Morgunblaðið - 05.05.2001, Side 9

Morgunblaðið - 05.05.2001, Side 9
VARNARSAMSTARF Í HÁLFA ÖLD MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2001 C 9 [minnisblað handa McGeorge Bundy, 28. júlí 1961]. „Skýrsla: „Litaðir hermenn og Ísland 1. Málið hefur verið viðkvæmt síðan banda- rískir hermenn voru á Íslandi í seinni heims- styrjöld. 2. 1951: Meðan á viðræðunum um varn- arsamninginn stóð fóru Íslendingar fram á að engir litaðir hermenn yrðu sendir til Íslands. 3. Íslensk stjórnvöld staðfestu þessa af- stöðu þegar Bandaríkjastjórn fór fram á að nokkrir blökkumennyrðu sendir til Íslands ár- ið 1957. 4. feb. 1961: Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna Kohler bað bandaríska sendi- herrann á Íslandi að taka málið aftur upp. Ef íslensk stjórnvöld neituðu á ný lagði hann til að því yrði lýst yfir opinberlega að stefna Bandaríkjastjórnar [um að senda ekki blökku- menn] hefði verið mörkuð að ósk íslenskra stjórnvalda.“ 5. ágúst 1961: Íslensk stjórnvöld sam- þykktu munnlega að senda 3-4 vel útvalda lit- aða hermenn. [Skýrsla á vegum bandaríska flotans 24. maí 1963]. „Bandaríski sendirherrann á Íslandi er nú þeirrar skoðunar, að það væri óskandi að nokkrir vel valdir kvæntir negrar með fjöl- skyldur kæmu hingað án þess að mikið yrði gert úr því og fengju störf á stöðinni. Litið er svo á að slíkt mundi eyða helstu mótbárunni gegn komu þeirra (stráka/stúlku vanda- málið)“ [Skýrsla bandaríska flotans, 7. maí 1961.] „Íslensk stjórnvöld hafa ekki á móti því að þrír eða fjórir litaðir hermenn í varnarliðinu verði staðsettir hér, en vona, að þeir verði vel valdir í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem eiga við á Íslandi.“ [Bréf til Williams B. Bundy, aðstoðar- varnarmálaráðherra, 16. nóvember 1961 sem samtök svartra þingmanna á Bandaríkjaþingi birtu opin- berlega árið 1971.] „Eins og við höfum allir heyrt er það alveg ljóst, að vandmálin sem eru [í samskiptum Bandaríkjanna og Íslands] eru aðallega vegna stúlkna-ástandsins. Lögreglan virðist hafa náð mjög góðum árangri við að halda stúlkum undir lögaldri frá stöðum eins og Þórscafé, þar sem þeim er meinaður aðgang- ur, en þeim tekst engu að síður að komast í samband við hermennina. Stúlkurnar sem sækja Þórscafé eru allar yfir lögaldri og lög- reglan hefur engan rétt til að skipta sér af þeim svo lengi sem þær haga sér frið- samlega. Árásargirni þeirra er augljós og ég get ekki séð neitt, sem unnt er að gera frá bandarískum sjónarhóli til að minnka eða stjórna því „samneyti“, sem þar fer fram.“ [Bandarískt minnisblað, 15. desember 1966.] „Hermannasjónvarpið hefur unnið sitt lævísa skemmdarverk og beygt allmarga Ís- lendinga svo djúpt sem sendibréf sjónvarps- áhugamanna til hins erlenda herstjórnanda ber vott um. Herinn og Bandaríkjastjórn hafa náð talsverðum árangri að gera ýmsum Ís- lendingum hernámið eðlilegt, fleiri mannteg- undir en stjórnmálamenn og hórur eru farnar að ástunda samneyti við hinn bandaríska hernámslýð.“ [Þjóðviljinn, leiðari, 19. febrúar 1967.] „Hvað líður langur tími þangað til hér verða gefin út bandarísk blöð með nokkrum dálkum á íslensku? Hvenær rísa hér upp veglegir bandarískir skólar, þar sem nokkrir Íslending- ar fá að fljóta með til að kenna hið skringilega tungumál þeirra innbornu? Hvenær verða stofnuð hér bandarísk bókaforlög, sem gefa jafnframt út einhver sýnishorn af ritsmíðum innfæddra manna á frummálinu?“ [Austri, Þjóðviljinn, 2. febrúar 1964.] „[Bjarni] Benediktsson lagði sérstaka áherslu á eftirfarandi atriði [á fundi með starfsfólki NATO-sendiráða]: 1] Ísland er í raun ekki fyllilega sjálfstætt fyrr en það hefur komið upp varnarliði, þótt það yrði fámennt; 2] stjórnin telur, að almenningur geri sér í auknum mæli grein fyrir nauðsyn þess að sýna ábyrgð í alþjóðamálum og samstöðu með vestrænum ríkjum og trúir því, að sögu- leg einangrunarhyggja heyri brátt fortíðinni til.“ [Minnisblað James Penfields, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, 28. nóvember 1961.] „…. það er ólíklegt að kommúnistar hér mundu reyna að beita stjórnvöld ofbeldi svo lengi sem hér er bandarískt herlið. Jafnvel þótt ekkert bandarískt herlið væri á Íslandi er talið, að lögreglan í Reykjavík, sem hefur um 160 manna liði á að skipa, sé fær um að kveða niður hugsanlega valdaránstilraun kommúnista. Hún getur enn fremur reitt sig á 1500 manna lið af ungum mönnum, sem komið var á fót í kyrrþey árið 1961, en eina markmið þeirra er koma í veg fyrir ofbeldi kommúnista.“ [Bandarísk skýrsla, 29. mars 1962.] „Eins og rakið hefur verið hér í blaðinu eru áformin um herskipahöfn og kafbátalægi í Hvalfirði alvarlegustu umskiptin sem orðið hafa í þróun hernámsmála síðan opinská her- seta hófst á nýjan leik árið 1951. Þessi um- skipti merkja að ríkisstjórnin fellur frá þeirri opinberu stefnu sinni að hér megi aðeins vera „varnarstöðvar“ en heimilar í staðinn op- inskáar árásarstöðvar.“ [Þjóðviljinn, 16. júní 1962.] „Nú síðast hafa kommúnistar haldið því fram, að verið sé að undirbúa árásarstöðvar kjarnorkukafbáta í Hvalfirði. Sú staðhæfing er að sjálfsögðu gersamlega úr lausu lofti gripin....“ [Morgunblaðið, leiðari, 15. apríl 1964.] „Um síðustu helgi hélt eitt útibú komm- únista, sem nefnt er Samtök herstöðva- andstæðinga, landsfund norður við Mývatn. Fundarhald þetta var auglýst með miklu brauki og bramli, en heimtur voru þó tregar, þótt fundarhaldið væri sitjandi, en lið þetta hefur undanfarið verið [þjakað af] harð- sperrum og göngumæði. Þarna gaf að líta gömlu kommúnistaandlitin, enda taktsláttur og veizlustjórn í þeirra höndum. Nokkrir sér- vitringar og sakleysingjar slæddust þó með, en þetta er fólk, sem virðist haldið þeirri und- arlegu meinloku, að heimurinn hafi staðið í stað síðan 1918 eða í tæpa hálfa öld. Þessir nytsömu sakleysingjar eru aldir stundarkorn á þjóðsögum og kvæðalestri , sem út af fyrir sig er góðra gjalda vert – en síðan er gaukað að þeim Moskvusamþykkt um, að rétt sé að stíga hálfa öld aftur í Íslandssöguna í utanrík- isstefnu Íslands á tímum alþjóðasamtaka og kjarnorkuvopna.“ [Morgunblaðið, leiðari, 11. september 1964.] „Baráttudagur Samtaka herstöðva- andstæðinga varð rismikill og eftirminnilegur. Keflavíkurgangan varð frá upphafi einhver hin fjölmennasta sem farin hefur verið, þúsundir og aftur þúsundir gerðu sér ferð á Reykjanes til að sjá hana, hún óx og margfaldaðist er nær dró Reykjavík og streymdi að lokum eins og fljót í leysingum um Laugaveg og að einum fjölmennasta útifundi sem haldinn hefur ver- ið við Miðbæjarskólann.“ [Leiðari Þjóðviljans, 11. maí 1965.] „Að minnsta kosti tvisvar sinnum um kvöldið tjáði hann [Bjarni Benediktsson, for- sætisráðherra] mér í trúnaði, að Bandaríkja- stjórn yrði að skilja nauðsyn þess, að hann starfaði með kommúnistum í verkalýðshreyf- ingunni]. Ef þessi orð eru sett í samhengi þá benda þau eindregið til þess, að tilraun hans með þessari samvinnu, sem leiddi til kaup- og verðlagssamkomulagsins í júní hefði borið árangur. Hann virðist búast við því að fram- hald verði á þessum tengslum og telur, að hann muni verða í þeirri aðstöðu að geta boð- ið kommúnistum upp á nægilega mikið í staðinn, þó ekki ráðherrastóla eða eitthvað sem mundi stórbæta stöðu þeirra, til að þeir sjái hag sinn í því.“ [Minnisblað um samtal James Penfields við Bjarna Benediktsson, 19. desember 1964.] „Mótmælin voru mun fjölmennari en þau sem fóru fram fyrir framan sendiráðið 4. júlí; það er slæmt í þeim skilningi að það getur þýtt að almenningur sé farinn að hafa meiri áhyggjur af Víetnam. Þrennar mótmælaað- erðir gegn stefnu Bandaríkjastjórnar hafa átt sér stað síðustu sjö mánuði....“ [Bandarísk sendiráðsskýrsla 26. janúar 1967.] „Enda þótt Morgunblaðið hafa haft um það forystu að leyfa frjálsar umræður, vill blaðið taka það fram, að það er stolt af því hafa hliðrað sér hjá að birta áróðursgrein frá Aroni Guðbrandssyni þess efnis, að Íslend- ingar ættu ekki einungis að taka við mútum heldur að krefjast þeirra.“ [Morgunblaðið, 21. janúar 1969.] III Þegar vinstri stjórn Framsóknar- flokks, Alþýðubandalags og Sam- taka frjálslyndra og vinstri manna tók við völdum árið 1971 olli það ákvæði stjórnarsáttmálans spennu í samskiptum Íslands og Bandaríkj- anna að endurskoða bæri eða segja upp varnarsamningnum við Banda- ríkin. Markmiðið var að hverfa til þess ástands sem var á árunum 1949-1951. Engin sátt var þó um her- málið meðal stjórnarflokkanna. Framsóknarflokkurinn var klofinn. Leiðtogar Samtaka frjálslyndra og vinstri manna voru tvístígandi. Al- þýðubandalagið hafði átt úrslitaþátt í að koma ákvæðinu um brottför hersins í málefnasamninginn, en þar voru uppi mismunandi skoðanir á því hve mikla áherslu ætti að leggja á málið. Samtök herstöðvaaandstæð- inga voru stofnuð árið 1972 til að reka á aftir málinu, en það voru þverpólitísk samtök, þar sem menntamenn á vinstri væng voru í forystu. Bandaríkjamenn treystu því, að stjórnin myndi ekki framfylgja stefnu sinni. Lítið gerðist í málinu fyrr en árið 1973, en þá gjörbreytti flotavald Breta í þorskastríðinu stöð- unni. Það leiddi til mikillar þjóðern- isvakningar. Þar með sköruðust landhelgismálið, NATO-aðildin og varnarsamningurinn í fyrsta sinn. Skömmu eftir að Bretar sendu her- skip á Íslandsmið ákvað stjórnin eft- ir mikinn þrýsting alþýðubandalags- manna og vinstri arms Framsóknarflokksins að hefja það sex mánaða endurskoðunarferli, sem var forsenda þess, að unnt yrði að segja honum upp. Um svipað leyti var haldinn hér leiðtogafundur Rich- ards Nixons Bandaríkjaforseta og Georges Pompidous, forseta Frakk- lands og jók það enn á spennuna. Þar hafði Ólafur Jóhannesson, forsætis- ráðherra, tækifæri til að ræða við Nixon um stöðuna í her- og landhelg- ismálunum. Eftir að landhelgismálið leystist haustið 1973 varð hermálið að helsta hitamálinu í stjórnmálaumræðunni. Eftir mikið þóf komust stjórnar- flokkarnir að samkomulagi um, að herinn færi af landi brott vorið 1974, en Bandaríkjamenn og NATO fengju aðgang að herstöðinni vorið 1974. Hermálið var þá í raun hætt að snúast um utanríkismál, heldur ein- göngu um stjórnarsamstarfið og inn- anflokksmál. Um sama leyti var und- irskriftalisti Varins lands lagður fram með rúmlega 55 þúsund undir- skriftum. Stjórnin lagði samkomulag sitt um hermálið fyrir Bandaríkja- stjórn, en stjórnarsamstarfið leystist upp vegna deilna um efnahagsmál áður en raunverulegar viðræður hóf- ust um það. Þegar Sjálfstæðisflokk- ur og Framsóknarflokkur mynduðu saman stjórn að loknum kosningum árið 1974 var ekki hróflað við varn- arsamningnum í stefnuskránni. Tímabilið 1971–1974 Pólitísk orðræða var mjög hörð á vinstristjórnartímabilinu og má segja, að hún hafi verið sem endur- ómur þeirra átaka, sem urðu hér við NATO-aðildina. Morgunblaðið beitti and-kommúnískum vopnum og sak- aði framsóknarmenn um að láta kommúnista ráða ferðinni í utanrík- ismálum og Þjóðviljinn fór hamför- um yfir undirskriftasöfnun Varins lands. Stúdentapólitíkin var einnig mjög hörð á þessum árum og rót- tækir stúdentar komu í veg fyrir, að William Rogers, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fengi að heimsækja Árnastofnun árið 1972. Í hermálinu treystu Bandaríkja- menn því fram undir það síðasta, að framsóknarmenn stigju ekki skrefið til fulls, enda vissu þeir, að ólíklegt væri að þingmeirihluti væri fyrir því. Richard Nixon varaði samt Ólaf Jó- hannesson eindregið við því að láta landhelgismálið koma niður á NATO og hermálinu þegar þeir hittust árið 1973. Á fundinum blandaði Ólafur landhelgis- og hermálunum og reyndi að fá stuðning Bandaríkja- stjórnar við málstað Íslands í land- helgismálinu, en án árangurs. Þegar hermálið náði hámarki vorið 1974 reyndi Ólafur að sætta ólík sjónar- mið og knýja fram málamiðlun: að halda Framsóknarflokknum og stjórninni saman án þess að styggja Bandaríkjamenn. Eftir að vinstri stjórnin fór frá og framsóknarmenn mynduðu stjórn með Sjálfstæðis- flokknum varð ljóst, að engin breyt- ing yrði á samstarfinu við Bandarík- in. „Það eru verulegar líkur á því, að for- ystumenn Framsóknarflokksins láti sér nægja að efna til könnunarviðræðna við okk- ur næstu tvö ár, eða a.m.k. þangað til þeim hefur tekist að leiða landhelgismálið til lykta með útfærslu í 50 mílur.... Við viljum ekki gera ástandið enn erfiðara fyrir framsókn- armenn með því að beita þá þrýstingi í þessu máli.“ [Minnisblað til Richards Nixons, 15. júlí 1971.] „Forsetinn [Richard Nixon] sagði, að Ís- land ætti margt sameiginlegt skandínav- ískum ríkjum, sem birtist í sterkum tilhneig- ingum til laumu-marxískar hugmyndafræði og öfga-frjálslyndis í afstöðunni til alþjóðamála. Hann tók fram, að Ísland væri lítið og ein- angrað land, sem gæti oft komist upp með að fara eigin leiðir en gerði sér engu að síður fullkomlega grein fyrir því að það væri háð vestrænum ríkjum....“ [Ummæli Richards Nixons á fundi 1971, engin dagsetning.] „Éttu hund Rogers: Nú þegar bandarískir stúdentar eru að hefja mótmælaaðgerðir gegn glæpaklíku heimsvaldasinna í Penta- gon, viljum við sýna samstöðu með þeim með því að koma í veg fyrir að varðhundar heimsvaldasinna saurgi musteri íslenskra fræða .“ [Mótmælaorðsending róttækra stúdenta við Háskóla Íslands vegna heimsóknar Williams Rogers í Árnastofnun.] „Meginþorri framsóknarfólks vill ekki rasa um ráð fram í herstöðvamálinu, þrátt fyrir há- værar raddir lítils minnihluta innan flokksins, en hitt er annað mál, að sjálfsagt er að láta fara fram endurskoðun á varnarsamn- ingnum…. Raunar getur enginn haft á móti því, að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um varnarsamninginn....“ [Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi í grein í Tímanum, 7. janúar 1973.] „Hann [Ólafur Jóhannesson] sagði, að ef Bandaríkjamenn ætluðu sér að vera hlut- lausir í landhelgismálinu gæti hann líka verið hlutlaus í máli, sem varðaði Bandaríkin miklu. Hann bætti því við, að hann væri að tala um hermálið og ef við ættum von á því að hann berðist fyrir því að halda herstöðinni á Íslandi þá yrðum við að hjálpa honum í sam- bandi við vandamál hans....“ [Bandarísk skýrsla, 30. mars 1973.] „Nixon forseti sagði að Bandaríkjstjórn vildi ekki að tvær vinaþjóðir ásökuðu Banda- ríkin fyrir eigin sambúðarerfiðleika.... Að því er varðar herstöðina sagði hann, að tækju Ís- lendingar upp einangrunarstefnu mundi það ekki aðeins hafa slæm áhrif á bandalagið [NATO] heldur einnig Ísland.... Hann hvatti Ís- lendinga til að hugsa um alvarlega skaða þess sem það mundi gera Íslandi og banda- laginu ef það gripi til ráðstafana, sem beind- ust gegn NATO og Varnarliðinu.“ [Minnisblað um samræður Nixons og Ólafs Jóhannessonar, 30. maí 1973.] „Í sambandi við þann fyrirvara, sem gerður var árið 1949, um að hér skyldi aldrei vera er- lendur her á friðartímum, hefur Morgunblaðið vakið athygli á því, að fyrir löngu eru brostnar forsendur fyrir þessum fyrirvara. Þegar á árinu 1957 gerði Bjarni Benediktsson grein fyrir þeirri skoðun sinni, að þá þegar væru for- sendur brostnar fyrir þessum fyrirvara. Ástæðan var sú, að 1949 var enn talið, að styrjöld yrði háð með svipuðum hætti og heimsstyrjöldin síðari, að það mætti sjá með nokkurra vikna fyrirvara, hvort styrjöld væri í aðsigi og þess vegna ráðrúm til að kalla hing- að varnarlið áður en styrjöld brytist út.“ [Morgunblaðið, leiðari,12. janúar 1974.]. „Er niðurstaða okkar sú, að á þessu máli sé aðeins ein lausn, sem nokkurn veginn get- ur fullnægt réttmætum hagsmunum beggja, Íslendinga sjálfra og nágrannaþjóða þeirra, en hún er sú að flytja herstöðina á annan stað í landinu.... Við flutning herstöðvarinnar norður á Melrakkasléttu... vinnst ákaflega margt. Í fyrsta lagi mundi öll samskipti milli Íslendinga og varnarliðsins minnka veru- lega..... Með þeirri skipan, sem hér er mælt með, yrði bæði sjónvarpi og útvarpi varn- arliðsins lokað...“ [Sigurður Líndal og Valdimar Kristinsson í grein í Morgunblaðinu, 16. janúar 1974.] „Fáeinir ofstækisfyllstu flokksmenn Sjálf- stæðisflokksins ásamt einum fyrrverandi varaþingmanni Alþýðuflokksins hafa lagzt á fjórar fætur og flaðrandi vilja þeir biðja Bandaríkin um ævarandi hernám á Íslandi.“ [Leiðari Þjóðviljans, 17. janúar 1974.] „Fátt hefur vakið jafnmikla athygli síðustu daga og sú ákvörðun nokkurra einstaklinga að beita sér fyrir undirskriftasöfnun meðal þjóðarinnar, þar sem skorað er á ríkisstjórn og Alþingi, „að standa vörð um öryggi og sjálf- stæði íslenzku þjóðarinnar“ með því að treysta samstarfið innan Atlantshafs- bandalagsins, en leggja á hilluna ótímabær áform um uppsögn varnarsamningsins við Bandaríkin og brottvísun varnarliðsins. Þetta framtak nokkurra einstaklinga hefur hlotið með fádæmum góðar undirtektir....“ [Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins, 20. janúar 1974.] „Hernámsmálin eru nú í brennidepli vegna þess, að fyrirheit ríkisstjórnarinnar um brott- för hersins er komið á ákvörðunarstig. Ég veit ekki hvað gerast kann næstu daga og vikur; ég get aðeins endurtekið það sem ég hef margsinnis sagt áður, að ég vil ekki trúa því að nokkur þingmaður stjórnarflokkanna bregðist því drengskaparheiti að standa sam- an um brottför hersins....“ [Ræða Magnúsar Kjartanssonar á fundi herstöðvaandstæðinga í Háskólabíói, Þjóðviljinn, 29. janúar 1974.] „Það segir ekki í þessum málefnasamn- ingi, eins og sumir halfa viljað lesa, að varn- arliðið skuli farið á kjörtímabilinu. Það segir, að það skuli stefnt að því....“ [Ræða Ólafs Jóhannessonar á fundi Framsóknarfélags Reykjavíkur, 7. mars 1974.] „Samkomulag tókst í ríkistjórinni um til- lögur brottför hersins …. 21. mars…. Herinn fari í fjórum áföngum. Fyrsti fjórðungurinn fyrir árslok 1974, annar fjórðungur fyrir mitt ár 1975, þriðji fjórðungur fyrir árslok 1975 og afgangurinn fyrir mitt ár 1976….“ [Þjóðviljinn, 23. mars 1974.] „Engum blöskrar lengur, þótt ill tíðindi ber- ist frá ríkisstjórn Íslands. Svo válega hafa ráðherrar farið með málefni þjóðar sinnar, að ekkert virðist þeim ofvaxið í þeim efnum. Síð- ustu fréttir eru þó verstar, þegar það ljóst, að Framsóknarflokkurinn ætlar að fylgja fram stefnunni um varnarlaust Ísland....“ [Björn Bjarnason, þáverandi fréttastjóri erlendra frétta Vísis, 23. mars 1974.] „Síðan spurði Kissinger hvernig varnarliðs- mennirnir höguðu sér. E.Á. [Einar Ágússson] sagði, að þeir höguðu sér vel og samskiptin milli þeirra og Íslendinga væru góð. Kvaðst hann vilja ítreka það, sem hann hefði áður sagt, að þær óskir, sem fyrrverandi rík- isstjórn hefði borið fram um, að varnarliðið hyrfi á brott af Íslandi í áföngum, stöfuðu eng- an veginn af óvild í garð Bandaríkjamanna né af neinum erfiðleikum í sambúð við þá. Með- an varnarlið þyrfti að vera á Íslandi, kysum við enga fremur en þá til að gegna því hlutverki. Óskin um brottför varnarliðsins ætti fyrst og fremst rót sína að rekja til þjóðerniskenndar Íslendinga....“ [Viðræður Einars Ágústssonar, utanríkisráðherra, við bandarísk stjórnvöld 26. september 1974.] Nixon á Íslandi Richard Nixon Bandaríkjaforseti og Georges Pompidou Frakklandsforseti áttu fund á Íslandi sumarið 1973. Nixon átti einnig við- ræður við íslenska ráðamenn og var haft eftir Ólafi Jóhannessyni forsætisráðherra að forseti Bandaríkjanna hefði góða þekkingu á landhelgismálinu, sem þá var ofarlega á baugi. Á myndinni er Nixon í heimsókn hjá Kristjáni Eldjárn, forseta Íslands. Frá vinstri: Henry Kissinger, ráðgjafi forsetans, Will Rogers utanríkisráðherra, Richard Nixon, Kristján Eldjárn, Ólafur Jóhannesson og Einar Ágústsson utanríkisráðherra. Höfundur er sagnfræðingur. ’ Íslensk stjórnvöldhafa ekki á móti því að þrír eða fjórir lit- aðir hermenn í varn- arliðinu verði stað- settir hér, en vona, að þeir verði vel valdir í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem eiga við á Ís- landi ‘

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.