Morgunblaðið - 19.07.2001, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.07.2001, Blaðsíða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ EIGENDUR jarðarinnar Selskarðs, sem nær frá jaðri Gálgahrauns, milli Lambhús- atjarnar og Skógtjarnar og nánast að heimreið Bessa- staða, eru andvígir ráðgerð- um vegaframkvæmdum sem fela í sér að vegur mun liggja yfir jörðina á slóðum sem fyr- irhugað var að reisa íbúa- byggð og vilja þeir að fleiri kostir verði teknir til skoðun- ar. Hinn 3. júlí voru auglýst drög að matsáætlun Álftanes- vegar og Vífilsstaðavegar þar sem gert er ráð fyrir að veg- urinn liggi í svokölluðum veglínum A, B og C yfir Sel- skarð og þá hefur einnig hef- ur verið kynnt leið D sem er svonefnd sáttaleið milli leiða A og B og stendur til að fari í umhverfismat. Í framhaldi af matsáætlun- inni sendu eigendur jarðar- innar Selskarðs athugasemd- ir til Vegagerðar ríkisins og Hönnunar hf. Þar kemur fram að eins og standi fari eigendur Selskarðs með alla umsjón á jörðinni og þeir hafi ekki afsalað sér nokkrum þeim réttindum er tilheyra henni. Fjörur á Selskarði hafi verið settar á einhvers konar náttúruminjaskrá án nokkurs samráðs við þá sem eiga þær og fara með umráð þeirra. Telja eigendurnir að vegur- inn geti ekki legið í fyrirhug- uðum veglínum A, B eða C yf- ir Selskarð sem rætt er um í matsáætluninni, eignin standi ekki til boða undir þjóðveg með þeim hætti því sú stað- setning stórskaði hagsmuni eigenda. Eigendur benda einnig á að verði vegurinn samkvæmt veglínum A, B eða C fari hann yfir viðkvæmt líf- ríki og friðað varpland fugla og hugsanlega einnig yfir fornminjar. Eigendurnir gera þá kröfu að fleiri veglínur verði teknar með í matsáætl- un svo sem vegur í fjöru Lambhúsatjarnar á Sel- skarði, vegur í stokk á Sel- skarði, vegur meðfram Gálga- hrauni frá Eskinesi yfir á Bessastaðanes eða vegur um Eskines og yfir á Bessastaða- nes. Þeir telja ekki sjáanlegt að almenningsþörf krefjist þess að þjóðvegur liggi nákvæm- lega þar sem hann er skipu- lagður á Selskarði og benda á að ekkert samráð hafi verið haft við jarðareigendur um aðalskipulag þjóðvegar yfir Selskarð. Hafi þeim sem unnu aðalskipulagið og hönnuðu veginn, þ.e. Vegagerð ríkis- ins, verið vel ljóst að önnur notkun hafði verið áformuð á eigninni. Þá benda eigendur á að Garðabær skipuleggi íbúa- byggð á Garðaholti og færi þá þjóðveg framhjá því svæði í samræmi við hagsmuni sína. Hins vegar skipuleggi Garða- bær þjóðveginn yfir miðja Selskarðsjörðina á eins óhag- kvæman hátt og hugsast geti með tilliti til hagsmuna eig- enda Selskarðs og skipulagn- ingu íbúasvæðis þar. Ekkert hlustað á sjónarmið eigenda Björn Erlendsson, tals- maður eigenda Selskarðs, bendir á að jörðin sé einn þriðji af allri vegarlögninni og hafi eigendur jarðarinnar far- ið fram á að fleiri kostir verði teknir með í umhverfismat. „Ekkert hefur þó verið hlust- að á okkur og við erum alger- lega hunsuð. Við höfum rætt við skipulagsstjóra ríkisins, vegagerðina og Garðabæ, en höfum engin viðbrögð feng- ið,“ segir Björn. Björn segir eigendur jarð- arinnar á Selskarði hafa skipulagt sína jörð og gert ráð fyrir að fólk geti fengið byggingarlóðir á landinu. „Þetta er ágætis bygging- arland, Garðabær bendir á að landið sé óhentugt til bygg- inga vegna hugsanlegra gróð- urhúsaáhrifa, en okkur finnst að það geti ekkert frekar átt við um þessa jörð frekar en aðrar, því þetta land liggur ekki lægra en bryggjuhverfið sem Garðabær hefur í huga að koma upp og land víða á höfuðborgarsvæðinu. Við er- um andvíg því að vegurinn verði lagður með því móti sem nú stendur til og erum tilbúin að bjóða þeim land á jörðinni sem uppfyllir allar kröfur um greiðar samgöngur og bætt vegasamband,“ segir Björn. Fyrst og fremst um réttlætismál að ræða Hann segir að ekki sé um stórkostlegan fjárhagslegan ávinning fyrir eigendur jarð- arinnar að ræða verði þar íbúabyggð, enda séu eigendur fjórir og afkomendur þeirra margir. „Fyrir okkur er þetta fyrst og fremst réttlætismál og við förum fram á að það sé tekið tillit til okkar sjónar- miða,“ segir Björn. Hann bendir á að fari sem horfir verði málaferli úr þessu og telur hann að 72. gr. stjórnarskrárinnar um frið- helgi eignarréttarins og 12. gr. stjórnsýslulaga, meðal- hófsreglan, styrki málstað eigenda jarðarinnar. Landeigendur gera ráð fyrir íbúabyggð í landi Selskarðs í stað vegarlagningar Eigendur Selskarðs ósáttir við vegaframkvæmdirnar Álftanesvegur MANNLÍF við höfnina í Reykjavík er stundum afar fjölskrúð- ugt og þar er gjarnan margt um manninn þegar veður er gott og einnig þegar skemmtiferðaskip koma í höfn, en þau hafa verið ófá undanfarna daga og vikur. Á dögunum hitti ljós- myndari Morgunblaðsins þessa glaðlegu ungu menn sem nutu veðurblíðunnar og brugðu á leik á hafnarbakkanum. Morgunblaðið/Sigurður Jökull Fjölskrúðugt mannlíf við höfnina STJÓRN Skotfélags Reykjavíkur hefur leitað að- stoðar skotfélaga í nágrenni Reykjavíkur um aðstöðu til útiæfinga fyrir félagsmenn sína. Félagsmönnum SR var gert að hætta æfingum og rýma svæði Skotfélagsins í Leirdal í Grafarholti síðast- liðið haust þegar íbúabyggð fór að rísa á svæðinu og hafa félagsmenn verið á hrakhólum með æfingaað- stöðu síðan. Á vegum bæj- arskipulags Hafnarfjarðar og borgarverkfræðings er unnið að því að finna fram- tíðarland undir skotæfinga- svæði SR og hafa augu manna beinst að svæði suð- ur af Straumsvík. Skotdeild Keflavíkur hef- ur boðið félagsmenn SR vel- komna á æfingar á hagla- velli sína og einnig hefur félagsmönnum verið boðið að nýta sér aðstöðu Keflvík- inga í riffilskýli þeirra gegn föstu lykilgjaldi. Þá hefur Skotfélag Akraness boðið félagsmenn SR velkomna gegn innanfélagsgjaldi á leirdúfuvöll félagsins á Akranesi. Skotfélag Suður- lands og Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar hafa einnig boðið þjónustu sína, en ekki hefur verið gengið til samn- inga við þau félög. Innigreinar í íþróttahúsi Gert er ráð fyrir að nýtt íþróttahús í Grafarvogi sem er í byggingu, muni hýsa að- stöðu SR í innigreinum í framtíðinni. Um er að ræða aðstöðu fyrir 50 m riffil- brautir, 25 m skammbyssu- brautir og 10 m loftbyssu- brautir. Skotfélag Reykjavíkur á hrak- hólum með æfingaaðstöðu Leita til ná- grannafélaga Reykjavík LEIKJANÁMSKEIÐ fyrir börn nýbúa hefur staðið yfir í Reykjavík í sumar og hafa 75 börn tekið þátt í nám- skeiðinu, sem skiptist þannig að hálfan daginn eru börnin í íslenskukennslu á vegum Námsflokka Reykjavíkur og hinn hluta dagsins tekur við leikjanámskeið á vegum ÍTR. Að sögn Þórdísar Rúnars- dóttur, umsjónarmanns nám- skeiðsins, stendur það til 31. júlí og eru börnin sem taka þátt í því frá 20 löndum og má þar nefna Víetnam, Ástr- alíu, Tailand, Pólland, Rúss- land, Danmörku, Bandarík- in, Kólumbíu, Namibíu og Kína. „Sum barnanna hafa búið hér á landi í stuttan tíma, en önnur alla ævi svo íslensku- kunnátta þeirra er mjög mis- munandi. Þrátt fyrir það gengur börnunum mjög vel að eiga samskipti hvert við annað og nota hendur og svipbrigði ef tungumálið brestur. Það hefur verið gaman að sjá að tungumálið sem börn- in tala virðist ekki skipta höfuðmáli,“ segir Þórdís. Á leikjanámskeiðinu í sumar hafa börnin tekið sér ým- islegt skemmtilegt fyrir hendur og svo sem að fara í sund, fjöruferðir, heimsókn á Árbæjarsafn og í heimsókn til lögreglunnar. Í fyrradag kynntu yngri börnin á nám- skeiðinu sér starfsemi Slökkviliðsins í Reykjavík og var líf og fjör á Slökkvistöð- inni þegar blaðamaður og ljósmyndari litu inn, en þar fengu börnin að skoða og reyna hluta af búnaði liðsins. 75 börn frá 20 löndum á leikjanámskeiði í Reykjavík Morgunblaðið/Billi Líf og fjör var þegar börnin heimsóttu Slökkvistöðina í Reykjavík og fengu að reyna búnað slökkviliðsins með dyggri aðstoð slökkviliðsmanna. Fjör í heimsókn hjá slökkvi- liðinu Reykjavík ÍBÚAR í nágrenni væntan- legra vegaframkvæmda við Hallsveg í Grafarvogi eru ósáttir við fyrirhugaða vegar- lagningu þar, en framkvæmd- ir vegna vegarins eru nú í frekara mati á umhverfis- áhrifum. Samkvæmt upplýsingum frá lögmanni íbúanna krefjast þeir þess að skipulagsstjóri hafni framkvæmdum við Hallsveg í Reykjavík á þeim grundvelli sem kynntur er í viðbótarmatsskýrslu fram- kvæmdaraðila. Telja íbúarnir skýrsluna mjög takmarkaða og byggja á röngum forsendum og stað- hæfingum sem og villandi gögnum. Jafnframt sé ekki unnt að uppfylla kröfur laga og reglu- gerða varðandi hljóðstig með þeim hætti sem framkvæmda- raðili ráðgerir, þ.e. með því að reisa gríðarleg mannvirki fyr- ir framan húseignir íbúanna. Til vara krefjast íbúarnir þess að skipulagsstjóri hafni framkvæmdum við Hallsveg í þeirri mynd sem þeim er lýst í viðbótarmatsskýrslu, en sam- þykki þann valkost að leggja veginn í stokk eins og lýst er í skýrslunni og framkvæmda- raðila verði þá gert að skila frekari gögnum um gerð stokksins þar sem framlögð gögn um hann geta ekki talist fullnægjandi. Eins og fram kom í Morg- unblaðinu í gær eru athuga- semdir íbúanna nú til skoðun- ar og verður úrskurðað í málinu 3. ágúst. Íbúar ósáttir við framkvæmdir við Hallsveg Grafarvogur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.