Vísir - 20.07.1979, Page 23
VÍSIR
Föstudagur 20. júli 1979.
útvarp kl. 20.00 - Púkk
Hroilvekjur
Útvarpshúsið við Skúlagötu.
Hlustendakönn-
un úlvarpslns
„Þátturinn mun fjalla
um hrollvekjur og hina
svokölluðu hryllings-
menningu” sagði Sigrún
Valbergsdóttir i samtali
við Visi.
„Viö f órum i bió og sáum hryll-
ingsmynd. Viö röbbuöum slöan
viö nokkra sem séö höföu mynd-
ina. Sumir sáu hana ekki heldur
héldu fyrir augun.”
Einnig veröur sagt nokkuö frá
söguhrollvekjunnar og spiluö lög
tengd efnínu, lög eins og „Baby
Frankenstein”, „The Monster
Mass” og fleiri.
Egill Egilsson mun tala al-
mennt um áhrif þau er hrollvekj-
ur hafa á fólk.
Aö lokum mun Guömundur
Ólafsson lesa hrollvekjusögu eftir
ungan mann, Sverri ólafsson.
Umsjónarmenn þáttarins eru
þau Sigrún Valbergsdóttir og
Karl Ágúst Úlfsson.
Selnnl hlutl
Niöurstööur úr útvarpskönnun
Hagvangs hf., seinni hluta, hafa
nú borist útvarpsdálknum. Send
voruút 365 spurningaeyöublöö. 19
af þeim voru siöan endursend svo
aönettóúrtak var346. Afþvl voru
innsend svör 215 eöa 62,1%.
Hér er um hærri svarprósentu
aö ræöa en i fyrrihlutanum.
Hugsanlegar ástæöur eru einkum
þrjár:
í fyrsta lagi einfaldara spurn-
ingaeyöublaö.
1 ööru lagi var spurt um dag-
skrá sjónvarps samhliöa, og i
þriöja lagi var könnunin kynnt á
markvissan hátt I útvarpinú.
Aldur þeirra sem svöruöu skipt-
ist á grófanhátt þannig aö 18—45
ára voru 61.1%, en 46—75ára voru
28,9%.
Margt athyglisvert er aö finna i
þessari könnun, en hún nær yfir
vikuna 13. til 19. mai.
Útvarpið
Fréttir og fréttatengt efni hafa
langmesta hlustun af öllu efni út-
varpsins. Þannig hafa hádegis-
fréttir hlustunina 65,6% til 72,1%
og kvöldfréttir hlustunina 55,8%
til 62,4%.
Minnsta hlustun hafa tónlistar-
þættir útvarpsins sem eru meö
þyngri tónlist, eöa frá 0,0 til 5,6%.
Þeir tónlistarþættir sem eru
meö léttri tónlist eöa popplögum
standa sig töluvert betur, eöa frá
27 til 31,2%.
Af öörum föstum þáttum út-
varpsins er hlustunin eftirfar-
andi:
Kvöldsagan 9% hlustun, út-
varpssagan 3,5% hlustun, Um
daginn og veginn 32,1% hlustun,
Daglegt mál 36% hlustun, A
hljóöbergi 6,5% hlustun, Svört
tónlist 7,0% hlustun og Afangar
13,5% hlustun, svo eitthvaö sé
nefnt. Af þeim þáttum sem felldir
hafa veriö niöur naut dagskrár-
liöurinn „Þularabb og tónlist”
mjög mikilla vinsælda, eöa 21,4%
til 31,2% hlustunar.
Sjónvarp
Sjónvarpiö veitir útvarpinu
mikla samkeppni og er munurinn
á hlustun á fimmtudögum boriö
saman viöhlustun aöra daga eftir
kl. 8 mjög mikill. Til dæmis ef
reiknaö er meöaltal tveggja
daga, miövikudags og föstudags
er útkoman miövikudaga 5%
hlustun og föstudaga 4,8% hlustun
en sambærileg tala fyrir fimmtu-
daga er 19,4% hlustun.
Af þessum niöurstööum má sjá
aö útvarpiö mætti auka frétta-
tengt efni svo og tónlist af léttara
taginu en minnka eitthvaö þyngri
tónlist. Fi.
útvarp
Föstudagur
20. júli
14.30 Miödegissagan
„Korriró” eftir Asa i Bæ
Höfundur les (5).
15.00 M iðdegistónleikar.
15.40 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veöurfregnir).
16.30 Popphorn: Dóra Jóns-
dóttir kynnir.
17.20 Litli barnatiminn Sig-
riöur Eyþórsdóttir sér um
timann. Kuregej Alexandra
og sonur hennar Ari koma I
heimsókn. Kuregej segir frá
heimalandi sinu Jakútiu og
syngur jakútsk þjóölög og
hún og Ari lesa júkútsk
ævintýri.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar
19.40 Frá tónleikum Tónkórs-
insí Egilsstaðakirkju iapril
1978 Einsöngvarar: Sigrún
Gestsdóttirog JohnSpeight.
20.00 Púkk Sigrún Valbergs-
dóttir og Karl Agúst Úlfsson
sjá um þátt fyrir unglinga.
20.40 Einsöngur I útvarpssal
Guörún Tómasdóttir syngur
lögeftir Pál H. Jónsson frá
Laugum. Ólafur Vignir Al-
bertsson leikur á pianó.
20.50 tslandsmótiö I knatt-
spyrnu Hermann Gunnars-
son lýsir siöari hálfleik KA
og 1A á Laugardalsvelli.
21.45 Út um byggöir — þriðji
þáttur Rætt er viö Gylfa
Magnússon, Ólafsvik Um-
sjónarmaöur: Gunnar
Kristjánsson.
22.05 K völdsagan : „Grand
Babylon hóteliö” eftir Arn-
old Bennett. Þorsteinn
Hannesson les þýöingu sina
(13).
22.30 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Eplamauk Létt spjall
Jónasar Jónassonar meö
lögum á milli.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Fáir vildu finna þennan náunga í stofunni hjá sér.
HVAR FÆR NIAÐUR OLÍUDUFT?
Þá hefur oliunefndin hans
Inga R. Helgasonar lokiö störf-
um og skilað áliti. Getur hann
nú einbeitt kröftum sinum að
störfum i hinni olíunefndinni
sem hann á sæti i. Niðurstöður
fyrri nefndarinnar eru vissu-
lega markverðar og kveikja
ný jar vonir, þótt þær útvegi ekki
nýja oliu til að kveikja undir
kötlum með. Komist er að þeirri
niðurstöðu að eina úrræöið sé að
tryggja sem best aö áframhald
verði á viðskiptunum viö Sovét-
rikin, helst til eilífðamóns. Það
er sem sagt ekki allt i heiminum
hverfult eins og stundum er
haldiðfram af óprúttnum undir-
róðursmönnum. Oliuviðskiptin
viö Sovétrfkin eru fastur punkt-
ur i tQverunni, enda sennilega
nær fyrir rannsóknarblaöa-
menn að kanna hvort ekki
lekj smurningsgreiöslur með-
fram þeirri sölu, heldur en aö
veltast upp úr því hvort ein-
hverjum Gariani I Nigerlu sé
borgaö fyrir að fá landa slna til
að leggja sér skreið til munns.
Þaðsér hver sjálfan sig I þvl, að
ekki er hægt að mæla með þvi
við einn eða neinn að hann éti
nigeriuskreið, nema ef ætt
manns nýtur góös af. En burt-
séð frá þvi, þá verður ekki af
þessari fyrri oliunefnd Inga
skafið, að hún vinnur verk sln
fljótt og vel. Það er ekki auðvelt
verk að komast að þeirri niður-
stöðu að skynsamlegast og best
sé fyrirheila þjóð að kaupa ollu
þaðan sem verðið er hærra en
annars staðar gerist. Og það er
ekkert nema áróður þegar verið
er að blása það út, að verulegur
orkusparnaður hefði falist I að
sleppa að skipa nefndina og fá
þessfstaðskrifstofumann til að
hringja upp i sovéska sendiráöiö
til að komast að sömu niður-
stöðu.
Annars er vonlaust að ræða
oliumál I landinu eftir að virðu-
iegasta blað landsins bræddi úr
sér i þeirri umræðu, og hafði
það þó farið vel og hófsamlega
af stað. Að undanförnu hefur þó
komið fram, að þar sé allt að
komast i jafnvægi svo kannski
verður ollufundarfært á nýjan
leik áður en varir.
Timinn birti I gær merka
greinum orkusparnaöog sparn-
að yfirleitt. Kom þar fram, að
okkar ástsæli slökkviliðsstjóri i
Reykjavik hafi þar gengið á
undan meö góöu fordæmi. Mun
sá háttur til að mynda verða
tekinn upp á slökkvistöðinni að
menn loki huröum á eftir sér og
hafi ekki glugga opna nema
þegar hentar. Með þessu getur
Nú getur IngiR. einbeitt sér að hinni oliunefndinni, sem hann á sæti
I, og slökkviliösstjórinn ástsæli sér svo um að slökkviliösmenn fari
ekki i gufubað nema tvisvar I viku.
borgarsjóður unnið það snjall-
ræöi aö koma rekstrartapi af
slökkvistööinni yfir á Hitaveitu
Iteykjavlkur. Þá hefur slökkvi-
liösstjóri, að sögn Tlmans, á-
kveðið að framvegis fái bruna-
liðsmenn aðeins mjólkurduft i
kaffið en ekki rennandi mjólk.
Þetta ætti að gleðja bændur og
búfélög og aðra sem hömstruðu
mjólkurduft i sföasta verkfalli.
Þá fá brunaveröir ekki að fara I
gufubað nema tvisvar I viku en
voru að sulla i þvi fjórum sinn-
um áður. Ekki var tekið fram I
Tímanum hvort slökkviliðs-
mönnum verður framvegis leyft
að þvo sér hendur eftir þörfum,
en það mun þeim hafa haldist
uppi um skeið. Enda veröur
ekki annaðséö en þeim sé i lófa
lagiö að bregða lúkunum undir
bununa þegar hægist um við
eldha fið.
Að öðru leyti var frétl Tlmans
dæmigerð fyrir ónákvæmina i
fslenskri blaöamennsku. Ekki
var þess getiö hvað brunakallar
brúkuðu að meöaltali marga
sykurmola I kaffiö sem þeir
hafa úðað með rennandi mjólk á
undanförnum árum. Þar skyldi
þó ekki mega spara eitthvað. En
sama dag ogsagt er frá duftinu I
kaffið er verið að finna að þvi
þótt kallaöir hafi verið út 80
menn til slökkva eld sem var i
einu hominu á Bernhöftstorfu.
Það kostaði litla hálfa milljón
og geta menn rétt séð hvernig
farið hefði, ef allt þetta lið heföi
fengið sér mjólk út i kaffið að
unnu afreki. Nei, I duftið skulu
þeir, fyrr erum viö skattborgar-
ar ekki ánægðir.
Svarthöföi.