Morgunblaðið - 19.07.2001, Side 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skotskífusýning í Hafnarborg
Íslenskt
myndefni
SKOTSKÍFUR úr fór-um Det KongeligeKöbenhavnske
skydeselskap og Danske
Broderskap er nú til sýnis í
Hafnarborg í Hafnarfirði.
Þarna er á ferðinni mjög
óvenjuleg sýning sem hald-
in er á vegum Þjóðminja-
safnsins og hefur Inga
Lára Baldvinsdóttir deild-
arstjóri haft veg og vanda
af uppsetningu sýningar-
innar. Hún var spurð
hvernig Ísland tengdist
þessum danska menningar-
arfi?
„Ef maður lítur yfir
félagaskrá danska skot-
félagsins má sjá nokkra
tugi nafna sem hafa teng-
ingu við Ísland með ein-
hverjum hætti. Það eru
fyrst og fremst danskir kaupmenn
sem versluðu á Íslandi og voru
meðlimir í þessum félagsskap sem
létu útbúa skotskífur sem tengdust
Íslandi. Frá því um 1750 hefur
nefnilega sá siður verið innan
félagsins að þeir einstaklingar sem
ganga í það afhenda olíumálaða
skotskífu úr tré sem er um 63
sentimetrar í þvermál til félagsins
ári eftir að þeir ganga í það.“
– Eru skotskífurnar á sýning-
unni allar tengdar Íslandi á ein-
hvern hátt?
„Já, það má segja það.“
– Hvernig uppgötvaðir þú þess-
ar skotskífur?
„Ég hafði séð skotskífur í Kaup-
mannahöfn í Köbenhavnsk Bymu-
seum en datt ekki í hug að til væru
skotskífur með íslensku myndefni
fyrr en Þjóðminjasafninu barst
fyrirspurn um íslenskt myndefni á
skotskífum vegna sýningar sem að
halda átti á National Historiske
Museum í Friðriksbergi í Kaup-
mannahöfn. Mér þótti þetta strax
mjög áhugavert myndefni og fyr-
irbæri í sjálfu sér, að til væru
myndir af mörgum íslenskum þétt-
býlisstöðum, okkur áður ókunnar,
á máluðum skotskífum í Dan-
mörku. Þá fór ég að kynna mér
þetta og datt strax í hug að það
gæti verið áhugavert að halda sýn-
ingu á þessum efnivið.“
– Hvernig gekk að fá skotskíf-
urnar lánaðar hingað?
„Það gekk mjög vel. Skotfélagið
sýndi þessu strax áhuga og var
reiðubúið að lána hingað skífurnar,
jafnvel þær sem eru viðgerðar
þurfi.“
– Eru viðlíka myndir af íslensk-
um þéttbýlisstöðum ekki til?
„Þarna eru elstu málaðar mynd-
ir af mörgum íslenskum þéttbýlis-
stöðum. Þarna er t.d. elsta mynd
sem til er af Djúpavogi. Af Skaga-
strönd er að vísu til teikning frá því
í byrjun 19. aldar, en þarna eru
tvær olíumálaðar myndir sem gefa
mun gleggri mynd af staðnum.
Auðvitað eru sumar af þessum
skífum gerðar eftir að ljósmynda-
öld rann upp og dæmi
eru um að skífurnar
séu málaðar eftir ljós-
myndum, eins og t.d.
skífa með mynd af
Vesturbúðinni á Eyrar-
bakka sem máluð er
eftir ljósmynd eftir
Oline Lefolii kaup-
mannsfrú á Eyrarbakka. Hins veg-
ar eru þessar skífur og myndirnar
á þeim sannkölluð listaverk og
kærkomin viðbót við það myndefni
sem til er frá Íslandi á 18. og 19.
öld.“
– Hvers konar félagsskapur er
þetta sem hér um ræðir?
„Skotfélagið er eitt af elstu
starfandi félögum í Danmörku.
Það rekur sjálft sögu sína til 1334.
Þetta er félagsskapur fyrir karla
eingöngu, enn í dag. Framan af
voru félagar úr hópi iðnaðar-
manna, kaupmanna og opinberra
embættismanna, en eftir því sem
tímar hafa liðið fram hefur hópur
félagsmanna orðið einsleitari, enda
ekki á allra færi að vera í svo dýr-
um félagsskap.“
– Kostaði mikið að láta búa til
svona skotskífu?
„Ekki veit ég hvað það kostaði
félagsmenn að láta útbúa skífu, en
þetta hefur alltaf verið dýr félags-
skapur, eins og kom fram í viðtali
við aðstoðaryfirkokk á veitinga-
staðnum sem félagið rekur í dag.
En það er íslenskur maður, Jó-
hannes Thor Ævarsson, og miðað
við þær tölur sem hann gaf upp um
verð á málsverði þá virðist ekki
vera á allra færi að borða þar. En
veitingahús þeirra mun vera fínasti
veislustaðurinn í Danmörku. Stað-
urinn er úti á Sölyst í Klampen-
borg.“
– Hvers vegna voru menn að
hafa íslenskar myndir á skotskífu í
Danmörku?
„Félagsmenn höfðu frjálst val
um hvaða myndefni þeir settu á
svona skífu og gjarnan tengdu þeir
það annaðhvort uppruna sínum eða
starfsvettvangi. Þessir Íslands-
kaupmenn hafa með þessum hætti
viljað minna á tengsl sín við hina ís-
lensku verslunarstaði, þó ekki sé
einhlítt að skífurnar sýni
allar staði. Sumar þeirra
eru með táknmyndum,
eins og t.d. með guðinum
Merkúr, sem var guð
verslunar og ein skífan
er reyndar með skjald-
armerki, en það er skífa
Jóns Vídalíns kaup-
manns og konsúls í Reykjavík.“
– Hvernig komust menn í þenn-
an félagsskap?
„Það þurfti fyrst og fremst með-
mæli frá þeim sem þegar voru í
félagsskapnum.“
Þess má geta að sýningin í Hafn-
arborg stendur til 6. ágúst og allir
þeir sem áhuga hafa á ásýnd Ís-
lands eins og hún birtist á þessum
skotskífum ættu að skoða þessa
sýningu.
Inga Lára Baldvinsdóttir
Inga Lára Baldvinsdóttir
fæddist í Reykjavík 1956. Hún
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1976 og
BA-prófi í fornleifafræði og sögu
frá University College Dublin ár-
ið 1979 og cand. mag. prófi í
sögu frá Háskóla Íslands 1984.
Hún hefur lengst af starfað við
Þjóðminjasafnið en áður en þau
störf hófust vann hún við ýmis
safnastörf og störf tengd göml-
um ljósmyndum. Inga Lára er
gift Magnúsi Karel Hannessyni
sem starfar hjá Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga og eiga
þau einn son.
Þarna eru
elstu myndir
af mörgum ís-
lenskum þétt-
býlisstöðum
Borgmeister er með kynningu á hitaþolnum smokkum hr. slökkviliðsstjóri.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt karlmann í tólf mánaða
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
systur fyrrverandi sambýliskonu
sinnar. Stúlkan var 17 ára þegar brot-
ið var framið. Stúlkan lýsti atburða-
rás svo að hún hefði verið að passa
fyrir systur sína og sambýlismann
hennar. Þegar þau komu aftur á
heimilið hafi hún verið hálfsofandi.
Systir sín hefði farið að sofa en mað-
urinn hefði gefið sér samlokur og gos-
drykk. Skömmu síðar hafi hún „rot-
ast“ í sófanum. Þegar hún vaknaði á
ný hafi maðurinn legið ofan á henni en
hún fann fyrir töflum í munninum
sem hún skyrpti út úr sér. Maðurinn
var þá að framkvæma kynferðisbrot á
stúlkunni.
Maðurinn og stúlkan eru ein til frá-
sagnar af atburðum. Í niðurstöðu hér-
aðsdóms segir að framburður stúlk-
unnar hafi verið skýr og í samræmi
við það sem hún sagði þremur vinkon-
um sínum daginn eftir atburðinn og
systur sinni og móður degi síðar. Þá
styrktist framburður hennar af því að
sæði úr manninum fannst í sófanum, á
púða og á bol sem stúlkan klæddist.
Maðurinn neitaði sök en kvaðst
umrætt kvöld hafa neytt bæði lyfja og
áfengis í talverðu magni. Hann gæti
því ekki útilokað að frásögn stúlkunn-
ar væri rétt, einkum vegna þess að
hann ætti það til að missa minnið eftir
að hafa neytt mikils áfengis og lyfja.
Fyrir dómi neitaði maðurinn að hafa
gefið stúlkunni svefnlyf. Hann játaði
hins vegar að hafa einu sinni áður
hafa gefið fyrrum sambýliskonu sinni
og annarri systur hennar svefnlyf án
þess að þær hafi vitað af því.
Maðurinn hafði ekki áður sætt refs-
ingum. Í dómnum segir að brot hans
sé alvarlegt og líta bæri til þess að
stúlkan hafi verið mágkona hans og
ung að árum. Hún hafi verið stödd á
heimili hans til að gæta barns hans og
systur sinnar. Refsing væri því hæfi-
leg 12 mánuðir en auk þess var mað-
urinn dæmdur til að greiða stúlkunni
500.000 krónur í miskabætur.
Jón Finnbjörnsson, héraðsdómari
kvað upp dóminn en meðdómendur
hans voru þau Guðjón St. Marteins-
son og Ingveldur Einarsdóttir.
Árs fangelsi fyrir kynferðisbrot
FYRSTI sendiherra Kanada með
aðsetur á Íslandi hefur verið skip-
aður Gerald Skinner að því er segir í
tilkynningu Johns Manleys, utanrík-
isráðherra Kanada.
Skinner er kvæntur Ilham Moyine
Al-Arab og eiga þau tvö börn. Hann
er með háskólapróf í stjórnmála-
fræðum frá University of British
Columbia og í alþjóðasamskiptum
frá Carleton University og hefur síð-
an 1966 starfað hjá utanríkisþjón-
ustu Kanada víða um heim. Skinner
var fyrst skipaður sendiherra í Kas-
akstan árið 1999 þar sem hann hefur
starfað síðan. Í tilkynningu ráð-
herrans kemur jafnframt fram að
Skinner hafi einnig fengist við marg-
vísleg verkefni í Ottawa í Kanada.
Þar má telja störf við deild Austur-
Evrópumála og deild vopnaeftirlits
og afvopnunar. Hann var einnig for-
stjóri deildar um málefni Suður-Asíu
og eins deildar almannavarna.
Að sögn Hjördísar Gunnarsdótt-
ur, deildarstjóra á skrifstofu upplýs-
inga-, menningarmála og ræðis-
tengsla utanríkisráðuneytisins, er
ekki von á sendiherranum til starfa
fyrr en í haust en gert er ráð fyrir að
sendiráð Kanada verði opnað í októ-
ber.
Fyrsti sendi-
herra Kanada
hér á landi
♦ ♦ ♦