Morgunblaðið - 20.05.2001, Side 28

Morgunblaðið - 20.05.2001, Side 28
28 SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. F YRIR nokkrum misserum virtist bara ein leið til í efna- hags- og atvinnulífi okkar Ís- lendinga og raunar margra annarra þjóða og hún var upp á við. Allt hækkaði. Hlutabréf hækkuðu. Fasteignaverð hækkaði. Laun hækkuðu. Fjölmiðlar á öllum Vesturlöndum stóðu fyrir miklum umræðum um að kenjar hagsveiflunnar að fara bæði upp og niður hefðu verið brotnar á bak aftur. Nýja hagkerfið væri öðruvísi hagkerfi. Ríkjandi viðhorf endurspegluðust kannski bezt í mati á netfyrirtækjum og öðrum fyrirtækj- um sem byggjast á nýrri tækni svo og líftækni- fyrirtækjum. Flest fyrirtæki sem byggja á Net- inu hafa haft litlar tekjur. Það hefur reynzt erfitt að selja aðgang að netsíðum og auglýsendur hafa ekki hlaupið til og keypt auglýsingar til birtingar á netsíðum. Samt sem áður voru netfyrirtækin metin á fjármálamarkaðnum á gífurlega háar upphæðir. Þeir sem kynnzt hafa sveiflum í venju- legum atvinnurekstri skildu ekki hvað um var að vera en fengu þau svör hjá nýjum sérfræðingum að verðmatið byggðist á „væntingum“ um fram- tíðina og tekjuöflunarmöguleika þessara fyrir- tækja þá. Þegar horft er til baka má auðvitað spyrja, hvort það eigi ekki við um öll fyrirtæki. Ef dugn- aðarmaður hefur útgerð á litlum bát má spyrja, hvort ekki sé hægt að meta þá útgerð háu verði vegna væntinga um framtíðina. Sérfróður maður sagði við viðmælanda sinn fyrir rúmu ári að þegar komið væri fram á þetta ár gæti hluturinn í deCODE genetics, móðurfyr- irtæki Íslenzkrar erfðagreiningar, verið kominn upp í 120–130 Bandaríkjadali. Hann er nú verð- lagður á innan við 6 Bandaríkjadali. Stjórnandi í stóru fyrirtæki spáði því fyrir rúmu ári að auglýsingar síns fyrirtækis myndu að stórum hluta fara á Netið. Ekkert slíkt hefur gerzt. Það sem hefur gerzt er að viðskiptalífið er komið niður á jörðina. Það er gott og jákvætt. Netið er bylting í samskiptamálum. Á hverjum degi eru milli 80 og 90 þúsund flettingar á Morgunblaðið á Netinu, sem þar með er orðinn einn stærsti fjölmiðill landsins. Þetta eru tölur sem byggðar eru á nákvæmum mælingum óháðs aðila. Netið er bylting í samskiptamálum innan fyrirtækja og utan, milli einstaklinga, milli landa. Að því leyti til hefur Netið stuðlað að árangurs- ríkari rekstri fyrirtækja og ódýrari samskiptum fólks í milli. En starfsemi á Netinu er ekki farin að skapa tekjur að nokkru marki. Fyrst og fremst útgjöld. Smátt og smátt munu menn finna leiðir til þess að reka arðvænlega atvinnustarf- semi á Netinu en líkurnar á því, að sú starfsemi standi undir því gríðarlega háa verðmati, sem einkenndi umræður um netfyrirtækin fyrir nokkrum misserum, eru litlar. Verðfallið á íslenzka hlutabréfamarkaðnum hefur orðið mikið á síðustu misserum. Um skeið virtust menn halda að hann gæti bara farið upp. Þess vegna er sveiflan niður á við jákvæð að því leyti til að landsmenn verða raunsærri á þann veruleika sem Verðbréfaþing Íslands endur- speglar. Eimskipafélag Íslands hf. er merkilegt fyrirtæki og lykilfyrirtæki í okkar samfélagi. Þegar Verðbréfaþing mat þetta gamalgróna fyrirtæki á 40 milljarða króna veltu margir því fyrir sér hvort þetta gæti verið rétt mat. En á móti mátti spyrja: er ekki markaðurinn bezti dómarinn um það? Nú má færa rök að því að markaðurinn meti fyrirtækið á lægra verði en eðlilegt geti talizt. Hins vegar er ekki ólíklegt að matið á hlutabréfum almennt sé mun raunsærra nú en það var snemma á síðasta ári. Það eru ekki bara þeir, sem hafa upplifað fallið á verði hlutabréfanna, sem hafa fengið vægt áfall ef svo má að orði komast. Það á líka við um þá fjölmörgu Íslendinga sem hafa trúað fjármála- fyrirtækjunum fyrir fjármunum sínum, ávaxtað þá í ýmsum sjóðum á þeirra vegum. Fjármála- fyrirtækin hafa verið dugleg við að auglýsa upp háa ávöxtun sem þau bjóði upp á. Þau hafa gert minna af því að útskýra fyrir fólki undanfarna mánuði, hvers vegna inneignir þess hafi lækkað svo mjög. Að vísu verður að gæta sanngirni í þessum efnum og líta yfir lengra tímabil en nokkra mánuði. Inneignir fólks í verðbréfasjóðum og sér- eignarsjóðum hafa hækkað mjög á undanförnum árum og vel má vera, sé litið yfir t.d. fimm ára tímabil, að meðalávöxtun sé viðunandi þótt mikl- ar sveiflur hafi verið í henni. Það er hins vegar tímabært að þessi fyrirtæki geri viðskiptamönn- um sínum rækilegri grein fyrir þeirri þróun sem orðin er. Of margir hafa hneigzt til þess að taka of mikla áhættu með lífeyri sinn og sitja uppi með sárt ennið og skertan lífeyri. Dæmi um þetta eru alþekkt frá Bandaríkjunum en það er kannski fyrst nú sem Íslendingar eru að kynnast því af eigin raun að taki þeir of mikla áhættu með því að gera sér vonir um háa ávöxtun geta þeir tapað verulegum hluta lífeyrissparnaðar síns. Þetta verða þeir stjórnmálamenn líka að hafa í huga sem telja sjálfsagt að lífeyrissjóðir leggi mikla fjármuni í fyrirtæki sem í eðli sínu taka mikla áhættu í rekstri. En það er á fleiri sviðum sem við Íslendingar höfum lært nýja lexíu að undanförnu. Eftir að gjaldeyrisviðskipti voru gefin algerlega frjáls hafa menn líka tekið mikla áhættu á því sviði. Fyrir nokkrum misserum skýrði Morgunblaðið frá því að töluvert væri um það að einstaklingar, hópar einstaklinga og fyrirtæki tækju erlend lán og settu andvirði þeirra í kaup á íslenzkum ríkis- skuldabréfum og högnuðust verulega á því, að vextir af þeim bréfum væru allt að tvöfallt hærri en vextir af hinum erlendu lánum. Jafnframt er ljóst að mikið af þeim stóru upp- hæðum, sem gengið hafa á milli manna í hluta- bréfaviðskiptum, hafa byggzt á erlendum lántök- um. Þessar erlendu lántökur fóru fram í trausti þess að litlar breytingar yrðu á gengi íslenzku krónunnar. Þess voru jafnvel dæmi að bankar gæfu kost á því að taka húsnæðislán í erlendri mynt sem um leið tryggði mun lægri vexti en inn- lend lán. Breytingarnar á gengi íslenzku krónunnar á undanförnum mánuðum, en alveg sérstaklega á undanförnum vikum, hafa verið reiðarslag fyrir þá sem hafa stundað áhættuviðskipti í krafti er- lendra lána. Eftir það, sem gerzt hefur í þessum efnum að undanförnu, má gera ráð fyrir að viðskiptalífið muni fara varlegar í erlendar lántökur en gert hefur verið um skeið. Það er því sama, hvort litið er til netvæðing- arinnar, sem um tíma byggðist á algerlega óraunhæfum væntingum, hlutabréfamarkaðar- ins, sem á tímabili reis hærra en nokkur rök voru fyrir, eða gjaldeyrisviðskipta, sem margir hafa brennt sig á; nú ríkir meira raunsæi um þessi efni og það getur ekki haft nema jákvæð áhrif á þróun og uppbyggingu atvinnulífsins í framtíð- inni. Auknu frelsi á öllum sviðum hafa fylgt ákveðn- ir vaxtarverkir en vonandi er það tímabil nú að baki þótt afleiðingar þeirra vaxtarverkja eigi kannski eftir að koma betur í ljós á næstu mán- uðum. RÍKI OG ATVINNULÍF Sú niðurstaða í nýrri skýrslu Sam-keppnisstofnunar, að opinberiraðilar hafi aukið hlut sinn í at- vinnulífinu en ekki minnkað, þrátt fyrir markvissa einkavæðingu, kemur ekki á óvart. Morgunblaðið vakti athygli á þessari staðreynd fyrir nokkrum árum í tengslum við umfjöllun blaðsins um Póst og síma, forvera Landssímans og Íslandspósts. Í skýrslunni, sem fjallar um stjórn- unar- og eignatengsl í íslenzku atvinnu- lífi og er önnur skýrsla, sem stofnunin gefur út um þetta efni, kemur fram, að hlutur ríkisins í atvinnulífinu hefur auk- izt um þriðjung á milli áranna 1993 og 1996. Samkeppnisstofnun kemst að þeirri niðurstöðu, að ríki og sveitar- félög, lífeyrissjóðir og sjálfseignarstofn- anir eigi drjúgan hluta atvinnulífsins. Á þessu tímabili hefur fjarskipta- geirinn vaxið mjög hratt. Í umfjöllun Morgunblaðsins um þetta efni fyrir nokkrum árum var vakin athygli á því, að Póstur og sími, ríkisfyrirtæki, ætti í harðri samkeppni við einkafyrirtæki á þessu sviði og þrengdi mjög að þeim. Eftir að Landssíminn varð til með skipt- ingu Pósts og síma í tvö fyrirtæki hefur sú þróun haldið áfram, að ríkisfyrirtæk- ið Landssíminn, hefur haldið áfram að kaupa hluti í fjölmörgum fyrirtækjum, sem starfa á þessu sviði. Það má færa þau rök fyrir þessari út- þenslu Landssímans, að þar sem stefnt hafi verið markvisst að því í nokkur ár að einkavæða fyrirtækið, hafi verið eðli- legt að leitast við að auka verðmæti þessarar eignar íslenzkra skattgreið- enda eins og kostur væri, áður en það yrði selt á almennum markaði. Hins vegar er veruleikinn sá, að með þessari stefnu hefur ríkið aukið hlutdeild sína í atvinnulífinu en ekki minnkað og það meira að segja á nýjum sviðum atvinnu- lífsins. Úr því sem komið er þarf þetta hins vegar ekki að vera deiluefni, þar sem ljóst er að Landssíminn verður einka- væddur. Hið sama á við um ríkisbank- ana. Þess vegna má gera ráð fyrir, að það ástand, sem skýrsla Samkeppnis- stofnunar lýsir að þessu leyti sé tíma- bundið og myndin verði allt önnur að nokkrum árum liðnum. Þegar fyrri skýrsla Samkeppnis- stofnunar var birt fyrir allmörgum ár- um höfðu menn miklar áhyggjur af því, að yfirráð yfir einkafyrirtækjum væru að færast í fárra hendur. Þótt fákeppni sé mikil í íslenzku atvinnulífi er þó ljóst, að valddreifingin í einkareknu atvinnu- lífi hefur aukizt verulega á undanförn- um árum. Það er ekki lengur hægt að tala um að örfáir aðilar ráði atvinnulíf- inu í heild. Nýir aðilar hafa komið til sögunnar og þess vegna fleiri sem tak- ast á. Gera má ráð fyrir að hlutur lífeyris- sjóða í atvinnulífinu eigi eftir að aukast mjög á næstu árum. Sú fyrirsjáanlega þróun kallar á meiri umræður en orðið hafa um það, hvernig stjórnir lífeyris- sjóðanna eru kjörnar og hvernig vali fulltrúa þeirra í stjórnir einstakra fyrir- tækja er háttað, ef þeir á annað borð marka þá stefnu að eiga fulltrúa í stjórn- um fyrirtækja. Á þessu umræðuefni hef- ur verið bryddað hér í Morgunblaðinu, en þeim umræðum hefur ekki verið vel tekið af hálfu forráðamanna lífeyris- sjóðanna. Slík afstaða er á misskilningi byggð. Lífeyrissjóðirnir eru eign félags- manna þeirra og eðlilegt að þeir kjósi beint fulltrúa í stjórn þeirra en að þær ákvarðanir séu ekki teknar í fámennum hópum innan verkalýðsfélaga og vinnu- veitendasamtaka. 22. maí 1991: „Það var góður tónn í fyrstu stefnuræðu Davíðs Oddssonar forsætis- ráðherra á Alþingi, sem flutt var í gærkvöldi. Ræðan ein- kenndist ekki af hástemmd- um loforðum og fyrirheitum. Hins vegar gaf hún nokkuð glögga mynd af viðhorfi rík- isstjórnarflokkanna til að- kallandi vanda og langtíma verkefna. Forsætisráðherra vék fyrst að þremur grund- vallaratriðum í samstarfi Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- flokks: í fyrsta lagi fylgja flokkarnir báðir frjálslyndri framfarastefnu í atvinnu- málum, sem er til þess fallin að auka sameiginlegar tekjur þjóðarinnar og tryggja vax- andi kaupmátt launa. Í öðru lagi líta stjórnarflokkarnir báðir á það sem meginverk- efni að rétta hlut þeirra, sem höllum fæti standa. Og í þriðja lagi sagði Davíð Odds- son: „Ríkisstjórnin vill opna landið fyrir nýjum straum- um, stefnum og hugmyndum og leggur höfuðáherzlu á, að íslenzka þjóðin megi ekki einangrast, þótt hún verði á hinn bóginn að halda sjálf- stæðri tilvist sinni, sjálfsvit- und og ríkri virðingu fyrir þjóðlegum gildum.““ . . . . . . . . . . 20. maí 1981: „Þótt ein- kennilegt sé, virðist núver- andi ríkisstjórn einkum fljóta áfram á sjálfumgleð- inni. Alkunn eru þau ummæli ýmissa stuðningsmanna stjórnarinnar, að hún verði að halda áfram, því að ann- ars verði landið stjórnlaust. Næsta fullyrðing þeirra, sem styðja ríkisstjórnina á þess- um forsendum, ætti auðvitað að vera sú, að óþarft sé að efna oftar til kosninga, þær kynnu að leiða til óvissu í landsstjórninni. Ekki eru margar vikur liðnar síðan Páll Pétursson formaður þingflokks framsóknar- manna lýsti því yfir í sjón- varpi, að ríkisstjórnin hefði þrátt fyrir allt unnið þó nokkuð skynsamleg verk! Og í Þjóðviljanum í gær segir Þorgrímur Starri bóndi í Mývatnssveit, sem lengi hef- ur verið notaður eins og póli- tískur áttaviti á síðum blaðs- ins: „Mér heyrist á Þjóð- viljanum okkar og þing- mönnum að þeir gangi út frá því að allir góðir Alla-ballar styðji þessa ríkisstjórn, ekki endilega fyrir það að hún sé svo góð, heldur fyrir það að annars fengjum við enn verri stjórn, og má það út af fyrir sig satt vera. Finnst þér þetta ekki alveg hrífandi hugsjón?““ . . . . . . . . . . 20. maí 1971: „Við hverjar kosningar gengur jafnan fjöldi nýrra kjósenda að kjörborðinu í fyrsta sinn. Þessum yngstu kjósendum fjölgar jafnt og þétt, og aldr- ei fyrr hefur svo stór hópur ungs fólks átt kost á að neyta kosningaréttar og nú. Stjórnmálaflokkarnir reyna jafnan með ýmsum hætti að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við þetta unga fólk, enda er þar um að tefla óplægðan akur af þeirra hálfu. Það er þó ljóst, að megin gagnrýnin á stjórnmála- flokkana undanfarin ár hefur einmitt komið frá ungu fólki. Fjölmargt ungt fólk hefur tekið verulegan þátt í störf- um stjórnmálaflokka og unn- ið þar að breytingum og nýj- um vinnubrögðum. Á hinn bóginn hafa stórir hópar ungs fólks staðið utan allra flokka og stjórnmála- samtaka. Í augum margra eru stjórnmálaflokkarnir keimlíkar stofnanir og þeir sjá ekki grundvallar skoð- anamismun milli einstakra flokka. Af eðlilegum ástæð- um verða stjórnmála- umræður marklitlar í hugum þessa fólks. Hvort sem þetta er rétt mat eða ekki, stendur þetta fólk á krossgötum, þeg- ar dregur að kosningum og stjórnmálaflokkarnir hefja baráttuna um atkvæði þess.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.