Vísir - 09.04.1979, Qupperneq 3
Vl&lM Mánudagur 9. aprll 1979.
Morgunpósturlnn fer í sumarfrí í maí
■
■
HELDUR SENNI-
LEGA AFRAM
NÆSTA VETUR
„Þaö eru okkar hugmyndir að hviia þáttinn yfir sum-
arið/ bæði vegna áheyrenda og okkar sjálfra"/ sagði Páll
Heiðar Jónsson annar af umsjónarmönnum Morgun- j
póstsins er Vísir innti hann eftir þvi hvort leggja ætti1
þáttinn niður.
Páll sagöi að það væri alger-
lega á valdi Utvarpsráðs hve lengi
þessi þáttur, sem aðrir i dagskrá
útvarpsins héldu áfram og hvort
yfir höfuð hann byrjaði aftur eftir
sumarfri.
Ölafur R. Einarsson formaður
útvarpsráðs sagði að Morgun-
pósturinn eins og margir aðrir
fastir þættir vetrardagskrárinnar
myndi hætta i mai en hér væri
fremur verið að hvila þáttinn en
skera niður vegna sparnaðar.
Kæmi sterklega til greina að
halda honum áfram næsta vetur,,
þvi hann væri með vinsælli þátt-
um útvarpsins.
—HR
Samhand fslenskra sveitarfélaga:
A móli irumvarpl
um framhaldsskðla
Á fundi fulltrúaráðs Sambands íslenskra sveitar-
félaga/ sem haldinn var á Húsavík 28. og 29. mars/ kom ,
m.a. fram að ráðið er andvigt þeim áformum sem felast
i frumvarpi til laga um framhaldsskóla og gera ráð fyrir
kostnaðaraðild sveitarfélaga að framhaldsskóium.
í ályktun, sem samþykkt var á
fundinum, segir að heildarútgjöld
sveitarfélaga vegna rekstrar-
aðildar að framhaldsskólum
myndu aukast um a.m.k. 500
milljónir króna á ári. Þá telur
fundurinn mörg ákvæði frum-
varpsins óljós og hvetur til þess
að málið verði athugað nánar.
—IJ
26 ÖKUMENN GRUNAÐIR UM ÖLVUN
Allmargir ökumenn voru teknir
grunaðir um ölvun við akstur um
helgina I Reykjavik.
Frá þvi á föstudagsmorgun
fram til dagsins I dag, stöðvaði
lögreglan tuttugu og sex ökumenn
sem grunaöir voru um ölvun við
akstur. Þykir það með meira
móti miðaö við það sem tiðkast
hefur að undanförnu. —EA
JVC
l % \
1 1 i
1
, AMERISKU
HASKOLABOLIRNIR
KOMHIR AFTUR
Laugavegi 37 Laugovegi 89 Hafnarstrsti 17
12861
13008
13303