Morgunblaðið - 19.07.2001, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 19.07.2001, Qupperneq 43
 Fleiri minningargreinar um Gunnhildi Ósk Guðmundsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. heimkomu. Guð blessi þig. Kæri Jón, algóður Guð styrki þig og fjölskyldu þína á þessari raunastund. Einar Högnason. Hún Gunnhildur Guðmundsdóttir var vinkona okkar frá fyrstu kynn- um. Á hverju sem gekk og þótt kast- aðist í kekki um stund, þá var hún sönn og einlæg vinkona með fram- rétta hönd og opinn faðm, jafnvel þótt ár og úthaf skildi okkur að um lengri eða skemmri tíma. Hún mætti okkur ætíð brosandi og fagnandi. Þegar við fluttum vestur var hún komin vestur með Jóni Gunnari. Gunnhildur og Jón höfðu verið þar í nokkur ár áður en við fluttum, og orðin heimamenn. Gunnhildur, með sinni glaðværu framkomu, hafði fest sig í sessi í gjör- ólíku umhverfi því sem hún átti að venjast og var alin upp við. Í Reykja- vík hafði hún unnið í einni fínustu vefnaðarvöruverslun í kjarna bæjar- ins við Lækjargötu. Þar mældi hún út „pell og purpura“ og hjálpaði jafnt góðborgurum sem venjulegu alþýðu- fólki að velja sér flauel og silki, og liti sem féllu vel saman, enda alla tíð með afbrigðum smekkleg og útsjón- arsöm. Henni förlaðist ekki flugið, þegar hún var komin í eitt lítið fiskiþorp vestur á fjörðum. Þar bjó hún sér og sínu fólki fallegt heimili enda voru þau hjón samhent um það sem ann- að. Þau eignuðust fjögur mannvæn- leg börn, sem öll voru til fyrirmyndar á unga aldri og í dag vandað fólk og góðir samfélagsþegnar sem sómi er að. Gunnhildur gekk að þeirri vinnu sem bauðst. Þrátt fyrir fjögur lítil börn gat hún skroppið og unnið í fiski eða hverju öðru sem með þurfti og er okkur til efs að hún hafi áður komið nærri fiskvinnu eða öðru sem til féll í smáþorpi. Hún var enginn aukvisi þessi glæsilega unga kona, sem vakti athygli hvar sem hún fór, hvort sem var í margmenni stórborgar erlendis eða í litla þorpinu, sem var heimili hennar í fjölmörg ár; hvort heldur var í ljósbláum frystihússloppnum með hvíta kraganum og skuplu yfir ljósa fallega hárinu sínu, eða glæsi- legum samkvæmiskjól í veislusölum. Gunnhildur var sérlega glaðlynd og stutt var í brosið, sem ævinlega náði til augnanna. Hún hafði lifandi frásagnargáfu og oft var dimmur hlátur hennar sem undirleikur orða hennar, því hún talaði og hló sam- tímis. En að auki hafði hún þann fá- gæta eiginleika að kunna að tala við fólk. Hún gaf sig alla í samtalið, hún hlustaði og gaf viðmælanda sínum alla athygli sína heila og óskipta, augun hvörfluðu ekki til og frá í leit að einhverju öðru, heldur var hún í aðstæðum og augnabliki heil og óskipt. Kannski var það besti eiginleiki og kostur hennar hversu heilsteypt hún var í því, sem hún var að gera hverju sinni, innan eða utan heimilis, með eða fyrir fjölskyldu og vini eða þá samfélaginu til gagns og góðan. Gunnhildur var félagslynd og hafði samfélagslega ábyrgðartilfinn- ingu. Hún var því fljótlega fengin að hvers konar félags- og velferðarmál- um sveitarfélagsins. Hún var dugn- aðarforkur og ósérhlífin í hvaða störfum sem hún vann að. Það er ef til vill útjaskað orðatiltæki að segja, „hún mátti ekkert aumt sjá“, en við eigum ekki betri orð er lýsi hjarta- lagi hennar. Góð kona hefur lokið göngu sinni hér á jörð en minning hennar mun vaka og lifa hjá þeim sem nutu sam- fylgdar hennar. Gunnhildur og Jón var hugtak þarna fyrir vestan, svo samhent voru þau að oftast voru þau nefnd í sömu mund. Svo samhent voru þau í orðsins fyllstu merkingu að þau leiddust hönd í hönd síðustu stundina þeirra saman hér á jörð. Alls staðar er Guð nálægur, hann var nálægur við dánarbeð Gunnhild- ar, þannig hugsar hann um mig og þig og Gunnhildi, eins og enginn ann- ar væri til. Hann heyrir bænir allra samtímis hvar sem þeir biðja og hvar sem þeir eru staddir á jarðarkúlunni. Þetta er dularfullt og óskiljanlegt, en þetta reyndi Jesús að gera okkur ljóst með fjölmörgum dæmisögum og líkingum, sem allir skildu þá og hafa skilið allt til þessa dags. Um ald- ir hafa skáld tjáð sig um Guð, og í bókinni Sálmar á atómöld segir Matthías Jóhannessen: „Guð er sá dómari, sem ekki verð- ur hrópaður út af leikvelli, hann er sá einn, sem ekki þarf að sýna sig í sjón- varpi, hann er sá, sem við förum með líkt og ungbörn með pelann sinn.“ Fjölskylda okkar sendir öllum að- standendum innilegar samúðar- kveðjur og biður góðan Guð að blessa minningar um góða konu. Guð geymi ykkur öll. Sigurveig Georgsdóttir, Lárus Þorv. Guðmundsson. Kringum okkur sveimar sorgin svörtum vængjum á, skilur eftir skúradrög og skugga á brá. Stund hver finnst oss löng, er hún staðnæmist oss hjá. Andlát Gunnhildar bar að afar skjótt og óvænt. Þegar slíkt gerist er maður minntur á hve lífið er hverfult og hve stundirnar sem við eigum saman eru dýrmætar. Með Gunn- hildi er gengin afar mæt kona. Hún var dugnaðarforkur sem víða tók til hendi og lagði lið. Eftir 27 ára búsetu á Flateyri fluttust þau hjónin, ásamt fimm myndarlegum börnum sínum, til Grindavíkur þar sem Jón Gunnar tók við bæjarstjóraembætti sem hann átti eftir að gegna í fjórtán ár. Hún varð strax afar virk í öllu félags- starfi í Grindavík. Fljótt varð hún einn af ötulustu stuðningsmönnum körfuknattleiksdeildarinnar og ann- aðist lengi sjoppu sem rekin var til fjáröflunar fyrir liðið af ótrúlegum krafti. Hún mætti á alla leiki til að hvetja liðið og var þá ævinlega í gulri treyju og með Biblíuna sína í fartesk- inu. Upphaf þeirrar venju var þannig að Gunnhildur hafði verið í Kven- félagsmessu í kirkjunni þar sem hún hafði lesið texta úr Biblíunni og fór hún beint þaðan, með Biblíuna í tösk- unni, til að horfa á liðið leika mik- ilvægan og erfiðan leik. Liðið hennar sigraði í leiknum og eftir það varð Biblían hennar ómissandi þegar liðið var að keppa. Við komuna til Grindavíkur gekk Gunnhildur strax í Kvenfélagið og þar starfaði hún af sama fítonskrafti og ávallt þegar hún tók að sér verk. Hún var formaður þess félags 1992 til 1998. Sem formaður kemur hún inn í starf KSGK (Kvenfélagasam- bands Gullbringu- og Kjósarsýslu) en það er samband ellefu kvenfélaga í sýslunni. Árið 1995 er hún kosin í varastjórn og 1997 í aðalstjórnina, fyrst sem meðstjórnandi en frá því í fyrravor hefur hún verið gjaldkeri. Fljótlega eftir að Gunnhildur kom í stjórnina sameinuðust aðildarfélög sambandsins í að láta hanna og smíða merki undir nafninu „Gleym ei mér“ og var ákveðið að söluandvirðinu skyldi varið til að styrkja byggingu hins nýja barnaspítala við Hring- braut. Gunnhildi var það mikið hjart- ans mál að aðstaða þar yrði sem best því henni rann til rifja að sjá þrengsl- in og aðstöðuleysið sem barnaspítal- inn hefur mátt búa við undanfarin ár. Hún var ótrúlega drjúg í merkjasöl- unni og notaði hvert tækifæri til að selja merki og hvetja aðra til dáða í þeim efnum. Söfnunarsjóðurinn „Gleym mér ei“ stendur nú í tæplega 4 milljónum króna. Gunnhildur var fjörug og skemmtileg. Hún þekkti marga og fylgdist alltaf vel með hvað var að gerast í samfélaginu. Hún hafði næmt auga fyrir fallegum hlutum og fötum og var ævinlega smart klædd og vel til höfð. Í vor, þegar barna- barn hennar var að fara að útskrifast sem stúdent, bað stúdínan unga ömmu sína að koma með sér í bæinn til að velja með sér útskriftarfötin. Það eru örugglega ekki margar ömmur í slíku hlutverki. Fyrst og síðast var Gunnhildur húsmóðir en húsmóðurhlutverkið rækti hún af sama krafti og ávallt einkenndi hana og bar heimili henn- ar þess glöggt vitni. Hún lét sér afar annt um manninn sinn og börnin sín, tengdabörn og barnabörn og var mikil mamma og amma. Öllum ást- vinum hennar votta ég innilega sam- úð. Fyrir hönd KSGK vil ég þakka henni allt hennar góða starf og skemmtilegu samverustundirnar, megi Guð blessa minningu hennar. Sælustundir svífa létt á sólskinsvængjum hjá. Eftir þeim vér mænum með angurblíðri þrá. Minning þeirra’ er auðlegð, sem aldrei glatast má. (Guðfinna Þorsteinsdóttir (Erla).) Ása St. Atladóttir, formaður KSGK. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Gunnhildur, hafðu mína þökk fyrir gengin ár. Ég og fjöl- skylda mín sendum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Erla Delberts. Gunnhildur Guðmundsdóttir er látin og verður jarðsungin í dag frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði. Mig langar til að minnast Gunn- hildar með nokkrum orðum. Hún var sérstæð kona fyrir margra hluta sak- ir, glaðvær kona og skemmtileg og virtist hafa óþrjótandi orku til að vinna umhverfi sínu og samfélagi allt sem hún mátti. Gunnhildur flutti til Flateyrar sem ung kona ásamt manni sínum, Jóni Gunnari Stefánssyni, og þau hjón bjuggu hér um aldarfjórðungs skeið. Gunnhildur var Reykjavíkurstúlka; henni fylgdi nýr og framandi and- blær inn í litla sjávarbyggð. Ég var heimagangur hjá þeim hjónum um árabil og frá þeim tíma á ég margar góðar minningar. Ég held að Gunnhildur hafi starfað sleitu- laust í flestum félagasamtökum á Flateyri meðan hún bjó hér. Fyrst minnist ég hennar í fylkingarbroddi félagskvenna í kvenfélaginu Brynju. Þá vantaði leikvöll fyrir krakkana í þorpinu. Gunnhildur gekk að því uppbyggingarstarfi með oddi og egg. Og leikvöllur varð til! Gunnhildur sá líka um rekstur hans árum saman. Gunnhildur er mér þó líklega eftir- minnilegust í starfinu fyrir Leikfélag Flateyrar, en þar var hún að sjálf- sögðu aðaldrifkrafturinn. Í þá daga var mikið fyrirtæki að ferðast með leikflokk milli byggða á Vestfjörðum að vetrarlagi, en oftast var ferðast með skipum og hljóp landhelgisgæsl- an þá oft undir bagga. Það var samt ótrúleg fyrirhöfn þessu samfara, en Gunnhildur skipulagði allt og stjórn- aði öllu. Mér finnst eins og hún hafi verið best í essinu sínu þegar erf- iðleikarnir virtust vera mestir og flóknastir. En allt gekk þetta upp með glæsibrag. Það sem Gunnhildur tók sér fyrir hendur var raunar allt milli himins og jarðar. Allt umhverfið var starfsvettvangur hennar. Hvar sem hún kom auga á verk sem þurfti að vinna gekk hún sjálf fram með sinni alkunnu elju og linnti ekki fyrr en verki var lokið. Aldrei held ég að hún hafi hugleitt eitt augnablik hvort hún uppskæri þakklæti fyrir störf sín. Þetta virtist vera henni eðlis- lægt. Svona var hún. Fyrir nokkrum vikum hitti ég Gunnhildi vestur á Patreksfirði. Þar voru margir góðir vinir samankomn- ir og glatt á hjalla: Jón Gunnar átti afmæli. Gunnhildur var kát og glöð að vanda. Svo lauk lífi hennar skyndi- lega – þessu starfsama og skemmti- lega lífi. Við Sigrún sendum Jóni Gunnari og börnum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur um leið og við minnumst Gunnhildar með virðingu og þökk. Einar Oddur Kristjánsson, Sólbakka, Flateyri. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 43                                  ! "      "  #  $   % $$ &          '           ! "" #$%&&%!!'   !!' ($!"! ""     #$%&! "" & ) #$%&! "" (! !  ! ""* ( )             + , - .& "%/      *  +   &! %"&&  & ! "" $  &%/!& "" $  !!' "% $ !& "" "% #01"2 &  !!' + &"3!& !' 4'&$ &!  ! "" '   * ( )            ,  5 6748   59%/ &&#:; /         -, '         . $$ 5%&  !!' 4 " ) 5%& !'  < 5%& !' # + 5%& !' $ & 5%& ""  $!)'%&!!'  1"*< $ & 5%& "" )   <* !!' % (* !!' )'%&&5* $!!'   $!<* $!!' 4'&$  $! ""* ( )           #   67 -.   ' !"=; %/        /  0  /    *  +   (!%49 !!' '"(!%!!' # 49 '"!!' !&! %" ! ! "" (!%<  '"!!' % 3   # ! ""* ( )               5.0   5  !"%/   "   .        1  *#   %   . .$ ($!" %&&/5 !"% ! "" + &$&!!' % 0% %!% 5%& 2%  5  >& 0% %!%  > %! !!' (! !0% %!% (!%4!" !!' +&# 5 !"% 0% %!% %&#  ! "" 4!" 0% %!% & + ! "" $ 2%>'& " % 2%>'& " 5 !0% %!% "%9 *  $!!'         '        *
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.