Morgunblaðið - 20.05.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.05.2001, Blaðsíða 1
Prentsmiðja Morgunblaðsins Á mótum tveggja tíma Morgunblaðið/Einar Falur Á síðasta áratug hefur kínverska borgin Shanghai tekið gífurlegur breytingum. Í borginni rísa sífellt nýir skýjakljúfar, fínustu verslunargötunar bjóða upp á flest það sem pen- ingar geta keypt og Kín- verjar sýna að þeir geta keppt við umheiminn í viðskiptum. Í gömlu borgarhlutunum blasir við ólík veröld, hið gamla Kína. Einar Falur Ingólfsson gekk á milli þessara tveggja heima. Sunnudagur 20. maí 2001 MORGUNBLAÐIÐ 20. MAÍ 2001 113. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 Heimurinn er fullur af tækifærum 10 Litla Ísland lætur að sér kveða í Kosovo 18 Ég er hálf-þú! 22 B ÞJÓÐARLEIÐTOGAR víða um heim hvöttu til þess í gær að bundinn yrði endi á heiftaræðið og hörmung- arnar í Mið-Austurlöndum en svo virtist sem þeir töluðu fyrir daufum eyrum. Ísraelskir hermenn skutu í gær til bana tvo Palestínumenn, lög- reglumann og bónda, og ísraelskar fallbyssuþyrlur gerðu árásir á fimm skotmörk á Vesturbakkanum. Arababandalagið hvatti í gær þjóðir heims til að koma Palestínumönnum „til verndar á úrslitastund“. George W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, hvatti til þess í fyrradag að „vítahringur ofbeldisins“ yrði rofinn og Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kvaðst harma hið „skelfilega hryðjuverk“ í ísr- aelska bænum Netanya þar Palest- ínumaður varð sjálfum sér og fimm Ísraelum að bana og særði tugi manna. Hann gagnrýndi hins vegar harðlega loftárásir Ísraela á byggðir Palestínumanna. Þær eru þær fyrstu frá því í stríðinu 1967. Hvatt til vopnahlés Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti í gær til „skil- yrðislauss vopnahlés“ og Javier Sol- ana, sem fer með öryggis- og varn- armál í Evrópusambandinu; Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands, og Bernard Valero, talsmaður franska utanríkisráðuneytisins, lýstu allir áhyggjum sínum af ástandinu. Solana kemur til Mið-Austurlanda í dag en hann og ESB styðja heilshug- ar Mitchell-skýrsluna um ástæður of- beldisins. Í henni er hvatt til banns við landtöku Ísraela á hernumdu svæðunum en því hafna Ísraelar. Arababandalagið ræðir viðbrögð Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, sagði í Kaíró í Egyptalandi í gær að loftárásir Ísraela myndu að- eins stappa stálinu í palestínsku þjóð- ina sem væri staðráðin í að gefa ekki eftir þumlung af landi sínu. Þá hvatti Amr Mussa, framkvæmdastjóri Arababandalagsins, þjóðir heims til að koma Palestínumönnum til varnar vegna „stríðsglæpa“ Ísraela. Verða loftárásir Ísraela og viðbrögð við þeim ræddar á fundi utanríkisráð- herra bandalagsins í Kaíró um helgina. Tugþúsundir manna fylgdu í gær til grafar í Nablus á Vesturbakkan- um 11 palestínskum lögreglumönn- um sem létu lífið í loftárásum Ísraela. Hrópaði fólkið á hefnd og hvatti til að „milljón manns“ yrði stefnt til Jerú- salems. Reuters Ellefu palestínskir lögreglumenn, sem féllu í loftárásum Ísraela, voru bornir til grafar í Nablus á Vesturbakk- anum í gær. Fylgdu þeim tugþúsundir manna sem hrópuðu á hefnd. Linnulausar árásir þrátt fyrir ákall þjóðarleiðtoga Jerúsalem, Nablus, París. AP, AFP, Reuters. Arababandalagið skorar á þjóðir heims að verja Palestínumenn HUNGURSNEYÐIN gengur eins og rauður þráður í gegnum kín- verska sögu og jafnvel ungt fólk nú á dögum man eftir skömmtun á ýmsum daglegum nauðsynjum. Nú er þó svo komið að margar kín- verskar borgir eru að drukkna í úr- gangi, meðal annars matarleifum. Á Vesturlöndum þykir það lítil kurteisi að leifa mat en því er alveg öfugt farið í Kína. Þar sýnir tómur diskur að gesturinn hafi ekki feng- ið nóg og slíka skömm lætur enginn gestgjafi henda sig. Þessi siður lifir enn góðu lífi og algengt er að borðhald á veit- ingastöðum líkist mest barna- afmæli sem farið hefur úr bönd- unum. Svínarif, skeljar, fiskbein og grænmetisleifar liggja eins og hrá- viði innan um hálffullar súpuskálar og allt ber þetta vitni um vel heppn- aða máltíð. Yfirvöld í ýmsum borgum eru nú að lenda í vandræðum með úrgang- inn. Í Shanghai þarf að farga um 1.200 tonnum af matarleifum á dag og á sumum veitingastöðum losa þær jafnvel tonnið daglega. Yang, yfirþjónn á Jinshancheng, vinsælum veitingastað í Peking, segir að sér bjóði við öllum matnum sem fer til spillis. „Vesturlanda- menn eru til fyrirmyndar að þessu leyti. Þeir panta ekki meira en þeir geta torgað. Við ættum að læra af þeim,“ segir Yang. Kínverjar að drukkna í úrgangi GEORGE W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, og Vladímír Pútín, forseti Rússlands, ætla að hittast á sínum fyrsta fundi í næsta mánuði. Skýrði Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, frá því í gær. Upphaflega var áætlað að þeir Bush og Pútín hittust í júlí á G-8- fundi iðnaríkjanna í Genúa á Ítalíu en Powell sagði eftir fund með Ígor Ívanov, utanríkisráðherra Rúss- lands, að fundinum hefði verið flýtt. Verður hann í Slóveníu 16. júní. Umræðuefni fundarins verða meðal annars áætlanir Bandaríkja- manna um eldflaugavarnir, sem Rússar eru mjög andvígir, bætt sam- skipti ríkjanna í kjölfar njósnadeilna og Tsjetsjnía. Bush og Pútín hitt- ast í júní Washington. AFP. DÓMSTÓLL í Utah í Bandaríkjun- um hefur fundið mann nokkurn, sanntrúaðan mormóna að eigin sögn, sekan um fjölkvæni og á hann yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi. Mormónakirkjan bannaði fjölkvæni 1886 en þó er talið að allt að 30.000 manns ástundi það enn. Tom Green, sem er rúmlega fimm- tugur, var fundinn sekur um fimm ákæruatriði, fjögur varðandi fjöl- kvæni og um það fimmta fyrir að sjá ekki fyrir níu barna sinna með sóma- samlegum hætti. Green er kvæntur fimm konum og talið er að hann eigi 29 börn. Fjórar eiginkvenna hans eru nú ófrískar. Green kvaðst ekki hafa getað séð fyrir börnum sínum vegna þess að eldur hefði komið upp í húsvagninum og því væri öll hers- ingin á opinberu framfæri. Fjölkvæni Fimm konur og 29 börn Provo. AFP. SÁ siður ríkisfyrirtækja í Frakklandi að nota mútur til að tryggja sér samninga og áhrif naut blessunar og samþykkis franskra forseta. Kom þetta fram hjá fyrrverandi yfirmanni olíufélagsins Elf sem áður var í eigu ríkisins. Loik Le Floch-Prigent, sem sak- aður er um margvíslega spillingu í forstjóratíð sinni hjá Elf, sagði í við- tali við Le Parisien og Le Figaro að mútukerfið, sem hefði upphaflega verið til að tryggja viðskiptahags- muni í Afríku, hefði síðar verið látið ná til fjármögnunar franskra stjórn- málaflokka. „Það fékk blessun hvers forsetans á fætur öðrum,“ sagði Le Floch- Prigent. „Einu sinni á ári fór forstjóri Elf á fund forsetans með mútu- listann. Þar var hann samþykktur af skrifstofustjóra forsetaembættisins og forsetanum sjálfum.“ Le Floch-Prigent segir að allir stjórnmálaflokkarnir hafi hagnast á spillingunni og um Lionel Jospin, nú- verandi forseta, sem segist hvergi hafa komið nálægt þessari spillingu, segir Le Floch-Prigent að hann sé „hræsnari“ án þess að skýra það nán- ar. Nefna má að kaup Elf á Leuna- olíuhreinsunarstöðinni í Austur- Þýskalandi 1992 eru til rannsóknar vegna gruns um að Elf hafi greitt fyrir þeim með mútum til Helmuts Kohls, fyrrverandi kanslara. Forsetar samþykktu mútur París. AP, Reuters. ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.