Morgunblaðið - 04.02.2001, Blaðsíða 51
BRÉF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 51
Heiðrún Níelsdóttir
Hef hafið störf á
hársnyrtistofunni Korner
Býð alla viðskiptavini velkomna.
Símapantanir í síma 544 4900.
Opið mán.10-18, þri. 9-18, mið. 9-22, fim. 9-
18, fös. 9-18, lau. 10-16.
Bæjarlind 14-16,
201 Kópavogi.
Hjá SvönuOpið mán.–laugard. frá kl. 10–18.
ÚTSALA
MIKIL VERÐLÆKKUN
ALLT Á AÐ SELJAST
Kvenfataverslun, Garðatorgi 7, Garðabæ, sími 565 9996.
Félagsfundur
Stjórn Geðhjálpar boðar til félagsfundar í húsi Öryrkja-
bandalags Íslands, Hátúni 10, (9. hæð), þriðjudaginn 6.
febrúar nk. kl. 20:30.
Fundarefni:
Tillögur stjórnar Geðhjálpar til lagabreytinga sem
lagðar verða fyrir aðalfund félagsins.
Eydís Sveinbjarnardóttir, formaður Geðhjálpar og
sviðsstjóri hjúkrunar á geðsviði, gerir grein fyrir
skipulagsbreytingum innan geðsviðs Landspítala
háskólasjúkrahúss.
Með hliðsjón af mikilvægi tilgreinds fundarefnis eru félagar
í Geðhjálp eindregið hvattir til að mæta. Kaffiveitingar í
boði.
Stjórn Geðhjálpar.
NÚ NÝLEGA hefur öll íslenska
þjóðin fylgst með þeim þýðingar-
miklu umræðum sem fram fóru á
Alþingi um öryrkjamálin og reglur
um bótagreiðslur til tiltekins hóps
bótaþega. Ég hef eins og flestir
horft á sjónvarpið með opnum
huga, enda skal ég fúslega játa það
að ég hef síðan um fermingu fylgst
með stjórnmálum, til þess að geta
myndað mér skoðun á þeim. Ég hef
aldrei farið dult með það hvaða
flokk ég styddi. Ég var samvinnu-
maður í húð og hár og studdi því
Framsóknarflokkinn. Hins vegar
gekk ég úr honum þegar EES-mál-
ið var á döfinni. Því með inngöngu í
það tel ég að þjóðin hafi glatað
stórum hluta af sjálfstæði sínu. Síð-
an hef ég ekki verið flokksbundinn.
Þá er best að snúa sér að efni þessa
bréfs. Ég hef orðið þess vís að allur
fjöldi öryrkja heldur að með þess-
um lögum eigi allar bætur öryrkja
að stórhækka, og þeir fái þessar
bætur 4 ár aftur í tímann og með
vöxtum. Þetta er hörmulegur mis-
skilningur.
Samkvæmt dómi Hæstaréttar
eru þetta aðeins þeir öryrkjar sem
hafa samanlagt meira en 300 þús-
und krónur á mánuði ef ég hef ekki
misheyrt, þarna er átt við gift fólk
og fólk í sambúð. Og sagt var að
þarna væri aðeins um 700 til 800
manns að ræða. Mig undrar það
mest að þessir tveir flokkar sem
eru í stjórnarandstöðu og telja sig
vera talsmenn lágtekjufólksins, og
ekki síst öryrkjanna, skyldu ekki
leggja fram frumvarp þess efnis að
allir öryrkjar skyldu fá tilsvarandi
hækkanir á sínum bótum. En þarna
sjáið þið best þessa hræsnara.
Ég hef lengi haft álit á Stein-
grími J. Sigfússyni, en eftir að ég
hlustaði og horfði á margar ræður
sem hann flutti þessa 5 daga þá
missti ég alveg álitið á honum. Um
Össur þarf ég ekki að hafa mörg
orð. Mér hefur alltaf fundist hann
eins og vindhani, en þarna beit
hann þó höfuðið af skömminni.
Gaman hefði verið ef hægt væri að
fá allar ræðurnar sem hann flutti á
þessum 5 dögum og saman sömu
setningarnar sem hann endurtók
aftur og aftur og sama má segja um
fleiri þingmenn, einkum stjórnar-
andstöðuþingmennina. Hvað ætli
ræður þeirra hafi verið margar? Ég
hef oft furðað mig á því að Samfylk-
ingin skyldi velja sér Össur fyrir
formann. Þar hefðu margir úr
þeirra hópi verið líklegri til að ná til
fólksins.
Mér finnst það ábyrgðarleysi að
halda uppi tilefnislausum umræðum
í 5 daga sem ljúka hefði mátt á
tveimur til þremur dögum. Hvað
kostar rekstur Alþingis hvern dag?
Er þetta ekki ábyrgðarleysi? Ég
vona að einhverjir þingmenn flytji
sem fyrst frumvarp til að leiðrétta
hag þeirra sem minnstar hafa tekj-
urnar, bæði öryrkja og annarra sem
verst eru staddir fjárhagslega.
SIGURÐUR LÁRUSSON,
Lagarási 17, Egilsstöðum.
Vei ykkur,
hræsnarar
Frá Sigurði Lárussyni:
ÁSKRIFTARDEILD
netfang: askrift@mbl.is eða sími 569 1122