Morgunblaðið - 20.05.2001, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 20.05.2001, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 29 Er stöðugleika fjármálakerf- isins ógnað? Í Morgunblaðinu í dag, laugardag, er skýrt frá býsna af- dráttarlausri grein sem birtist í tímarit- inu Peningamálum sem Seðlabankinn gefur út. Ekki er hægt að skilja grein þessa á annan veg en þann að hún lýsi mati Seðlabankans á stöðu fjármálamark- aðarins um þessar mundir. Í grein þessari er fjallað um hugsanlega fjármálakreppu og að stöðugleika fjármálakerfisins sé ógnað. Í frásögn Morgunblaðsins af úttekt Seðla- bankans segir m.a.: „Óhóflegur viðskiptahalli og útlánaaukning undanfarinna missera, sem stuðl- að hefur að umtalsverðri gengislækkun á síðustu mánuðum, ógnar nú stöðugleika fjármálakerfis- ins, að því er fram kemur í nýjasta hefti Peninga- mála sem Seðlabankinn gefur út. Á sama tíma hefur geta fjármálakerfisins til þess að standa af sér erfiðar aðstæður minnkað, sem fram kemur í verri afkomu og lækkandi eiginfjárhlutfalli. Þá kemur fram að það sé eðli fjármálakreppna að þær geti dunið yfir án þess að gera boð á undan sér líkt og gerzt hefur í nágrannalöndunum og víða um heim.“ Enn fremur segir í frásögn Morgunblaðsins: „Útlánaaukningin og óhóflegur viðskiptahalli hefur stuðlað að umtalsverðri gengislækkun síð- ustu mánuði og að mati Seðlabankans felur það í sér áhættu fyrir fjármálakerfið. Fjölmargar al- þjóðlegar rannsóknir hafa leitt í ljós ýmsar lík- legar en þó ekki öruggar vísbendingar um fjár- málakreppur og hafa nokkrar þeirra gefið ákveðnari viðvörunarmerki en áður, t.d. við- skiptahalli, útlánaþensla og hækkun eignaverðs. Allt eru þetta hættumerki í íslenzka fjármála- kerfinu en að mati Seðlabankans er þó varla lík- legt að stöðu innlendra lánastofnana sé hætta bú- in án frekari ytri áfalla.“ Í úttekt rits Seðlabankans segir orðrétt: „Hættan fyrir fjármálakerfið er einkum fólgin í skyndilegum umskiptum þegar dregur úr þeirri eftirspurn sem er undirrót hallans. Þannig gæti fjármunamyndun snögglega dregizt saman, leitt til þess að atvinnuástand versnaði sem myndi valda samdrætti í kaupmætti ráðstöfunartekna og aukinni óvissu heimilanna um afkomu sína. Óstöðugt gengi er algengur fylgifiskur slíkra umbrota sem getur haft veruleg áhrif til hins verra á afkomu fyrirtækja.“ Loks segir í þessari grein í riti Seðlabankans, Peningamálum, um stöðu fjármálafyrirtækjanna á Íslandi: „Eftir því, sem eiginfjárhlutfallið fer lækkandi og arðsemi fjármálastofnana minnkar, versna kjörin á víkjandi lánum til þeirra og eru vísbendingar um að þetta sé farið að gerast hér á landi. Ástæða lækkandi eiginfjárhlutfalls er einkum hröð stækkun efnahagsreikninga fjár- málastofnana og minnkandi arðsemi. Full ástæða er til að hafa áhyggjur af þessari þróun. Á und- anförnum árum hefur lækkun hlutfallsins verið sérstaklega áberandi hjá sparisjóðunum. Við- skiptabankarnir hafa með útgáfu víkjandi lána haldið betur í horfinu en svigrúm til frekari út- gáfu minnkar stöðugt. Nú er einnig ljóst að eftir lækkun krónunnar á þessu ári mun áhættu- grunnur fjármálastofnana hækka og það eitt og sér mun leiða til lækkunar eiginfjárhlutfalla. Eiginfjárhlutfall, sem er vel yfir tilskildu lág- marki, gefur borð fyrir báru sem ekki mun af veita ef efnahagslegur samdráttur verður.“ Hér er talað með nokkuð afdráttarlausum hætti. Í úttekt Seðlabankans er ítrekað sagt að bankinn hafi áður varað við þessari þróun. Það hefur hann vafalaust gert en þá tekið þannig til orða að ekki hefur verið eftir því tekið. En óneit- anlega er líkt hægt að velta því fyrir sér, hvort úttekt Seðlabankans lýsi of mikilli svartsýni. Í grundvallaratriðum standi íslenzkt atvinnu- og efnahagslíf svo traustum fótum um þessar mund- ir að ekki sé tilefni til að nota svo sterk orð. Jafn- framt er ekki ólíklegt að breyting á gengi krón- unnar hafi breytt að verulegu leyti þeim forsendum sem Seðlabankinn byggir mat sitt á. Fjölbreytt at- vinnulíf og sterkur efna- hagur Staðreyndin er auð- vitað sú að efnahagur íslenzku þjóðarinnar er mjög traustur um þessar mundir. Á fyrstu árum lýðveldis- ins lifðum við á stríðs- gróðanum sem féll til í heimsstyrjöldinni síðari. Nokkrum árum síðar var efnahagur okkar svo bágur að í orðsendingum erlendra sendiráða á Íslandi til sinna heimastöðva má sjá að íslenzkir ráðamenn ganga nánast með betlistaf í hendi og biðja um aðstoð við að útvega þjóðinni lán. Á Viðreisnarárunum var að fenginni reynslu lögð gífurleg áherzla á að auka fjölbreytni í íslenzku atvinnulífi. Það var gert m.a. með samningunum um álverið í Straumsvík en einnig með inngöngu í EFTA. Á þeim árum kynntist þjóðin rækilega sveifl- unum sem geta orðið í sjávarútveginum. Þá fór saman algert hrun í síldveiðum, aflabrestur á vetrarvertíð og mikið verðfall á sjávarafurðum á erlendum mörkuðum. Staða þjóðarbúsins á þeim árum var óskaplega erfið. Þjóðin hafði fyrst og fremst tekjur sínar af sjávarútvegi og sölu fisk- afurða til annarra landa. Íslenzkir ráðamenn leit- uðu á þeim tíma til utanríkisráðherra Bandaríkj- anna og báðu hann um aðstoð við að koma skreiðinni í verð og sýnir það hversu alvarlegt ástandið var. Áfallið var sambærilegt við það að heimili missti 30–40% tekna sinna á skömmum tíma. Þessi lífsreynsla var undirstrikun á því sem gerzt hafði á mögrum árum sjötta áratugarins. Þess vegna var meðal annars lögð svo rík áherzla á að ná fullum yfirráðum yfir fiskveiðilögsögunni næstu árin á eftir en fram að þeim tíma höfðu er- lendir togarar sótt gífurlegt fiskmagn á fiskimið- in við Ísland. Næstu tuttugu árin á eftir náðum við yfirráð- um yfir auðlindum okkar og börðumst við óða- verðbólgu. Nú er staðan gjörbreytt. Þótt miklar svipt- ingar hafi verið í sjávarútvegi á undanförnum ár- um er alveg ljóst að staða sjávarútvegsfyrir- tækjanna er margfalt sterkari en hún var fyrir rúmum áratug. Markaðsstaða okkar er mjög sterk á fiskmörkuðum erlendis. Íslenzku sjávar- útvegsfyrirtækin hafa í auknum mæli haslað sér völl, bæði í útgerð og fiskvinnslu en einnig í dreif- ingu á sjávarafurðum í öðrum löndum. Stóriðja í krafti orku fallvatnanna er orðin mun umfangsmeiri í atvinnulífi okkar en áður var. Nú eru rekin tvö álver í landinu og bæði vilja stækka við sig og auka framleiðslu sína. Nýjar atvinnugreinar hafa risið upp. Hugbúnaðariðn- aður er orðinn að útflutningsatvinnugrein og líf- tæknistarfsemi lofar góðu þótt hlutabréfaverðið í móðurfyrirtæki Íslenzkrar erfðagreiningar sé lágt um þessar mundir. Menntun og þekking þjóðarinnar hefur stór- aukizt enda erum við í fremstu röð þjóða heims á hvaða þætti þjóðlífsins sem litið er. Þegar á heildina er litið má þess vegna ekki gera of mikið úr sveiflum af því tagi sem hér hafa verið gerðar að umtalsefni, hvorki á hlutabréfa- markaði eða á öðrum vígstöðvum. Kjarni þess sem er að gerast í íslenzku efnahags- og atvinnu- lífi um þessar mundir er aðlögun að eðlilegu ástandi frá óeðlilegu ástandi. Það er jákvætt. Þegar upp verður staðið verða dægursveiflur eins og gárur á yfirborðinu vegna þess að undir- stöðurnar eru svo margfalt sterkari en þær hafa nokkru sinni verið. Morgunblaðið/Ómar Við Litlahólma í Hljómskálagarðinum. „Það er því sama, hvort litið er til net- væðingarinnar, sem um tíma byggðist á algerlega óraunhæf- um væntingum, hlutabréfamark- aðarins, sem á tíma- bili reis hærra en nokkur rök voru fyrir, eða gjaldeyr- isviðskipta, sem margir hafa brennt sig á; nú ríkir meira raunsæi um þessi efni og það getur ekki haft nema já- kvæð áhrif á þróun og uppbyggingu at- vinnulífsins í fram- tíðinni.“ Laugardagur 19. maí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.