Morgunblaðið - 29.04.2001, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 29. APRÍL 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
V i ð s k i p t a h u g b ú n a ð u r
á h e i m s m æ l i k v a r ð a
Borgar túni 37
Sími 569 7700W W W. N Y H E R J I . I S
LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL
ÞAÐ er ekki bara mannfólkið sem fagnar sumrinu, hreindýrin gera það
einnig enda gras farið að grænka og meira æti að finna fyrir þessi fallegu
dýr, sem halda sig aðallega á hálendi Austurlands. Hreindýr voru flutt til
Íslands á síðari hluta 18. aldar, en upphaflega átti að rækta þau og nýta í
landbúnað, en af því varð ekki og hafa þau lifað villt síðan.
Talið er að hreindýrastofninn á Íslandi sé um 3.500 dýr og yfir vetr-
artímann halda þau sig á heiðarlöndum, en þegar hart er í ári færa þau sig
niður á láglendið. Á Íslandi eru hreindýrin veidd, enda þykir hreindýrakjöt
góður matur. Veiðitímabilið stendur nú frá 1. ágúst til 15. september og er
heimilt að veiða allt að 446 hreindýr á tímabilinu.
Morgunblaðið/RAX
Hreindýr í leit að æti
SÖLUFÉLAG garðyrkjumanna, SFG, hefur kært
til áfrýjunarnefndar samkeppnismála þá ákvörð-
un samkeppnisráðs frá 30. mars sl. að SFG, Ágæti
og Mata hafi stundað ólöglegt samráð og sam-
keppnishömlur á grænmetis-, kartöflu- og ávaxta-
markaðnum.
Í kærunni eru lagðar fram tvær kröfur. Að-
alkrafan er sú að ákvörðunin verði felld úr gildi en
til vara að 40 milljóna króna sekt, sem SFG var
gert að greiða, verði breytt, hún felld niður eða
stórlega lækkuð. Í kærunni, sem Sigurður G. Guð-
jónsson, lögmaður SFG, skrifar, er talað um sekt-
ina sem „óhóflega og rakalausa“, að með 40 millj-
óna sekt sé verið að hengja bakara fyrir smið og
vísað þar til þess að samkeppnisyfirvöld hafi látið
afskiptalausa samþjöppun eignarhalds í smásölu-
verslun.
Þrjár af sex tegundum lækkað á tímabilinu
Í kærunni eru margvíslegar ástæður raktar fyr-
ir því að SFG fer fram á ógildingu ákvörðunar
samkeppnisráðs. Lögmaður SFG segir verulega
annmarka vera á málsmeðferð samkeppnisyfir-
valda og að brotið hafi verið á andmælarétti SFG,
m.a. með því að neita að þýða enskuslettur í frum-
athugun Samkeppnisstofnunar og hafna kröfu
SFG um munnlegan málflutning fyrir samkeppn-
isráði. Frumathugunin er sögð efnislega röng í
veigamiklum atriðum og „stórfurðulegt plagg“.
Í tengslum við kæruna hefur SFG beðið Bænda-
samtökin að bera saman heildsöluverð nokkurra
tegunda grænmetis, innflutts og íslensks, frá
félaginu við þróun neysluvísitölunnar fyrir tíma-
bilið 1995–2000. Þar kemur í ljós að þrjár af sex
tegundum hafa lækkað í heildsölu á tímabilinu,
þ.e. hvítkál, sveppir og agúrkur, og tómatar og
bananar hækkað minna en neysluvísitalan á sama
tíma. Heildsöluverð á íslenskri grænni papriku
hækkaði um 18,2% meðan vísitalan hækkaði um
15%.
SFG kærir ákvörðun samkeppnisráðs til áfrýjunarnefndar samkeppnismála
Ákvörðun verði ógilt
og sekt felld niður
Ákvörðun/20–24
TÍU ár verða á morgun liðin frá því
Davíð Oddsson forsætisráðherra tók
fyrst við því embætti og hefur hann
gegnt embættinu samfellt lengur en
aðrir forsætisráðherrar. Hermann
Jónasson kemur næstur en hann var
forsætisráðherra samfellt í 7 ár, 9
mánuði og 19 daga en alls gegndi
hann embættinu í 10 ár og tvo mánuði
og 19 daga.
Davíð Oddsson hefur myndað þrjár
ríkisstjórnir á ferli sínum, þá fyrstu
mynduðu sjálfstæðismenn með Al-
þýðuflokksmönnum árið 1991 en hin-
ar tvær, árið 1995 og 1999, myndaði
Davíð með Framsóknarflokknum.
Í samtali við Morgunblaðið í dag
rifjar hann upp helstu áfangana á
þessum 10 árum og telur meðal þess
sem stendur uppúr vera aðgerðir til
að draga úr ríkisafskiptum og tak-
marka vald stjórnmálamanna, tekist
hafi að renna fleiri stoðum undir at-
vinnulífið, sett hafi verið upplýsinga-
lög og ríkisfyrirtæki verið einkavædd.
Forsætisráðherra segist þó ekki geta
þakkað sjálfum sér það sem kunni að
hafa verið afrekað á ferlinum, aðrir
ráðherrar hafi hver um sig borið hit-
ann og þungann af málaflokki sínum
og hrint umbótum í framkvæmd.
Davíð Oddsson segir ýmislegt
ógert og meðal þess sem hann vilji
stuðla að sé lækkun á sköttum fyr-
irtækja á næstu einu til tveimur ár-
um. „Þar er ég til dæmis að tala um að
fara með skattinn í 15% og ég hef
sterka sannfæringu um að við mynd-
um laða til landsins mörg fyrirtæki
sem eru skráð annars staðar en eru
óróleg vegna þess að stjórnarfar og
starfsumhverfi er þar ekki nógu
öruggt.“
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
Hefur setið
lengst allra
samfellt í
embættinu
Skattkerfið verði/10–11
UNDIRBÚNINGUR stendur nú yfir
fyrir tökur á Veðmálinu, fyrstu
leiknu kvikmyndinni í fullri lengd
sem gerð er fyrir íslenskt fjármagn
af Íslendingum í Hollywood. Höf-
undur handrits og leikstjóri er Sig-
urbjörn Aðalsteinsson en framleið-
andi Friðrik Þór Friðriksson.
Aðalkvenhlutverkið leikur Kristín
Gísladóttir, sem jafnframt stýrir
framleiðslunni, og íslenskir kvik-
myndagerðarmenn skipa helstu
lykilstöður.
Myndin verður tekin á ensku og
heitir á því tungumáli The Wager.
Hún er, að sögn Sigurbjörns, „gam-
ansöm ástarsaga um léttgeggjaða
kvikmyndagerðarmenn í Holly-
wood“, fjallar um veðmál tveggja
kvikmyndaframleiðenda og tog-
streitu, ástar- og tilfinningaflækjur
því samfara. Verið er að ráða í önn-
ur helstu hlutverk en umsóknir
hafa borist frá um 1.200 leikurum.
Tökur eiga að hefjast í júní. Kostn-
aðaráætlun um tökur Veðmálsins
nemur aðeins um 100 þúsund doll-
urum eða tæplega 10 millj. króna.
Í samtali við Sigurbjörn og Krist-
ínu í Morgunblaðinu í dag segir
Sigurbjörn m.a. um tildrög þessa
óvenjulega verkefnis: „Eina nóttina
dreymdi mig að Friðrik Þór Frið-
riksson kæmi til mín og bæði mig
um að gera bíómynd á þremur dög-
um...“
Friðrik Þór segir Morgunblaðinu
að þessi draumur hafi átt sinn þátt í
að hann sló til að fjármagna mynd-
ina.
Fyrsta íslenska Hollywood-myndin
Veðjað/B26
♦ ♦ ♦
LÖGREGLUNNI í Borgarnesi var
tilkynnt um innbrot í átta sumarbú-
staði í Svarfhólsskógi í Svínadal í
gær. Að sögn lögreglu er talið að inn-
brotin hafi átt sér stað í vikunni, en
ýmsum verðmætum var stolið úr bú-
stöðunum. Það kom hins vegar ekki í
ljós fyrr en í fyrradag þegar fólk
kom til helgardvalar í bústöðunum,
að brotist hafði verið inn í þá.
Að sögn lögreglu eyðilögðu inn-
brotsþjófarnir ekki mikið inni í bú-
stöðunum.
Brotist inn í átta
sumarbústaði
Svínadalur