Morgunblaðið - 04.02.2001, Síða 28
28 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÓLAFUR Örn Haraldsson, fyrsti
þingmaður Framsóknarflokksins í
Reykjavík, segir efst á stefnuskrá
sinni að hefja betur til vegs og
virðingar hin gömlu og góðu mark-
mið flokksins um fólk í fyrirrúmi.
Ólafur, sem tilkynnti um framboð
sitt til embættis varaformanns
Framsóknarflokksins á föstudag,
segist leggja megináherslu á að
tryggja almannahagsmuni umfram
sérhagsmuni. Hann segist sérstak-
lega vilja beita sér í þágu fjöl-
skyldu- og velferðarmála og mál-
efna sem varða jafnrétti,
mannréttindi, umhverfi og mennta-
mál.
Ólafur hefur verið talinn tals-
maður umhverfissjónarmiða í flokki
sínum og því liggur beinast við að
spyrja hann fyrst um stórfelld
áform sem nú eru uppi um virkj-
anir og álframleiðslu á Grundar-
tanga og Reyðarfirði.
Um áform Norðuráls um stækk-
un álversins á Grundartanga upp í
300 þúsund tonn, segist Ólafur telja
að þau mál séu í góðum farvegi. Sé
fylgt þeim kröfum og skilyrðum
sem sett hafi verið, sjái hann fátt
athugavert við að af framkvæmd-
um verði. Þó segist hann setja alla
fyrirvara við að Þjórsárverum verði
spillt. „Í tilfelli Kárahnjúkavirkj-
unar og álvers á Reyðarfirði togast
hins vegar á andstæð sjónarmið.
Annars vegar er hér um að ræða
dýrmætar náttúruperlur og hins
vegar gríðarlega hagsmuni nær-
liggjandi byggðarlaga. Ég tel rétt
að bíða eftir niðurstöðum úr því
mati á umhverfisáhrifum fram-
kvæmda sem nú stendur yfir áður
en ég geri endanlega upp hug minn
í þessum efnum.“
Ólafur leggur áherslu á umhverf-
ismálin í málflutningi sínum. „Það
vita það allir að ég er mikill tals-
maður náttúru- og umhverfismála
og þau eru meðal þeirra sjónar-
miða sem ég vil hafa í öndvegi í
Framsóknarflokknum. Eins og ver-
ið hefur í Framsóknarflokknum í
áratugi og segir til um í stefnuskrá
hans að undirlagi manna eins og
Eysteins Jónssonar sen hélt um-
hverfismerkinu hátt á loft.
En telur hann að skynsamlega
hafi verið haldið á þessum málum í
flokknum upp á síðkastið?
„Ég vil halda náttúruverndar-
málum meira á lofti en gert hefur
verið.“
Hvað varðar hugsanlega aðild Ís-
lands að Evrópusambandinu nú eða
í náinni framtíð, segist Ólafur Örn
hafa skýra afstöðu. Hann fylli hóp
hófsamari afla í flokknum í þessu
tilliti og telji að ekkert reki á um
umsókn að sambandinu; samningur
um EES þjóni sínu hlutverki prýði-
lega.
„Mér finnst sjálfsagt að skoða
málið með þeim vandaða hætti sem
gert hefur verið, en ég tel að við
höfum góðan samning þar sem
EES-samningurinn er og finnst að
við eigum að fara okkur afar var-
lega í þessum efnum. Ég er andvíg-
ur umsókn að ESB og andvígur því
að fara á þessu stigi út í nokkurt
formlegt ferli eða daður sem leitt
getur til umsóknar.“
Framsóknarflokknum hefur í síð-
ustu skoðanakönnunum borið held-
ur skarðan hlut frá borði og með-
altal nokkurra síðustu kannanna
sýnir fylgi talsvert neðan við kjör-
fylgi í síðustu kosningum, en það
þótti talsvert áfall fyrir flokkinn.
Ólafur tekur undir þetta, en segist
telja að betri tíð sé í vændum þar
sem flokkurinn hafi staðið sig vel í
stjórnarsamstarfinu og hljóti brátt
að uppskera eftir því.
„Ég held að það sé ekki sjálfshól
framsóknarmanna þegar ég fullyrði
að flokkurinn hafi unnið frábært
verk í ríkisstjórn bæði á þessu
kjörtímabili og því síðasta. Ég hef
alltaf haft þá skýringu á dræmu
fylgi í skoðanakönnunum að okkur
sé ekki lagið að koma þessum verk-
um nægilega til skila til almenn-
ings. Þetta hlýtur hreinlega að
vera, því þegar horft er á mála-
flokka flokksins í heilbrigðis- og
félagsmálum, frammistöðu Hall-
dórs Ásgrímssonar í utanríkismál-
um svo aðeins nokkuð sé nefnt, er
um að ræða hvert stórvirkið á fæt-
ur öðru og miklar framfarir. Flokk-
ur sem uppsker ekki meira en raun
ber vitni hlýtur að þurfa að skoða
rækilega sína ímynd. Skýringin er
ekki sú að flokkurinn hafi staðið sig
illa. Það hlýtur að vera önnur skýr-
ing og ég tel hana vera þá að við
höfum ekki náð að koma þessu á
framfæri við kjósendur svo nægi-
lega ljóst sé. Í þessum efnum er
ekki við neina að sakast nema
sjálfa okkur.“
Herða þarf róðurinn á
höfuðborgarsvæðinu
Myndir þú þá beita þér fyrir því
að taka ímynd flokksins til gagn-
gerrar endurskoðunar?
„Já. Ég yrði sterkur talsmaður
þess að slíkt yrði gert.“
Ertu sem þingmaður Reykjavík-
ur sáttur við stefnu flokksins gagn-
vart þéttbýlinu á suðvesturhorninu
annars vegar og landsbyggðinni
hins vegar?
„Ég styð byggðastefnu flokksins
og þá sjávarútvegsstefnu sem rekin
hefur verið, þótt ég telji um leið að
skoða verði sjávarútvegsstefnuna
með tilliti til veikrar stöðu marga
byggða og þess hvort með ein-
hverjum hætti sé unnt að gera
breytingar á henni þess vegna. Á
hinn bóginn tel ég augljóst að
flokkurinn verði að svara kjósend-
um í Reykjavík og á Reykjanesi
betur og skýrar en gert hefur ver-
ið, bæði hvað varðar ímynd og ýmis
áherslumál. Mörg þeirra þyrftu að
fá að njóta sín betur, t.d. í mínu
kjördæmi. Hér í höfuðborginni er-
um við ekki aðilar að forystu
flokksins og erfið staða lands-
byggðarinnar hefur beint athygli
flokksins og kröftum mjög að
henni.“
Kannski of mikið, að þínu mati?
„Nei, ekki of mikið. Þetta þarf að
gera. En það þarf jafnframt að
herða róðurinn hér á höfuðborg-
arsvæðinu og koma í auknum mæli
til móts við þau sjónarmið sem þar
eru uppi. Ég vil ekki gera það á
kostnað landsbyggðarinnar, en
vegna hraðrar borgarmyndunar
eru komin upp ýmis félagsleg við-
fangsefni sem ég tel að þurfi miklu
betur að sinna, t.d. hvað varðar
málefni fatlaða og húsnæðismál.
Þarna tel að taka þurfi betur á og
hafa í heiðri hið gamla og góða
slagorð Framsóknarflokksins um
fólk í fyrirrúmi.“
Eitt af því sem stjórnvöld hafa
verið gagnrýnd fyrir, er að sam-
göngubætur á höfuðborgarsvæðinu
hafi setið eftir. Ertu sammála því
sem þingmaður Reykjavíkur?
„Ég hef alltaf tekið þátt í því að
styða uppbyggingu samgangna á
landsbyggðinni, jafnvel þótt slíkt
hafi oft kostað að höfuðborgarbúar
hafi orðið að slá af sínum kröfum.
Þetta er grundvallaratriði fyrir
landsbyggðina og vissulega einnig
fyrir okkur höfuðborgarbúa, en á
móti höfum við mjög margt sem
aðrir íbúar landsins hafa ekki. Hins
vegar eru samgöngur eitt af lyk-
ilatriðunum á landsbyggðinni og
þess vegna hefur skipt miklu máli
að verða við kröfum sem þar hafa
verið uppi. Ég tel á hinn bóginn
rétt að skoða nú nýjar áherslur í
þessum efnum.“
Endurskoðun á almanna-
tryggingakerfinu stærsta og
mikilvægasta verkefnið
Spurður um málefni öryrkja,
sem mjög hafa verið í brennidepli
að undanförnu, segist Ólafur telja
að mestu deilurnar séu nú að baki.
„Aðalatriðið er að k0oma nú vel og
rausnarlega til móts við öryrkja og
aldraða í endurskoðun á almanna-
tryggingakerfinu. Það tel ég að sé
eitthvert stærsta og mikilvægasta
verkefni sem Framsóknarflokkur-
inn tekst á við á þessu kjörtímabili.
Það verður að koma til móts við
þetta fólk nú strax í vor.“
Telurðu að Framsóknarflokkur-
inn hafi komið sterkur út úr þess-
ari umræðu?
„Já. Með vaxandi styrk, eins og
sagt er í tónlistinni.“
Málefni Landssímans hafa verið
til umræðu að undanförnu, eftir að
ríkisstjórnin tilkynnti um einka-
væðingu fyrirtækisins. Þá tilkynnti
samgönguráðherra á fimmtudag þá
ákvörðun sína að farið verði í sk.
samanburðarútboð á rásum fyrir
þriðju kynslóð farsíma. Hver er
skoðun Ólafs Arnar á þessu
tvennu?
„Ég er alfarið á móti þeirri leið
sem samgönguráðherra hefur
kynnt. Ég legg áherslu á að tekin
verði ákvörðun um að fara upp-
boðsleið. Ég vil ekki að þessi auð-
lind þjóðarinnar verði afhent fáum
aðilum til ráðstöfunar og stórgróða
í viðskiptum sín á milli. Þannig vil
ég tryggja að þjóðin fái sanngjarnt
gjald fyrir auðlind sína.
Ég tel einnig að það eigi að að-
skilja ljósleiðarann frá annarri
starfsemi Landsímans og að ríkið
eigi ekki að selja hann. Ljósleið-
arinn er mikilvægasti hluti grunn-
netsins og getur, ef rétt er haldið á
málum, verið öflugasta tækið við að
byggja upp þekkingariðnað á
landsbyggðinni. Jafn aðgangur á
sama verði á að vera fyrir almenn-
ing og fyrirtæki hvar sem er á
landinu. Með þessu vil ég tryggja
almannahagsmuni umfram sér-
hagsmuni.“
Þú nefnir menntamálin sem bar-
áttumál.
„Þetta er málaflokkur sem leggja
þarf meiri áherslu á en gert hefur
verið, sérstaklega málefni Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna (LÍN)
og hvað varðar jafnrétti til náms.
Hvað lánasjóðinn áhrærir hef ég
lengi barist fyrir eflingu hans og að
þar væri tekið til hendinni og hag-
ur stúdenta bættur. Ég tel að það
eigi að hækka grunnlífeyrinn hjá
Lánasjóðnum, en hann er allt of
lágur. Ég hef alltaf viljað ganga
lengra en sjálfstæðismenn í þessum
efnum og er stigsmunur þar á. Við
framsóknarmenn höfum viljað
ganga lengra í stuðningi Lána-
sjóðsins við námsmenn en gert hef-
ur verið. Það er alveg á hreinu. Hið
sama má segja um annað, sem ég
veit ekki hvort rétt er að kalla
ágreiningsefni við Sjálfstæðisflokk-
inn, en við erum alveg á móti skóla-
gjöldum. Þeim höfnum við.“
Samstarfið við Sjálfstæðis-
flokk hefur verið farsælt
En hefur Framsóknarflokkurinn
farið halloka í einhverjum stórum
málum í þessu ríkisstjórnarsam-
starfi?
„Já, það hefur komið fyrir. En
það hefur líka komið fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn.“
Viltu nefna dæmi í þessu sam-
bandi?
„Nei, það vil ég ekki gera. Sam-
starf okkar við sjálfstæðismenn
hefur verið mjög gott og farsælt og
fyrst og fremst er við okkur sjálfa
að sakast ef við náum ekki að halda
vel á okkar helstu baráttumálum
og koma þeim á framfæri við kjós-
endur. Það er rétt að sagan segir
okkur að Framsóknarflokkurinn
hefur oft tapað fylgi í samstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn og skoðana-
kannanir nú benda til þess. En við
skulum ekki gleyma því að við fór-
um ekki mjög illa út úr síðustu
kosningum þó svo að fylgi okkar
hafi dalað. Fáum við slíka kosningu
aftur sé ég ekki að þetta sé kenn-
ing sem gott er að reiða sig á.“
Fái flokkurinn aftur slíka út-
komu, er þá ennþá hægt að kalla
hann stórt afl í íslenskum stjórn-
málum?
„Allavega mikilvægt afl,“ segir
Ólafur Örn Haraldsson alþingis-
maður.
Flokkurinn þarf að skoða
ímynd sína rækilega
Morgunblaðið/Ásdís
Ólafur Örn Haraldsson.
Ólafur Örn Haraldsson keppir um varaformannsembætti í Framsóknarflokki
Húsavík - Boccia-lið Völsungs
fékk nýlega nýja keppnisboli að
gjöf. Það var Hótel Húsavík sem
gaf bolina ásamt derhúfum, bæði
á keppendur og aðstoðarmenn
liðsins.
Boðið til flatbökuveislu
Stefnt er að því að keppa í bol-
unum í fyrsta sinn á Þórðar-
mótinu, sem haldið er á Húsavík
17. febrúar nk.
Þórhallur Harðarson hót-
elstjóri afhenti bolina og bauð síð-
an liðinu ásamt aðstoðarfólki til
veislu. Þar sem bolirnir eru
merktir pítsustað hótelsins voru
að sjálfsögðu pítsur á boðstólum
og voru þeim gerð góð skil. Egill
Olgeirsson, þjálfari liðsins, þakk-
aði stjórnendum hótelsins fyrir
stuðninginn sem þeir sýndu lið-
inu. Var gerður góðurt rómur að
hinum ágætu flatbökum hótelsins. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Elín Berg, Anna María Bjarnadóttir og Kristbjörn Óskarsson úr boccia-liðinu fá sér pitsu.
Fengu nýja
keppnis-
boli að gjöf
Hótel Húsavík styður
boccia-lið Völsungs