Morgunblaðið - 29.04.2001, Side 4

Morgunblaðið - 29.04.2001, Side 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 22/4–28/4  VEGNA sjómannaverk- fallsins eru mörg fisk- vinnslufyrirtæki stopp sök- um hráefnisskort. Fleira fiskvinnslufólk er skráð at- vinnulaust en réttarstaða útlendinga hefur verið bætt þannig að þeir fái at- vinnuleysisbætur til jafns við aðra starfsmenn.  DAVÍÐ Oddsson for- sætisráðherra tók við verð- launum fyrir Íslands hönd frá bandarísku umhverf- issamtökunum Global Green USA. Verðlaunin voru veitt fyrir stefnu Ís- lands í orkumálum.  HÚSASMIÐJAN og Kaupás eru í viðræðum um sameiningu fyrirtækjanna. Samanlögð velta þeirra er tæpir 20 milljarðar króna.  ÁLVERIÐ í Straumsvík tekur á árinu í notkun nýja 400 milljóna króna álsög í steypuskála verksmiðj- unnar. Kaupa á nýjan bræðsluofn og er talið að með þessu geti heildar- álframleiðsla Ísal farið í 200 þúsund tonn á ári.  SAMKVÆMT skýrslu nemanda í MBA-námi við Háskóla Íslands gætu um 50 milljónir króna sparast árlega ef aðgerðum við mjaðmarliðskipti yrði fjölgað. Meðalbiðtími eftir slíkum aðgerðum er 327 dagar og á biðlista eru 99 sjúklingar.  MAÐUR svipti sig lífi á meðan lögreglan í Reykja- vík leitaði í húsi hans sl. mánudagskvöld vegna gruns um að þar væri framleitt amfetamín. Lög- reglan rannsakar tildrög sjálfsvígsins. Stórtjón í elds- voða hjá Íslensk- um matvælum UM 100 milljóna króna tjón varð hjá Íslenskum matvælum þegar eldur kom upp í húsnæði fyrirtækisins í Hafnarfirði á föstudag. Enginn slas- aðist í brunanum en þrír starfsmenn voru inni þegar eldur kom upp í reyk- ofni í norðausturhluta hússins en þeim tókst að forða sér út. Mikill eldur og reykur var í húsinu sem gerði slökkvi- liðsmönnum erfitt fyrir. Slökkvistarf tók tæpa þrjá tíma. Frumvarp lagt fram um sölu Landssímans SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um sölu Landssímans og mun hann mæla fyrir því nk. miðvikudag, standist áætlun þingsins. Stefnt er að því að frumvarp- ið verði að lögum á þessu þingi og mun samgönguráðherra þá hafa heimild til að selja allt hlutafé í fyrirtækinu. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að stefnt er að því að selja 49% hlutafjár á þessu ári og að salan hefjist á vormánuðum. Salan á að fara fram í þremur áföngum. Í fyrsta áfanga verði boðin út 24% til almenn- ings, starfsmanna og lítilla hluthafa, 25% í öðrum áfanga síðar á árinu til kjölfjárfestis eftir lokað útboð, og loks 51% í þriðja áfanga. Um 37 þúsund tonnum af fiski hent árlega SAMKVÆMT skoðanakönnun sem Gallup gerði meðal sjómanna er heild- arbrottkast á fiski tæp 37 þúsund tonn á ári. Þar af má gera ráð fyrir að brott- kast á bolfiski sé tæplega 26 þúsund tonn. Áætlað heildarverðmæti þessa afla, sem fer óunninn frá borði, er 3-5 milljarðar króna. INNLENT Kínverjar mótmæla vopnasölu til Taívan GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti ákvað á mánudag að verða við ósk Taív- ana um að selja þeim vopn, en þó ekki eins öflug og þeir höfðu vonast eftir. Taívanstjórn hafði falast eftir tundur- spillum með háþróuðum Aegis-flug- skeytavarnarbúnaði, en í staðinn fá þeir skip af Kidd-gerð, auk flugvéla, kafbáta og annarra vopna. Kínverjar, sem líta á Taívan sem uppreisnarhérað, mótmæltu vopnasöl- unni harðlega og sögðu hana óvirðingu við fullveldi Kína og íhlutun í kínversk innanlandsmálefni. Vopnasalan hefur enn aukið á spennuna milli Bandaríkjanna og Kína, en skammt er síðan mál bandarískrar njósnavélar, sem nauðlenti í Kína eftir árekstur við kínverska herþotu, stefndi samskiptum ríkjanna í hættu. Sjálfstæðissinnar í meirihluta í Svartfjallalandi STJÓRNMÁLAÖFL sem vilja slíta ríkjasambandinu við Serbíu og stofna sjálfstætt ríki í Svartfjallalandi, náðu meirihluta í þingkosningunum í land- inu, sem fram fóru á sunnudag í síðustu viku. Stjórnarflokkarnir, sem eru hlynntir sjálfstæði, fengu um 42% atkvæða en andstæðingar þeirra um 40%. Frjáls- lynda bandalagið, sem er utan stjórnar og einnig vill sjálfstæði, fékk 7,6% og því er ljóst að sjálfstæðissinnar verða með meirihluta á þingi. Talsmenn Evrópusambandsins og Bandaríkjastjórnar hafa frá því á mánudag lagt að stjórnvöldum í Svart- fjallalandi að fresta ákvörðun um sjálf- stæðismálið, en forseti landsins, Milo Djukanovic, lýsti því yfir á þriðjudag að stjórnin myndi standa við áform um að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um það.  MIKIL óvissa er í stjórn- málum í Úkraínu eftir að kommúnistar og flokkar hliðhollir auðjöfrunum í landinu sameinuðust um að bola umbótasinnanum Viktor Júshtsjenko úr embætti forsætisráðherra og fella ríkisstjórn hans. Búist er við að Júshtsjenko muni taka við forystu stjórnarandstöðunnar og leiða baráttuna fyrir því að forseti landsins, Leoníd Kútsjma, segi af sér.  JUNICHIRO Koizumi var á þriðjudag kjörinn formaður stjórnarflokks- ins í Japan, Frjálslynda lýðræðisflokksins, og tók á fimmtudag við embætti forsætisráðherra landsins af Yoshiro Mori, sem neyddist til að segja af sér vegna gífurlegra óvin- sælda. Vonast er til að Koizumi muni færa ferska strauma inn í japönsk stjórnmál, sem hafa verið mörkuð spillingu og óskil- virkni.  GENGI bandarískra hlutabréfa hækkaði tals- vert á föstudag, eftir að skýrt var frá því að mun meiri hagvöxtur hefði ver- ið í Bandaríkjunum á fyrsta fjórðungi ársins en spáð hafði verið. Gert hafði verið ráð fyrir að hagvöxturinn yrði enginn fyrstu þrjá mánuði ársins og spáð var 1% hagvexti allt árið. Nú sýna mæl- ingar hins vegar að hag- vöxtur fyrsta ársfjórð- ungsins samsvari 2% hagvexti yfir árið. ERLENT Frábært fyrir meltingu og maga ACIDOPHILUS FRÁ Apótekin með GMP gæðastimpli 100% nýting/frásog H á g æ ð a fra m le ið sla ÚTLENDINGAEFTIRLITIÐ hef- ur óskað eftir rannsókn lögreglunn- ar í Reykjavík á því hvort grunur eft- irlitsins sé réttur um að vinnuafl frá Eystrasaltsríkjunum hafi verið flutt ólöglega inn í landið. Georg Kr. Lár- usson, forstöðumaður Útlendinga- eftirlitsins, sagðist í samtali við Morgunblaðið leggja áherslu á að hér væri aðeins um grunsemdir að ræða. „Okkur bárust spurnir af því að hér gæti verið eitthvað vafasamt á ferðinni varðandi dvöl og starfsemi fólks frá Eystrasaltsríkjunum hér á landi. Við nánari skoðun kom í ljós að hér kynni að vera mannskapur sem byggi við óviðunandi aðstæður mið- að við íslenskrar reglur,“ sagði Georg en húsnæðið sem fólkið átti að hafa búið í var við gömlu öskuhaug- ana í Gufunesi og þykir heldur óhrjá- legt. „Það þótti ástæða til að rann- saka hvort þetta fólk var hér sem ferðamenn eða í vinnu án tilskilinna leyfa,“ sagði Georg. Útlendingaeftirlitið hefur einnig grunsemdir um að aðilar búsettir hér á landi hafi haft milligöngu um að fá þetta fólk til landsins og gegn greiðslu að útvega því atvinnu. Georg sagði að þetta væri spurning um hvort útlendingar væru misnot- aðir til vinnu á Íslandi þar sem þeim væru ekki sköpuð sömu kjör og lög kvæðu á um. Útlendingaeftirlitið biður um lögreglurannsókn Grunur um ólöglega fengið erlent vinnuafl Morgunblaðið/Rax Húsnæðið í Gufunesi sem útlendingarnir bjuggu í, að sögn Útlendinga- eftirlitsins. Fyrir utan það eru bílhræ, sorp og gamlir byggingarkranar. FJÓRIR menn voru handtekn- ir á Akureyri á föstudagskvöld þar sem þeir höfðu hass og am- fetamín undir höndum. Lög- reglan var á hefðbundinni eft- irlitsferð um bæinn þegar hún kom auga á mennina, sem voru í tveimur bílum. Að sögn lögreglu var um lítið magn fíkniefna að ræða og var tveimur mannanna sleppt að lokinni skýrslutöku en hinir tveir gistu fangageymslur um nóttina. Mennirnir hafa áður komið við sögu lögreglunnar og er málið í rannsókn. Fjórir menn handtekn- ir með fíkniefni MAÐURINN sem réðst gegn útvarpsmanninum og skemmti- kraftinum Jóni Gnarr var handtekinn í Austurstræti í fyrradag. Manninum hefur verið sleppt en lögreglan í Reykjavík segir að svo virðist sem maðurinn eigi við geðræn vandamál að stríða. Handtekinn í Austurstræti VEGNA fjölgunar skóla, nemenda og kennslustunda og endurnýjunar í röðum kennara eru lausar allt að 100 nýjar kennarastöður við grunnskóla höfuðborgarinnar á komandi hausti, samkvæmt upplýsingum frá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. Er það langleiðina sami fjöldi kennara og allir nýir kennarar sem útskrifast frá Kennaraháskólanum í vor. Í Reykjavík fjölgar skólum, nem- endum og kennslustundum í haust. Um 20 kennara þarf í þrjá nýja skóla sem taka til starfa í haust; Víkur- skóla í Grafarvogi, nýjan skóla í Grafarholti og nýjan skóla fyrir nemendur með alvarlegar geð- og hegðunartruflanir. Í Víkurskóla eru þegar innritaðir 125 nemendur en óvíst er hversu margir verða í Graf- arholtsskóla og enn er ekki frágeng- ið hvar hinn nýi skóli fyrir nemendur með geð- og hegðunartruflanir verð- ur. Vegna fjölgunar kennslustunda á næsta hausti umfram það sem verið hefur í vetur þarf um 20 nýja kenn- ara, að sögn Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur. Og vegna eðlilegrar endurnýjunar í grunnskólunum er búist við að þurfi 40-50 nýja kennara. Þá segir í tilkynningu Fræðslu- miðstöðvarinnar, að á yfirstandandi skólaári starfi liðlega 100 leiðbein- endur við grunnskóla Reykjavíkur. Markmiðið sé að sem flestir verði sér úti um kennararéttindi og að kenn- aramenntað fólk fylli allar kennara- stöður í grunnskólum borgarinnar. 30% úr leik vegna þungunar Fræðslumiðstöðin stendur nú fyr- ir átaki sem ætlað er að vekja athygli kennara á einum stærsta og fjöl- breyttasta vinnustað landsins og kveðst ætla að gera það sem í hennar valdi stendur til að ná kennurum að skólunum í Reykjavík. Hafi 350 kennarar útskrifast úr Kennarahá- skólanum síðustu þrjú árin en 90 þeirra ekki farið að kenna enn. Þá eru samkvæmt heimildum Fréttavefs Morgunblaðsins horfur á að um þriðjungur kennara sem út- skrifast í vor hefji ekki kennslustörf í haust vegna þungunar, en konur eru í miklum meirihluta þeirra sem leggja stund á kennaranám. Um 100 kenn- arastöður laus- ar í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.