Morgunblaðið - 20.05.2001, Page 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HAFNARFJARÐARBÆR hefur
birt útreikninga á áætluðum kostn-
aði á hvern nemanda í grunnskólum
bæjarins. Kostnaðurinn er miðaður
við áætluð laun og verðlag í janúar
2002.
Samkvæmt útreikningunum er
áætlaður kostnaður á nemanda
hæstur í Víðistaðaskóla eða rúmar
355 þúsund krónur á nemanda ef
skólaakstur er frádreginn. Næst-
mestur er kostnaðurinn í Áslands-
skóla, rúm 353 þúsund, en minnstur
í Setbergsskóla, tæpar 295 þúsund
krónur á nemanda. Meðalkostnað-
ur á skóla er tæp 323 þúsund.
Sé miðað við kostnað með skóla-
akstri eru nemendur Áslandsskóla
dýrastir og er kostnaður á hvern
nemanda þá tæp 365 þúsund.
Minnstur er kostnaðurinn hins veg-
ar áfram í Setbergsskóla, tæp 300
þúsund, en næstmestur í Víðistaða-
skóla eða tæp 357 þúsund. Meðal-
kostnaður með skólaakstri er rúm
326 þúsund.
Í tilkynningu frá stjórnsýslu- og
fjármálasviði Hafnarfjarðarbæjar
segir að í tilefni samnings Hafn-
arfjarðarbæjar og Íslensku
menntasamtakanna hafi skólastjór-
ar hinna sex grunnskóla bæjarins
sent bréf til bæjarráðs þar sem far-
ið er fram á að börnum í Hafn-
arfirði verði ekki mismunað og að
skólarnir fái samsvarandi upphæð
miðað við nemanda og Áslandsskóli
fái.
Minnsti kostnaðurinn í
skólum með flesta nemendur
Í tilkynningu frá Hafnarfjarð-
arbæ segir að það séu engin ný
sannindi að kostnaður á nemanda
sé mismikill eftir skólum bæjarins.
Ástæðurnar séu ýmsar, s.s. stærð
skóla, aldur kennara o.fl. Segir að
ástæða sé til að tilgreina sérstak-
lega kostnað vegna skólaaksturs
þar sem hann sé mismunandi eftir
skólum og fjölda nemenda.
Þá segir að samanburðurinn sé
háður því að kostnaður á nemanda í
Áslandsskóla sé bundinn í samningi
en ekki í hinum skólunum. Einnig
segir að niðurstaða samanburðar-
ins sé sú að kostnaður á nemanda
án skólaaksturs sé lægstur í skól-
um með flesta nemendur en mestur
í skólum þar sem nemendur eru
fæstir.
Hafnarfjarðarbær áætlar kostnað á nemendur eftir skólum
!"
#$
%&'(&)* +,,(+&- +))(,)' ++&(&%' +),(.+- +-*()-. +)+('%, +%%(&+%
+()/-
!"
#$
$
%&&(*'+ +,*()%/ +)*(&,/ ++&(&%' +)+(&-, +-.(-&. +*'(.)- +%*(+., Kostnaður næstmest-
ur í Áslandsskóla
LÖGREGLAN á Eskifirði
hefur nú til rannsóknar meint
gróf kynferðisbrot gegn ungri
stúlku sem framin voru í um-
dæminu. Samkvæmt upplýs-
inum frá sýslumanninum á
Eskifirði er rannsókn á loka-
stigi.
Embættið hefur nýlega
sent ríkissaksóknara rann-
sóknargögn vegna tveggja
annarra kynferðisbrota. Mál-
in komu til kasta lögreglunn-
ar í haust, en Inger L. Jóns-
dóttir, sýslumaður á Eski-
firði, segir engin tengsl vera
á milli málanna þriggja.
Kynferðis-
brot gegn
ungri stúlku
rannsakað
ÞÓRIR Einarsson ríkissátta-
semjari hefur ákveðið að leggja
fram miðlunartillögu í kjara-
deilu verkalýðsfélagsins Hlífar í
Hafnarfirði og launanefndar
sveitarfélaga. Í tilkynningu
kemur fram að þessi ákvörðun
var tekin að höfðu samráði við
deiluaðila. Verður tillagan af-
hent á mánudag og kynnt á
fundi sama dag og atkvæði
greidd um hana á þriðjudag.
Félagar í Hlíf hafa tvívegis
fellt samninga sem gerðir voru
við launanefnd sveitarfélaga.
Verkfall hjá starfsmönnum Hlíf-
ar hjá Hafnarfjarðarbæ hófst sl.
sunnudag og hefur starfsemi
m.a. legið niðri hjá leikskólum
og gæsluvöllum síðan.
Miðlunar-
tillaga í
Hlífar-
deilunni
JÓHANNES Gunnarsson lækninga-
forstjóri Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss segir að læknaskortur sé
orðinn staðreynd á Íslandi. Hann
segir skort á ungum læknum, heilsu-
gæslulæknum og sérfræðingum í
vissum greinum. Félag ungra lækna,
FUL, hefur sent frá sér yfirlýsingu
þar sem lýst er óhóflegu vinnuálagi
þeirra á sjúkrahúsum og segir þar
m.a. að enginn þeirra, sem útskrifast
frá læknadeild Háskóla Íslands í vor,
ætli að ráða sig til að starfa á Land-
spítalanum í sumar og spáir félagið
neyðarástandi þar af þeim sökum.
Jóhannes segir þessar yfirlýsing-
ar unglæknanna nokkuð yfirdrifnar
og þó ástandið væri ekki eins gott og
það gæti best verið, þá væri það ekki
eins skuggalegt og unglæknarnir
vildu meina. „Það er alveg fráleitt að
nota orðið neyðarástand. Það hefur
iðulega komið fyrir að aðrir læknar
gangi inn í störf unglæknanna, en
það er auðvitað ástand sem verður
að líta á sem tímabundið. Það er
engu að síður rétt, að framundan er
talsverður skortur á unglæknum, út-
skriftarárgangarnir hafa verið of litl-
ir síðustu ár og því má eiga von á enn
frekari þróun í þessa átt næstu árin,“
sagði Jóhannes.
Í yfirlýsingu FUL segir: „Frá
árinu 1988 til 2000 jókst ásókn sjúk-
linga á bráðamóttökur sjúkrahús-
anna um þrefalt og leituðu rúmlega
1500 sjúklingar á bráðamóttöku
Landspítala Háskólasjúkrahúss við
Hringbraut í mars síðastliðnum. Á
sama tíma hefur læknakandidötum
frá læknadeild Háskóla Íslands
fækkað úr 52 í 33. Álag starfandi
unglækna á sjúkrahúsum er því
komið langt út fyrir það sem eðlilegt
getur talist og stefnir í að aukast enn
frekar á næstunni. Sem dæmi má
nefna að nú eru aðeins þrjú af níu
stöðugildum unglækna mönnuð á
barnaspítala Hringsins. Ástandið er
litlu skárra á lyf- og handlækninga-
deildum þar sem algengt er að ung-
læknir vinni sjö til átta 26 klukku-
stunda langar vaktir í mánuði auk
þess að sinna dagvinnu frá 8-16.“
Jóhannes sagði lýsinguna á vakta-
álagi læknanna ekki eiga við á Land-
spítalanum, lýsingarnar giltu í hrein-
um undantekningartilfellum en
vaktaskipulag gerði ekki ráð fyrir
svo mörgum löngum vöktum.
Óánægja á Landspítala innan Félags ungra lækna
Læknaskortur á
Íslandi er staðreynd
ÞOTA Íslandsflugs, Boeing 737,
hefur sig hér til flugs frá Reykja-
víkurflugvelli í gærmorgun. Hún
var á leið til Englands og hefur
verið leigð þangað til verkefna
fyrir breskar ferðaskrifstofur í
tvö og hálft ár. Flýgur hún þaðan
einkum til Miðjarðarhafslanda.
Um þrjátíu starfsmenn fyrirtæk-
isins starfa við þetta verkefni.
Ljósmynd/Baldur Sveinsson
Í verkefni
í Englandi
í tvö ár
SKIPULAGSSTOFNUN hef-
ur kveðið upp 122 úrskurði um
mat á umhverfisáhrifum fram-
kvæmda frá því lög um mat á
umhverfisáhrifum tóku gildi
árið 1993. Frá árinu 1994 til
ársins 2000 hefur kostnaður
við umfjöllun Skipulagsstofn-
unar um hverja matsskýrslu
verið að meðaltali 535.000
krónur eða um 65 milljónir
króna alls.
Þetta kemur fram í svari
umhverfisráðherra á Alþingi
við fyrirspurn frá Halldóri
Blöndal, þingmanni Sjálfstæð-
isflokksins. Fram kemur að í
þessari upphæð sé innifalinn
kostnaður sem sé að jafnaði á
bilinu 70–80.000 kr. vegna aug-
lýsinga í Lögbirtingablaðinu,
Morgunblaðinu og fjölmiðli
nærri framkvæmdasvæði.
Skipulags-
stofnun ríkisins
122 úr-
skurðir um
umhverf-
isáhrif
RÍKISSAKSÓKNARI hefur
gefið út ákæru á hendur
Hlyni Frey Vigfússyni, vara-
formanni Félags íslenskra
þjóðernissinna, fyrir brot
gegn almennum hegningar-
lögum vegna ummæla sem
hann lét falla í viðtali við DV
sem hafði yfirskriftina „Hvíta
Ísland“ og birtist laugardag-
inn 17. febrúar sl.
Í ákærunni segir að Hlynur
Freyr hafi opinberlega ráðist
með háði, rógi og smánun á
hóp ónafngreindra manna
vegna þjóðernis, litarháttar
og kynþáttar þeirra.
Hlynur Freyr sagði meðal
annars að ekki þyrfti snilling
eða erfðafræðivísindamann til
að sýna fram á hver mun-
urinn væri á afríkunegra með
prik í hönd eða Íslendingi.
Vestrænar þjóðir vorkenndu
Afríkubúum sem gætu þó
framleitt sex sinnum meira af
mat en þeir þyrftu ef þeir
nenntu.
Í ákæru ríkissaksóknara
eru þessi ummæli sögð varða
við 233. gr. a. í almennum
hegningarlögum og krefst
ríkissaksóknari þess að Hlyn-
ur Freyr verði dæmdur til
refsingar.
Refsingar við brotum gegn
þessari lagagrein varða sekt-
um eða fangelsi allt að tveim-
ur árum.
Ákærður
vegna um-
mæla í
blaðaviðtali