Morgunblaðið - 19.07.2001, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001 55
DAGBÓK
Kristján Blöndal var ánægð-
ur þegar hann sá blindan,
enda bar ekki á öðru en að
hann væri í góðum málum í
tveimur spöðum. Kristján
var í suður, en staður og
stund – sumarbrids í Húna-
búð á mánudagskvöldið:
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ 864
♥ ÁD952
♦ 75
♣ 954
Vestur Austur
♠ K ♠ 9753
♥ G8764 ♥ 3
♦ 93 ♦ ÁK10864
♣ ÁD1086 ♣ 72
Suður
♠ ÁDG102
♥ K10
♦ DG2
♣ KG3
Félagi Kristjáns í norður
var Hjördís Sigurjóndsóttir,
en í AV sátu Sigurleifur
Guðjónsson og Guðlaugur
Sveinsson, báðir gamal-
reyndir tvímenningsrefir.
Vestur Norður Austur Suður
Guðlaugur Hjördís Sigurleifur Kristján
1 hjarta Pass 2 tíglar 2 spaðar
Pass Pass Pass
Sagnir fóru af stað með
krafi, en lyppuðust síðan
óvænt niður í tveimur spöð-
um Kristjáns. Útspil Guð-
laugs var tígull og Kristjáni
leist bara vel á horfur sínar
þegar Hjördís lagði upp
blindan. Vörnin átti greini-
lega tvo slagi á tígul og einn
á laufás. Kristján var
kannski til viðræðu um að
gefa slag á tromp og annan á
lauf, en hann hugðist ekki
láta vörninni eftir meira en
fimm slagi. Það væri há-
mark.
En Kristján hafði ekkert
um málið að segja. Sigurleif-
ur tók fyrsta slaginn á tíg-
ulkóng og spilaði laufi á gosa
og drottningu. Guðlaugur
spilaði tígli í þriðja slag og
fékk aftur lauf til baka.
Hann tók tvo slagi í viðbót á
laufið og Sigurleifur henti
hjartaþristi. Þá kom hjarta
frá Guðlaugi, sem Sigurleif-
ur trompaði og spilaði tígli!
Guðlaugur stakk með stök-
um kóng og gaf Sigurleifi
aðra stungu í hjarta. Þrír
niður!
Kristján var í hlutverki
áhorfandans átta fyrstu
slagina, en gat þó lagt upp í
lokin og heimtað restina á
ÁDG10x í trompi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
LJÓÐABROT
LAGT Á MUNN HELGU
Sæl væra ek,
ef sjá mættak
Aðalþegnshóla
ok Öndvertnes,
Búrfell, Bala,
báða Lóndranga,
Heiðarkollu
ok Hreggnasa,
Dritvíkrmöl
fyrir dyrum fóstra.
Braut vil ek bráðla leita,
brestr eigi stríð í flestu
mér fyrir menjarýri,
mun ek dálega kálast,
því at auðspenni unnak
alteit sefa heitum.
Sorg má ek sízt því byrgja
(sit ek ein) trega greinum.
Þormóður prestur Ólafsson.
Árnað heilla
80ÁRA afmæli. Á morg-un, föstudaginn 20.
júlí, verður áttræður Haga-
lín J. Guðmundsson, fyrrv.
bóndi í Innri-Hjarðardal,
Önundarfirði, nú í Voga-
tungu 33a, Kópavogi. Af því
tilefni tekur hann á móti
ættingjum og vinum í Gull-
smára 13 á afmælisdaginn
milli kl. 16-19.
60ÁRA afmæli. Á morg-un föstudaginn 20.
júlí verður sextug Kristjana
Guðmundína Jóhannesdótt-
ir, Melabraut 23, Hafnar-
firði. Af því tilefni taka hún
og eiginmaður hennar,
Hjalti Einarsson, á móti
ættingjum og vinum á af-
mælisdaginn milli kl. 18 og
21 í Veitingahúsinu Gaflin-
um, Dalshrauni 13, Hafnar-
firði.
Snertilinsur
- fyrir hjólreiðamenn -
6 linsur í pakka,
prófun, meðferðarkennsla,
vökvi og box.
frá 7.500.- kr.
sólgleraugu fylgja með! sími 551 1945
Tilboð
Barnamyndatökur verð frá
kr. 5.000
Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207.
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020.
Þú mátt ekki missa
af þessu tækifæri
Aðeins tvö verð í gangi
500 og 1.000 kr. metrinn
Laugavegi 101, sími 552 1260
Kringlunni, sími 553 2888
Útsalan
heldur áfram
Allir Gabor skór með 40% afslætti
GULLBRÚÐKAUP. Í dag fimmtudaginn 19. júlí eiga 50 ára
hjúskaparafmæli hjónin Bjarney Ágústa Skúladóttir og
Kjartan T. Ólafsson, Vallholti 39, Selfossi. Þau dveljast nú í
sumarhúsi í Strandasýslu.
Á EM einstaklinga í Ohrid
í Makedóníu var mikið af
grófum fingurbrjótum.
Skýringarnar á þeim geta
byggst á nýju tímamörkum
FIDE en sumir þeirra eru
með öllu óskiljanleg-
ir. Staðan er dæmi
um slíkt en hún kom
upp í skák tveggja
mjög sterkra stór-
meistara. Rússinn
Konstantin Sakaev
(2637) hafði hvítt
gegn Búlgaranum
Alexander Delchev
(2584). 9.Bxb5+! Að
sjálfsögðu! Biskup-
inn er friðhelgur
sökum mátsins á d8.
Svartur reyndi
9...Rc6 en eftir
10.Re5 sá hann sæng sína
útbreidda og gafst upp
enda fátt til varnar eftir
10...Dc7 11.Da4. Skákin
tefldist í heild sinni: 1.d4
Rf6 2.Rf3 c5 3.d5 b5 4.Bg5
Da5+ 5.c3 Re4 6.Bh4 Bb7
7.e3 e6 8.dxe6 dxe6??
o.s.frv. Búlgarinn sýndi
mikinn karakter eftir þessa
útreið og tókst í bráðabana
að tryggja sér sæti á næsta
heimsmeistaramóti FIDE.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbarn dagsins:
Þótt ókunnugum kunni að
sýnast þú hrjúfur, þekkja
vinir þínir þann ljúfling sem
þú ert innst inni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þótt nauðsynlegt sé að kanna
sem flestar hliðar mála,
máttu ekki láta smáatriðin
byrgja þér sýn. Á einhverjum
tímapunkti verður að taka af
skarið.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er engin ástæða til þess
að leyna tilfinningunum, því
þú átt ekki að láta stjórnast af
öðrum. Mundu bara að kurt-
eisi kostar ekkert.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þótt efnisleg gæði séu nauð-
synleg máttu ekki festa svo
sjónir á þeim að þú sjáir ekki
fegurðina og gleðina í andleg-
um verðmætum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Skýrðu frá fyrirætlunum þín-
um, því þeim verður vel tekið
af vandamönnum, vinum og
vinnufélögum. Berðu höfuðið
hátt og vertu hvergi smeyk-
ur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú átt ekki að sitja á hugs-
unum þínum. Láttu þær
flakka á kurteisum og tillits-
sömum nótum og viðbrögðin
munu koma þér skemmtilega
á óvart.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Sumum hentar að flögra milli
fólks eins og fiðrildi. Það er
samt ekki þitt rétta eðli svo
þú skalt ekki blekkja sjálfan
þig hvað þetta varðar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Gættu þess að gefa ekki öðr-
um höggstað á þér. Haltu ró
þinni, þótt eitt og annað gangi
á í kringum þig. Þolinmæði
þrautir vinnur allar.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Slakaðu á taumunum því ann-
ars áttu á hættu að mæta
tómri kergju og hrekkjum.
Þótt þú vitir allt best verður
þú að leyfa öðrum að lifa sínu
lífi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þótt öðrum lítist hreint ekki á
fyrirætlanir þínar, máttu
ekki láta það draga úr þér
kjarkinn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er óþarfi að taka allt per-
sónulega sem sagt er í hita
leiksins. Farðu þér hægt í
viðbrögðum, þótt aðrir bregð-
ist hikstalaust við af hörku.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Nú þegar þú stendur frammi
fyrir því að taka líf þitt nýjum
tökum er mikilvægt að horfa
á heildina og láta ekki eitt at-
riði ráða ferðinni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þótt gaman sé að fljúga er
nauðsynlegt að hafa báða
fætur á jörðinni, þegar kemur
til þess að ráða fram úr
vandamálum dagsins.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Samþykki
afmælisbarns þarf að fylgja
afmælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar
kl. 12–12.30. Hulda Guðrún Geirs-
dóttir, sópran og Douglas A.
Brotchie orgel.
Háteigskirkja. Taize-messa kl. 21.
Þangað sækir maður frið og kyrrð,
staldrar við í asa lífsins, tekur and-
artak frá til þess að eiga stund með
guði. Lifandi ljós og reykelsi bjóða
mann velkominn. Tónlistin fallin til
að leiða mann í íhugun og bæn. Allir
velkomnir.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir
ung börn og foreldra þeirra kl. 10–
12 í Vonarhöfn, Strandbergi. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í Vonarhöfn,
Strandbergi, kl. 17–18.30.
Vídalínskirkja. Nú er biblíu- og
fræðsluhópurinn hættur fram á
haust en bæna- og kyrrðarstundirn-
ar verða áfram í sumar kl. 22 í Vída-
línskirkju. Hressing á eftir.
Hallgrímskirkja.