Morgunblaðið - 29.04.2001, Síða 23

Morgunblaðið - 29.04.2001, Síða 23
26 SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ V ATNAJÖKULL er stærsti jökull Evrópu og í iðrum hans er eitt virkasta eldfjallasvæði heims. Hann er ein- stakur og stórbrotinn. Allt um kring er landslag stórt í sniðum, fjölbreytt og mótað af því mikla afli sem í jöklinum býr. Að aka um jök- ulinn á jeppa í allt að 2.000 metra hæð yfir sjávarmáli á hvítri mjöll- inni og komast í snertingu við Hvannadalshnjúk er ævintýri sem gleymist ekki. Hingað til hefur maður látið sér það nægja að sjá þennan hæsta tind Íslands úr margra mílna fjarlægð. Þegar við nálguðumst Hvannadals- hnjúk á þremur jeppum sumardag- inn fyrsta sl. varð okkur ljóst hve stórfenglegur hann er í nágvígi. Allt virtist svo agnarsmátt í samanburði við hann, jafnvel sjálfur Vatnajökull var smár. Útsýnið af tindinum er nær óendnalegt, suðaustur- og suð- urströndin var í svo mikilli nálægð að örstutt virtist til Hornafjarðar og norður yfir jökulinn sást svo langt sem augað eygði. Á hæsta tind landsins Lengi hafði það blundað í ferða- löngunum að komast á jeppum sín- um að hæsta tindi landsins, sem er 2.119 metrar yfir sjávarmáli. Eftir nokkurn undirbúning var ákveðið að láta á það reyna í síðustu viku því veðurspáin var góð og fréttir höfðu borist af því að jökullinn væri tiltölulega þægilegur yfirferðar. Lítið væri um sprungur og því að- eins spurning um veður og snjóa- lög. Fyrsti áfangastaður var skáli Jöklarannsóknarfélagsins í Jökul- heimum, sem er við jökulröndina vestanverða. Ferðin þangað gekk áfallalaust þó svo að nokkuð hefði verið um krapapytti á leiðinni. Jepparnir sönnuðu þá strax ágæti sitt er þeir stungu sér niður í krap- ann, höfðu lítið fyrir því að komast í gegnum hann og síðan upp á hæstu hóla. Þeir voru vel útbúnir, tveir þeirra á 38 tomma dekkjum og sá þriðji á 44 tommum. En góðir jepp- ar eru engin trygging fyrir því að drífa vel, ökumennirnir þurfa líka að vera góðir og það sýndu þeir strax á fyrsta degi að þeir voru ekki að fara í óbyggðaferð í fyrsta sinn. Í gufubað á Grímsfjalli Haldið var upp á Vatnajökul frá Jötunheimum í bítið 17. apríl og stefnan tekin á Háubungu sem er rétt sunnan við Grímsfjall. Ferðin upp gekk vel og þrátt fyrir að skyggni væri slæmt á köflum kom það ekki að sök því bílarnir voru vel útbúnir og auk þess með tölvu tengda við GPS-tæki, sem gefur upp mjög nákvæma staðsetningu. Nokkur lausasnjór var og því þurfti að hleypa lofti úr dekkjum eftir því sem ofar dró. Það tók um þrjá tíma að komast á Grímsfjall þar sem næsti náttstaður okkar var fyr- irhugaður. Þar er Jöklarannsókn- arfélagið með hlýlegan skála og er m.a. hægt að fara þar í gufubað! Gerð var heiðarleg tilraun til að keyra yfir að Hvannadalshnjúk síð- ar um daginn, en vegna skyggnis og ófærðar urðum við frá að hverfa og héldum því aftur í hreiðrið á Gríms- fjalli þar sem við nýttum gufubaðið óspart áður en við lögðumst til svefns. „Erum komnir upp fyrir tvö þúsund metrana“ Sumardagurinn fyrsti heilsaði okkur með bros á vör, ekki ský á himni, logn og hiti rétt undir frost- marki. Farið var snemma á fætur og lagt af stað frá Grímsfjalli. Tölu- vert sprungusvæði er austan í Grímsfjalli, í svokölluðu útfalli, en okkur tókst að komast framhjá því án teljandi erfiðleika enda vanir fjallamenn við stjórnvölinn. Um 60 km leið er frá Grímsfjalli að Hvannadalshnjúk og tók ferðin þangað tæpa fjóra klukkutíma með nokkrum stoppum. „Við erum komnir upp fyrir tvö þúsund metr- ana, hæðarmælirinn hjá mér sýnir nú 2.080 metra,“ sagði forystusauð- urinn Óskar Ólafsson í talstöðina. Þetta voru tölur sem aldrei höfðu sést á hæðarmælum jeppanna áður. Menn fögnuðu settu marki og nutu þess að vera á „toppi tilverunnar“ eins og Haraldur Örn Ólafsson pól- fari komst svo skemmtilega að orði er hann stóð á norðurpólnum fyrir um ári. Sýn sem lifir í minningunni Ekki var mögulegt að keyra upp á sjálfan Hvannadalshnjúk, enda snarbratt klettabelti. Ákveðið var því að ganga upp hann á tveimur jafnfljótum. Eftir að hafa notið út- sýnisins um stund og drukkið rjúk- andi kaffi var erfitt að snúa til baka frá þessari sýn, sem á eftir að lifa í miningunni um ókomin ár. Það voru ánægðir ferðalangar sem héldu aft- ur á jeppunum sömu leið til baka á Grímsfjall. Ferðin þangað tók að- eins tvær klukkustundir enda tilbú- in góð slóð fyrir bílana. Þar var hægt að láta gamminn geisa og var ekið á allt að 80 km hraða í snævi- þaktri eyðimörkinni. Stutt var staldrað við á Grímsfjalli áður en haldið var niður í Jökulheima. Leið- in þaðan og að Búrfellsvirkjun var torsótt að þessu sinni, vegna leys- inga og vatnavaxta og varð að fara töluverðar krókaleiðir til að forðast krapapytti. Allt gekk þó vel að lok- um og til Reykjavíkur var komið rétt eftir miðnætti. Ferðalangarnir sex, sem komu þreyttir en glaðir heim, eru þegar farnir að undirbúa aðra jeppaferð – inn í óbyggðir Íslands. Ekið um snæviþakta eyðimörk Vatnajökuls Að aka um Vatnajökul á jeppa á hvítri mjöllinni og komast í snertingu við Hvannadalshnjúk er ævintýri sem Valur B. Jónatansson gleymir ekki í bráð. Allt virtist svo agnarsmátt í samanburði við hæsta tind landsins. Nissan Patrolinn hans Óskars Ólafssonar undir tignarlegum Hvannadalshnjúknum. Það er alltaf hætta á því að lenda í sprungu. Hér að- stoðar Gísli Óskar við að ná bílnum upp úr jökul- sprungu í Grímsfjalli. Það þarf oft að breyta loftþrýstingnum í dekkjunum. Hér er ferðin upp á Vatnajökul undirbúin með því að hleypa úr dekkjunum. Við skála Jöklarannsóknarfélagsins á Grímsfjalli. Ferðafélagarnir með Hvannadalshnjúk í baksýn. Frá vinstri: Hjálmar Kristmannsson, Gunnar Andrésson, Ósk- ar Ólafsson, Gísli Hauksson og Úlfar Marinósson. Morgunblaðið/Valur Jónatansson Skíðin voru að sjálfsögðu höfð með í för. Morgunblaðið/Úlfar Marinósson Morgunblaðið/Valur JónatanssonMorgunblaðið/Valur Jónatansson Morgunblaðið/Valur Jónatansson Morgunblaðið/Úlfar Marinósson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.