Morgunblaðið - 19.07.2001, Qupperneq 16
AKUREYRI
16 FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TVEIR karlmenn hafa verið dæmdir
í Héraðsdómi Norðurlands eystra
fyrir þjófnað. Annar er tæplega þrí-
tugur og hinn rúmlega tvítugur.
Mennirnir voru ákærðir fyrir
þjófnað og tilraun til nytjastuldar
með því að hafa í lok ágúst á liðnu ári
farið inn í tvær bifreiðar í miðbæ Ak-
ureyrar og gert tilraun til að gang-
setja þær í þeim tilgangi að aka þeim í
heimildarleysi til Reykjavíkur. Úr
annarri bifreiðinni stálu þeir sam-
byggðu útvarpi og geislaspilara.
Yngri maðurinn hefur ekki áður
hlotið refsidóma. Með hliðsjón af af-
dráttarlausri játningu, hreinum sak-
arferli og ungum aldri þótti refsing
hans hæfilega ákveðin 45 daga fang-
elsi sem skilorðsbundið var til tveggja
ára. Sá eldri hefur tvívegis hlotið
refsidóma, fyrir ölvunarakstur,
skemmdarverk og þjófnaðarbrot auk
þess að gangast undir sektargreiðslu
með sáttargjörð vegna ölvunarakst-
urs. Hann var dæmdur í 60 daga fang-
elsi sem skilorðsbundið var til tveggja
ára. Mennirnir voru dæmdir til að
greiða eiganda bifreiðarinnar um 46
þúsund krónur í skaðabætur.
Skilorð
vegna til-
raunar til að
stela bílum
Héraðsdómur
Norðurlands eystra
KRISTNIBOÐSMÓT á veg-
um Kristniboðssambandsins
verður haldið að Löngumýri í
Skagafirði dagana 20. til 22.
júlí.
Mótið verður sett á föstu-
dagskvöld, 20. júlí, með sam-
komu sem Friðrik Hilmarsson,
ritstjóri Boðberans, talar á.
Biblíulestur í umsjá Skúla
Svavarssonar kristniboða
verður á laugardagsmorgun
og síðdegis kristniboðssam-
koma sem Guðlaugur Gunn-
arsson kristniboði, sem starfað
hefur í Eþíópíu um árabil, sér
um. Um kvöldið verður vitn-
isburðarsamkoma þar sem
fólk segir frá trúarreynslu
sinni.
Á sunnudagsmorgun verður
farið í Goðdalakirkju kl. 11 í
messu hjá sóknarprestinum,
sr. Ólafi Hallgrímssyni.
Lokasamkoma kristniboðs-
mótsins verður kl. 14 á sunnu-
dag en þá talar Jónas Þórisson
kristniboði.
Skráning á mótið er á
Löngumýri og eru allir vel-
komnir.
Kristni-
boðsmót
á Löngu-
mýri
Í VOGUM 1 í Mývatnssveit er rekið
afurðagott kúabú í nýlega byggðu
fjósi sem sérstaklega er hannað með
það fyrir augum að geta tekið á móti
ferðafólki og gefa því kost á að sjá
hvernig búið er að kúm og hvernig
mjaltir fara fram við nútímalegar að-
stæður.
Í Vogafjósi ræður Ólöf Hallgríms-
dóttir ríkjum með traustum stuðn-
ingi móður sinnar, Önnu V. Skarp-
héðinsdóttur, og annast þær mjaltir
þótt fleiri úr fjölskyldunni eigi þar
einnig hlut að máli.
Það er afar athyglisvert og fróð-
legt fyrir þann sem vanastur er að
sækja sér mjólkurfernu úr kæliborði
verslunar að koma hér í fjós og sjá
með eigin augum hvernig kýr eru
meðhöndlaðar og afurðir þeirra frá
fyrstu hendi. Hér ræður snyrti-
mennska ríkjum.
Aðstaðan sem ferðafólki er boðin
til skoðunar í fjósinu er mjög til fyr-
irmyndar. Snyrtileg veitingastofa
með stórum gluggum gerir gestum
auðvelt að litast um í fjósinu við hlið-
ina eða horfa á mjaltir meðan notið
er veitinga. Ekki síst fyrir borgar-
börn er ákaflega fræðandi og merki-
leg upplifun að koma hér. Nokkuð er
um að ferðafólk í Mývatnssveit noti
sér þessa afþreyingu og kynnist ný-
tísku kúabúi og aðbúnaði íslensku
kýrinnar sem hefur verið þjóðinni
samferða allt frá landnámstíð. Voga-
fjós er opið frá 8-10 og 15-22 alla
daga.
Ferðamannafjós rekið á Vogum í Mývatnssveit
Góð aðstaða til að
fylgjast með mjöltum
Morgunblaðið/BFH
Að mjöltum loknum er kúnum hleypt út í sumarið.
Mývatnssveit
DR. GRÉTAR
Þór Eyþórsson
hefur verið ráð-
inn fram-
kvæmdastjóri
Rannsóknastofn-
unar Háskólans á
Akureyri frá og
með 1. ágúst
næstkomandi.
Hann hefur und-
anfarin tvö ár
starfað sem rannsóknastjóri við
stofnunina.
Grétar lauk doktorsprófi í stjórn-
málafræði frá Háskólanum í Gauta-
borg í Svíþjóð árið 1999 og fjallaði
doktorsritgerð hans um sameiningu
sveitarfélaga. Verkefni RHA hafa
undanfarin misseri í auknum mæli
snúist um sveitarstjórnarmál, auk
samgöngumála og mats á sam-
félagslegum umhverfisáhrifum stór-
framkvæmda.
Meðal annars er unnið að stórri
úttekt á áhrifum og afleiðingum
sameiningar sveitarfélaga og er
verkið kostað af Félagsmálaráðu-
neytinu. Niðurstöður verða kunn-
gjörðar í desemberbyrjun.
Rannsóknastofnun
Háskólans á Akureyri
Grétar Þór
Eyþórsson
ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Grétar Þór
Eyþórsson
UNG kona hefur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra verið dæmd í 14 mánaða fangelsi fyrir
þjófnað og fjárdrátt. Frestað er fullnustu 11
mánaða af refsingunni og mun hún niður falla
haldi konan almennt skilorð. Konan var ákærð
fyrir að hafa dregið sér peninga að upphæð
um 6 milljónir króna úr sölukassa í verslun
Hagkaups á Akureyri. Þá var hún einnig
ákærð fyrir að hafa stolið 15-20 þúsund krón-
um úr afgreiðslukassa í sjoppu verslunarinn-
ar. Konan var afgreiðslumaður í versluninni,
en fjárdrátturinn átti sér stað á tímabilinu 17.
febrúar 1999 til 16. október sama ár.
Konan viðurkenndi að hafa stolið peningum
úr sjoppu verslunarinnar. Þá bar konan að
fyrst eftir að hún var flutt á almennan kassi
hafi hún ekki dregið sér fé, en eftir um það bil
tveggja mánaða starf hafi hún fundið lykil sem
notaður er við skil á vörum, bakfærslur og
fleira. Lykilinn hafi hún notað til að gera bak-
færslur og taka peninga úr kassanum. Hún
kvaðst ekki geta sagt til um hversu mikið hún
hefði tekið né hvaða daga, en hins vegar væri
fráleitt að hún hefði tekið 6 milljónir. Í grein-
argerð rannsóknarlögreglu um ætlaðan fjár-
drátt konunnar kemur fram að hún hafi dregið
sér fé að upphæð um 570 og upp í 930 þúsund
krónur á mánuði á tímabilinu. Minnst í febrú-
ar er athæfið hófst eða um 163 þúsund krónur
og 475 þúsund krónur í október þegar upp
komst.
Fyrir dómi upplýsti konan að hún hefði not-
að mikið af fjármunum þeim sem hún dró sér
til kaupa á áfengi, e-töflum, zorro-töflum, sem
og til skemmtana af ýmsu tagi.
Dómnum þótti með vísan til framlagðra
gagna, afgreiðslumannauppgjöra, framburði
vitna og greinargerðar rannsóknarlögreglu að
konan hefði bakfært um 6 milljónir króna á
umræddu tímabili og að engin skynsamleg rök
væru til að vefengja að konan hefði gert um-
ræddar bakfærslur.
Við ákvörðun refsingar var tekið mið af því
að brot konunnar var stórfellt og stóð yfir í
alllangan tíma. Eftir atvikum og með hliðsjón
af ungum aldri, en konan var rétt rúmlega tví-
tug þegar brotin áttu sér stað, þótti rétt að
skilorðsbinda 11 mánuði af refsingunni.
Ung kona dæmd fyrir þjófnað í Héraðsdómi Norðurlands eystra
Dró sér um 6 milljónir
króna í verslun Hagkaups
19. júlí kl. 21.30 – Tuborgjazz –
Heitur fimmtudagur í Deiglunni.
Kvintettinn Jump Monk. Saxófón-
ar: Haukur Gröndal og Ólafur
Jónsson.
Píanó: Davíð Þór. Bassi: Tómas
R. Trommur: Matthías Hemstock.
Aðgangseyrir 500 kr.-
20. júlí kl. 20.30 – Ljóðakvöld í
Davíðshúsi. Dagskrá úr Davíðsljóð-
um: Mælt fyrir munn kvenna.
21. júlí kl. 16.00 –
Opnun myndlistarsýningarinnar
„Allt sem sýnist“ í Deiglunni. Út-
skriftarnemendur frá AKI listahá-
skóla í Enschede í Hollandi. Stend-
ur til 5. ágúst.
22. júlí kl. 17.00 –
Sumartónleikar í Akureyrar-
kirkju. Björn Steinar Sólbergsson
organisti, Hulda Björk Garðars-
dóttir sópran og Sigrún Arna Arn-
grímsdóttir mezzósópran.
Á efnisskrá verða verk eftir Ey-
þór Stefánsson, Jón Hlöðver Ás-
kelsson, Atla Heimi Sveinsson, Jón
Leifs, Jehan Alain og Gabriel
Fauré.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
22. júlí verður einnig starfsdagur
í Laufási.
26. júlí kl. 21.30 – Tuborgjazz –
Heitur fimmtudagur í Deiglunni.
Kvintett Kristjönu Stefánsdóttur.
Aðgangseyrir 500 kr.-
Myndlistarsýningar
í Ketilhúsinu
Elena Koskimies sýnir á svölum
Ketilhússins og nemendur úr LHÍ
sýna í stóra salnum og á jarðhæð.
Kompan listagallerí á vinnustofu
Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur. Sýn-
ing Gústafs Bollasonar.
Café Karólína. Jonna sýnir 35
mósaíkspegla.
Samlagið-Listhús. Gluggasýning
Höddu.
Safnasafnið á Svalbarðsströnd.
Auk fastra sýninga sýnir Margrét
Jónsdóttir keramiklistakona spila-
dósir.
Listasafnið. Akureyri í myndlist,
stendur til 29. júlí.
Listasumar
ÞRIÐJU Sumartónleikar í Akureyr-
arkirkju verða haldnir sunnudaginn
22. júlí kl. 17 og verða flytjendur að
þessu sinni Eyfirðingur og Akureyr-
ingar, þ.e. þau Hulda Björk Garð-
arsdóttir, sópran, Sigrún Arna Arn-
grímsdóttir, messósópran, og Björn
Steinar Sólbergsson, orgelleikari.
Á efnisskrá eru verk eftir Eyþór
Stefánsson, Jón Hlöðver Áskelsson,
Atla Heimi Sveinsson, Jón Leifs,
Jehan Alain og Gabriel Fauré. Að-
gangur er ókeypis og allir velkomn-
ir.
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju
Hulda Björk, Björn Steinar og Sigrún Arna eru flytjendur á tónleikunum.
Flytjendurnir eru úr
hópi heimamanna