Morgunblaðið - 04.02.2001, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 04.02.2001, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ANDÚÐ á hundum er ótrúlega líf- seig hér á landi. Stafar vonandi af fá- fræði en ekki mannvonsku. Þeir sem minnst þekkja hunda eru yfirleitt mest á móti þeim. Sumir eru hrædd- ir við þá en ég vil benda á að flestir hundar eru ekki aðeins hættulausir, þeir eru líka mjög vingjarnlegir. Það er ekkert að óttast þó að þeir gelti á ókunnuga. Maður á bara vera róleg- ur, alls ekki sýna ótta, og leyfa þeim að þefa af sér. Þá dingla þeir rófunni vinalega og samþykkja mann. Sumir segja að hundum líði ekki vel nema í sveit þar sem þeir geta gjammað á rollur en hundar sem eru aldir upp í borg og þekkja ekkert annað sætta sig við það ef þeir eru ekki skildir eftir einir mjög lengi og ef þeim er hleypt út til að hreyfa sig á hverjum degi. Enn öðrum líkar bara ekki við þá og telja þá sjálfsagt að vera móti þeim. Ekki þarf að óttast sullaveik- ina því henni var algjörlega útrýmt fyrir áratugum. Allt saman lélegar ástæða til að vera á móti hundahaldi. Margt er hægt að læra af þessum ferfættu vinum og þeir geta svo sannarlega bætt mannlífið. Þeir kenna mönnum m.a. algjöra tryggð, sáttfýsi og að láta í ljóst ást sína. Það er margsannað að þeir hafa sérstak- lega góð áhrif á sjúkt og gamalt fólk og návist þeirra getur flýtt fyrir bata, séstaklega andlegra sjúkdóma. Í sambandi við skráningu hunda þarf samþykki allra í húsinu, ekki að- eins meirihlutans sem eðlilegt væri. Hér eru öll bananalýðveldislög brot- in og er komin góð ástæða til að fara með þetta fyrir mannréttindadóm- stólinn í Haag. Það vantar samt ekki að Íslendingar gorti af þessu falska lýðræði. Þetta gefur einum manni neitunarvald. Gefur leiðinlegum nöldurseggjum sem eru pínulitlir karlar og taparar í sínu daglega lífi vald sem þeir ekki kunna að með- höndla upp í hendurnar. Tækifæri sem margir þeirra nota til að hafa horn í síðu náungans og saklausra dýra. Minnist m.a. leiðindamálanna í Álakvísl og Listhúsinu í Laugardal. Þau eru geymd en ekki gleymd. Er oft með hund í minni umsjón og fer þá stundum á þá staði sem hundaeigendur leyfa hundum að hreyfa sig og gera sínar þarfir. Þá sé ég oft ófagra sjón. Skottið hefur ver- ið skorið af vissum hundategundum, sérstaklega Doberman og Boxer, að- eins smástubbur er skilinn eftir. Þetta er hinn versti níðingsskapur og veldur hundinum fötlun. Skottið er hundinum nauðsynlegt fyrir tjá- skipti auk þess sem hann notar það til að halda jafnvægi. Spillir líka náttúrulegu útliti hundsins. Hér ætti hundaræktunarfélagið að grípa til róttækra aðgerða ef það hefur ekki þegar verið gert! Svona ómannúð- legum aðferðum verður að útrýma þegar í stað! Það er ótrúleg grimmd og heimska að ríghalda í svona hefð- ir. Það sýnir mikinn skort á sjálf- stæðri hugsun að gera þetta af því að aðrir gera það. Auðvitað eiga hunda- eigendur að hirða upp skítinn eftir hundana sína en því miður gera margir sóðar það ekki og koma óorði á alla hina sem ganga vel um. Þetta er ástæðan fyrir því að Geirsnef, sameiginlegt útivistarsvæði reyk- vískra hunda, er vægast sagt ónot- hæft vegna sóðaskapar og ég fer oft- ast eitthvert annað með minn hund. Hef orðið var við mikið snobb í sambandi við hundaeign. Aðalmálið virðist skipta hjá sumum að hund- urinn sé af hreinræktaðri dýrri teg- und svo að allir geti séð ríkidæmið, passar svo vel við 5 millj. kr. jepp- ann, en aukaatriði að dýrið sé fallegt, skapgott og heilbrigt. Algengt er að of hreinræktuð dýr hafi erfðagalla og oft eru fallegustu og heilbrigð- ustu dýrin blanda af góðum einstak- lingum mismunandi ættflokka. Veit að hundur hefur verið notaður sem gjaldmiðill í bílaviðskiptum. Sá hundur lenti síðan um langan tíma á hundahóteli eða þar til góðhjartað fólk tók hann að sér. Þá kom í ljós að hann var orðinn truflaður á geði og hann týndist að lokum. Sumir hafa svo skilið hunda eftir á hundahóteli og ekki ætlað sér að sækja þá. Dauð- inn hefur síðan beðið þeirra. Svona er alls ekki hægt að fara með slíkar tilfinningaverur og einlæga vini. Hundar líta á sig sem fjölskyldumeð- limi og það er viðeigandi að umgang- ast þá sem slíka. Þeir launa svo sann- arlega fyrir velvild og vináttu! Finnst vægast sagt fáránlegt að sum sveitar- og bæjarfélög, þar á meðal Reykjavík, hafi einhvern tímann samþykkt algjört hundabann og líka aðför gegn köttum. Þetta sannar ótrúlega þröngsýni, kreddur og heimsku viðkomandi ráðamanna. Treysti mönnum sem taka svona á þessum málum alls ekki til að taka skynsamlega á öðrum málum. Vil að slíkt verði endanlega úr sögunni. Víða erlendis, jafnvel í Evrópu, taka menn hundana með sér í strætó, lestir, verslanir og veitingastaði. Vil sjá það hér! Það mundi bæta þetta ískalda, allt að því fasíska, gerviþjóð- félag okkar! RAGNAR JÓNSSON, Miklubraut 70, Reykjavík. Hundahald Frá Ragnari Jónssyni: Associated Press Hundar kenna mönnum m.a. algjöra tryggð, sáttfýsi og að láta í ljós ást sína, segir í greininni.                                   !  !  ! "  ! !  !   !  $  %&! ! '     $   $ ! &! !  BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.