifa, lognuðust út
af i nótt.
Þessar skærur við Kúrda, sem
hófust á mánudagskvöld, þykja
vera alvarlegasta raunin, sem
hin nýja stjórn trans undir hand-
leiðslu Khomeinis æðstaprests,
hefur orðið aö glima viö.
Kúrdar segja, aö hundruð
manna hafi fallið ýmist f bardög-
um við stjórnarherinn eða fyrir
leyniskyttum, en erfitt er að
henda reiður á manntjóninu.
Kúrdar umkringdu á mánu-
dagsmorgun herstöö eina viö út-
jaðar bæjarins Sanandaj, en her-
inn reyndi að hrekja þá með
skriödrekum. Svöruöu Kúrdar
með vélbyssuskothriö og
sprengjuvörpum.
Það eykur á ringulreiðina, að
Kúrdar virðast klofnir i tvær
fylkingar. önnur, sem er vinstri-
sinna og samanstendur af yngri
mönnunum, er kastað hafa þjóö-
búningi Kúrda fyrir vestrænar
gallabuxur og annan klæönaö,
stóð fyrir árásinni á herstöðina.
Þessir fylkingararmar berjast að
visu ekki innbyröis eftir þvi sem
best veröur áéð, en standa heldur
ekki saman I bardögunum.
Breta-prins
Charles Bretaprins er
þessa dagana staddur i
heimsókn i Astraiiu, cins
og fram hefur komið i frétt-
um af ungri sýningarmey,
sem rauk á hann á bað-
strönd og rak honum
rembingskoss.
En hann hefur fjarlægst
baðströndina og er kominn
iengra inn I land, þar sem
þessi mynd var tekin af
honum skammt frá Perth.
Böndin Derast
að fleirl ráö-
herrum S-Afrku
Eitt af dagblöðum S-Afriku hélt
þvi fram i morgun, að þaö hefði
undir höndum frekari sannanir
þess, að Owen Horwood ráðherra
drægist inn i „Leynisjóðs”—
hneykslið, sem sett hefur allt á
annan endann þar i landi.
Horwood hefur þvertekið fyrir
nokkra hlutdeild i leyniaögeröum
upplýsingamálaráðuney tisins,
sem miöuðu að þvi aö auka hróð-
ur S-Afriku út á viö.
Rand Daily Mail hélt þvi fram,
að auk ljósrits sem sýnt var af
bréfi einu i sjónvarpinu i gær-
kvöldi þar sem nær 2925 milljón-
um króna var veitt til slikra að-
gerða, hafi blaðið ljósrit af öðru
bréfi, sem fjallaði um 5605,25
milljón króna fjárveitingu til á-
þekkra aögerða.
Blaðið heldur þvi fram, að bæði
séu undirrituð af Horwood.
Pieter Botha, forsætisráðherra,
hefur sagt, að hann muni vikja úr
embætti og efna til kosninga ef
sannaðverði aðfleiri ráðherrar úr
stjórn hans en Connie Mulder
einn væru við málið riönir.
Dr. Eschel Rhoodie, fyrrum
ráðuneytisstjóri upplýsingamála,
sem er landflótta, sýndi frétta-
mönnum BBC annaö bréf en það
sem kom fram I sjónvarpsviðtali
er þeir áttu við hann. — Bæði
bréfin voru undirrituö af Connie
Mulder og Horwood ráðherra.
Rauðu herdelldlnnl kennt um
Italskur iðjuhöldur lést i nótt af
völdum meiðsla, sem hann hlaut,
þegar hann þeyttist tuttugu
metra I loftinu, viö að sprengja
sprakk I bifreið hans.
Lögreglan segir, að þessi
sprengiárás á Attilio Dutto viröist
gerð i hefndarskyni vegna sár-
inda i kaupsýslu. — Hún fann á
skrifstofu Ditto limmiða uppi á
vegg, með áletruninni „Dutto
litli, við munum láta þig hoppa!”
Hringt var á lögreglustöðina og
sagt, að Rauða herdeildin bæri á-
byrgð á árásinni, en þaö er talíö
vera blekking til þess aö dylja
raunverulega ástæðu morösins.