Vísir - 03.04.1979, Blaðsíða 3
VISIR Þriðjudagur 3. april 1979.
3
Dr. Pétur Guðjónsson.
Námskelð tu
varnar vlð streltu
„Tiigangurinn með þessu nám-
skeiði er að kenna mönnum að
verjast streitu sem eins og kunn-
ugt er veldur tiöum fjarvistum úr
vinnu og dregur úr afköstum,”
sagði Þörður Sverrisson fram-
kvæmdastjóri Stjórnunarfélags-
ins i samtali við VIsi.
Félagið efnir til námskeiðs
dagana 5. og 6. apríl þar sem dr.
Pétur Guðjónsson mun kenna
tækni sem einstaklingar geta not-
að til að forðast streitu, vanliðan
og innri spennu. Pétur er félags-
sálfræðingur, búsettur I Banda-
rikjunum þar sem hann veitir for-
stöðu Synthesis Institute sem er
sérhæfð stofnun á þessu sviði.
Námskeiðið fer fram að Hótel
Esju og er þátttaka þegar orðin
mikil, en innritun fer fram hjá
Stjórnunarfélaginu. — SG
„Átakaiaus
kosníng”
- segir Vllmundur
Gylfason
//Þetta var alveg átaka-
laus kosning og enginn á-
róður hafður í frammi/
enda tóku ekki nema 100
manns þátt i henni af um
1.100 í félaginu/" sagði Vil-
mundur Gylfason alþingis-
maður í samtali við Vfsi.
Eins og fram kom i Visi I gær
fóru fram kosningar til fulltrúa-
ráðs Alþýðuflokksfélags Reykja-
víkur um helgina. Þá féllu út 30 af
þeim 57 sem sæti eiga I ráðinu og
nýir menn kosnir I þeirra stað.
Ýmsir af þeim sem eru upp á
kant við Vilmund I Alþýðuflokks-
félaginu vilja túlka þetta sem ó-
sigur fyrir Vilmund þvi það hafi
einkum verið hans stuðningsfólk
sem féll. Vilmundur sagði þetta
hreina firru enda hafi þetta verið
ósköp venjuleg kosning án nokk-
urrar smölunareins og þátttakan
sýndi best.
t málgagni Alþýðuflokksins
segir i morgun, að þetta hafi verið
meiri uppstokkun en áöur hafi
þekkst í félaginu allt frá stofnun.
S.G.
Ef yður vantar rafritvél fyrir
heimilið eða skrifstofuna er
rétta vélin.
Gott verð. Mikil gæði.
Skipholti 21, Reykjavfk,
sími 231 88.
„SJALFSRGT M REYNk
FRJALSA SAMNINGA”
- seglr l rninnimulaáim Sláitstæoismanna um trumvarp Olals Jðhannessanar
„Sjálfstæðismenn telja eðlilegt og sjálfsagt að
leið frjálsra samninga um kaup og kjör sé reynd
áður en gengið er til lagasetningar um þau
atriði”, segir i áliti minnihluta fjárhags- og
viðskiptanefndar á verðbótakafla efnahagsfrum-
varps forsætisráðherra.
1 minnihlutaálitinu er talað
um, að frumvarpið i heild sé
útþynnt og bragðdauft og það
leysi engan vanda. Þar sé
fjallað um mörg atriði sem hægt
sé að framkvæma án lagasetn-
ingar. Sumar greinar séu
hreinlega stefnuyfirlýsingar
eða loforð, sem ekki eigi heimai
lagaákvæðum.
Um vaxtakafla frumvarpsins
segir minnihlutinn að sum
ákvæði gætu verið þar til bóta.
Stefna Sjálfstæðisflokksins sé
skýr I þeim efnum: gefa á
verðtryggingu frjálsa og færa
ákvörðunarvald um kiör inn- og
útlána frá Seðlabanka til
viðskiptabanka og sparisjóða.
Minnihlutinn leggst á móti þvi
að atvinnurekendum sé skylt að
tilkynna með 2ja mánaða fyrir-
vara um samdrátt I fyrirtækj-
um.
Minnihlutinn gerir engar sér-
stakar breytingatillögur við
frumvarpið, þar sem þeir telja
það vera slikt klambur aö það
geti ekki verið uppistaða
heilbrigðrar löggjafar. —KS
Áslaug ísiands-
meistarl kwenna
I skák
Smygiað ðiengl al
velllnum tn sðlu?
Aslaug Kristinsdóttir 18 ára
nemandi i Menntaskólanum við
Sund, sigraði á Islandsmóti
kvenna i skák. Hún hlaut fimm
vinninga úr sjö umferðum.
Síðasta umferðin var tefld i
gærkvöldi en eftir er að tefla
biðskákir. I 2.-3 sæti eru Ólöf
Þráinsdóttir, fyrrverandi Is-
landsmeistari og Svana
Samúelsdóttir, Reykjavikur-
meistari með 4 vinninga. Sigur-
laug Friðþjófsdóttir er með 3,5
vinninga en á eina biðskák ó-
teflda.
— SG
Maður úr Keflavik var hand-
tekinn i gærdag, og er nú i haldi
hjá lögreglunni I Keflavik,
grunaður um sölu á smygluðu
áfengi af Keflavikurflugvelli.
I morgun var ekki ljóst hversu
Jeppi valt
Jeppi valt á gatnamótum
Skólavegar og Lyngholts I
Keflavik rétt eftir klukkan sjö i
mikið magn um er að ræða, en
fleiri hafa verið yfirheyrðir vegna
þessa máls, samkvæmt upplýs-
ingum rannsóknarlögréglunnar i
Keflavik. Rannsókn málsins
stendur nú yfir. —ea
gærkvöldi. Var einn maður i bil-
um. Er talið aö jeppinn hafi lent
á hálkubletti og oltiö þannig.
Endaði jeppinn á toppinum og
rakst utan i staur I veltunni.
Maðurinn slapp ómeiddur.
—EA
HEFUR JflTflÐ MANNDRAPK)
Þrjátiu og sex ára Reykvik-
ingur, Þráinn Kristjánsson.hef-
ur viðurkennt að hafa banað
Svavari Sigurðssyni, 56 ára
gömlum, meö hnifi i húsinu
númer 34 við Hverfisgötu i
fyrradag. Hann hefur verið úr-
skurðaður i gæsluvarðhald i
sextiu daga eða til 1. júni. Auk
þess er honum gert að sæta geð-
rannsókn.
Sambýliskona Svavars,
fimmtiu og niu ára, var einnig
úrskurðuð i gæsluvaröhald til 2.
mai eða i þrjátiu og einn dag.
— E.A.
ÍODICI
ISnAEL
GRIKKLAND
: 187.000
17. mai i 3 vikur
Feröatilhöqun: Brottför frá Keflavík að morgni
fimmtudagsins 17. maí með leiguflugí Sunnu til
Aþenu-Flogið þaðan síðdegis til Tel Aviv og ekið til
Jerúsalem. Dvalið verður á hðteli í miðborg Jerú-
salem næstu 14 daga og þaðan verður boðið upp á
skoðunarferðir um borgina og Landið helga.
31. mai verður f logið f rá Tel Aviv til Aþenu og dval-
ið þar á hóteli til miðvikudagsins 6. júní, er haldið
verður síðdegis f rá Aþenu til Kef lavikur með leigu-
flugi Sunnu.
Innifalið í verði eru flugleiðir og gisting á hótelum
með hálfu fæði.
SUNNAV'
BANKASTRÆTI 10.
SÍMAR 29322 - 25060