Morgunblaðið - 29.04.2001, Side 52
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 55
Nú er því lag fyrir þá að fylgja þeirri vel-
gengni eftir og ef gagnrýnendur fá einhverju
ráðið þá virðist sveitin ætla að vaxa enn með All
About Chemistry. Breska tímaritið Q gerði sér
t.d. lítið fyrir og smellti heilum fimm stjörnum á
gripinn sem gerist nú ekki á hverjum degi á þeim
bænum. Meginkostur skífunnar þykir sem fyrr
einfaldar og grípandi lagasmíðar sem byggðar
eru á sígildum og traustum dægurlagagrunni
höfundanna í Brill-byggingunni fornfrægu en
einn af kontóristunum þar, Carol King, samdi og
syngur eitt laganna á plötunni með sveitinni.
Dan Wilson er gítarleikari, söngvari og að-
allagasmiður sveitarinnar: „Við vorum orðlausir
yfir viðbrögðunum við síðustu plötu og það
snerti okkur virkilega djúpt hversu ríkulega fólk
tók lögin okkar inn á sig. Það fyllti okkur eld-
móði að halda áfram á sömu braut, búa til meira
af tónlist sem hreyfir við fólki.“ Auk Wilson er
Semisonic, sem áður hét Pleasure, skipuð þeim
John Munson bassaleikara og Jacob Slichter en
þeir eru allir flugfærir tónlistarmenn og geta
gripið í hvaða hljóðfæri sem þeim liggur nærri.
Titill plötunnar er hvorttveggja dreginn af
sambandi sveitarmeðlima og innihaldi textanna
sem flestir fjalla á einn eða annan hátt um sam-
skipti kynjanna.
ÞRIÐJA breiðskífa Minneapolis-tríósins Semi-
sonic hefur fengið rífandi góða dóma hjá gagn-
rýnendum erlendis. Platan ber heitið All About
Chemistry en titillag plötunnar er fyrsta smá-
skífan og hefur hljómað ótt og títt í bandarísku
útvarpi, einkum á háskólastöðvunum, og á MTV.
Flestir tengja nafn sveitarinnar við lagið
„Closing Time“ sem gerði það býsna gott árið
1998 en sveitin hafði þá verið starfandi í ein
fimm ár. Fyrsta platan, The Great Divine, kom
út árið 1996 og var tekið opnum örmum af skrí-
bentum Rolling Stone-tímaritisins sem hömpuðu
henni fyrir „ferskan og grípandi einfaldleika“.
Feeling Strangely Fine fylgdi í kjölfarið tveimur
árum síðar og skartaði ofannefndum smelli sem
vakti heimsathygli á Semisonic.
Hljómsveitin Semisonic hefur sent frá sér nýja plötu
Strákabandið Semisonic.
Dægurlög af gamla skólanum
Lokaspretturinn
(Final Run)
S p e n n u m y n d
Leikstjóri: Armand Mastroianni.
Aðalhlutverk: Robert Ulrich, Pat-
ricia Kalember. (93 mín) Skífan.
Öllum leyfð.
Þessi formúlukennda spennu-
mynd er ekki upp á marga fiska,
frekar en ótal margir hennar líkar.
Um er að ræða nokkurs konar
blöndu af stórslysamynd og fjöl-
skyldumynd, þar sem aðalpersón-
urnar, sem eru feðgar, sigrast á fjöl-
skylduvanda sínum
jafnframt því sem
þeir fara í gegnum
mikla þrekraun um
borð í stjórnlausri
lest. En þar sem
pabbinn er stór,
sterkur og hetju-
lundaður, bjargar
hann farþegum
lestarinnar og
verður syni sínum traust fyrirmynd.
Reyndar eru öll þau gildi sem hamr-
að er á í atburðanna rás svo stöðluð
og íhaldssöm að myndin verður enn
leiðinlegri en hún var fyrir.
Heiða Jóhannsdótt ir
MYNDBÖND
Faðir og
sonur
Naktir strákar
(Beefcake)
H e i m i l d a r m y n d
Leikstjórn og handrit Thom Fitz-
gerald. Aðalhlutverk Daniel Mac-
Ivor, J. Griffin Mazeika. (97 mín)
Kanada 2000. Myndform. Bönnuð
innan 16 ára.
NAKTIR strákar gerist á ár-
unum eftir seinni heimstyrjöld og
fram til þess er nekt var ei lengur
alvarlegur glæpur undir banda-
rískum lögum. Þá beittu menn öll-
um brögðum til þess að bera nekt-
ina á borð fyrir almenning sem
vitanlega var áhugasamur sem æt-
íð, fyrr og síðar. Á þessum tíma
fór af stað bylgja tímarita og
stuttra kynningar-
mynda sem hömp-
uðu hraustum og
heilbrigðum karl-
mannslíkamanum.
Var efnið fram-
reitt á næsta an-
atómískan máta
eða í líkingu við
það sem síðar
þekktist sem vaxt-
arrækt eða fitness. Allir vissu
hinsvegar hvað bjó undir niðri.
Hér var nefnilega ekkert annað á
ferð en dulbúin og nett kynlífs-
bylgja, þar sem fólk, jafnt karlar
og konur, sem áhuga höfðu á að
glápa á nakta karlmenn, fékk eitt-
hvað fyrir sinn snúð.
Þessi sérstæða bylgja er hér
rakin bæði með leiknum atriðum
og gömlum, ljós- og kvikmyndum.
Gömlu nektarsveinarnir fá síðan
tækifæri til þess að rifja tímabilið
upp og gera hreint fyrir sínum
dyrum.
Hér er á ferð athyglisverð og
allsérstæð heimildarmynd sem
höfðar þó kannski einna helst til
þeirra er áhuga hafa á efninu.
Skarphéðinn Guðmundsson
Í minningu
sætu
strákanna