Morgunblaðið - 19.07.2001, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 39
HVERS vegna á að
færa Tilkynningar-
skyldu íslenskra skipa
til landhelgisgæslunn-
ar.Þessari spurningu
hefur verið varpað fram
á opinberum vettvangi.
Því vill Landhelgis-
gæslan leitast við að
svara henni.
Þegar Slysavarna-
félagi Íslands var falin
Tilkynningarskylda ís-
lenskra skipa árið 1968
kom sterklega til greina
að Landhelgisgæslunni
yrði falinn reksturinn.
Slysavarnafélagið hélt
því fram að hugsanlega
myndu fiskiskip veigra sér við að til-
kynna sig til Landhelgisæslunnar,
þar sem þau gætu verið á þeim stað,
sem þeim væri ekki heimill. Slysa-
varnafélagi Íslands var falinn rekstur
tilkynningarskyldunnar og á síðasta
ári flutti skyldan í húsakynni Lands-
símans. Samvinna Landhelgisgæsl-
unnar og Tilkynningarskyldunnar
hefur verið góð.
Samkvæmt lögum um Landhelgis-
gæslu Íslands nr.25/1967 1. gr. b liðar
er markmið Landhelgisgæslunnar:
„Að veita hjálp við björgun manna úr
sjávarháska ....“ og í c lið „Að aðstoða
eða bjarga bátum og skipum, sem
kunna að vera strönduð eða eiga í erf-
iðleikum á sjó við Ísland, ef þess er
óskað“.
Það er skylda Landhelgisælunnar
að vinna að settum markmiðum.
Skiptir þá ekki máli undir hvern mál-
ið heyrir og hefur stofnunin gert
nokkra samninga þar sem stofnanir
sameina krafta sína. Stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar hefur fjórþætt
hlutverk: björgunarstjórnstöð, fjar-
skiptamiðstöð fyrir gæslueiningar,
fiskveiðieftirlitsstöð og móttökuaðili
á farþega- og áhafnalistum skipa
vegna Schengen-samningsins.
Í björgun er mikilvægt að bregðast
sem fljótast við og getur þar skilið á
milli feigs og ófeigs. Stjórnstöð Land-
helgisgæslunnar tekur á móti neyð-
arköllum frá skipum í gegnum fjar-
kiptastöðvar, eins og strandstöðvar
Landssímans, frá neyðarbaujum, þar
sem tilkynningar eru sendar sjálf-
virkt til Landhelgisgæslunnar og frá
erlendum björgunarstjórnstöðvum,
þegar um er að ræða erlend skip á út-
hafinu.
Í fjareftirliti berast Landhelgis-
gæslunni upplýsingar um staðsetn-
ingar varðskipa og gæsluloftfara og
þeirra fiskiskipa, sem eru í fjareft-
irliti fiskveiðistjórnunarinnar, þar
með talin erlend fiskiskip. Fylgst er
með þeim skipum sem tilkynna um
komu sína vegna Schengen og í fram-
tíðinni er gert ráð fyrir að skip með
hættulegan farm sendi tilkynningar
til Landhelgisgæslunnar.
Verði Tilkynningar-
skylda íslenskra skipa
færð til Landhelgis-
gæslunnar eru allar til-
tækar upplýsingar um
skipaferðir við Ísland á
þeim stað, sem stjórnar
leit og björgun á hafinu.
Engir milliliðir tefja
framgang mála og þeg-
ar vafi er um öryggi
skipa er unnt að senda
einingar Landhelgis-
gælunnar og skip sem
Landhelgisgæslan hef-
ur upplýsingar um á
vettvang til öryggis og
grípa til björgunarað-
gerða mun fyrr en ella.
Í björgunarstjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar er gert ráð fyrir að Slysa-
varnafélagið Landsbjörg komi til að-
stoðar þegar mikið liggur við. Þannig
er unnt að nýta þann mikla fjölda
félagsmanna þeirra ágætu samtaka
til að vinna með Landhelgisgæslunni
að settu markmiði.
Kostnaður því samfara að Land-
helgisgæslan tæki við tilkynningar-
skyldunni er óverulegur. Unnt væri
að hafa tvo menn á vakt allan sólar-
hringinn og skapar það mikið öryggi.
Einnig þyrfti aðeins að greiða rekst-
ur á einni sjóbjörgunarstjórnstöð í
stað tveggja. Ríkisendurskoðun segir
í stjórnsýsluúttekt sinni á Landhelg-
isgæslunni fyrr á þessu ári: „Skoða
ætti möguleika á að stjórnstöð Land-
helgisgæslunnar annaðist rekstur
sjálfvirku tilkynningarskyldunnar.“
Landhelgisgæslan er reiðubúin að
taka að sér rekstur sjálfvirku tilkynn-
ingarskyldunnar og telur að með því
aukist verulega öryggi sjófarenda við
Ísland.
Rökin sem upphaflega voru færð
fyrir því, að Landhelgisgæslan ætti
ekki að sjá um tilkynningarskylduna
eru úr gildi fallin. Það er liðin tíð að
íslenskir sjómenn séu í einhverjum
feluleik við þessa stofnun. Þvert á
móti ætlast þeir til að Landhelgis-
gæslan stundi virkt eftirlit á miðun-
um við landið og hafa þráfaldlega
ítrekað þá skoðun. Nútímatækni hef-
ur líka gert það að verkum að erfitt er
fyrir þá sem kynnu að ætlast sér að
dyljast að gera það. Því hníga öll rök
að því, að tilkynningarskylda ís-
lenskra skipa sé best komin hjá
Landhelgisgæslunni.
Tilkynningarskyldan fari
til Landhelgisgæslunnar
Hafsteinn
Hafsteinsson
Sjófarendur
Rökin sem upphaflega
voru færð fyrir því,
segir Hafsteinn
Hafsteinsson, að
Landhelgisgæslan ætti
ekki að sjá um
tilkynningarskylduna
eru úr gildi fallin.
Höfundur er forstjóri
Landhelgisgæslunnar.