Morgunblaðið - 04.02.2001, Side 29

Morgunblaðið - 04.02.2001, Side 29
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 29 BAUGSSKÓLINN var formlega opnaður miðvikudaginn 31. janúar. Það var Björn Bjarnason mennta- málaráðherra sem formlega opnaði skólann og afhenti Sigríði Gunn- arsdóttur, fræðslustjóra Baugs, lyklana að nýjum húsakynnum skól- ans að viðstöddum gestum. Öflug fræðsla og þjálfun starfs- manna hefur verið eitt af stefnu- miðum Baugs allt frá stofnun fyr- irtækisins árið 1998. Ljóst þótti að til að stuðla að framsæknum rekstri fyrirtækisins þyrfti félagið að byggja upp fræðslustefnu til að tryggja hag starfsmanna og fyr- irtækja Baugs hf., segir í frétt frá fyrirtækinu. Haustið 1998 var fræðslustarfi hrundið af stað og ári síðar voru lögð drög að stofnun Baugsskólans. Í kjölfarið hófst und- irbúningur námskrár Baugsskólans ásamt leit að heppilegu kennslu- húsnæði fyrir nemendur. Hvatinn að stofnun skólans er í meginatriðum þríþættur. Í fyrsta lagi að mæta þörfum sem stafað hafa af skorti á tækifærum til versl- unarmenntunar í skólakerfinu og einnig til að byggja upp þekkingu sem nauðsynleg er svo að versl- anirnar fái að þróast í samræmi við markmið Baugs. Í öðru lagi að stuðla að áhrifaríkari rekstri fyr- irtækjanna og ánægju starfsmanna. Í þriðja lagi að auka mikilvægi verslunarstéttarinnar þar sem menntun eykur veg og virðingu hennar. „Baugsskólanum er ætlað að þjóna þörfum allra starfsmanna Baugsfyrirtækjanna, jafnt stjórn- enda sem og almennra starfs- manna. Ljóst er að í síbreytilegu umhverfi smásölunnar þarf starfs- fólk sífellt að tileinka sér nýjungar og ekki síður rifja upp gömul og góð lögmál í faginu. Baugsskólinn er opinn fyrir flestum þeim þörfum sem menn kunna að greina og koma upp í hinum daglega versl- unarrekstri. Mestu máli skiptir að skólinn vinni með fólkinu að við- fangsefnum þess og í samræmi við markmið rekstrarins,“ segir í frétt- inni frá Baugi. Fjölbreytt námskrá Á haustmisseri 2000 var áherslan lögð á styttri námskeið og reynt að ná til sem flestra. Starfsfólki hefur gefist kostur á að sitja nýliðanám- skeið, vöruþekkingarnámskeið, ráðninganámskeið, tölvunámskeið, námskeið um skyndihjálp, rýrnun og öryggismál. Stærsta verkefnið á þessu ári er 15 vikna birgðastjórn- unarnámskeið á háskólastigi. Vorið 2001 og í framtíðinni verður meiri áhersla lögð á lengra nám, t.d. verslunarstjóranám. Einnig verður mikil áhersla lögð á þjónustuþjálfun og að styrkja innviði innri þjálfunar í verslunum, t.d. með þróun starfs- fóstrakerfis. Til lengri tíma litið er stefnt að því að byggja upp námskeið í „pakka“ sem lokið verði með ákveðnum áföngum eða „gráðum“. Kennsla og þjálfun á námskeiðum er í höndum starfsfólks starfs- mannaþjónustunnar sem og ann- arra starfsmanna innan Baugs en auk þess er leitað til utanaðkom- andi sérfræðinga. Baugsskólinn er til húsa í Skútu- vogi 6 í Reykjavík. Skólastjóri Baugsskólans er Sigríður Laufey Gunnarsdóttir, fræðslustjóri Baugs. Baugsskólinn tekur formlega til starfa Morgunblaðið/Kristinn Björn Bjarnason menntamálaráðherra afhenti Sigríði Gunnarsdóttur, fræðslustjóra Baugs, lyklana að nýjum húsakynnum skólans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.