Morgunblaðið - 19.07.2001, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 19.07.2001, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 41 ÓÐUM styttist í opnun nýs flugvallar í Vatnsmýri. Fram- kvæmdir hófust árið 2000 og skal lokið síðla árs 2002. Eftir at- kvæðagreiðslu um framtíð Vatnsmýrar 17. mars sl. flýttu flug- málayfirvöld fram- kvæmdum um eitt ár án samráðs við borgar- yfirvöld og í trássi við framkvæmdaleyfi og umhverfismat. Árið 1991 var það eitt af fyrstu verkum ríkisstjórnar Davíðs Oddsonar, fyrrum borgarstjóra í Reykjavík, að taka af öll tvímæli um að flugvöllur yrði til frambúðar í Vatnsmýri. Því var fallið frá áætlun Flugmálastjórnar um við- gerð á gamla flugvellinum fyrir 150 milljónir króna. Í staðinn skyldi byggður nýr völlur. Í þessari ákvörð- un felst mikið vanmat á hagsmunum borgarbúa og lítill skilningur á félagslegu og hagrænu kerfi borg- arinnar og afleiddum áhrifum á þjóð- arhag. Kostnaður er áætlaður 1.530 millj- ónir eða 5.500 krónur á hvern Íslend- ing. Flugmálastjórn áformar að auki nýja flugstöð, flugskýli, vegagerð ofl. fyrir a.m.k. 3.000 milljónir. Líftíminn er mest 15 ár og ljóslega er um að ræða stórfenglegt og vítavert fjár- málasukk. Ábyrgir eru samgöngu- ráðherra, samgöngunefnd Alþingis, Flugráð og Flugmálastjórn. Ráðamenn borgarinnar eru einnig ábyrgir. Þeirra er skyldan að þjóna hagsmunum Reykvíkinga í bráð og lengd. Og þeirra er valdið til að koma flugvellinum úr Vatnsmýri, m.a. með breyttu aðalskipulagi. Þeir hafa þó brugðist skyldum sínum og ábyrgð með skorti á dómgreind, þekkingu og innsæi og með því einfaldlega að fórna vísvitandi ómetanlegum hags- munum Reykvíkinga fyrir persónu- legan frama og fyrir völd og aðstöðu flokka sinna. Þvinguð „sinnaskipti“ nokkurra borgarfulltrúa rétt fyrir atkvæðagreiðsluna 17. mars virðast hafa verið tímabundin. Fjármálasukkið er þó hlutfalls- lega saklaust. Flugmálayfirvöld hafa í hálfa öld sýnt Reykvíkingum fá- dæma lítilsvirðingu, frekju og yfir- gang. Steininn tók fyrst úr fyrir áratug þegar þau ákváðu að festa flugvöll í sessi í Vatnsmýri í eitt skipti fyrir öll, þvert á hagsmuni borgarbúa. Stefnan var reyndar mörkuð í borgarstjóratíð Davíðs Oddssonar árið 1986 með deiliskipulagi flugvall- arsvæðisins. Leiðinni að settu marki lauk í ágúst 1999 með útgáfu Borgarskipu- lags á framkvæmdaleyfi fyrir nýjan flugvöll. Sú leið er vörðuð ófaglegum og óvönduðum vinnubrögðum Flug- málastjórnar, sem ávallt kemst upp með sjálfdæmi í eigin málum. Við þau verk hefur hún á seinni árum notið stuðnings borgaryfirvalda, m.a. við gerð aðal- og deiliskipulags og ekki síst við gerð illræmdrar skýrslu Hagfræðistofn- unar Háskóla Íslands 1997. Flugvöllur í Vatns- mýri er hluti af byggða- stefnu dreifbýlisflokk- anna, sem byggir á hróplegu misvægi at- kvæða og hefur um áratugi einkennst af handahófskenndum fjáraustri, sjálfteknum umboðslaunum og mis- beitingu valds. Sú stefna er löngu gjaldþrota enda hefur hún leikið landsmenn grátt, jafnt í strjálbýli sem í þéttbýli. Hún er þó enn í hávegum höfð hjá hópi ráða- manna. Borgarfulltrúar D-lista eru bundnir af flokksaga skv. landsmála- stefnu flokksins og tveir borgar- fulltrúar Framsóknarflokks binda hendur annarra fulltrúa í meirihluta R-lista vegna stjórnarþátttöku flokksins og stefnu í byggðamálum. Skipulag höfuðborgarinnar, með Vatnsmýrina í brennidepli, verður kosningamálið 2002. Það verður helsta verkefni nýrrar borgarstjórn- ar að koma flugvellinum úr Vatns- mýri eins fljótt og kostur er. Hráskinnsleik- ur í höfuðborg Örn Sigurðsson Höfundur er arkitekt. Reykjavíkurflugvöllur Flugvöllur í Vatnsmýri, segir Örn Sigurðsson, byggist á hróplegu misvægi atkvæða og hefur einkennst af handahófskenndum fjáraustri, sjálfteknum umboðslaunum og misbeitingu valds. ÍÞRÓTTIR mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.