Morgunblaðið - 20.05.2001, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 27
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri
STJÖRNUSPÁ mbl.is
MATVÆLASETUR Háskólans á
Akureyri og Agard ehf. standa fyrir
ráðstefnum um nýtt dauðhreinsiefni
sem kallast BYOTROL. Efnið er
umhverfisvænt og hefur nánast
100% virkni á gerla og sveppi. Efn-
inu má til að mynda blanda í máln-
ingu fyrir málun á viðkvæma fleti.
Ráðstefnurnar verða haldnar á
Hótel KEA á Akureyri mánudaginn
21. maí milli kl. 13 og 17 og á Hótel
Sögu í Reykjavík þriðjudaginn 22.
maí milli kl. 13 og 17.
Aðalfyrirlesari verður Stephen
Folder sem hefur helgað sig tilraun-
um á BYOTROL.
Ráðstefnustjóri verður Þórarinn
Egill Sveinsson, forstöðumaður
Matvælaseturs Háskólans á Akur-
eyri.
Áhugasamir eru boðnir velkomnir
og tilkynnist þátttaka til At-
vinnuþróunarfélags Eyjafjarðar.
Straum-
hvörf í
dauð-
hreinsun
BOÐIÐ verður upp á leiðsögn í Þjóð-
menningarhúsinu í Reykjavík í dag,
sunnudag, um sýningar sem þar
standa nú yfir.
Verður boðið upp á leiðsögn á
þýsku klukkan 11, á ensku klukkan
13 og á íslensku klukkan 15. Húsið er
opið frá klukkan 11 til 17.
Leiðsögn í
Þjóðmenn-
ingarhúsinu
AGLOW, kristileg samtök kvenna,
halda opinn fund næstkomandi
mánudagskvöld, 21. maí, kl. 20 í
félagsmiðstöðinni í Víðilundi 22.
Ræðumaður verður G. Theodór
Birgisson forstöðumaður. Þá verður
söngur, lofgjörð, fyrirbænaþjónusta
og kaffihlaðborð. Þetta er síðasti
fundurinn fyrir sumarfrí.
Aglow-fundur
á Akureyri
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
HÚSASKILTI
Pantið fyrir
25. nóvember
til jólagjafa.
HÚSASKILTI
Maítilboð
10% afsláttur