Vísir - 20.07.1979, Page 7
VÍSIR
Föstudagur 20. júll 1979.
Umsjón:
Gylfi Kristjánsson
Kjartan L.
Brltlsh Open í goill:
Nickaus
A eftir þessum koma Tom Wat-
son. Bandaríkjunum á 140 högg-
um, Dennis Clark, Nýja Sjálandi
og JackNicklaus Bandarikjunum
á 141 höggi og siöan Graham
Marsh — bróðir gamla knatt-
spyrnukappans Rodney Marsh
frá Manchester City — en hann
var á 143 höggum...
klP Valsmenn fögnuöu tvivegis mikiö á Laugardalsvelli I gærkvöldi enda hafa þeir nú tryggt sér rétt til aö
^mmmmmm leika i undanúrslitum Bikarkeppni KSt.
Framlenglngln færöl
vaismönnum 2 mörk
- og KR-ingar eru bar meö úr leik (Bikarkeppni Knattspyrnusambandsins
eitlr 2:0 öslgur gegn íslandsmeisturum vais
Hætla
meö
bununa
Sænskir sérfræðingar
vinna nú að þvi að finna upp
nýjar leiðir til að rannsaka
misnotkun á „anabole
steroider” en efni það er á
bannlista yfir „meðöl” sem
Iþróttafólk notar.
Til þessa hefur orðið að
taka þvagprufur af iþrótta-
fólki til að kannahvort það
hafi neytt lyfjanna eða ekki.
Hefur viljað bregða við að
mikill ti'mi fan i það, að
„biðaeftir bununni” ogsum-
ir orðið að drekka, marga
litra af gosdrykkjum eða
öðru til að geta gefið
smá-sýnishorn.
Það sem sérfræðingarnir
sænsku hafa komið fram
með, er að finna megi söku-
dólgana með þvi að rann-
saka með sérstökum hætti
hár af likama þeirra.
Segja þeir að það gefi
sömu útkomu og þvagpruf-
urnar — en það taki aftur á
móti helmingi styttri tima að
ná i eitt hár og rannsaka það
en að standa i öllu stima-
brakinu með bununa. . .
— klp —
Bill Longmuir frá Bretlandi,
sem hafði forustu eftir fyrsta
daginn, hrapaði niður i 3. sæti I
gær, erhann lék á 74 höggum. Er
hann á samtals 139 höggum, en i
2.sæti —á 138 höggum — er Spán-
verjinn Severiano Ballesteros, en
hann lék 18 holurnar í gær á 65
höggum.
Það var heldur betur fariö að
draga af sumum leikmanna KR
og Vals þegar komið var út i
framlengingu i leik liðanna i
8-liða úrslitum Bikarkeppni
Knattspyrnusambandsins í gær-
kvöldi. Ekkert mark var skorað á
venjulegum leiktima, en i fram-
lengingunni skoraði Valur tviveg-
is, og Valsmenn eru þvi komnir I
4-liða úrslit.
Það var strax á fyrstu minútu
framlendingarinnar sem Vals-
menn komust yfir. Hálfdán
örlygsson hafði þá fisklað horn-
spyrnu sem Guðmundur Þor-
björnsson framkvæmdi vel, beint
áhöfuð Inga Björns Albertssonar
sem var gjörsamlega óvaldaður
og hann skoraði gott skaDamark.
Stuttu siðar skaut Ingi Björn yf-
ir af markteig úr góöu færi, en á
12. minútu framlengingarinnar
tókst betur til hjá Valsmönnum.
Þá átti Guðmundur Þorbjörnsson
mjög góða sendingu inn á miðj-
una til Atla Eðvaldssonar sem
skoraöi með skalla eftir aö hafa
lyft boltanum yfir varnarmenn
KR-inga. Magnús Guðmundsson
var kominn út Ur markinu ein-
hverra hluta vegna og má segja
að þar hafi hann gert sín einu
mistök i leiknum.
Þaösem eftir var leiksins lögðu
leikmenn Vals áherslu á að halda
fengnum hlut, og KR-ingarnir
voru sannast sagna orðnir of
þreyttir til að geta sótt af krafti.
I fyrri hálfleik leiksins voru
KR-ingar frekar i vörn framan af,
en Valsmenn fengu ekki hættuleg
tækifæri. Þegar leið á hálfleikinn
komu KR-ingar mun meira inn i
leikinn, en það var sama sagan,
þeim tókst ekki að skapa hættu
við mark Vals.
Valsmenn vorusterkari aöiiinn
i si"ðari hálfleiknum sem var á
köflum hressilega leikinn, en bar
þess þó greinilega merki að mikið
var i húfi og ekki var teflt á tæp-
asta vað.
Segja má að sigur Vals hafi ver-
ið sanngjarn, liðið lék á köflum
þokkalega knattspyrnu, en bestu
menn liðsins voru þeir Hálfdán
örlygsson, Guðmundur Þor-
björnsson og þeir Grimur
Sæmundsson og Sævar Jónsson.
KR-ingarnir tóku góðar rispur i
þessum leik oghöfðu þá i fullu tré
við Vaismennina, en það vantaði
allan brodd i sóknarleik liðsins.
Er greinilega bagalegt að Jón
Oddsson skuli vera meiddur um
þessar mundir. Bestu menn KR
voru Börkur Ingvason, Sigurður
Pétursson og Magnús Guðmunds-
son, markvörður.
Það er oft skrifað um að hinn
eða þessi leikmaður leiki rudda-
lega, og hefur Guöjón Hilmarsson
KR-ingur oftar en einu sinni feng-
ið það á sig. 1 gærkvöldi sýndi
Guðjón hinsvegar að grunnt er á
hinum sanna iþróttaanda. Hann
sjálfur lék alla framlenginguna
draghaltur, og undir lokin þegar
Hálfdán örlygssonlá afveltameð
sinadrátt i fæti staulaöist Guðjón
til hans og aðstoðaöi. Hlaut hann
verðskuldað lófaklapp áhorfenda
fýrir.
Dómari Grétar Norðfjörð og
hafði góð tök á leiknum. gk-.
Vlldl endilega iðna
Júgóslavanum boltann
- pegar sá siðarnefndl húi skolhrfð með rlflll eillr
Knaltspyrnulelk I Noregi
Þaðgetur stundum verið heitt i
kolunum i knattspyrnunni. Það
þekkjum við vel hér á landi, en
við erum samt hreinir aiglar i
samanburði viðþásem búaá suð-
lægari slóðum.
Norðmenn eru á sama báti og
við hvað þetta varðar, en þó leist
þeim ekki á blikuna er þeir fréttu
af þvi að til skotbardaga hefði
komið eftir leik i 6. deildinni þar.
Var það hjá liðinu Inter i
Kristiansand, en það var stofnað i
fyrra og er að mestu skipað er-
lendum verkamönnum sem
starfa i Kristiansand. Verður oft
heitt i kolunum á milli þeirra, en
þó aldrei einsog eftirþennan leik.
Upphafið var að hægri bak-
vörðurinn, sem er Pakistani,
æílaði að halda heim i bil slnum
með boltann, sem notaður hafði
verið I leiknum, enda var hann
hans eign. Það vildi vinstri út-
herjinn, sem er Júgóslavi, ekki
samþykkja. Vildi hann fá boltann
þvi að hann og nokkrir félagar
hans ætluðu aö leika sér aðeins
eftir leikinn.
Upphófsthið mesta orðaskak út
af þessu, og endaði það með þvi
að Júgóslavinn sótti riffil inn i
sinn eigin bil og hótaði að skjóta
Pakistanann, ef hann kæmi ekki
meðboltann. Sá var ekkert bang-
inn við byssuna, en þó runnu á
hann tvær grimur er sá júgó-
slavneski sendi tvö skot I gegnum
rúðuna á bilnum hans og smugu
þau rétt við eyrun á Pakistanan-
um.
Þaut haún þá út úr bllnum með
boltann, og vildi nú endilega
lána Júgóslavanum hann. Til
þess kom þó ekki, þvi' að
áhorfendur að leiknum — og skot-
hriðinni — höfðu yfirbugað hann
og kallað á lögregluna.
Situr nú Júgóslavinn bak viðlás
og slá — dæmdur I 3 mánaða
gæsluvarðhald — og á yfir höfði
sér nokkra ára fangelsi fýrir
morðtilræði... allt út af einum fót-
bolta.. -klp-
enn með I
siagnuml
Sigurvegarinn i US
Opnu keppninni i golfi —
einni af fjórum stærstu
golfkeppnum heims —
Hale Irwin — er með
forustu eftir 36 holur í
British Open keppninni,
sem nú er hálfnuð.
Hann lék 18 holurnar i gær á 68
höggum — þrem undir pari
vallarins — en hann lék einnig
fyrstu 18 holurnar á 68 höggum og
er þvi á samtals 136 höggum þeg-
ar 36 holur eru eftir.