Morgunblaðið - 20.05.2001, Síða 6

Morgunblaðið - 20.05.2001, Síða 6
ERLENT 6 SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 13/5–19/5  Íslendingar þurfa ekki að óttast að landhelgin fyll- ist af togurum ESB-ríkja við hugsanlega aðild Ís- lands að ESB, sagði yfir- maður sjávarútvegsmála ESB við Morgunblaðið. Fiskveiðiréttindin byggð- ust á fortíðinni.  Fákeppni einkennir ís- lenskt atvinnulíf og hefur ríkið aukið hlutdeild sína í atvinnulífinu um þriðjung á síðustu árum. Þetta kem- ur m.a. fram í nýrri skýrslu Samkeppnisstofnunar um stjórnunar- og eignatengsl í íslensku atvinnulífi.  Á aðalfundi Samtaka at- vinnulífsins boðaði Davíð Oddsson forsætisráðherra skattalækkun á bæði fyr- irtæki og einstaklinga. Samtökin vilja að tekju- skattshlutfallið verði lækk- að niður í 15%.  Leigusamningur vegna Borgartúns 21, þar sem ríkissáttasemjari er m.a. til húsa, kostar ríkið 2,4 millj- arða kr. á samningstím- anum sem er til 20 ára. Þetta kom fram í svari fjár- málaráðherra til Lúðvíks Bergvinssonar þingmanns.  Ágreiningur er innan beggja stjórnarflokkanna um fyrirhugað frumvarp sjávarútvegsráðherra um kvótasetningu veiða smá- báta á ýsu, ufsa og steinbít. Þingmenn Vestfjarða vilja t.d. fresta frumvarpinu.  Ársreikningar Reykja- víkurborgar fyrir árið 2000 hafa verið lagðir fram og sýna 1,9 milljarða króna tekjuafgang, án tillits til lífeyrisskuldbindinga upp á 952 milljónir. Endi bundinn á sjómannaverkfall ÍSLENSKI flotinn er kominn á veiðar eftir að Alþingi samþykkti lög á verk- fall sjómanna í vikunni. Lauk þar með 6 vikna verkfalli. Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra sagði á Alþingi að hefðu lögin ekki verið samþykkt hefði skapast ringulreið í kjaramálum sjómanna og fiskverðsmálum. Nauð- synlegt hefði verið að grípa inn í deil- una til að verja þjóðarheill. Reiknað er með að fiskvinnsla í landi komist á fullt skrið eftir helgi. Vegna laganna ákvað ASÍ að höfða mál gegn stjórnvöldum fyrir að hafa gengið gegn stjórnar- skránni, vinnulöggjöfinni og mann- réttindasáttmála Evrópu. ASÍ ætlar einnig að kæra stjórnvöld til Alþjóða- vinnumálastofnunarinnar, ILO. Stöðugleikanum ógnað ÝMIS hættumerki eru í íslensku fjár- málakerfi skv. grein í nýjum Peninga- málum Seðlabankans. Óhóflegur við- skiptahalli og útlánaaukning fjár- málastofnana geta leitt til óstöð- ugleika í fjármálakerfinu og hugs- anlega leitt til fjármálakreppu, að mati bankans. Þá kemur einnig fram að geta fjármálakerfisins til að standa af sér erfiðleika hafi minnkað vegna verri afkomu og lækkunar á eiginfjár- hlutfalli. Tollar hækkuðu grænmetisverð SÚ hækkun sem varð á smásöluverði ýmissa grænmetistegunda í síðari hluta mars sl. stafaði að langmestu leyti af hækkun innflutningsverðs og álagningu tolla, samkvæmt rannsókn Samkeppnisstofnunar sem unnin var að beiðni landbúnaðarráðherra. Ráð- herra sætti sig ekki við svörin og krafði stofnunina um skýringar. INNLENT Berlusconi heitir styrkri stjórn SILVIO Berlusconi, ríkasti maður á Ítalíu og kosningabandalag mið- og hægriflokka vann afgerandi sigur í þingkosningunum síðastliðinn sunnu- dag og eru í meirihluta í báðum deild- um ítalska þingsins. Því hafa vaknað vonir um, að ríkisstjórn Berlusconis, sú 59. á Ítalíu frá stríðslokum, muni sitja út allt kjörtímabilið. Ýmsir höfðu af því áhyggjur, að Umberto Bossi og Norðurbandalagið myndu valda erfiðleikum í samstarfinu en ekki virðist mikil hætta á því vegna hraklegrar útkomu bandalagsins í kosningunum. Fyrir kosningar vöruðu ýmsir evr- ópskir fjölmiðlar við sigri Berlusconis vegna þess spillingarorðs, sem af hon- um fer, og vegna samstarfs hans við Norðurbandalgið, sem amast við inn- flytjendum og Evrópusambandinu, og við Þjóðarfylkinguna, arftaka fasista- flokks Mussolinis. Viðbrögð í öðrum Evrópusambandsríkjum hafa hins veg- ar verið mjög varfærnisleg. Ofbeldið vex í Miðausturlöndum ÁTÖK Ísraela og Palestínumanna harðna dag frá degi og bendir ekkert til að viðræður um frið verði teknar upp í bráð. Mikið mannfall hefur verið meðal Palestínumanna en Ísraelar báðust af- sökunar á morðum fimm lögreglu- manna, sem ísraelskir hermenn skutu til bana, flesta sofandi. Palestínumenn skutu ísraelska konu til bana og særðu föður hennar og á föstudag týndu sex Ísraelar lífi og upp undir 100 særðust í sjálfsmorðsárás Palestínumanns í bænum Netanya. Palestínumenn hafa fallist á niðurstöður Mitchell-nefndar- innar um ástæður ófriðarins en Ísrael- ar hafna þeim að því er varðar landtöku þeirra á hernumdu svæðunum.  GEORGE W. Bush, forseti Bandaríkjanna, kynnti á fimmtudag áætl- un stjórnarinnar í orku- málum og hefur henni verið misvel tekið. Er meðal annars gert ráð fyrir að auka borun eftir olíu og gasi á opinberu landi og auka notkun á kjarnorku. Hafa repúblik- anar, flokksbræður for- setans, tekið áætluninni vel en demókratar og um- hverfisverndarsamtök gagnrýna hana harðlega.  NOKKURT fjör hefur hlaupið í bresku kosn- ingabaráttuna en þó ekki vegna deilna um grund- vallaratriði í stjórn- málum, heldur vegna þess að John Prescott aðstoð- arforsætisráðherra ákvað að láta hendur skipta er hann varð fyrir eggi frá mótmælanda. Hefur hann beðist afsökunar á því. Skoðanakannanir benda allar til að Verka- mannaflokkurinn muni sigra í kosningunum.  STJÓRNVÖLD í Make- dóníu framlengdu á fimmtudag frest sem þau hafa gefið albönskum skæruliðum til að leggja niður vopn eða hafa sig á burt. Er vonast til að skæruliðar átti sig á að þeir eru mjög pólitískt einangraðir George Ro- bertson, framkvæmda- stjóri NATO, lýsti yfir í vikunni að bandalagið myndi auka hernaðar- aðstoð sína við Makedón- íustjórn. ERLENT ÞJÓÐARFLOKKURINN í Fær- eyjum vill að árlegur fjárstuðningur Dana leggist smám saman af, hver sem niðurstaðan verður af viðræð- unum um aukið fullveldi Færey- inga, að sögn Jógvans vid Keldu, eins af fulltrúum flokksins á Lög- þinginu í Þórshöfn. „Árlegi fjár- stuðningurinn hefur reynst Færey- ingum varasamur, menn finna alltaf not fyrir þá peninga sem þeir fá í hendurnar,“ segir hann. Jógvan flytur í kvöld erindi um sjálfstæð- isbaráttu Færeyinga á norrænni samkomu í safnaðarheimili Digra- neskirkju í Kópavogi. Jógvan var í alls 16 ár bæjar- stjóri í Klakksvík sem er vinabær Kópavogs, en er nú þingmaður Þjóðarflokksins, sem fer fyrir nú- verandi samsteypustjórn Færeyja. Hann situr einnig í Norðurlanda- ráði fyrir hönd Færeyinga. Hann er spurður um stöðuna í sjálfstæðismálunum en Danir hafa hafnað tillögum stjórnar Anfinns Kallsbergs lögmanns um a.m.k. 12 ára aðlögunartíma í efnahagsmálum og vilja hann í mesta lagifjögur ár. Stjórn Kallsbergs hefur lagt áherslu á þá stefnu sína að Fær- eyingar verði fjárhagslega sjálf- stæðir með því að ákveða að árlegu fjárframlögin verði strax lækkuð um 300-400 milljónir danskra króna. „Við teljum hins vegar mikilvægt að Færeyingar fái hæfilegan tíma til að búa allt samfélagið og þá ekki síst efnahaginn undir breytinguna. En við stöndum andspænis því, að danska stjórnin nýtur stuðnings nær allra þingmanna í Kaupmanna- höfn í málinu. Sambandsflokkurinn í Færeyjum hefur unnið með Venstre-flokknum danska og jafn- aðarmenn, stærsti flokkurinn í Færeyjum, er systurflokkur danska jafnaðarmannaflokksins. Helming- ur Lögþingsins stendur með Dön- um. Og sé boðið upp á aðeins fjög- urra ára aðlögun vill ekki nema um helmingur Færeyinga fylgja full- veldiskröfunum eftir ef marka má skoðanakannanir,“ segir Jógvan. Því sé samningsstaðan erfið af ýmsum ástæðum og ekki hafi verið hægt að efna til þjóðaratkvæðis í Færeyjum um samning þar sem kveðið væri á um aukið sjálfsfor- ræði Færeyinga í áföngum vegna þess að Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hafi ekki viljað semja. Íhaldsmaðurinn Poul Schlüter hafi verið mun betur að sér um færeyskar aðstæður en Rasmussen. Færeyingar séu ekki einhuga í fullveldismálinu eins og Íslendingar hafi verið á sínum tíma um að rjúfa stjórnartengslin við Dani 1944. Reyndar segir Jógvan aðspurður að Þjóðarflokkurinn gangi ekki svo langt að vilja lýð- veldi heldur eigi að auka sjálfsfor- ræði Færeyinga í ýmsum veiga- mestu málaflokkum. „Við lítum á raunverulegt fullveldi sem fyrsta áfangann,“ segir hann og því vilji þeir til dæmis fá eigið sæti hjá Sameinuðu þjóðunum. Mestu skipti að Færeyingar taki fulla ábyrgð á efnahagsmálum sínum. Flokkurinn vilji samt að Margrét drottning verði áfram þjóðhöfðingi Færey- inga. „Kosningar til Lögþingsins verða í síðasta lagi 30. apríl á næsta ári. Menn velta því fyrir sér hvort danska stjórnin miði stefnu sína við að reyna að seinka málinu svo mjög að Lögþingskosningarnar verði eins konar þjóðaratkvæði um fullveldis- tillögur samsteypustjórnarinnar. Málið muni verða yfirgnæfandi í kosningabaráttunni. Þetta finnst mér býsna alvarlegt mál vegna þess að þá getur farið svo að stjórnmál í Færeyjum verði of einstrengingsleg, allt muni snú- ast um sambandið við Danmörku. Menn eiga að ræða fullveldismálin en einnig almenna stefnu í lands- málum, finnst mér. “ Olíutekjur og sambandsmál Hann segir að danskir frammá- menn hafi rætt um að gott væri að Sambandsflokkurinn og Jafnaðar- mannaflokkurinn mynduðu næstu stjórn í Færeyjum og þá myndi, að hans áliti, lausn á fullveldismálun- um dragast mjög á langinn. Jafn- aðarmenn vilji að vísu aukið sjálfs- forræði en einnig að Færeyjar verði áfram hluti danska ríkisins. En er óeðlilegt að Danir vilji hætta að styðja Færeyinga með fé þar sem talið er nær víst að olíu- vinnsla hefjist við eyjarnar innan fárra ára? Jógvan segir að Fær- eyingar hafi samið við Dani árið 1992 um að fá full umráð yfir eigin landgrunni og ekki verði hreyft frekar við því máli, en að hans áliti komi ekki til greina að Færeyingar þiggi áfram fjárstuðning ef olíutekj- urnar verði að veruleika. Færeyski þingmaðurinn Jógvan vid Keldu Fjárstuðningur Dana hefur reynst varasamur Morgunblaðið/Golli Jógvan vid Keldu sem situr á Lögþingi Færeyja fyrir Þjóðarflokkinn. ÍBÚAR borgarinnar Jakútsk í Síberíu, 200.000 manns, bjuggu sig í gær undir mikil flóð þar á næstu dögum þrátt fyrir að þau væru í rénun ann- ars staðar. Varað er við miklum flóðum í Jakútsk í næstu viku en sum hús í úthverfum borgarinnar eru raunar þegar umflotin. Flóðunum valda mikil hlýindi þótt ár og fljót séu enn ísi lögð en af þeim sökum hefur leys- ingavatnið ekki fundið sér eðli- legan farveg. Annars staðar í Síberíu er ástandið þó mjög að skána. Varað við flóðum í Jakútsk Moskvu. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.