Morgunblaðið - 20.05.2001, Side 38

Morgunblaðið - 20.05.2001, Side 38
FRÉTTIR 38 SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ GOTT ATVINNUTÆKIFÆRI BLÓMABÚÐIN KÓSÝ Til sölu er blómabúðin Kósý í Keflavík ásamt húsnæði, sem er 160 fm. Búðin er í fullum rekstri með gott úrval af gjafavöru, blómum og tækifærisgjöfum. Búðin er staðsett á frá- bærum stað í miðbænum. Góð bílastæði. Til- valið tækifæri fyrir framsækið og duglegt fólk. Upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignasalan Ásberg, Hafnargötu 27, Keflavík, símar 421 1420 og 421 4288. Tilboð óskast í húseignina Skólabrú 2, Reykjavík Sala 12808 Skólabrú 2, Reykjavík Um er að ræða húseign sem er tvær hæðir, kjallari og ris, byggt árið 1912. Stærð hússins er 389 fermetrar. Stærð lóðar er 309 fermetr- ar. Brunabótamat hússins er kr. 32.486.000 og fasteignamat er kr. 19.899.000. Húseignin er til sýnis í samráði við Gunnar Ingibergsson í síma 892 7614. Tilboðseyðu- blöð liggja frammi á sama stað og hjá Ríkis- kaupum, Borgartúni 7, 105 Reykjavík. Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 11 þann 29. maí 2001 þar sem þau verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda er þess óska. Þórarinn Jónsson hdl., löggiltur fasteignasali. Jón Kristinsson sölustjóri. Svavar Jónsson sölumaður. Sími 551 8000 - Fax 551 1160 Vitastíg 12 - 101 Reykjavík Hálsasel Stararimi Glæsilegt tengihús, 4 svefnherbergi, stofa, borðstofa og arinstofa. Lóð fullbúin með sólverönd og skjólveggjum og stórar svalir. Innbyggður bílskúr. Verð 23 millj. Glæsilegt 173 fm einbýlishús með bílskúr. 5—6 herb., þar af 4 svefnherb. Fallegar innréttingar. Falleg lóð. Vesturfold Einbýlishús á tveimur hæðum, 130 fm timburhús. Húsið stendur á hornlóð. Bílskúrsréttur. Opið hús í dag Brautarás 1, Seláshverfið - Árbæ Endaraðhús m. tvöföldum bílskúr Básbryggja 13, 3. hæð Glæsileg fullbúin endaíbúð í Bryggjuhverfinu Í dag milli kl. 14 og 16 gefst áhugasömum tækifæri á að skoða þetta fallega endaraðhús á sérlega vinsælum stað í Selásnum í Árbæ. Um er að ræða 213 fm hús á tveimur hæðum, þ.a. 42 fm bílskúr. Í íbúðinni eru fjögur góð svefnherbergi, „húsbónda“herbergi, stór stofa, borðstofa og sjónvarpsstofa. Parket og flísar á gólfum, glæsilegur arinn í stofu, ver- önd og góðar svalir til suðvesturs og tvöfaldur bílskúr með geymslulofti. Kíktu við! Jón Ingi og Helga taka vel á móti ykkur! Til frekari upplýs- inga hringdu í Guðjón í síma 899 2694. Suðurlandsbraut 20, sími 533 6050, www.hofdi.is Í dag milli kl. 14 og 17 mun verða opið hús í Básbryggju nr. 13 í Bryggjuhverfinu sem nýtur nú sí- vaxandi vinsælda. Eignin, sem er 141 fm, er fullbúin, m.a. marbau- parket og flísar á gólfum, mahóní- hurðir og glæsilegar innréttingar smíðaðar í Axis. Íbúðin er á efstu hæð og er með mikilli lofthæð, stórar svalir með útsýni inn í lystigarð sem afhentur verður fullbúinn. Lúðvík tekur vel á móti ykkur. Verð 21,0 millj. Áhv. 8 millj. í húsbr. Villa de Rosa kemur manni í hug þegar þessi eign hefur ver- ið skoðuð. Hún er öll ein- staklega vönduð og falleg, þar sem hönnun, smíði og frágangur er til fyrirmyndar. Innihurðir eru úr massífri eik, innréttingar einnig, allt fyrsta flokks, parket og flís- ar á gólfum, upptekin loft í öllu húsinu og þakgluggar í stofu sem veita mikla birtu. Arinstofa, borðstofa og skáli tengjast og mynda notalega miðju í húsinu. Heitur pottur í garði og stór sólpallur, heilsárs sólstofa með hita í gólfi og ofn- um. Hitalögn í stéttum og bílaplani. Garðurinn er gróinn og fallegur og mátu- lega stór. Húsið er sérstaklega styrkt fyr- ir jarðskjálfta. Fjöldi mynda á heimasíðu okkar á bakki.com Sigtúnum 2, 800 Selfossi, sími 482 4000, heimasíða http://www.bakki.com HÁSKÓLINN í Reykjavík er með námsráðgjöf og námskynningu alla virka daga kl. 10 - 11:30 fyrir þá sem stefna á háskólanám. Námsráðgjafi veitir uplýsingar um skólastyrki fyr- ir nýnema, námstilhögun í tölvunar- fræðideild og viðskiptadeild skólans auk þess sem hann svarar spurning- um um hvaðeina sem lýtur að námi við skólann. Námsráðgjöfin er opin alla virka daga fram til 15. júní – en þá er síð- asti umsóknardagur um skólavist fyrir námsárið 2001-2002. Þeir sem vilja nýta sér þessa þjón- ustu geta hvort heldur sem er komið í skólann, sent tölvupóst til bjorg@ru.is eða haft samband sím- leiðis. Námskynning og ráðgjöf hjá Háskólanum í Reykjavík FÉLAG áhugafólks um heimafæð- ingar heldur sinn árlega aðalfund þriðjudaginn 22. maí nk. kl. 20 í húsakynnum Hússtjórnarskóla Reykjavíkur, Sólvallagötu 12. Eftir hefðbundin aðalfundarstörf mun Margrét Jónsdóttir flytja er- indið „Hring eftir hring; um hug- myndafræði barnsfæðinga“ og móðir mun segja frá eigin heimafæðingu. Á fundinum verður kynning á félaginu og nýlegur bæklingur um heimafæðingar mun liggja frammi. Kaffi og meðlæti verður selt á fundinum til styrktar starfseminni. Allir áhugasamir eru velkomnir. Fundur um heimafæðingar MATTHÍAS Viðar Sæmundsson ís- lenskufræðingur heldur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðinga- félags Íslands sem hann nefnir „Lykt, bragð og óhljóð í heimildum“, þriðjudaginn 22. maí nk. Fundurinn fer fram í stóra sal Norræna húss- ins, hann hefst kl. 12:05 og lýkur stundvíslega kl. 13:00. Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um sögu og er aðgangur ókeypis. „Í fyrirlestrinum verður rætt um Æra-Tobba, tungutal og óhljóð í heimildum. Spurt verður um tengsl munn- legra gjörninga og ritaðra minja, rætt um blætisdýrkun fræðimanna og áhrif líkamlegrar reynslu á heimsmynd Íslendinga. Talað verð- ur um þýðingu þess og áhrif að rit voru lesin fyrir fólki, bæði við mess- ur og á kvöldvökum, að móttaka texta var bundin framsögn og hlustun, heyrn en ekki sjón og lestri. Leidd verða rök fyrir því að málvit- und fólks hafi verið mun líkamlegri en síðar varð, samofin trú og lífs- reynslu, þótt hamrað sé á villu eða sjúkleika, jafnvel geðklofa, nú á dög- um. Sett verður fram tilgáta um að slík reynsla hafi ekki verið jöðruð með sama hætti í samfélagi sautj- ándu aldar því að menn hafi sótt til hennar við gerð og flutning ákveð- inna texta. Það tengdist aftur hefð- bundnum hugmyndum um sérstakt kraftseðli mælts máls umfram það ritaða. Verða vísur Æra-Tobba not- aðar sem dæmi,“ segir í fréttatil- kynningu. Um Æra- Tobba og óhljóð í heimildum SAMTÖKIN Fimmhyrningurinn standa fyrir grunnnámskeiði fyrir byrjendur í yoga. Hefst það mánu- daginn 21. maí nk. kl. 17.30 í Bolholti 4, 4. hæð (í sal Lífssýnar). Þátttakendur eru beðnir að mæta tímanlega. Námskeið í yoga ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.