Vísir - 27.04.1979, Blaðsíða 15
Tveir vatnsderar
Vatnsberar geta orðið meira
en aðeins góðir vinir, ef þeir
kæra sig um. Þó áð ég aðhyllist
ekki sjálfur stjörnuspeki, vill ég »
þó leyfa mér að koma með
nokkrar athugasemdir varðandi
bréf EIM, sem birtist 24 april. I
þvi bréfi er einhver sem aðhyll-
ist stjörnuspáfræði, beðinn að
gefa upplýsingar varðandi
hana. Þeirri bón er auðsvarað,
og verða hér nefnd nokkur
atriði.
Segja má, að til séu þrjú óllk
stig stjörnuspeki.
Fyrsta stigið eru hinir
alkunnu dálkar sem birtast dag-
lega i flestum, ef ekki öllum
dagblöðum landsins. Sam-
kvæmt þeim ætti t.d. tólfti hluti
Islendinga að verða fyrir fjár-
hagslegu tjóni, ákveðinn dag,
svo að dæmi sé tekið. Sérfræð-
ingar i stjörnuspeki, segja að
þessar spár séu i besta lagi
aðeins til gaman gerðar, enda
munu næsta fáir taka þær
alvarlega, þótt margir lesi spá
sina daglega.
Annað stigið er kunnast hér á
tslandi. I þvi er mannkyninu
skipt i tólf hópa, samkvæmt
fæðingardegi, og á þá að vera
hægt að segja til um skapgerð
einstaklinga og likurnar fyrir
vel heppnuðu sambandi þeirra
við aðra i vináttu, ástalifi og
hjónabandi. Þó að þessar spár
getí verið réttar, aö meira eða
minna leyti, eru þær oft of
alhæfar og stundum beinllnis
rangar. Þegar allt kemur til
alls, eru fleiri en tólf manngerð-
ir á jörðinni.
Þriðja stigið er flóknast og, að
dómi þeirra sem hafa raunveru-
lega þekkingu á stjörnuspeki,
hiðeinasem raunverulegt mark
er á takandi. Hér er ekki aðeins
tekið tillit -til „stjörnumerkis-
ins”, heldur til eftirfarandi
atriða: Fæðingarminútan, „hið
risandi merki”, „miðhimins-
merkið”- og stöðu sólar, tungls
og plánetna á fæðingarstund-
inni. Að fengnum þessum upp-
lýsingum er teiknað svonefnt
„hóróskóp ”, eða stundsjá. Á
það eru ofannefiidar upplýsing-
ar færðar, og segist stjörnu-
spekingurinn þá, með nokkurri
vissu.getasagt til um þau atriði
sem „annars stigs” stjörnu-
spekingar segjast þekkja til
hlitar.
Ég vil taka fram, varðandi
„áhrif stjarna og stjörnu-
merkja”, að ýmsir telja að
stjörnurnar hafi ekki bein áhrif
á jörðina ogibúa hennar, heldur
sé staða þeirra aðeins táknræn
fyrir stöðu „alheimskerfisins”.
Svo að ég leyfi mér að stela
skýringardæmi úr Ganglera, þá
vitum við öll að hádegisverðar-
timi er kominn þegar litli visir-
inn á klukkunni stefnir á tólf, en
engum dettur i hug að visirinn
hafi sjálfur áhrif á hádegismat-
inn.
Ég veit ekki sjálfur hvort
stjörnuspeki er annað og méira
enhjátrú, en éger þess fullviss,
að hún getur orðið að hjátrú, ef
hún er tekin of bókstaflega.
Aðlokum nokkurorð til þeirra
sem trúa á st jörnuspeki.
Stjörnuspeki, eins og hún er
þekktust hér álandi, er að of
miklu leyti byggð á alhæfingum
til að hægt sé að láta hana hafa
úrslitavald i „hinum tveim
mikilvægu spurningum ævinn-
ar”. Þær spurningar eru: 1.
Hvert á ævistarf mitt að vera?
2. Hvern á ég að velja mér að
lifsförunaut?
2468-2595
HSG skrifar:
„Mig langar til að koma á
framfæri þökkum til skátanna
fyrir frábæra skemmtun i
Reykjavik á sumardaginn fyrsta.
Þrátt fyrir leiðinlegt veður var
dagurinn vel heppnaöur að min-
um dómi og mannfjöldinn sem
fyllti miábæinn sýnir svo ekki
verður um villst að það er mikil
þörf fyrir svona tilbreytni i fá-
sinninu hér.
Ég vil gera það að tillögu minni
að skátarnir gangist fyrir
skemmtun sem þessari einu sinni
á mánuði I sumar og bjóöi upp á
Tivoli eins og á sumardaginn
fyrsta. Það væri verðugt verkefrii
á barnaári auk þess sem það gæti
ýtt undir að hrundið verði á stað
öflugri hreyfingu til að koma upp
visi að varanlegu Tivolii i borg-
inni.”
Otfskemmtanir í
borgtnni t sumar
OPID
KL. 9-9
fAllar skreytingar
fagmönnum.
3
Nosg bllaitnBi a.m.k. ó kvöldin
BIOMtAMMIH
HAKNARSTR.CTI Sinii 12*17
Auglýsing
um aðalskoðun bifreiða
í lögsagnarumdœmi Reykjovikur
í maímónuði 1979
Miðvikudagur 2. mai R-24701 tii R-25200
Fimmtudagur 3. mai R-25201 til R-25700
Föstudagur 4. mai R-25701 til R-26200
Mánudagur 7. mal R-26201 til R-26700
Þriöjudagur 8. mai R-26701 til R-27200
Miðvikudagur 9. mai R-27201 til R-27700
Fimmtudagur 10. mai R-27701 til R-28200
Föstudagur 11. mai R-28201 til R-28700
Mánudagur 14. mai R-28701 til R-29200
Þriðjudagur 15. mai R-29201 til R-29700
Miðvikudagur 16. mai R-29701 til R-30200
Fimmtudagur 17. mai R-30201 til R-30700
Föstudagur 18. mai R-30701 til R-31200
Mánudagur 21. mai R-31201 til R-31700
Þriðjudagur 22. mai R-31701 til R-32200
Miövikudagur 23. mai R-32201 til R-32700
Föstudagur 25. mai R-32701 til R-33200
Mánudagur 28. mai R-33201 til R-33700
Þriðjudagur 29. mai R-33701 til R-34200
Miðvikudagur 30. mai R-34201 til R-34700
Fimmtudagur 31. mai R-34701 til R-35200
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðar sinar til bifreiðaeftirlits rikisins,
Bildshöfða 8 og verður skoðun fram-
kvæmd þar alla virka daga kl. 08:00 til
16:00.
Festivagnar, tengivagnar og farþega-
byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvi að bifreiðaskattur sé
greiddur og vátrygging fyrir hverja bif-
reið sé i gildi.
Athygli skal vakin á þvi, að skráningar-
númer skulu vera vel læsileg.
Samkvæmt gildandi reglum skal vera
gjaldmælir i leigubifreiðum sem sýnir rétt
ökugjald á hverjum tima. Á leigubifreið-
um til mannflutninga, allt að 8 farþega,
skal vera sérstakt merki með bókstafnum
L.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tima verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
Lögreglustjórinn i Reykjavik
24. april 1979.
Sigurjón Sigurðsson.
Nauðungaruppboð
annaðogsíðasta á Tunguhálsi 11, þingl. eign Isl. ameriska
verslunarfél. h.f. fer fram á eigninni sjálfri mánudag 30.
april 1979 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavfk.
Nauðungaruppboð
sem augiýst var i 45., 49. og 54. tbl. Lögbirtingablaös 1978 á
hluta i Stífluseli 3, talinni eign Bergþórs Ólafssonar fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavfk á eigninni
sjálfri mánudag 30. april 1979 kl. 15.30.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavik.