Morgunblaðið - 29.04.2001, Side 16
LISTIR
16 SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STUNDUM er eins og íslenskum
listamönnum finnist sem þjóðin sé að
glata sjálfri sér, eða þannig hljómar
að minnsta kosti þörf þeirra fyrir
áminna okkur um barnið sem við
göngum með hið innra og forsómum
jafnan í dagsins önn. Á meðan
fransk-bandaríska listakonan Louise
Bourgeois hrópar á sjálfa sig: Hve-
nær ætlarðu eiginlega að verða full-
orðin, manneskja? – spyrja íslenskir
listamenn: Hvenær ætlarðu að fara
að sinna barninu í þér, maður?
Það skal tekið fram að undirrit-
aður var aðeins vitni að fáeinum af
þeim fjölmörgu gjörningum sem bít-
ast um athygli áhorfenda á Gjörn-
ingavikunni í safninu, en henni lýkur
senn. Það sem gjörningarnir áttu þó
sameiginlegt var að þeir fjölluðu um
minnið, tímann og afturhvarf til lið-
innar tíðar þegar klukkan stóð kyrr
og hægt var að dvelja við hlutina í ró
og næði og spá í allt mögulegt milli
himins og jarðar. Hljómi þetta sakn-
aðarkennt er eins víst að engri slíkri
tilfinningu var til að dreifa á löngum
gjörningi Kristins G. Harðarsonar í
gryfju Nýlistasafnsins síðastliðið
fimmtudagskvöld.
Það þarf vart að taka það fram að
Kristinn er meðal okkar allra mestu
ólíkindatóla innan myndlistarinnar,
ófyrirséður og öllu óháður, en þó
ætíð sjálfum sér líkur. Sem fullorð-
inn maður getur hann enn leikið sér
eins og barn, án þess að leika sig
barn. Heimatilbúið brúðuleikhús
hans, sem er risastór og flókinn
pakki af senum og pappírslandslagi
með akbrautum og akurlendi innan
um úthverfaból og garðstíga, er eitt-
hvert einfaldasta svar sem hægt er
að hugsa sér við Simpsons og South
Park.
Það er ekki svo að Kristinn sé að
keppa við hinar vinsælu teikni-
myndasyrpur til þess er hann of af-
slappaður og sjálfum sér nógur. En
sögur hans úr úthverfinu eru meir en
einnar messu virði, svo frábærlega
tekst honum að halda áhorfendum
föngnum þó svo að ekkert í brúðu-
leikhúsi hans virðist æft í þaula.
Komnar á sjónvarpsskjáinn verða
þessar einföldu sögur – Mamma,
pabbi, börn og bíll – jafnvel enn
skemmtilegri.
Þá var Árni Ingólfsson kærkomin
viðbót við Kristin Guðbrand, svo
lengi hefur hann verið fjarri punkt-
ljósinu. Árni las upp skissur og
minnispunkta frá liðnum áratugum
svo úr varð opinn og sjálfsprottinn
ljóðabálkur með tilvísunum í allar
þær hugmyndir – framkvæmdar og
óframkvæmdar – sem rignt höfðu í
hugskoti hans og komist á pappír
sem einföld merki og punktar til
áminningar. Árni sýndi fram á það
að ekkert tekur frumgerðinni fram
um slagkraft, þótt hægt sé að slípa
endalaust. Í hinu ósjálfráða og hend-
ingarkennda býr galdurinn sem alla
listamenn dreymir um að endurtaka
en vita að er vonlaust því töfrunum
verður ekki stýrt.
Út um allt safnið eru minni um
gjörninga fyrri tíðar, myndbands-
upptökur af því sem fram fer þessa
viku og verksummerki um gjörninga
serm haldið er fram frá degi til dags.
Gerla er þar mætt til leiks eftir langt
hlé og athafnar sig í forsal Nýlista-
safnsins með gróðurmold sem hún
han7dleikur og umbreytir í anda
Prédikarans, sem segir okkur að
hver athöfn og hver hending eigi sér
sinn tíma. Í hangsinu svokallaða
saumar hún út sex hringlaga dúka og
bætir við þá hvern dag á ákveðnum
tíma.
Einnig má sjá Gunnhildi Hauks-
dóttur puða sig sveitta með grjót-
hnullunga sem hún safnar saman í
vörðu. Myndbandsvélin fylgir henni
eftir út og inn, upp og niður stiga og
skrásetur gaumgæfilega þrælavinnu
hennar sem endar í afreki sem sjá
má í hangsinu. Margt annað mætti
upp telja sem fengur er í þótt ef til
vill sakni maður þeirrar tegundar
gjörninga sem byggja á sterkari og
dýpri gagnrýni á hin aðskiljanlegu
mynstur íslensks þjóðfélags. Miðað
við aðrar þjóðir sleppum við í
draumalandinu alltaf svo vel því list-
ræn gegnumlýsing fyrirfinnst auð-
vitað hvergi í paradís. En auðvitað er
þetta ranglátt því enn eru eftir
spennandi dagar með mörgum af
okkar fremstu listamönnum á þessu
sviði.
Morgunblaðið/Halldór Björn Runólfsson
Kristinn G. Harðarson smíðar og sníður úthverfi æskuminna sinna í gryfju Nýlistasafnsins.
Svo nærri hjartanu
MYNDLIST
N ý l i s t a s a f n i ð ,
V a t n s s t í g
Frá 21. til 28. apríl.
GJÖRNINGAR
ÝMSIR LISTAMENN
Halldór Björn Runólfsson
VERKIÐ Heysátur, síðustu geislar
sólar eftir franska impressionist-
ann Claude Monet verður selt á
uppboði hjá Sotheby’s í London í
lok júnímánaðar. Myndin hefur
ekki verið sýnd opinberlega frá
því 1895 en áætlað söluverð verks-
ins er á milli 5 og 7 milljónir
punda, eða einar 800 milljónir
króna.
Reuters
Heysátur
Monets á
uppboð
DJASSTRÍÓ Árna Heiðars
leikur valda djasshúsganga á
vínhúsinu Sirkús Klapparstíg
í kvöld, sunnudagskvöld, kl.
22. Tríóið skipa auk Árna sem
spilar á píanó, Valdimar Kol-
beinn á kontrabassa og
Matthías Hemstock á tromm-
ur.
Djasstríó
Árna Heið-
ars á Sirkús
LEIKRIT Árna Ib-
sen, Himnaríki, verð-
ur frumsýnt í borg-
arleikhúsinu í
Kaposvár í Ungverja-
landi hinn 3. maí.
Þetta er í fyrsta sinn
sem íslenskt leikrit er
tekið til sýninga af
ungversku leikhúsi.
Kaposvár er næst-
stærsta borg Ung-
verjalands og borgar-
leikhúsið þar eitt hið
virtasta í landinu.
Leikhúsið byggir á
gömlum merg og er
byggingin sjálf frá
tímum austurrísk-ungverska keis-
aradæmisins. „Þetta er eitt þessara
gömlu keisaralegu leikhúsa í Mið-
Evrópu og nýtur virðingar langt út
fyrir landamæri Ungverjalands,“
segir Árni. Hann kveðst að vonum
ánægður með að Ungverjarnir hafi
viljað sviðsetja Himnaríki og segir
að fyrsta frækorninu hafi verið sáð
á leiklistarhátíðinni í Bonn fyrir
þremur árum þegar Hafnarfjarð-
arleikhúsið sýndi verkið þar fyrir
Íslands hönd. „Þá
komu Ungverjarnir
til mín og höfðu
áhuga á verkinu. Það
hefur svo tekið þenn-
an tíma að finna rétt-
an stað og tíma,“ seg-
ir Árni. Himnaríki
hefur farið víða á
þeim sex árum sem
liðin eru frá frumsýn-
ingunni í Hafnarfirði
en sýningin í Ung-
verjalandi mun vera
sú tíunda utan Ís-
lands. Sýningin er
einnig frábrugðin hin-
um fyrri að því leyti
að leikstjórarnir eru tveir en ekki
einn eins og jafnan er venjan.
„Leikritið gerist samtímis bæði úti
og inni, bæði fyrir og eftir hlé, og
Ungverjarnir ákváðu að láta einn
leikstjóra stýra innihlutanum og
annan leikstýra útihlutanum. Það
verður forvitnilegt að sjá hvernig
þetta tekst hjá þeim,“ segir Árni að
lokum en hann er á förum til að
vera viðstaddur frumsýninguna í
Kaposvár.
Himnaríki í
Ungverjalandi
Árni Ibsen
GÍTARLEIKARARNIR Ómar Ein-
arsson og Jakob Hagedorn leika
djass á klassíska gítara í Ozio við
Lækjargötu í kvöld, sunnudags-
kvöld, kl. 21.30. Efnisskráin er að
mestu byggð á ljúfum Bossanova- og
Latin-lögum.
Miðaverð er 600 kr.
Sunnudags-
djass á Ozio
KVÖLDVÖKUKÓRINN og
Kvennakórinn Glæður halda
tónleika í Háteigskirkju í dag,
sunnudag, kl. 17. Flutt verða
m.a. valin íslensk og erlend vor-
og sumarlög. Þá verður ein- og
tvísöngur.
Sumarlög í
Háteigskirkju