Morgunblaðið - 04.02.2001, Page 34

Morgunblaðið - 04.02.2001, Page 34
SKOÐUN 34 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ AÐ UNDANFÖRNU hefur harkalega verið deilt um nokkur grund- vallaratriði stjórnskipan- ar okkar Íslendinga, ekki síst jafnræðisregl- una. Umræðan hefur verið mjög tilfinninga- þrungin eins og oft vill verða þegar komið er að sjálfri kviku stjórnmál- anna. Hvert er efnislegt inntak orðanna í viðkom- andi greinum stjórnar- skrárinnar þegar til kastanna kemur? Deilan að undanförnu sýnir vel að þegar um það er deilt eru menn komnir að mörkum stjórn- mála og lögfræði. Mér þykir ástæða til að draga fram nokkur atriði í því sambandi útfrá sjónarhóli lögmanns, sem er áhugamaður bæði um lög- fræði og stjórnmál, óháð deilunni um öryrkjadóminn og frumvarp rík- isstjórnarinnar í framhaldi af hon- um. Margvísleg og fremur flókin úr- lausnarefni rísa varðandi undirbún- ing og rökstuðning lögmanna þegar í máli reynir á jafnræðisreglu 65. gr. Reglan er svohljóðandi: Allir skulu jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kyn- ferðis, trúarbragða, skoðana, þjóð- ernisuppruna, kynþáttar, litarhátt- ar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna. Hvernig á að heimfæra regluna upp á ákveðin tilvik eða aðstæður í því skyni að byggja á henni í mál- flutningi? Dæmi um spurningar sem vakna eru t.d.: Hvað felst í reglunni og hvert er gildissvið hennar? Er unnt að byggja á henni efnislegan rétt? Hve ítarlegur þarf rökstuðn- ingur lögmanna að vera þegar þeir beita reglunni? Hver er áhættan ef ekki er að neinu gagni vikið að efn- isþáttum reglunnar eða með hvaða hætti á henni er byggt í máli? Samkvæmt orðalagi 65. gr. stjórn- arskrárinnar lýtur jafnræðisreglan annars vegar að því að „allir skuli jafnir fyrir lögum“ og hins vegar að því að allir skuli „njóta mannrétt- inda“, hvort tveggja án tillits til kyn- ferðis, trúarbragða o.s.frv. Saman- lagt eiga þessi atriði að skapa einstaklingum mjög víðtæka vernd að íslenskum rétti. Reglan er t.d. hvorki bundin við íslenska ríkisborg- ara né takmörkuð við ákveðin grunnréttindi. Hún á að ná til allra einstaklinga, sem staddir eru á yf- irráðasvæði íslenska ríkisins. Þá tekur hún til meðferðar alls ríkis- valds, hvort sem ræðir fram- kvæmda-, dóms- eða löggjafarvald. Raunar leiðir af henni að óheimilt væri að banna einstaklingum af til- teknu þjóðerni, t.d. Nígeríumönn- um, að koma til landsins. En um leið leiðir af orðalaginu að reglan stend- ur eiginlega fyrir utan og ofan við réttindi þau sem fólgin eru í almenn- um lögum og í réttindaskrá stjórn- arskrárinnar. Gildi hennar felst þá í því að tryggja öllum sömu réttar- vernd og sömu réttindi, sem lög mæla fyrir um, án þess að þeir þurfi að sæta misrétti á grundvelli atriða af því tagi, sem tilgreind eru í grein- inni. Verði einstaklingar fyrir slíkri mismunun geta þeir rétt hlut sinn á grundvelli hinnar almennu jafnræð- isreglu stjórnarskrárinnar. Mikil- vægi hennar kemur þannig ekki síst fram í því að skoða ber önnur ákvæði stjórnarskrárinnar og al- mennra laga í ljósi hennar. Í grein- argerð með 3. gr. stjórnskipunar- laga nr. 97/1995, sem varð að núgildandi 65. gr., er þetta eðli reglunnar skýrt með eftirgreindum hætti: Segja má að í jafn- ræðisreglunni séu ekki beinlínis fólgin ákveðin efnisréttindi. Mikilvægi hennar felst ofar öllu í því að vera almenn leiðbein- ingarregla um bann við mismunun sem ber ávallt að hafa að leiðarljósi. Það á ekki einvörðungu við í tengslum við laga- setningu, heldur einnig við skýringu laga, þar á meðal annarra stjórn- arskrárbundinna mannréttinda- ákvæða. Jafnræðisreglan getur þó að sjálfsögðu haft bein og ótvíræð áhrif ef t.d. ákvæði í almennum lög- um felur í sér mismunun sem brýtur í bága við regluna. Kann þá ákvæð- inu að verða vikið til hliðar vegna hennar. Þrátt fyrir þetta orðalag má segja að í seinni hluta tilvitnunarinnar fel- ist ráðagerð um efnislegt innihald reglunnar. Einstaklingar eiga ekki að þurfa að þola ólögmæta mismun- un og geta krafist leiðréttingar á grundvelli 65. gr. stjórnarskrárinn- ar með fulltingi dómstóla. Að þessu leyti hefur jafnræðisreglan ótvírætt efnislegt innihald. Í greinargerðinni segir að regl- unni sé ætlað mun rýmra gildissvið en jafnræðisreglu 14. gr. Mannrétt- indasáttmála Evrópu, sem nánar verður vikið að hér á eftir, en sú regla er bundin við þau efnislegu réttindi, sem tilgreind eru í sáttmál- anum, og getur aðeins komið til um- fjöllunar samkvæmt honum í tengslum við brot á þeim. Íslensku reglunni er ætlað að gilda á öllum sviðum löggjafar og veita öllum jafna lagavernd. Ákveðna vísbend- ingu um að reglunni sé ekki ætlað svo víðtækt gildissvið í raun og ætla mætti af orðalagi hennar má þó finna í upptalningu hennar. Þar er talað um að ekki megi mismuna á grundvelli „þjóðernisuppruna“ en ekki er vísað til „þjóðernis“ vegna þess að íslenskir ríkisborgarar geta verið af mismunandi þjóðernisupp- runa en ekki af mismunandi þjóð- erni. Af öðrum ákvæðum stjórnar- skrárinnar leiðir líka að útlendingar eru ekki í öllu tilliti jafnir íslenskum ríkisborgurum fyrir lögum. Þeim má vísa úr landi skv. 66 gr. og takmarka má rétt þeirra til að eiga hér fast- eign eða hlut í fyrirtækjum skv. 2. mgr. 72 gr. Útlendingar af norrænu þjóðerni njóta hér meiri réttinda en aðrir og útlendingar frá ríkjum Evr- ópska efnahagssvæðisins hafa hér meiri réttindi en fólk úr öðrum heimshlutum. Allt hvílir þetta á milliríkjasamningum og almennum lögum. Einnig má halda því fram að slík mismunun hvíli á málefnalegum forsendum en eigi að síður fela slík- ar staðreyndir í sér ákveðna tak- mörkun á gildissviði jafnræðisregl- unnar. Aðra vísbendingu um takmörkun reglunnar er og að finna í því orða- lagi greinargerðarinnar að reglan feli ekki beinlínis í sér efnislegan rétt og að hún sé til leiðbeiningar um bann við mismunun af ákveðnum toga. Á öðrum stað í greinargerðinni er að finna frekari útskýringu á þessu atriði, þ.e.a.s. á því að reglan felur ekki í sér algilt bann við hvers kyns mismunun, henni er beint gegn mismunun á grundvelli ómálefna- legra atriða af því tagi sem rakin eru í greininni. Um þetta segir orðrétt í greinargerðinni: Eins og áður hefur verið vikið að er jafnræðisreglan, sem hér er gerð tillaga um, orðuð mjög rúmt. Ekki má líta á atriðin, sem þar eru talin sem óheimill grundvöllur mismun- unar, sem tæmandi talningu, enda lýkur 3. gr. frumvarpsins með því að lagt er bann við að mismuna mönn- um eftir stöðu þeirra að öðru leyti. Geta fallið undir þessi niðurlagsorð fjölbreytileg atriði sem ekki er getið sérstaklega um í reglunni, svo sem heilsufar manna eða líkamlegt ástand sem þar með væri óheimilt að láta varða mismunun. Hins vegar verður að hafa í huga að reglan er öðrum þræði stefnuyfirlýsing sem varasamt er að taka of bókstaflega án tillits til aðstæðna sem geta rétt- lætt eðlileg frávik frá þessu jafnræði fyrir lögunum. Þannig má t.d. nefna að skilyrðið um að allir skuli vera jafnir fyrir lögunum án tillits til efnahags kemur ekki í veg fyrir að til séu skattleysismörk fyrir þá sem lakast eru settir fjárhagslega og skattar geti síðan verið stighækk- andi eftir því sem efnahagur manna er betri. Þá felst ekki í reglunni að ríkið þurfi að tryggja öllum sömu að- stöðu án tillits til efnahags því nauð- synlegt er að þeir sem búa við rýran hag fái frekar efnahagslegan stuðn- ing frá ríkinu en hinir sem hafa að- stæðna sinna vegna ekki þörf fyrir slíkan stuðning. Dæmum eins og þessu er ætlað að sýna fram á að réttlætanlegt getur verið að gera ákveðnum hópum hærra undir höfði í löggjöf í viðleitni til að rétta skert- an hlut þeirra til jafnvægis við aðra þjóðfélagshópa. Markmið jafnræðis- reglunnar er framar öllu að koma í veg fyrir manngreinarálit á grund- velli atriðanna sem eru talin í henni. Það er hins vegar ekki markmið hennar að útiloka að lögákveðin skil- yrði fyrir réttindum eða skyldum geti tekið mið af þessum atriðum ef þau byggjast á málefnalegum for- sendum. Hér er annars vegar bent á að ekki sé um tæmandi talningu á ólög- mætri mismunun að ræða í 65. gr. og hins vegar að mismunun geti átt rétt á sér ef hún hvílir á málefnalegum forsendum. Reglan sé öðrum þræði stefnuyfirlýsing sem varasamt sé að taka of bókstaflega. Í þessu felst að skoða ber hvert tilvik sérstaklega og kanna hvort umdeild mismunun eða meint misrétti styðjist við málefna- leg rök og sé því hugsanlega lögleg. Til glöggvunar skulu hér rakin dæmi um lögmæta mismunun sem nefnd hafa verið til skýringar um það úrlausnarefni, sem hér er til um- fjöllunar: (1) Ekki telst ólögmæt mismunun á grundvelli efnahags þótt þeir sem búa við bág kjör fái meiri efnahags- legan stuðning frá ríkinu en þeir JAFNRÆÐISREGLA STJÓRNAR- SKRÁRINNAR Hreinn Loftsson Tryggingin fyrir jöfnum tækifærum á grundvelli laga, segir Hreinn Loftsson, getur leitt til þess að niðurstaðan verður ólík, jafnvel gjör- ólík, milli þeirra sem lögin tryggðu jafna réttarstöðu í upphafi. Sennilega er deilan, semkennd er við framtíðReykjavíkurflugvallar,svo snúin sem raun ber vitni vegna þess að það er ekki alveg ljóst um hvað hún er. Að minnsta kosti virðist ekki vera alveg eining um það, meðal þeirra sem tjá sig um málið, hver kjarni þess er. Þar af leið- andi er sjónarhornið mismunandi og „raunveruleiki“ þessa máls því ekki sá sami fyrir alla. Þessi munur á sjónarhorni er líklega gleggstur þar sem hann er á milli borgarinnar annars vegar og landsbyggðarinnar hins vegar. Mætti kalla það ágreining (1). Svo er líka munur á því hvort maður sér þetta sem spurningu um samgöngumál eða skipulagsmál. Mætti kalla það ágreining (2). Enn frem- ur er þetta auðvitað spurning um peninga – hvort eigi að eyða þeim eða spara þá, og hver eigi að borga. Mætti kalla þetta ágreining (3). Svo er það spurn- ingin um öryggi – slysahættu af völdum flugvallarins. En reynd- ar virðast flestir sammála um að hún sé lítil (en samt hlýtur hún að vera fyrir hendi) og því kannski ekki tilefni til að búa til úr þeim þætti ágreining. Það sem mætti svo kalla ágreining (4) er deilan um það hvernig skuli skorið úr um hver verði framtíð flugvallarins. Á að efna til almennrar atkvæða- greiðslu? Ef svo, hverjir eiga að fá að greiða atkvæði um málið? Eða á kannski bara að fela þetta vel upplýstum ráðamönnum sem geta hugsað eingöngu með tilliti til almannaheilla? Auðvitað tengjast þessir ágreiningsþættir allir beint og ekki gefið að auðvelt sé að gera greinamun á þeim. En það má prófa og sjá hvort tilraunin hjálpar manni við að ná áttum í málinu – og jafnvel átta sig á því hver er manns eigin, kannski ómeðvitaði, útgangspunkur (og þar með hvernig fordómar manns liggja). Aftur að ágreiningi: Það má fikra sig dýpra í greiningunni og segja að ein hlið deilunnar sé spurningin um hvað „höfuðborg“ raunverulega sé, það er að segja, hvað felist í því hlutverki sem höfuðborgir gegna. Þetta atriði fellur þó sennilega undir ágrein- ing (1). Hvaða fleiri spurningar gætu fallið undir þann lið? Ein spurningin er tvímæla- laust þessi: Hefur höfuðborg skyldum að gegna sem aðrar borgir hafa ekki? Er ekki höf- uðborg í einhverjum skilningi „eign“ allra þegna þess ríkis sem hún er höfuðborg í? Og ef þessu er játað (sem er auðvitað ekki sjálfgefið) vaknar sú spurning hvort íbúar þessara borga verði ekki að hluta til að afsala sér ráðstöfunarréttinum yfir þeim. Svonefndur ágreiningur (2), það er að segja spurningin um skipulagsmál annarsvegar og samgöngumál hins vegar, felur líka í sér fjöldan allan af því sem mætti nefna undirþætti. Til dæmis, ef maður lítur á þetta fyrst og fremst sem skipulags- mál, spurninguna um það hvað sé „eðlileg“ borgarbyggð. Jafn- vel mætti ganga svo langt að tala um „heilbrigða“ borg eða „óheilbrigða“. Er flugvöllurinn stórkostlegt skipulagsslys sem stendur eðlilegum vexti Reykja- víkur fyrir þrifum, eða er hann bara partur af því hvernig borg- in hefur þróast og orðið að því sem hún er? Svo virðist sem ýmsa, er hafa lagt orð í belg um flugvall- armálið, dreymi um að Reykavík taki á sig mynd sem helst líkist evrópskri borg með þétta byggð, þröngar götur og náið mannlíf þar sem almenningsfarartæki eru helsti samgöngumátinn og bílarnir ekki lífsnauðsyn. Í þess- um draumi er flugvöllurinn skelfileg martröð og gnýrinn af Fokker í aðflugi úr norðri kippir manni aftur inn í reykvískan veruleika. En það hefur aldrei verið út- skýrt alveg nákvæmlega hvers vegna það er betra og eftirsókn- arverðara að byggð í vesturhluta borgarinnar þéttist. Enda er sennilega ekki hægt að gefa neinar skotheldar forsendur fyr- ir því. Það er á endanum spurn- ing um skilning manns og um- fram allt upplifun manns á Reykjavík. Þetta er allt spurning um skipulag og borgarbyggð. En ef manni sýnist nú deilan um fram- tíð Reykjavíkurflugallar miklu fremur snúast um samgöngumál skiptir þetta allt harla litlu máli og spurningin er miklu fremur þessi: Er flug mikilvægur sam- göngumáti á Íslandi? Ekki er vafi á að flug er mikilvægur samgöngumáti á milli Íslands og annarra landa en er mikilvægið það sama innanlands? Skiptir máli að maður geti án mikils fyr- irvara og án mikillar fyrirhafnar farið frá Egilsstöðum til Reykja- víkur? Og skiptir jafnmiklu að maður geti á sömu forsendum farið frá Reykjavík til Egils- staða? Ef skoðanakannanir væru gerðar meðal Egilsstaðabúa ann- ars vegar og Reykvíkinga hins vegar, og þeir fyrrnefndu væru spurðir fyrri spurningarinnar og þeir síðarnefndu þeirrar seinni, þyrfti ekki að koma á óvart ef í ljós kæmi að flugleiðin Egils- staðir-Reykjavík-Egilsstaðir væri mikilvægari en Reykjavík- Egilsstaðir-Reykjavík. Enn einn undirþátturinn í þessum ágreiningi er svo sá, hvort það geti skipt máli að komast tafarlaust frá einhverjum stað úti á landi beina leið til Reykjavíkur? Og svarið við þess- ari spurningu er augljóslega já, það getur ráðið úrslitum um líf eða dauða. Það er að segja, að maður eigi sem greiðasta leið á sjúkrahús í Reykjavík. Þess vegna þurfi að vera hægt að fljúga sjúkraflug til Reykjavíkur. En fyrir ofan alla þessa fínt sundurgreindu ágreiningsþætti (1-4) er svo ágreiningurinn um það, hvort hægt sé að meta hlut- lægt hvaða ágreiningur skuli vega þyngst. Flugvöllur og deilur Auðvitað tengjast ágreiningsþættir málsins allir beint og ekki gefið að auð- velt sé að gera greinarmun á þeim. En það má prófa og sjá hvort tilraunin hjálpar manni við að ná áttum. VIÐHORF Eftir Kristján G. Arngrímsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.