Morgunblaðið - 20.05.2001, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 20.05.2001, Blaðsíða 43
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 43 Ert þú með smá appelsínuhúð eða kannski bara mikla? Það skiptir ekki máli. Silhouette er alltaf lausnin! Súrefnisvörur Karin Herzog Switzerland w w w .k ar in he rz og .c o. uk Ætlar þú í sólbað í sumar? Enn eitt árið í röð nota keppendur fegurðarsam- keppninnar Silhouette ...ferskir vindar í umhirðu húðar Útsölustaðir: Snyrtideildir Hagkaups, Lyf og heilsa, Apótekið hf., Hringbrautar Apótek, Borgar Apótek, Rima Apótek, Árbæjar Apótek, Garðs Apótek, Laugarnes Apótek, Sól og sæla, Salon Ritz, Lyfja Grindavík, Húsavík og Egilsstöðum, Myrra Selfossi, Apótek Keflavíkur, Borgarness Apótek, Apótek Vestmannaeyja, Apótek Ólafsvíkur, Stúdíó Dan - Ísafirði, Apótek Blönduóss, Sauðárkróks Apótek, Siglufjarðar Apótek, Hafnar Apótek og Nes Apótek. stigalyftur frá Danmörku  Bein og/eða beigð braut.  50% verðlækkun frá amerísku lyftunum Hamarshöfða 1 - sími 511 1122, heimasíða: www.simnet.is/ris/ verslun  Innilegustu þakkir sendi ég vinum og vanda- mönnum, sem glöddu mig með nærveru sinni, gjöfum og góðum óskum 30. apríl síðastliðinn í tilefni af níræðisafmæli mínu. Sérstakar þakkir færi ég börnum mínum og fjöl- skyldum þeirra. Þið öll gerðuð mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur. Hálfdan Auðunsson, Ytra-Seljalandi. FYRIR stuttu áttum við hjónin þess kost að fara í vikuferð til Kýpur með ferðaskrifstofunni Sól. Í stuttu máli var ferð þessi mjög ánægjuleg. Þegar eitthvað tekst vel, langar mann að gjarnan að benda öðrum á sama möguleika. Þess vegna vil ég óhikað vísa landanum á þennan kost til að eyða sumarleyfi sínu. Kýpur er, eins og flestir vita, eyja í austanverðu Miðjarðarhafi, rétt sunnan við Tyrkland. Líbanon og Ísrael er innan seilingar til austurs og Egyptaland til suðurs. Kýpur er aðeins rúmir 9 þús. ferkílómetrar eða tæplega tíundi hluti Íslands. En hvað er svo gott við Kýpur að ástæða sé til að fara þangað? Við dvöldum í Limassol, syðst á eyjunni, en það er ákaflega snyrtilegur strandbær. Hótelin standa flest al- veg við sjóinn svo að fólk getur nán- ast stigið út úr rúminu og beint á ströndina. Sjórinn er hreinn enda er engu skolpi veitt út í hann, það er allt hreinsað og vatninu síðan veitt á ræktarland. Snyrtilega hlaðnir brimvarnargarðar eru úti fyrir ströndinni og skapa lygnu þar sem notalegt er að synda. Sjórinn er það hlýr að sundsprettur var ómótstæði- leg ánægja, og það meira að segja í lok apríl þegar við vorum þarna, og hann á eftir að hlýna meira þegar lengra líður á sumarið. Loftslagið var mjög gott og hitinn hæfilegur eða milli 22 og 30 stig yfir daginn, gola frá hafinu og sólskin alla dag- ana. Hótelið var líka hið prýðileg- asta. Þeir Kýpurbúar sem við áttum samskipti við voru einstaklega elskulegir og hjálplegir og tjáskipti hnökralaus – allir töluðu ensku, enda var Kýpur um tíma undir breskri stjórn. Verðlag er gott á innlendri vöru og þjónustu. En það sem ekki síst heillaði okk- ur hjónin voru mjög áhugaverðar skoðunarferðir sem Sól býður far- þegum sínum. Hægt er að fara í dagsferðir og skoða fallegt landslag og fornar minjar frá tímum Grikkja og Rómverja. Þarna eru staðir sem sagt er frá í Nýja testamentinu – staðir sem mér fannst óviðjafnanlegt að koma á. Rétt norðan við Limassol eru Troodos-fjöllin og þangað býður ferðaskrifstofan einnig upp á dags- ferðir. Þar er að finna hæsta tind Kýpur, Ólympustind, sem er álíka hár og Öræfajökull en sá er þó mun- urinn að sá fyrrnefndi er skógi vax- inn upp á topp. Í fjalladölunum eru yndisleg þorp og margar fornminjar sem gaman er að skoða. Við hjónin fórum í tvær dagslangar skoðunar- ferðir undir stjórn fararstjóra Sólar, þeirra hjónanna Ingvars Herberts- sonar og Svanborgar Daníelsdóttur. Þau hafa búið í Limassol í nokkur ár og eru öllum hnútum gjörkunnug. Er það mikill kostur fyrir ferðafólk- ið sem þarf að leita til þeirra með margar fyrirspurnir. Þau reyndust hreint framúrskarandi leiðsögu- menn, lipur, alúðleg og fróð um land og þjóð. Vegna starfa minna á liðn- um árum hef ég þurft að fara marg- ar ferðir til útlanda, en þessi var ein- stök. Allt stuðlaði að því: Fyrirhafnarlaust beint flug frá Keflavík til Kýpur, frábært veður, notalegt fólk, gott verðlag, hreinn sjór, mjög áhugaverðir skoðunar- staðir og, eins og fyrr sagði, fram- úrskarandi þjónusta starfsfólks ferðaskrifstofunnar Sólar. Við þökk- um kærlega fyrir okkur! FRIÐRIK SCHRAM, prestur íslensku Krists- kirkjunnar. Kýpur – frábær ferðakostur Frá Friðriki Schram: Friðrik Schram Vekjaraklukka aðeins 900 kr. NETVERSLUN Á mbl.is GENGI GJALDMIÐLA mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.