Morgunblaðið - 04.02.2001, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.02.2001, Blaðsíða 22
LISTIR 22 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Á RÁÐSTEFNU sem haldin var síðastliðið vor í Háskóla Íslands undir heitinu „Líf í borg“ flutti Pétur Gunn- arsson rithöfundur athygl- isvert erindi um borg- armenningu á Íslandi. Gerði hann tilurð borgarmenningar í Reykjavík að umtalsefni sínu og lýsti af miklu innsæi þeirri tilviljanakenndu þróun sem mótað hef- ur höfuðstaðinn allt frá því þeir Skúli fógeti og félagar hans reistu Innréttingarnar. Þar varð til Aðalstræti og sá miðbæjarkjarni í Kvosinni sem hefði átt að geta staðið undir nafni um alla framtíð. Að sögn Péturs var það þó ekki fyrr en á stríðsárunum að Reykjavík fékk loks á sig alvöru borgarblæ. Kvosin einkenndist þá af iðandi mannlífi og þeirri athafna- semi sem borgum tilheyrir: „Lækj- artorg er miðja strætisvagnanna og umferðarmiðstöðin – ígildi jarnbrautarstöðva evrópskra miðborga – er í miðjum bæ (þar sem nú eru kyrr- stæðar birgðaskemmur Eimskipa). Höfnin er á sínum stað og það eru líflegir farþegaflutn- ingar með skipum og tilheyrandi að- og frá- rennsli við komu- og brottfarir,“ segir Pétur. Og hvað skyldi svo allt þetta fólk hafa ver- ið að sækja í miðbæinn á þessum árum; jú, alla þá starfsemi og skemmtan sem gerir borg að menningarborg því í miðbænum voru allar þær opinberu stofnanir, þjónusta og afþreying sem markar svipmót þjóðar. Við Austurvöll var „glæsilegasta hótel borg- arinnar og Alþingishúsið sem jafnframt þjónaði sem Háskóli Íslands fram yfir 1940. Og útvarpið er staðsett við Austurvöll á efri hæðum Landssímahússins. Dagblöðin fjögur að tölu eru öll í miðbænum með tilheyrandi mannvitsbrekkum. Kaffihús og bókabúðir troða hvert öðru um tær. Tvö leikhús, Landsbókasafn...“ En þetta líflega ástand stóð ekkilengi yfir, eins og Pétur bendir á.Ef til vill má gera því skóna að sávísir að miðbæjarkjarna sem myndast hafði í Kvosinni hafi þótt of gam- aldags eftir að stríðinu lauk. Að timburhúsin í Aðalstræti og Austurstræti, Bernhöfts- torfan og hafnarlífið hafi ekki haft yfir sér þann „metrópólítan“ blæ sem aðrar borgir gátu státað af. Fyrir nú utan alla braggana sem búið var að hola niður hvar sem því varð við komið. Það er því eins og Reykvík- ingar missi móðinn við að byggja upp miðbæinn, heildarsýnin glatast í stórhuga áformum um endurbætur eða jafnvel í til- raunum til að mynda heildstæðari borg- armynd annars staðar í borginni þar sem hin lágtimbraða fortíð var ekki eins svipsterk í götumyndinni. Á þeim tímum sem fara í hönd, gera því flestir ráð fyrir því að fortíðin og timburhúsin víki fyrir „alvöru“ bygging- ararfleifð; stór og mikil steinhús eru byggð hér og þar í Kvosinni, með athyglisverða framhlið og bakhlið. Gaflar þeirra eru hins vegar rennisléttir svo hægt sé að „leiðrétta“ götumyndina í framtíðinni þegar eldri húsum hefur verið útrýmt. Það þarf ekki glöggan mann til að sjá merki um þessa þróun við allar helstu götur miðbæjarins. Pétur Gunnarsson heldur því fram að sú iðandi miðborg sem tilheyrði stríðsárunum hafi orðið til nánast eins og fyrir tilviljun: „Þessi borg varð eins og óvart. Og alveg jafn óvart var hún tekin niður. Sú borg sem við þekkjum í dag er þrátt fyrir þrefalt fleiri íbúa ekki sú fólksiða sem fyrri borgin var. Reykjavík sætir sömu örlögum og gyðingar í fornöld, hún er send í Dreifinguna miklu. Háskólinn flytur út á Mela, útvarpið endar inni í Efstaleiti, blöðin flytjast í holt og múla og mýrar og daga þar uppi eða einangrast. Landsbókasafninu er fundinn staður úti á Melum.“ Og hver skyldi afleiðing „Dreifingarinnar miklu“, sem Pétur kallar svo, vera? Einhver bílvæddasta borgarmenning sem um getur í Evrópu. Borgarmenning sem hverfist í kringum verslunarmiðstöðvar í úthverfum á búðartímum og í svefnhverfum þar fyrir ut- an. Lífið í sjálfum miðbænum bærir vart á sér nema um helgar. Þá tekur það hraust- legan kipp rétt undir miðnættið þegar borg- arbúar leggjast í kráarölt sem verður sífellt villtara eftir því sem líður á nóttina – eins og sautjándi júní standi árið um kring. Hreins- unardeild borgarinnar bindur loks enda á leikinn í morgunsárið svo allt sé þokkalegt þegar borgarbörnin vakna í úthverfunum og langar í bíltúr niður að tjörn til að gefa önd- unum brauð. Þó er langt því frá að ekki hafi verið gerð- ar tilraunir til að efla ímynd miðbæjarins í gegnum tíðina og hafa t.d. samtök kaup- manna í miðbænum lagt sitt af mörkum til gera Kvosina að raunhæfum keppinaut verslunarmiðstöðva um mannfjöldann. Borg- aryfirvöld hafa einnig staðið fyrir ýmsum skemmtilegum uppákomum, svo sem árlegri menningarnótt, auk þess sem menning- arborgarárið varð til þess að gæða bæinn langþráðu lífi er ungir sem aldnir gátu notið. Kjölfestan í miðbæjarlífinu er þó lítil og upp- sveifla ekki í öðru atvinnulífi en því sem tengist skemmti- og veitingastöðum. Það er því umhugsunarvert af hverjusú þróun sem reifuð er hér að ofanhefur orðið ofan á – sérstakleganúna þegar þau timburhús sem á annað borð lifðu hreinsanirnar af eru komin í tísku og sunduleitnin þykir ekki lengur lýti heldur tímanna tákn. Eins og Pétur bendir á er ekki lengur sjálfgefið að allar helstu menningarstofnanir landsins séu í Kvosinni en ef til vill má leiða líkur að því að eina leiðin til að styrkja innviði miðbæjarins sé að skapa þeim menningarstofnunum sem enn eiga eftir að festa sig í sessi verðugt um- hverfi í Kvosinni til að styrkja miðbæinn með allri þeirri athafnasemi sem þeim fylgir. Með Listasafni Reykjavíkur í nýuppgerðu Hafnarhúsi og nýju húsnæði Borgarbóka- safnsins í Grófarhúsi er ef til vil búið að stæla nokkuð þann bakugga sem miðbær Reykjavíkur þarf á að halda til að standa undir nafni sem áframhaldandi menning- arborg. Á sama tíma og sú jákvæða þróun í miðbænum á sér stað, hafa húsnæðismál Listaháskóla Íslands verið nokkuð til um- ræðu og ýmsir staðir verið nefndir í því sambandi. Listaháskólinn er ungur að árum og enn í mótun. Vegna þess öfluga og fjöl- þætta hlutverks sem honum er ætlað hefur hann alla burði til þess að verða einn mik- ilvægasti hornsteinn menningar í landinu. Það skiptir því ákaflega miklu máli að skól- anum sé fundinn sá staður í samfélaginu þar sem hann hefur sem allra mest vægi og get- ur haft mótandi áhrif á menningarlíf lands- manna og ímynd þeirra út á við. Eins og borgarstjóri Reykjavíkur, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sagði í Morgunblaðinu 26. jan- úar, þá verður „bara einn Listaháskóli byggður á Íslandi“. Jafnframt lýsti hún þeirri skoðun sinni að „það skipti verulegu máli hvar hann er“ og að hún sé „alveg ákveðið þeirrar skoðunar að hann eigi að vera sem næst miðborginni“. Þessari skoðun hljóta allir sem bera hag höfuðborgarinnar fyrir brjósti að fagna. Stjórn Listaháskólans hefur farið framá það við borgaryfirvöld að kannamöguleika á því að setja nýbygg-ingu skólans á Miklatún í tengslum við Kjarvalsstaði. Auðvitað er sjálfsagt að skoða þann möguleika með opnum huga og kanna þá kosti sem það býður upp á. Því er þó ekki að leyna að borgarmyndinni sem heild væri meiri hagur í því að Listaháskól- inn yrði ekki útvörður miðbæjarins á Mikla- túni, heldur miklu fremur hreyfiaflið í hjarta hennar. Listaháskóli á sæmandi stað í Kvos- inni gæti varanlega breytt andrúmslofti mið- bæjarins til betri vegar. Sá fjöldi nemanda og starfsmanna sem skólanum fylgir myndi óneitanlega setja svip sinn á mannlífið í Kvosinni yfir daginn. Listaháskólar, með jafn víðtæka starfsemi og Listaháskóla Íslands er ætlað að vera, eru fremur sjaldgæfir og því mikilvægt að huga vel að þeim þáttum starfseminnar er marka sérstöðu hans á því sviði. Í skólanum sameinast hönnun, byggingarlist, myndlist, sviðslistir og tónlist, og við undirbúning skólastarfsins hefur verið gert ráð fyrir að nemendur á ólíkum sviðum skólans geti haft með sér samstarf. Þegar til lengdar lætur má gera ráð fyrir að þetta fyrirkomulag, sem stuðlar að þverfaglegri nálgun á sköp- unarferlinu, verði skólanum og menningarlíf- inu til mikils framdráttar. Það er því afar mikilvægt að í allri um- ræðu um framtíð skólans og húsnæðismál hans sé fjölbreytni starfseminnar og teng- ingar hennar við ólík listsvið utan skólans höfð í huga. Listaháskólinn getur aldrei orð- ið sá hornsteinn sem hann þarf að vera nema honum séu sköpuð skilyrði til að vera lifandi miðstöð lista sem vinnur í nánu sam- starfi við aðrar lista- og menningarstofnanir. Í gangfæri við Þjóðleikhúsið, Listasafn Ís- lands, Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsinu, Borgarbókasafnið, Ljósmyndasafn Reykja- víkur gæti skapast samspil á milli stofn- ananna og nemenda Listaháskólans sem allir hefðu listrænan hag af. Ekki má heldur gleyma því að í gangfæri við miðbæinn er háskólasvæðið og allar þær menningarstofn- anir sem því tengjast; Þjóðminjasafnið, Þjóð- arbókhlaðan, Norræna húsið og svo mætti lengi telja. Með tilkomu langþráðs tónlistarhúss á hafnarbakkanum og uppbyggingu íbúða- byggðar í Vatnsmýrinni, auk Listaháskóla Íslands, gæti miðbærinn í Kvosinni loks orð- ið að því „metrópólítan“ afli sem markast af skapandi ungu fólki, iðandi mannlífi, kaffi- húsum og kaupmennsku – öllu í hæfilegu jafnvægi að nóttu sem degi. Dreifingin mikla Morgunblaðið/Árni Sæberg Mannlífið í hjarta Reykjavíkur ber þess nokkur merki að hafa orðið „dreifingunni miklu“ að bráð og myndi styrkjast mikið með nýju hreyfiafli á borð við Listaháskóla Íslands. AF LISTUM Eftir Fríðu Björk Ingvarsdóttur ÞEIR Chris Wilson og Nick Cassway, starfs- menn gallerís nokkurs í Fíladelfíu í Banda- ríkjunum, ræða hér verk á sýningu er gefið hefur verið heitið Steldu sýningunni. Gestum gallerísins leyfist að laumast út með listaverkin sem þar eru til sýnis, en þess er þó krafist að „þjófarnir“ útskýri fyrir starfsfólki gallerísins af hverju þeir hafi heillast nógu mikið af viðkomandi verki til að stela því. AP Stolin sýning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.