Morgunblaðið - 20.05.2001, Page 45

Morgunblaðið - 20.05.2001, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 45 DAGBÓK Árnað heilla ÉG hef orðið þess var í seinni tíð að menn gera ekki alltaf skýran mun á ofangreindum sagnorðum og merkingum þeirra. Fyrir bragðið fer svo að hér kemst á ruglingur milli beyginga þeirra og notkun. Ekki hefur áður verið minnzt á þetta og er því ástæða til þess að vekja lesendur til um- hugsunar um muninn hér á milli. Ekki er það sízt vanþörf vegna þess, að við erum farin að heyra þennan rugling á öldum ljósvakans. Þegar svo er komið, er einmitt hætta á að hann breiðist út meðal almennings. Snemma í þessum mánuði var kom- izt svo að orði í fréttum á Bylgjunni: Ráðherra kvað sér hljóðs. Var það í sambandi við umræðu á Alþingi. Hér hefur frétta- maður ruglazt í ríminu og þulur ekki heldur veitt því athygli. Í þessu dæmi er um so. að kveðja að ræða: að kveðja sér hljóðs við umræður. Beyging hennar er veik, eins og það er kallað, og er á þessa leið: kveðja - kvaddi - kvatt. Þt. so. er þá kvaddi: hann kvaddi sér hljóðs og lh. kvatt: hann hefur kvatt sér hljóðs. Hins vegar er hitt so. í sterkri beygingu og beyg- ist svo: kveða - kvað - kváðum - kveðið. Í sam- ræmi við það átti þulur að segja: Ráðherra kvaddi sér hljóðs o.s.frv. Ég geri fastlega ráð fyrir að þeir séu enn margir sem þekkja hér muninn. Því miður virðist samt svo sem þeim fari fjölgandi sem kannast ekki við hann og verður því „fóta- skortur á tungunni“ þeg- ar þeir þurfa að nota þessi sagnorð. Því skal segja sem svo: Hann kvaddi sér hljóðs og kvað það heilagan sannleika sem hann heldur fram um málið. - J.A.J. ORÐABÓKIN Kveða – kveðja LJÓÐABROT GRÓTTUSTEMNING Hjá Gróttu svarrar sjórinn við sorfin þarasker. Í útsynningum dimmar drunur drynja í eyru mér. Þar fórust eitt sinn átján með allt í grænan sjó. Brimið svall við svörtusker. Sofðu, korríró. Oft heyrast óhljóð útvið Gróttusker. Á kvöldin stiginn kynjadans, kveðið og leikið sér. Þórbergur Þórðarson. STAÐAN kom upp í ofur- mótinu í Enghien-les-Bains er lauk fyrir skömmu. Joel Lautier (2658) hafði hvítt gegn Viktor Bologan (2676). 38.Hxf8! Hxf8 39.Dxe6 og svartur gafst upp. Skákin tefldist í heild sinni: 1.d4 Rf6 2.c4 e6 3.Rf3 d5 4.g3 c6 5.Bg2 Rbd7 6.O-O Bd6 7.Rc3 O-O 8.Rd2 Bb4 9.Db3 a5 10.Hd1 b5 11.cxd5 exd5 12.e4 Rb6 13.e5 Re8 14.Dc2 g6 15.Rf3 Bf5 16.De2 Be7 17.Bh6 Rg7 18.h3 He8 19.Hac1 Hc8 20.g4 Be6 21.b3 b4 22.Rb1 Rd7 23.Rbd2 Db6 24.Rf1 c5 25.dxc5 Rxc5 26.Rg3 a4 27.Rd4 Bh4 28.De3 axb3 29.axb3 Rd7 30.Rge2 Be7 31.f4 Bc5 32.Kh1 f6 33.f5 fxe5 34.fxe6 Rxe6 35.Bxd5 exd4 36.Rxd4 Rdf8 37.Hf1 Dd6 o.s.frv. Upp- skeruhátíð Skákfélags Ak- ureyrar verður haldin kl. 20 í kvöld, 20. maí, í íþróttahöll- inni á Akureyri. Margs er að minnast og fagna enda á félagið 100 ára afmæli um þessar mundir. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. SUÐUR spilar þrjú grönd og verður að treysta á mjög hagstæða legu í laufinu til að eiga sér vinningsvon: Austur; AV á hættu. Norður ♠ ÁK54 ♥ 10862 ♦ D92 ♣ 73 Vestur Austur ♠ 108632 ♠ G ♥ G95 ♥ K743 ♦ 85 ♦ ÁG1076 ♣G105 ♣Á98 Suður ♠ D97 ♥ ÁD ♦ K43 ♣KD642 Vestur Norður Austur Suður -- -- 1 tígull 1 grand Pass 3 grönd Allir pass Útspil: tígulátta. Betri lauflegu er ekki hægt að hugsa sér – ásinn þriðji í austur – og því lítur út fyrir að hægt sé að vinna þrjú grönd með því að spila tvisvar að hjónunum. En það er blekking. Vörnin á alltaf að hafa betur. Sér lesandinn hvernig? Suður tekur fyrsta slag- inn heima á tígulkóng, fer inn í borð á spaðaás og spil- ar laufi á kóng. Hann spilar blindum inn á spaða og laufi að drottningunni. Ef austur dúkkar, lendir hann næsti inni á laufás og getur ekki sótt tígulinn... Þetta er komið úr bönd- unum – austur er búinn að nota tækifærið og henda laufás í spaðakónginn. Þannig tryggir hann makk- er sínum innkomu á lauf- gosa og þá innkomu notar vestur til að spila tígli í gegnum drottninguna. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson. 90 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag- inn 21. maí, verður níræður Sigurður Elías Eyjólfsson, prentari, Skólabraut 3, Sel- tjarnarnesi. Eiginkona hans er Ragnhildur Sigurjóns- dóttir. Sigurður verður að heiman á afmælisdaginn. 70 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag- inn 21. maí, verður sjötugur Óli Bergholt Lútherson, húsvörður, Ásbraut 21, Kópavogi. Eiginkona hans er Svana Svanþórsdóttir. Þau verða að heiman á af- mælisdaginn. Ný snyrtistofa Hef opnað snyrtistofu í Silfurtunglinu, Skipasundi 51, v/Holtaveg, sími 588 7077, gsm 691 0381 Kristín B. Hallbjörnsdóttir. Hverfisgötu 50, sími 552 2690 MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569- 1329, eða sent á net- fangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake NAUT Afmælisbarn dagsins: Þú gleður marga með þinni léttu lund og gæðir hlutina skemmtilegu lífi sem gerir þig eftirsóttan félaga. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú hefur þá dirfsku til að bera sem ætti að duga til að koma metnaðarfullu verkefni í höfn. Leitaðu uppi tækifæri til þess að nota þessa hæfileika. Naut (20. apríl - 20. maí)  Berðu vandlega saman þær leiðir sem við þér blasa og gerðu upp hug þinn áður en þú heldur af stað því eftir það verður ekki aftur snúið. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú ert hikandi í afstöðu þinni til ráðgjafar samstarfsmanns þíns og er það vel því þú ættir að gaumgæfa hlutina áður en þú afræður nokkuð. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þótt þig langi til þess að taka forustu í sérstöku átaki á vinnustað þínum skaltu ganga úr skugga um að þér sé raunverulegur akkur í því. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það er góð regla að læra einn nýjan hlut á hverjum degi. Það þurfa svo sem ekki að vera nein ósköp en sérhver al- in sem bætt er við gerir þig að betri manni. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það er sjálfsagt að hlusta á gagnrýni annarra en ástæðu- laust að sligast undan henni. Hugsaðu um hana og dragðu lærdóm af því sem réttmætt er. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það þarf stundum lítið út af að bera til þess að afleiðing- arnar valdi verulegum vand- ræðum. Reyndu því að hafa allt á hreinu bæði í starfi og leik. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú berð sjálfur ábyrgð á heilsu þinni og því er það í þínu valdi og einskis annars að breyta því sem breyta þarf og hlúa að því sem vel er. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Einhver hlutur kemur upp á sem kallar fram minningar úr æsku þinni og þú hefur mikla ánægju af að rifja þetta upp og festa þér í minni. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Vald er jafnan vandmeðfarið og sá einn ætti að hafa vald sem aldrei þarf að nota það en getur engu að síður hvatt aðra áfram og náð árangri. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Hugmyndirnar hrúgast upp hjá þér án þess að þér takist að koma nokkru skikki á þær. Þér er því nauðsynlegt að fara í gegnum hlutina og vinsa það besta úr. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú hefur yndi af skáldsögum og lætur þig dreyma um að skrifa eina sjálfur. Láttu það umfram allt eftir þér og vertu óhræddur við að festa hugs- anir þínar á blað. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. FYRIRHUGUÐ er safnaðarferð til Þórshafnar á Langanesi dagana 24.- 27. maí, en sóknarprestur þar er sr. Sveinbjörn Bjarnason, sem lengi var virkur í safnaðarstarfi Breiðholts- sóknar. Sungin verður messa í hinni nýju Þórshafnarkirkju kl. 11 sunnu- daginn 27. maí og verður því engin guðsþjónusta í Breiðholtskirkju þann dag. Gist verður á Löngumýri í Skaga- firði, að Vestmannsvatni í Aðaldal og á Þórshöfn, eina nótt á hverjum stað. Nánari upplýsingar um þessa ferð má fá í Breiðholtskirkju. Safnaðarstarf Laugarneskirkja. Morgunbænir mánudag kl. 6.45-7.05. 12 spora hópar koma saman í safnaðarheimilinu mánudag kl. 19.15. Fella- og Hólakirkja. Æskulýðsstarf fyrir 8.-10. bekk á mánudögum kl. 20- 22. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum í kirkj- unni alla daga frá kl. 9-17 í síma 587- 9070. Hafnarfjarðarkirkja. Æskulýðsstarf yngri deild kl.20.30-22 í Hásölum. Krossinn. Almenn samkoma að Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir velkomn- ir. Hvammstangakirkja. KFUM og K starf kirkjunnar mánudag kl.17.30 á prestssetrinu. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður Aril Edvardsen frá Noregi. Almenn samkoma kl. 16.30. Lofgjörðarhópur Marita syngur. Ræðumaður Aril Edvardsen. Barnakirkja fyrir 1-9 ára börn. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Frelsið, kristileg miðstöð. Almenn fjölskyldusamkoma sunnudaga kl. 17. Safnaðarferð Breiðholtssóknar Þórshafnarkirkja Morgunblaðið/Líney KIRKJUSTARF

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.