Morgunblaðið - 29.04.2001, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.04.2001, Blaðsíða 17
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 17 Heimsferðir opna þér leiðina til Ítalíu á verði sem hefur aldrei sést fyrr á Íslandi. Vikulegt flug alla föstudaga til Mílanó, þessarar háborgar lista og tísku í heiminum. Hér kynnist þú listaverkum Leonardo da Vinci, Scala-óperunni með frægustu listamönnum heimsins, hinum fræga miðbæ þar sem Duomo-dómkirkjan gnæfir yfir, hinni frægu verslunargötu Galeria Vittorio Emanuele II, ráðhúsinu, glæsilegustu verslunum heimsins, listasöfnum og nýtur lífsins í þessu menningarhjarta Evrópu. Beint flug föstudaga - engin millilending Mílanó í sumar frá 22.720 kr. Verð kr. 22.720 Verð á mann m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Skattar, kr. 2.495 fyrir fullorðinn, kr. 1.810 fyrir barn, innifaldir. Ekki er öruggt að lægsta fargjald sé til í öllum brottförum. Verð kr. 23.520 Flugsæti fyrir fullorðinn. Verð kr. 26.015 með sköttum. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Flugsæti Flug og bíll Flug og hótel TÓNLISTARDEILD verður stofnuð við Listahá- skóla Íslands næsta haust. Frestur til að sækja um nám við deildina er til mánudagsins 30. apríl. Nú þegar hafa störf deildar- forseta og kennara við deildina verið auglýst og segist Hjálmar H. Ragn- arsson rektor reikna með að búið verði að ganga frá ráðningum við deildina í júní. „Umsækjendur um kennslustöður við tónlist- ardeildina eru orðnir 78 og meðal þeirra eru margir af bestu tónlistarmönnum þjóðarinnar, framúrskar- andi listamenn á öllum sviðum tónlistar,“ segir Hjálmar. Inntökupróf fyrir væntanlega nemendur verða haldin um miðjan maí og geta allir þreytt þau svo framarlega sem þeir hafa lokið tilskildu framhaldsnámi í tónlistar- grein sinni. Allir geta sótt um Hjálmar segir að for- sendur stofnunar tónlistar- deildarinnar séu nokkuð frábrugðnar leiklistardeild og myndlistardeild þar sem fyrir voru ríkisreknir skólar í bæði leiklist og myndlist. „Listaháskólinn tók þá skóla yfir ásamt nemendum sem komnir voru misjafnlega langt áleiðis í námi sínu. Tónlistardeildin tekur að nokkru leyti við hlutverki Tónlist- arskóla Reykjavíkur en hann verð- ur ekki lagður niður heldur rekinn áfram í breyttri mynd. Um leið og kennslan færist upp á háskólastig tekur ríkið við henni af Reykjavík- urborg þannig að kerfisbreytingin er viðameiri en í hinum tilfellun- um. Ég vil jafnframt leggja áherslu á að nemendur annarra tónlistarskóla á framhaldsskóla- stigi geta sótt um inngöngu í tón- listardeildina þar sem við erum ekki að taka við neinum nemend- um Tónlistarskóla Reykjavíkur. Allir verða að þreyta inntökupróf og allir byrja nám á 1. ári,“ segir Hjálmar. Tvær námsbrautir Með stofnun deildarinnar verða fjórar deildir starfandi við Listahá- skóla Íslands næsta haust: Mynd- listardeild, leiklistardeild, hönnun- ardeild auk tónlistardeildar. Í upphafi verður boðið upp á nám við tónlistardeildina til fyrstu háskólagráðu, „bachelors“ á tveim- ur brautum, hljóðfæraleik og söng með aðaláherslu á flutning og túlk- un tónlistar, og tónsmíðar og fræðigreinar þar sem áhersla verð- ur á nýsköpun og fræðinám. Stefnt er að því að nemendur sem þess óska geti tekið kennaranám sem aukagrein á 2. og 3. ári. Að sögn Hjálmars verður námið byggt þannig upp að allir nem- endur fá einkatíma í aðalgrein sinni. „Sérstök áhersla verður lögð á hvers konar samspil og nem- endur verða hvattir til sjálfstæðra vinnubragða, s.s. að stofna og hafa umsjón með eigin hljóðfærahópi, „fjöllistahópi“. Í Listaháskólanum er lögð áhersla á erlent samstarf, fjöldi erlendra gestakennara sækir skólann heim og veitir nemendum innsýn í alþjóðlega strauma í list- um. Þá gefst nemendum tækifæri til nemendaskipta við samskipta- skóla Listaháskóla Íslands í Evr- ópu.“ Í Listaháskóla Íslands skiptist hvert skólaár í tvö misseri með 15 kennsluvik- um. Í samræmi við skipu- lag í öðrum deildum skól- ans er hvoru misseri deilt í þrjú fimm vikna tímabil. Hvert námskeið getur spannað eitt tímabil eða fleiri. „Með þessu móti gefst möguleiki á samstarfi milli deilda, nemendur fá tækifæri til að velja fög úr öðrum listgreinum og sveigjanleiki skapast til þess að færa til áherslur í náminu. Þá gefast tækifæri til styttri námskeiða og möguleikar á margbreyti- legum vinnusmiðjum. Allt leiðir þetta til fjölbreyttara náms og aukinna mögu- leika fyrir nemandann að sníða námið eftir sínum þörfum,“ segir Hjálmar og bætir því við að þótt smátt sé byrjað trúi hann því staðfastlega að þetta marki upphafið að stórri og öfl- ugri tónlistardeild Listahá- skólans. Skipting námsgreina eftir vægi Námsgreinarnar skipt- ast þannig að á fyrsta ári vega aðalgrein og tengdar námsgreinar 45%, tónheyrn og fræðigreinar 45% og valgreinar 10%. Á öðru ári eykst sérhæfing og vægi fræðigreina minnkar. Á þriðja ári tengjast öll fögin að- algreininni eða sérvalinni auka- grein og lýkur náminu með loka- verkefni sem felur í sér flutning á hljómleikum og lokaritgerð. Á fyrsta ári tónlistardeildar verður nám í fræðigreinum að miklu leyti samþætt. Ein þeirra er notkun stafrænna tónlistarmiðla. Á fyrri önn verður farið yfir helstu tónlistarforrit til nótnaritunar, tón- sköpunar og tónflutnings með aðal- áherslu á MIDI-tækni, og á seinni önn farið í undirstöðuatriði Audio- tækni og kennt að taka upp hljóð- skrár, snyrta þær til og koma fyrir á Netinu. Stefnt er að gerð staf- rænnar „möppu“ í lok tímabilsins. „Ég hef fulla trú á að við getum hafið starf tónlistardeildarinnar í haust með 25 hæfileikaríkum nem- endum og fremstu tónlistarkenn- urum landsins,“ segir Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands. Listaháskóli Íslands færir út kvíarnar í haust „Upphaf öflugrar tónlistardeildar“ Hjálmar H. Ragnarsson, rektor LHÍ. Morgunblaðið/Jim Smart
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.