Morgunblaðið - 29.04.2001, Side 8

Morgunblaðið - 29.04.2001, Side 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ Nýr formaður Evrópusamtaka NÝLEGA var á aðal-fundi Evrópusam-takanna á Íslandi kosinn nýr formaður – Úlf- ar Hauksson stjórnmála- og Evrópufræðingur. Hann var spurður hvernig hin nýja vegsemd legðist í hann? „Hún leggst vel í mig. Ég hef lengi haft mikinn áhuga á Evrópusamstarfi, sá áhugi kviknaði ekki síst þegar ég stundaði nám í stjórnmálafræði við Há- skóla Íslands. Segja má að þá hafi ég fengið áhuga á að kanna frekar hugsan- lega stöðu Íslands og af hverju við værum ekki bú- in að sækja aðild að Evr- ópusambandinu. Það leiddi mig til að skoða sjávarútvegsstefnu sambandsins sem álitin hefur verið helsta hindrunin í vegi þess að við Ís- lendingar gerðumst aðilar að Evrópusambandinu. Ég skrifaði BA-ritgerð mína einmitt um það efni.“ – Og hvað sástu við athugun á þessu málefni? „Ég komst að þeirri niðurstöðu að sjávarútvegsstefnan er ekki óyfirstíganlegt vandamál ef geng- ið yrði til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í fyrsta lagi má segja að sjávarútvegsstefna sambandsins sé þannig upp byggð að ákaflega fátt myndi í raun breytast í íslenskri fiskveiði- stjórnun við aðild. Auk þess sýnir reynslan okkur að sambandið er alltaf tilbúið að sýna sveigjanleika í viðræðum og finna „klæðskera- saumaðar“ lausnir fyrir væntan- leg aðildarlönd. Í rauninni fékk ég þessar niðurstöður mínar frekar staðfestar í þættinum Aldarhvörf sem var á dagskrá Ríkissjón- varpsins 6. nóvember árið 2000 af ýmsum embættis- og stjórnmála- mönnum Evrópusambandsins og núna síðast jafnframt á blaða- mannafundi Romano Prodis, for- seta framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins, og Davíðs Oddssonar forsætisráðherra eftir fund þeirra í Brussel á dögunum. Prodi staðfesti þar að hægt væri að semja um ýmsa hluti.“ – Hvað eru Evrópusamtökin búin að starfa lengi á Íslandi? „Evrópusamtökin eru í raun- inni þverpólitísk samtök sem voru stofnuð árið 1995. Samtökin vilja m.a. stuðla að opnum og fordóma- lausum umræðum um samstarf Evrópuríkja. Helsta markmiðið er að starfa að virkri þátttöku Ís- lands í samstarfi Evrópuríkja og að Ísland sæki um aðild að Evr- ópubandalaginu. Starfið fór af stað með miklum krafti í upphafi en síðan hefur heldur dregið úr því, kannski m.a. vegna þess að Norðmenn höfnuðu aðild að Evr- ópusambandinu og umræður um þetta efni minnkuðu hér.“ – Hverju munt þú beita þér fyr- ir sem nýr formaður Evrópusam- takanna? „Ég mun fyrst og fremst beita mér fyrir því að reyna að koma umræðum um Evrópu- mál og hugsanlega að- ild Íslands að Evrópu- bandalaginu á „hærra plan“ – að það verði á faglegri nótum. Í bí- gerð er samvinna okkar og norsku Evrópusamtakanna sem er mjög spennandi. Það er mín skoðun að menn verið að fara að koma sér „upp úr skotgröfunum“ og fara aðræða þetta mál á vit- rænni hátt en verið hefur og þá frekar út frá hagsmunum heildar- innar en ekki út frá ímynduðum og raunverulegum sérhagsmun- um eins og verið hefur.“ – Þú ert að skrifa bók um sjáv- arútvegsstefnu Evrópusam- bandsins – er sú stefna mjög fjarri hagsmunum okkar Íslend- inga við nána skoðun? „Í rauninni ekki því stefnan byggir í raun á sameiginlegri nýt- ingu á sameiginlegum fiskistofn- um. Fiskveiðilögsögur Evrópu- ríkja liggja undantekningarlaust hver að annarri en íslenska fisk- veiðilögsagan er hins vegar al- gjörlega aðgreind frá fiskveiðilög- sögu Evrópusambandsins. Allir okkar helstu nytjastofnar eru staðbundnir. Auk þess hefur Evr- ópusambandið enga viðurkennda veiðireynslu á Íslandsmiðum og fengi þar af leiðandi engan kvóta í íslenskri lögsögu. Ákaflega lítið myndibreytast í íslenskri fisk- veiðistjórnun þótt við fengjum að- ild að Evrópusambandinu og segja má að við gætum þá rekið íslenska fiskveiðistjórnun innan hinnar sameiginlegu fiskveiði- stefnu Evrópusambandsins. Því má bæta við að heyrst hafa raddir um að það standi til að breyta þessum úthlutunarreglum, þ.e. ríkjakvótanum, sem aftur byggja þá á veiðireynslu. En það er á misskilningi byggt. Það er víð- tækt samkomulag um þetta fyr- irkomulag innan Evrópusam- bandsins og ef einhverjar breytingar yrðu gerðar þá yrðu þær strand- ríkjum í hag.“ – Telur þú ástæðu til að kynna betur sjávar- útvegsstefnu Evrópu- sambandsins? „Já, tvímælalaust því að menn eru enn þá haldnir þeim „fordóm- um“ að við aðild myndu erlend fiskiskip streyma inn í íslenska fiskveiðilögsögu. Þetta er mikill misskilningur, sóknarmynstur er- lendra fiskiskipa á Íslandsmið myndi lítið breytast við íslenska aðild að sambandinu, þar yrði helst um einhverjar tæknilegar útfærslur að ræða.“ Úlfar Hauksson  Úlfar Hauksson fæddist á Ak- ureyri 9. janúar 1966. Hann lauk prófi í vélfræði frá Vélskóla Ís- lands 1992 og stúdentsprófi í raungreinum frá Verkmennta- skólanum á Akureyri 1994. Hann lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 1999 og MA- prófi í Evrópufræðum frá Kaþ- ólska háskólanum í Leuven í Belgíu árið 2000. Hann hefur starfað bæði sem vélstjóri og há- seti á ýmsum togurum frá Ak- ureyri en er nú að rita bók um sjávarútvegsstefnu Evrópusam- bandsins með hugsanlega stöðu Íslands í huga. Þörf á auknum um- ræðum um Evrópumál Aðild að ESB myndi litlu breyta Svona, ekki líta undan, Jón minn, hérna bakdyramegin sérðu afleiðing- arnar af verkum þínum í fjárlaganefndinni, góði. UPPBOÐSFYRIRKOMULAG á sölu garðyrkjuávaxta hentar ekki hér á landi vegna þess hve kaup- endurnir eru fáir, að mati Kjart- ans Ólafssonar, formanns Samtaka garðyrkjubænda. Í sama streng tekur Pálmi Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Sölufélags garð- yrkjumanna, sem segir að upp- boðsfyrirkomulag á þessu sviði sé óðum að hverfa erlendis, en Sam- tök verslunar og þjónustu leggja til að í kjölfar afnáms gjalda og viðskiptahindrana við sölu græn- metis verði stefnt að því að innlent grænmeti fari sem mest á upp- boðsmarkað þar sem verð markist af framboði og eftirspurn. Kjartan sagðist ekki hafa sett sig inn í þá útfærslu sem þarna væri rætt um, en hann vildi að bændur væru frjálsir að því hvar þeir seldu afurðir sínar og hvern- ig. Það ættu að vera frjáls við- skipti á þessu sviði að því leyti til að ef bændur vildu fara inn á markað gerðu þeir það, en það ætti ekki að vera hægt að þvinga þá til þess. Bændur séu frjálsir að því hvar þeir selja og hvernig Aðspurður hvort svona fyrir- komulag væri ekki vel þekkt á sölu landbúnaðarafurða í Evrópu til dæmis og víðar, sagði hann svo vera, en þá væri nánast verið að ræða um heimsmarkað, en hér á landi væri verið að tala um rúm- lega eitt hundrað garðyrkjubænd- ur og innan við það ef einungis væri miðað við grænmetið og kaupendurnir væru örfáir. Hann vissi ekki um uppboðsmarkað í neinu hagkerfi þar sem seljend- urnir væru nánast hundrað sinnum fleiri en kaupendurnir. Hann sagðist ekki sjá hvernig uppboðsmarkaður ætti að virka við þessar aðstæður. Hann sæi ekki hvernig uppboðsmarkaður sem sölufyrirkomulag á grænmeti kæmi til greina vegna þess hve kaupendurnir væru fáir á móti seljendunum. Aðrir að hverfa frá þessu fyrirkomulagi Pálmi Haraldsson, fram- kvæmdastjóri Sölufélags garð- yrkjumanna, sagði að það væri einkennilegt ef við ættum að fara að taka upp uppboðsmarkað í þessum efnum hér á landi þegar allar aðrar þjóðir væru að hverfa frá því fyrirkomulagi. Það sé til að mynda tilfellið á stærstu mörk- uðum í heimi í þessum efnum, eins og í Hollandi. Ástæðan sé meðal ananrs sú að smásölukeðjurnar séu sífellt að stækka og það gefi auga leið að slíkt fyrirkomulag gangi ekki upp hér á landi þar sem séu í aðalatriðum bara tveir stórir kaupendur að vörunni. Uppboðsfyrirkomulag á sölu grænmetis hér á landi Kaupendurnir of fáir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.