Morgunblaðið - 20.05.2001, Síða 23

Morgunblaðið - 20.05.2001, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 23 ar það var dregið í efa. Honum var uppálagt að þakka fyrir sig aftur, en hann neitaði af því að hann væri þeg- ar búinn að því. Slíkt var ekki tekið gilt, en barninu sagt að það fengi ekki sælgæti á eftir eins og hinir nema það segði: „Takk fyrir matinn.“ Barnið neitaði enn, fullt réttlætiskenndar. Ekki varð mikið úr hegningu hinna fullorðnu, því að hinn tvíburinn skipti sínu sælgæti bróðurlega í tvennt og beið með það úti í laumi. Barnið sem varð fyrir óréttlætinu gleymdi því ekki í mörg ár, en fannst það mikið gleðiefni og hrósvert að hafa átt sér sérstakan bandamann.“ Sjálfsmynd tvíbura á unglingsárum Á unglingsárum lenda einkum ein- eggja tvíburar oft í sjálfsmyndar- kreppu eins og raunar aðrir á þeim aldri. Þá er mjög nauðsynlegt að að- skilja sig. Það er afar flókið sálfræði- legt ferli. Fyrir flesta er það mjög erf- itt að aðskilja sig frá foreldrum sínum, tvíburar, einkum eineggja, eiga í margföldum vanda að þessu leyti, þeir þurfa ekki aðeins að að- skilja sig frá foreldrunum heldur hvor frá öðrum. Þetta kostar oft mikil átök. Eineggja tvíburar eiga á þessum tíma á stundum í heiftugum átökum sem jafnvel hræða fjölskylduna, en þau átök eru kannski ekki eins alvar- leg og þau líta út fyrir að vera. Tvíburadrengir áttu t.d. sem oftar í svona átökum og annar bað hinn þess lengstra orða að láta sig í friði. „Þér kemur ekki við hvað ég geri,“ sagði hann. Hinn svaraði: „Víst kemur mér það við – ég er hálf-þú!“ Hinir „dularfullu“ tvíburar Tvíburar hafa löngum þótt dálítið dularfullir. Í kaflanum: Goðsagnir um tvíbura segir Guðfinna: „Fjallað hef- ur verið um tvíbura eins og þeir væru hetjur og guðir, gagnsýrðir af dul- rænum krafti sem þeir öðlast vegna þess hve þeir líkjast og eru nákomnir hvor öðrum, ásamt því að hafa tvö- falda sjálfsmynd ... Tvíburar hafa líka komið fram sem andstæðurnar í manninum, hinn stríðsglaði og illi annars vegar og hinn blíði og góði hins vegar ... Í heimi guðanna hjá Grikkjum voru til tvíburarnir Castor og Pollux. Þeir voru synir Seifs. Þeir vernduðu sjómenn á hafi úti og sagð- ar eru ótal sögur um hetjudáðir þeirra og afrek. Stjörnumerki á him- inhvelfingu var nefnt eftir þeim: „tví- buramerkið“ ... Rómaborg var, eins og alþekkt er, byggð af tvíburunum Rómúlus og Remus. Í norrænni goða- fræði átti Baldur tvíburabróðurinn Höð ... Í mörgum, vel þekktum bók- menntaverkum hafa tvíburar og sam- skipti þeirra heillað rithöfunda og orðið þeim yrkisefni.“ Í bland við atriði eins og nauðsyn þess að klæða tvíbura ekki eins, gefa þeim ekki sameiginlega gjafir, skíra þá ólíkum nöfnum, er í bókinni Tví- burar sagt frá ýmsu skondnu. Önnur börn eru t.d. stundum eins og dálítið öfundsjúk þegar þau sjá tví- bura. Guðfinna segir frá litlum dreng sem sá eineggja tvíbura á leikskóla. Hann varð fár við og sagði: „Af hverju er bara einn af mér en tveir af hon- um?“ Fram kemur að oft fer æði mikið í taugarnar á tvíburum sú athygli sem umhverfið sýnir þeim. Fólki hættir til að tala mikið um hve „tvíburarnir séu líkir“. Menn segja gjarnan „Hvor ert þú?“ Foreldrar eru líka gjarnan spurð- ir þessarar spurningar: „Eru þetta tví- burar?“ Þegar tvíburafaðir var orðinn þreyttur á að heyra þetta sagði hann fýlulega: „Nei, það er tíu ára aldurs- munur en annar er dvergur.“ Í bók Guðfinnu kemur svo margt fram um lífið hjá tvíburum, fjölskyldu þeirra og umhverfið að það er engin leið að gera því nein skil í einni blaða- grein. Þeir sem hafa verið svo heppn- ir að eignast eineggja fjöruga tvíbura- drengi eins og hún geta bæði hlegið og grátið yfir ýmsu sem þar kemur fram. Ótal myndir svífa fyrir hug- skotssjónum frá liðnum (vöku)nótt- um, frá morgnum þar sem freistast var til að sofa aðeins lengur og „tví- burarnir“ voru svo búnir að smyrja veggi og gólf með smjörlíki og strá hveiti og haframjöli ofan í allt saman. Eða þegar ekkert snuð var allt í einu til, búið að bíta þau í sundur, og systir og barnapía á unglingsaldri hjólaði sárveik út í apótek fremur en að hlusta lengur á öskrin í „tvíburun- um“. – Fyrsta heimsóknin á myndlist- arsýningu þegar fjögurra ára „tvíbur- arnir“ settust alvarlegir á bólstraðan bekk í miðju herberginu og sátu þar, aldrei þessu vant, lengi lengi þegjandi – þar til allt í einu annar sagði: „Hve- nær byrjar eiginlega myndin?“ Kojur voru keyptar fyrir „tvíburana“og settar upp við hátíðlega athöfn – um kvöldið þegar litið var inn í herbergið þeirra voru þeir búnir, þrátt fyrir ungan aldur, að taka niður efri kojuna og hjúfruðu sig sælir saman í eins- konar „hjónarúmi“. Seinna tók alvaran við, skólabæk- urnar týndust og nýju úlpurnar gleymdust á fótboltavellinum. Veik- indi herjuðu á hina uppvaxandi menn – einu sinni harla alvarleg hjá öðrum. Við slíkar aðstæður kviknar óttinn við að missa. Missir annars tvíburans er óbætanlegur fyrir hinn Í bók Guðfinnu Eydal kemur fram að ef annar tvíburinn deyr er það óbætanlegt áfall fyrir þann sem eftir lifir. Piontelli heitir maður sem gert hefur ýmsar rannsóknir í sambandi við tvíbura. Eitt sinn komu til hans foreldrar með eins og hálfs árs gaml- an dreng sem var mjög órólegur og gat ekki verið kyrr. Foreldrar drengsins greindu frá því að tvíbura- bróðir hans hefði dáið tveimur vikum fyrir fæðingu. Eftirlifandi bróðir hafði því verið með dánum bróður sín- um í einar tvær vikur í móðurkviði. Piontelli áleit að áköf leit og óróleiki drengsins væri í tengslum við minn- inguna um bróðurinn og söknuð eftir honum. Vel þekktar eru sögur af tví- burum sem í mikilli fjarlægð gátu fundið á sér hvað hinum leið, svo og eru alkunnar sögur af svo líkum tví- burum að þeir gátu mætt í próf hvor fyrir annan. Í bókinni Tvíburar er tekið á flest- um þeim vandamálum sem blasa við tvíburaforeldrum í daglegu lífi á mis- munandi aldursskeiðum barnanna. „Hún leggur vandamálið fyrir til að foreldrar geti áttað sig á hvað liggur að baki mismunandi hegðunar- mynstri og aukið þannig innsæi, skilning og valmöguleika. Hún forð- ast hins vegar að gefa bein ráð, enda miður heppilegt, þar eð sama nálgun hentar sjaldan tveimur eða fleiri börnum,“ segir Halldór Hansen barnalæknir í formála að bók Guð- finnu Eydal. Í spjalli okkar Guðfinnu ber á góma viðbrögð bæði í gleði og sorg. „Fyrir kemur að annar tvíburinn deyr í fæðingu eða fljótlega eftir hana. Móðirin þarf þá að takast á við að syrgja látna barnið en tengjast til- finningalega hinu sem eftir lifir, að- stæður sem þessar eru mjög erfiðar fyrir foreldra ,“ segir Guðfinna. Hún ræðir líka um erfiðleika á borð við hjónaskilnaði. „Það á að mínu mati ekki að aðskilja tvíbura við skilnað ef nokkur tök eru á öðru og alls ekki eineggja tvíbura,“ segir hún. Rann- sóknir sýna að hjónaskilnaðir eru tíð- ari hjá tvíbura- og fleirburaforeldr- um. Tvíburar og fullorðinsárin Um tvíbura og líf þeirra á fullorð- insárum segir í bókinni Tvíburar: „Flestir fá að reyna að árin milli tví- tugs og þrítugs eru tiltölulega mikil umbrotaár. Fólk er að fóta sig í lífinu, ákveða nám, prófa sig áfram í sam- böndum, láta reyna á sambúð, eignast börn og veraldlega hluti. Það er ekki fyrr en á fertugsaldri að meiri ró kemur yfir og mestu umbrotin eru af- staðin ... Það hefur komið fram að á fertugsaldrinum virðast tví- og fleir- burar ekki eiga í meiri erfiðleikum í lífinu en einburar. Rannsóknir hafa sýnt að á fullorðinsárum er enginn munur á hjónabandssögu tvíbura og einbura. Þess er líka getið að á þess- um árum sé ekki munur á geðheilsu þessara hópa, hvorki hvað varðar sál- ræn vandamál né tíðni sjálfsmorða. Einnig hefur komið fram að á full- orðinsárum eigi tvíburar ekki erfið- ara með að þróa með sér sjálfsvirð- ingu en einburar, og að þeir geti bæði stofnað til og viðhaldið tengslum eins og einburar, ennfremur að þeir séu jafnlíklegir og einburar til að gifta sig. Hins vegar er bent á að þegar tvíbur- ar gifti sig, eignist börn og nái per- sónulegum frama, geti það verið álag fyrir sambandið. Það álag geti bæði fært tvíbura hvorn nær öðrum og líka aðskilið þá. Í þeim tilvikum sem tvíburar halda saman á fullorðinsárum, hvort sem þeir hafa alltaf gert það eða tengst að nýju á miðjum aldri, virðist samband þeirra vera sterkt til æviloka. Margir sem orðnir eru rígfullorðnir eða aldr- aðir, sérstaklega séu þeir eineggja tvíburar, standa þétt saman og kunna að meta það og prísa að þeir skyldu hafa vaxið upp sem tvíburar.“ Guð- finna sagði að lokum að bók hennar Tvíburar væri ekki aðeins lesning fyr- ir fleirburaforeldra og tvíburana og fleirburana sjálfa heldur geti hún ver- ið bæði fróðleg og gagnleg fyrir alla sem hafa áhuga á mannlegum sam- skiptum og velta fyrir sér lífinu og til- verunni. Þessa mynd og aðrar teikningar með þessari grein eru úr bókinni Tvíburar eftir Guðfinnu Eydal. Tvíburasynir Guðfinnu teiknuðu myndirnar þegar þeir voru á barnsaldri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.